Morgunblaðið - 25.05.1977, Síða 7

Morgunblaðið - 25.05.1977, Síða 7
GOOD YCARj YCAR GOOD Oryggi - HJOLBARÐAR ★ GÆÐI ★ STYRKLEIKI ★ ENDING good/ycar GOODpYEAR FYRIR ALLAR VÖRUBIFREIÐAR Hjólbarðaþjónustan, Laugavegi 172, Simi 21245 GOODfYCAR HEKLA HF. ^ Laugavegi170—172 — Simi 21240 VANTAR ÞIG VINMJ VANTAR ÞIG FÓLK ÞU AIGLYSIR LM ALLT LAND ÞEGAR ÞL' ALG- LÝSIR Í MORGLMILAÐINL MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 1977 Saman skroppin Straumsvíkur- ganga Ljóst er aS svonefndir „herstöðvarand- stæSingar" hafa orSiSfyr- ir verulegu áfalti bæSi pólitfsku og sálrænu. vegna lítilla þátttöku I Straumsvlkurgöngu og útifundi á Lækjartorgi. Ganga þessi hefur veriS I undirbúningi I marga mánuSi, á mörgum vlg- stöSvum, og mikil fyrir- höfn og mikill kostnaSur liggur aS baki allra þeirra áróSursbragSa, sem nýtt hafa veriS til aS vekja á henni áhuga og athygli. i miSju kjarastrlSi hvarf launabaráttan af slSum ÞjóSviljans. eSa allt aS þvl, dögum og vikum sam- an. til aS koma aS her- hvötum Straumsvlkur- göngu, bæSi á forsISu og baksISu. meS „margra hæSa" fyrirsögnum og „heimsstyrjaldarletri". FjölritaSir og prentaSir áróSursbæklingar voru bornir I hvert hús I Reykjavfk og öSrum kaup- stöSum á ReykjanessvæS- inu — og slmahringingar skipulagSar. Þrátt fyrir umfangsmeiri undirbún- ing og áróSur en dæmi eru um áSur varS árangur- inn „samanskroppin ganga", enda verSur „oft lltiS úr þvl högginu sem hátt er reitt". Tölur Þjóð- viljans ýktar og ósannar Stytting Keflavfkur- göngu I Straumsvlkur- göngu átti aS laSa fleiri I gönguna. Árangurinn var sem fyrr segir öfugur viS tilganginn, enda hafa færri og færri áhuga á baráttu gegn aSild íslands aS Atlantshafsbandalag- inu. Jafnvel fjölmennustu kommúnistaflokkar V- Evrópu hafa söSlaS yfir I afstöSu sinni til Atlants- hafsbandalagsins, og telja aSild landa sinna aS þvl sjálfsagSa og eSlilega Al- þýSubandalagiS er eitt fárra kommúnistaflokka, sem enn heldur I Moskvu- llnuna varSandi þetta mál. Og þótt reynt sé aS halda þvl fram. aS „herstöSvar- andstæSingar" starfi óflokkspólitlskt. til aS villa um fyrir fólki, segir þaS slna sögu, aS hinir rauSu fánar yfirskyggja þjóSfánann I göngum þessum, og I Straums- vlkurgöngu var borinn fáni meS „hamri og sigS", sem minnti á þjóSfána Sovétrfkjanna. ÞjóSviljinn segir 3000 manns hafa gengiS I göngunni og 7000 manns hafa veriS á útifundinum á Lækjartorgi. Þetta eru barnsleg ósannindi. Dag- blaSiS Tlminn segir, aS 1000 manns hafi gengiS alla leiS frá Straumi, og milli 3—4 þúsund manns hafi veriS saman komin á utifundinum á Lækjar- torgi. Nær lægi mun vera aS fundarmenn hafi veriS innan viS þrjú þúsund. Er þaS margfallt minni þátt- taka en á sl. ári. Óánægjan drýpur úr hverju orði Þeir sem lásu forsíðu- frásögn Þjóðviljans af Straumsvfkurgöngu f gær komust ekki hjá þvf að greina vonbrigðistóninn f fréttinni, enda draup óánægjan úr hverju orði. Greinilegt er, að Þjóðvilj- inn finnur að þessi bægslagangur á engan hljómgrunn hjá þjóðinni. Það, sem Þjóðviljanum þykir einna frásagnar- verðast er, að „göngu- mönnum hafi hvarvetna verið vel tekið" og ekkert „skftkast" hafi mætt þeim á leiðinni! Litlu verður vöggur feg- inn. Umrædd Straums- vfkurganga er eitt mest auglýsta vindhögg f sam- anlagðri axarskaftasmfði róttæklinga f landi okkar. V orsýning MILLI stóru stríðanna gerðist sá atburður í Vínarborg, að góð- kunnur Islendingur brá sér i óperuna til að heyra og sjá Töfraflautuna eftir Mozart. Þetta var mikil stund í hans fyrstu utanferð og hrifning hans einlæg, enda sparaði hann ekki kraftana, þegar klappað var milli atriða. Óperan er full af ljúfum söngvum og þegar nokkuð var liðið á leikinn var sungið lag, sem íslendingar þekkja undir nafninu I dag er glatt í döprum hjörtum. Um leið og lagið endaði spratt Is- lendingurinn upp og hrópaði yfir sig hrifinn: „Bravó, bravó, íslenzkt lag.“ Sagt er að menn þar syðra hafi um stund ruglazt i ríminu, en hann, að fengnum skýringum haft hægt um sig það sem eftir var kvöldsins. Því miður var þessi mæti maður ekki einn um að vita litið um islenzka tónlist, því lítið var fjallað um tónmennt í þá daga. Nú er aðstaða manna önnur og því var einkennilegt að vera viðstaddur og endurlifa þessa ,,bravó“-sögu á vorsýningu Þjóðdansafélags Reykjavíkur 1977. Skemmtunin hófst á íslenzkum dönsum. Kynnir, sem aðstoðaði gesti við lestur efnisskrár, bætti þó um og kallaði þá íslenzka söngdansa. Þjóðdansafélagið ætti að skreppa t.d. til Sviþjóðar með þessa íslenzku söngdansa og væri aldrei að vita nema ein- hver Svíinn hrópaði ,,bravó“. Dansarnir munu flestir vera teknir saman af Helga Valtýs- syni, en hann vann merkilegt brautryðjendastarf á sviði þjóðdansa um og eftir aldamót- in hér á landi. Helga sást yfir þann möguleika, að í íslenzkum þjóðlögum, sem eru frum- stæðustu og elztu lifandi þjóð- lög sem til eru í notkun um allan heim, ásamt hluta af ung- verskum þjóðlögum, væri mögulegt að finna leifar mjög gamalla dansa. I dag er þessu ekki svo farið, þvi nú hafa verið gerðar tilraunir til að endur- lífga þennan forna menningar- arf. Nauðsynlegt er að rann- saka það efni, sem til er í hand- ritum og gömlum bókum, og er það verðugt verkefni fyrir þjóðdansafélag Reykjavíkur, því ekki verður spurt um það hvernig félagarnir hafi dansað rússneskan eða ítalskan dans, heldur hverja islenzka dansa þeir kunni. Um allan heim, allt frá Grænlandi niður til Afríku og jörðina i kring eru starfandi félög, sem bæði vinna að björgun og endursköpun gamalla dansa. Endursköpun gamalla og gleymdra dansa er einn merkilegasti þáttur þessa starfs og má í þvi sambandi benda á, að erlendir dans- höfundar, sem hefðu yfir jafn nákvæmum heimildum að ráða og íslendingar, þættust aldeilis góðir. Heimildir um dans og leiki, sem ritaðir voru um sama leyti og dansbann var á döfinni, eru ekki aðeins nægilega skýrar til að dansmenntað fólk geti byggt upp úr þeim aansa, heldur og merkilegar heimild- ir, sem gætu orðið gagnlegar við rannsóknir á alþýðudans- mennt i Norður-Evröpu á miðöldum. Svo vikið sé aftur til Vor- sýningar Þjóðdansafélags Reykjavikur er rétt að telja upp islenzku söngdansanna. Þú vorgyðjan svífur, eftir L.M. Ibsen; Stóð ég úti i tungs- ljósi, þýzkt þjóðlag; Ég elska yður, norskt þjóðlag; Táp og fjör, sænskt þjóðlag; I Heiðar- dalnum, eftir Hermann Kirchner; Fyrr var oft í koti kátt, eftir Friðrik Bjarnason; Hoffinn, Islenzkt þjóðlag; Laugardagskvöldið á Gili, sænskt lag, og Sjómannaskottis, eftir Inga T. Lárusson. Öll lögin, að undanteknum Sjómannaskottis eftir Inga T. eru að allri gerð hin ódans- legustu, enda voru dansarnir eins og fáránlegt labb, með handapati og stöku hoppi til að undirstrika vitleysuna. Allt eins hefði mátt nota hvaða sálmalag sem er til að dansa eftir án þess að munað hefði nokkru. Fyrr var oft i koti kátt er frábært sönglag og mögulegt að nota það fyrir barnadans. Eini dansinn sem með réttu heitir fslenskur söngdans var Hoffinskvæði og er ástæða til að vekja athygli á því, að til er dans sem varðveizt hefur fram á okkar daga og liklega gamall, því söngtextinn er svipaður og elztu ritaðar gerðir hans. Ekki er ástæða til að fjölyrða um þessa sýningu frekar, en með henni hefur Þjóðdansa- félag Reykjavíkur vikið sér aftur í þá stöðu, sem ein- kennandi var fyrir aldamóta- kynslóðina, þrátt fyrir gjör- ólíkar aðstæður. Að frádregnu íslenska ,,slysinu“ var skemmtunin i heild ánægjuleg, svo og þátttaka barnanna. Jón Ásgeirssson Sinfóníutónleikar Efnisskrá; Beethoven: Leonore nr. 3 Mozart: Tvær konsertarlur Britten: Ljómanir Ravel: Valsinn Stjórnandi: Karsten Andersen Einsöngvari: Peter Pears Með þessum tónleikum kveð- ur Karsten Andersen sem aðal- stjórnandi Sinfóniuhljómsveit- ar íslands en þvi starfi hefur hann gegnt frá því haustið 1973. Karsten Andersen er mætur tónlistarmaður og hefur unnið islenzkri tónlist mikið gagn. Það er svo í starfi manna eins og hans, að oft er krafizt af þeim meira en í þeirra valdi er að gefa og þeim um kennt, sem er annars sök. Sinfóniuhljóm- sveit íslands er sennilega bæði óþæg og ekki sem bezt undir starf sitt búin og því sem illa fer oftar kennt stjórnanda en þeim sem til sakar hefur unnið. Tónleikarnir hófust á Leonore nr. 3, eftir Beethoven og vel að merkja, það voru hljóðfæraleik- arar i Sínfóníuhljómsveit íslands, sem bæði gerðu vel og illa, i samspili og einleik, hverjar svo sem tiltektir stjórn- andans voru. Mikil og góð Túnllst eftir JÓN ÁSGEIRSSON æfingastjórn er ekki algjör trygging fyrir slysalausum kon- sert og gæði hljómsveitar hljóta að miklu leyti að liggja við getumörk þeirra hljóðfæraleik- ara sem eru lakastir. Það sem sérstaklega gerði þessa tónleika eftirsóknarverða var þátttaka Peter Pears, sem tvimælalaust er meðal frægustu ' söngvara okkar tima. Hann. hóf söng sinn með tveim Konsertaríum eftir Mozart, sem hann flutti fallega og af feikilegri tækni. Það verð- ur að segjast eins og er að rödd- in býr ekki lengur yfir þeim glampa og skýrleik sem áður, þó flutningurinn og öll túlkun sé ekki með minni glæsibrag. Hápunktur tónleikanna var flutningur Peter Pears á Ljóm- unum eftir Benjamin Britten. Verkið er mjög fallegt og ekki spillti að i efnisskrá fylgdi þýð- ing Þorsteins Valdimarssonar á Framhald á bls. 19

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.