Morgunblaðið - 25.05.1977, Page 5

Morgunblaðið - 25.05.1977, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 1977 / Slysavamafélag Islands: Dregið í happdrætti félagsins eftir viku Menntaskólinn í Kópavogi brautskráir 44 stúdenta Ingólfur A. Þorkelsson skólameistan atnenair nystudent verðlaun. NÚ er aðeins vika þangað til dregið verður í Happ- drætti Slysavarnafélags ís- Fyrirlestur um gríska sígauna ogtungu þeirra DR. GORDON M. Messing, prófessor í klassískum málum við Cornell-háskóla I Bandarlkjun- um, flytur fyrirlestur I boði heim- spekideildar fimmtudaginn 26. mai 1977, kl. 11.15 f.h. í stofu 423 i Árnagarði. Fyrirlesturinn fjallar um gríska sígauna og tungu þeirra. öllum er heimill aðgangur. lands. Happdrættinu var eins og öðrum slíkum hja félaginu hleypt af stokk- unum til styrktar slysavarna- og björgunar- starfi félagsins og kjörorð er: „Við þörfnumst þín — þú okkar“. Vinningar eru að upphæð rúm- ar 2,4 milljónir króna og allir skattfrjálsir. Aðalvinningurinn er Mazda 818 station-bifreið og auk þess þrjú 22 tommu litsjónvarps- tæki. Dregið verður 1. júní og aðeins úr seldum miðum. Miða má fá hjá Slysavarnafélaginu, slysavarnadeildum um allt land og í happdrættisbílnum i Austur- stræti. MENNTASKÖLANUM I Kópa- vogi var slitið við hátiðlega at- höfn í Kópavogskirkju laugar- daginn 21. mal. Athöfnin hófst kl. 14.00. 44 stúdentar brautskráðust frá skólanum, 32 piltar og 12 stúlkur. Þetta er annar árgangur- inn, sem skólinn brautskráir. Fjölmenni var við athöfnina. Skólameistari, Ingólfur A. Þor- kelsson, flutti skólaslitaræðuna, afhenti stúdentum skírteini sfn og verðlaun fyrir ágætan árangur I einstökum greinum. Skólakór- inn söng undir stjórn Guðna Þ. Guðmundssonar, tónlistakennara. Einn stúdenta, Þorgeir Ólafsson, flutti ávarp og árnaði skólanum ailra heilla. Hæstu einkunnir, sem gefnar voru í skólanum hlutu: Þórunn Guðmundsdóttir 1. bekk B. 9.2 Helga Þorvaldsdóttir 3. bekk E. 9.0 Áslaug Guðmundsdóttir 3. bekk E. 8,8 Sigurður E. H jaltason 3. Bekk E. 8,8 Hæstu einkunn á stúdentsprófi hlaut Kjartan örvar 4. bekk N. 7.8. ari m.a. frá þvi, að byggingar- nefnd skólans hefði unnið að þvi frá áramótum að gera áætlun um framtiðarskipan skólans. Hönn- uður skólans, Benjamín Magnús- son, vinnur með byggingarnefnd að þessu verkefni. Áætlunin verður lögð fyrir menntamála- ráðuneytið í júní-mánuði. Félags- líf var öflugt í skólanum og nem- endur stóðu fyrir leiksýningum i fyrsta skipti s.l. vetur. Lokaorð skólameistara, er hann ávarpaði stúdenta voru þessi: „1 ræðu minni hef ég lagt áherzlu á takmarkað gildi tíman- legra gæða, hinnar svokölluðu velferðar. Við ykkur sem brátt verðið ríkjandi kynslóð á Islandi, eru tengdar miklar vonir um nýtt og sjálfstætt gildismat. Ef tii vill gætu þessi fornu orð Páls postula, skráð í Rómverjabréfinu, verið leiðarljós í ráðvilltum heimi mun- aðarhyggju og firringar: Ekki er guðsriki matur og drykkur heldur friður og réttlæti." 1 ræðu sinni skýrði skólameist- Krummi skoðaður ÚTIVIST verður með tvær kvöldferð- ir f þessari viku. Sú fyrri verður í kvöld. miðvikudag, og verður geng- ið um sunnanvert Álftanes. frá Hliðsnesi til Hafnarfjarðar. Á morg- un, fimmtudag, verður farið að skoða hrafnshreiður f nágrenni Lækjarbotna (Lögbergs). sem er með 6 ungum. Að þvt er segir f fréttatilkynningu frá Útivist þá er gott að komast að hreiðrinu. sem er óvanalegt með hrafnshreiður. Þessi ferð er sérstaklega ætluð börnum og unglingum, sem finnst gaman að skoða hrafninn en að sjálfsögðu eru allir velkomnir f þessar ferðir. segir f fréttinni. Farið verður f báðar ferðirnar frá B.S.Í. vestanverðu kl 20.00. II II Nýi starfskrafturinn í farskrárdeild er sér- staklega íljótur og öruggur, hann vinnur sitt verk af stakri nákvæmni yrðir aldrei á neinn, en svarar á augabragði ef hann er spurður. Hann er ekki í starfsmannafélaginu og hann vantar alveg þetta hlýlega viðmót sem einkennir allt starfsfólk okkar. Þú kynnist honum ekki ”persónulega” þú nýt.ur aðeins afburða hæfi- leika hans. Þessi nýi starfskraftur er Gabríel, rafeinda- heili í tölvumiðstöð í Atlanta í Bandaríkjunum - sem tengdur er við farskrárdeild og allar söluskrifstofur okkar jafnt á íslandi, sem annars staðar í heiminum. Gabríel tekur við öllum bókunum frá sölu- skrifstofum og farskrárdeild og geymir þær upplýsingar, og svarar því samstundis hvort þaó eru laus sæti í þeirri ferð sem þú hefur hug á. Þannig finnur Gabríel alla ferðamöguleika fyrir þig á augabragði - og þegar þú hefur ákveðið þig þá bókar hann þig. Gabríel og sú aukna og bætta þjónusta við farþega sem tilkoma hans hefur haft í för með sér er einn ávinningur af sameiningu okkar. flucfélac L0FTLEIBIR ISLAJVDS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.