Morgunblaðið - 25.05.1977, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 1977
Edda—nýtt flutningaskip
FYRIR skömmu kom nýtt flutninga
skip til landsins, heitir það Edda og
er í eigu ísafoldar h.f. Edda er 1379
brúttólesta kæliskip, smíðað á Spáni
1964. Það var afhent íslenzkum eig
endum í Valencia f október á s.l. ári
en hefur fram til þessa verið f
ávaxtaflutningum.
Lestarrými Eddu er samtals 75 þús-
und rúmfet og lestar skipið því um
1500 lestir. Það er knúið 2200 hest-
afla MWM-aðalvél og er meðalgang-
hraði 13—13.5 sjómílur á klukku-
stund
Skipstjóri á Eddu er Skafti Skúlason
og 1 vélstjóri Finnur Kjartansson
Edda heldur frá íslandi næstu daga
með saltfiskfarm til Portúgals
Meðfylgjandi mynd var tekin fyrir
skömmu af Eddu á siglingu
Brotthvarf Kýpurskips úr Akraneshöfn:
Halda aftur tíl Eþíópíu
til kristnibodsstarfa
SKÚLI Svavarsson kristniboði,
sem undanfarna mánuði hefur
dvalizt hérlendis f leyfi frá störfum
sfnum f Eþfópfu, fer f dag ásamt
fjölskyldu sinni áleiðis til Addis
Ababa. Skúli, hefur ásamt konu
sinni Kjellrúnu og fimm börnum
þeirra dvalið á Eþfópfu við kristni-
boðsstörf á vegum Sambands fsl.
kristniboðsfélaga frá árinu 1967,
nema árið 1971 — '72 er þau voru
hérlendis f leyfi. Mbl. spurði Skúla
um ástæðu þess að þau hyrfu nú
til Eþfópfu:
— Það kom beiðni um það frá
kirkjunni í Eþíópíu að við kæmum út
vegna þess að starfsfólk vantar og
nóg er að gera Það er ekki ákveðið
hvar við verðum, við munum annað-
hvort vera f Konsó þar sem íslenzka
kristniboðsstöðin er eða í Arba
Minch.
— Þær breytingar voru gerðar á
kristniboðsstarfinu f Eþíópiu árið
1972 að innlenda kirkjan tók við
öllum eignum kristniboðsins og inn-
lendir starfsmenn hafa smám saman
verið að taka við okkar störfum og.
það kemur í Ijós núna þegar umrót
er f landbnu að nú eru þeir betur
undir það búnir að halda starfinu
áfram án okkar Þetta hefur það i för
með sér að mitt starf verður fremur í
því fólgið núna að fara og vitja
þeirra þjóðflokka sunnar í landinu,
sem við höfum ekki enn verið með
neitt starf á meðal.
Hvernig leggst þessi för í ykkur
miðað við þær aðstæður sem þarna
eru núna?
— Ekkert vel, en við finnum að
Yfirhafsögumaður
óskar rannsóknar
vegna ásakana á sig
Morgunblaðinu barst í gær eftir-
farandi athugasemd frá Birni H.
Björnssyni, yfirhafnsögumanni á
Akranesi:
VEGNA fréttar í Ríkisútvarpinu hinn
17 maf s.l og Morgunblaðinu 18
maí um ólöglega brottför erlends flutn-
ingaskips frá Akranesi, og þar sem í
veigamiklum atriðum er farið rangt
með staðreyndir, óska ég að eftirfar-
andi verði birt í Morgunblaðinu
Þau störf, sem ég er ráðinn til hjá
Akraneshöfn vinn ég eftir beztu getu
og í samræmi við lög um réttindi og
skyldur starfsmanna ríkisins Önnur
störf hef ég ekki unnið hér við höfnina
í samræmi við það hóf ég þau verk,
sem um var beðið að aðstoða skipið
Alchimist Bremen við brottför úr Akra-
neshöfn hinn 16 maí s I Einnig með
hliðsjón af spá um vaxandi veðurhæð
og stöðu skipsins í höfninni. taldi ég
áhættu af að fresta brottför of mikla
enda hafði skipið án afskipta minna
fengið hér fulla afgreiðslu og gengið
hafði verið frá öllum skjölum þar að
lútandi Til starfsmanna Akraneshafnar
hafa engin tilmæli borizt frá Verkalýðs
félagi Akraness né nokkrum öðrum
hvorki fyrr né síðar'um að þeir breyttu f
neinu starfsháttum sínum við höfnina
né umferð skipa til eða frá henni væri
nokkrum óeðlilegum takmörkunum
háð enda hefur svo ekki verið Því geri
ég þá sjálfsögðu kröfu í nafni lýðræðis
og réttlætis að dómsvald og dóms-
málaráðherra íslands sjái svo um að
saklausir borgarar verði ekki með of-
beldi hindraðir við nauðsynleg störf
sín Sama réttar krefst ég fyrir hönd
farmanna og fiskimanna, innlendra
sem erlendra Þeir atburðir, sem áttu
sér stað í Akraneshöfn við brottför
flutningaskipsins A B mánudaginn
1 6 maí s.l er reynt var að hindra mig
við opinber störf eru að mínu mati svo
alvarlegir að á það verður að reyna
hvort fólki á íslandi geti haldist uppi að
fremja lögbrot eftir geðþótta sínum
átölulaust Opinberlega hefur útgerð
skipsins verið látin biðjast afsökunar
en á bak við tjöldin hef ég og annar
starfsmaður Akraneshafnar verið
ákærðir fyrir að gegna skyldustörfum
okkar Kærur Verkalýðsfélags Akraness
til BSRB og Starfsmannafélags Akra-
ness á hendur mér og þær hótanir og
hefndaraðgerðir, sem Guðmundur J.
Guðmundsson og Bjarnfríður Leós-
dóttir f.h Verkalýðsfélags Akraness
hafa beitt útgerð Akraborgar vegna
aðildar minnar að stjórn hennar en
Akraborg hefur nú verið stöðvuð ólög-
lega um helgar vegna aðgerða þeirra,
bitnar að sjálfsöqðu á Akurnesingum
Framhald á bls. 19
Flytur fyrir-
lestur um
umönnun van-
gefinna
N.E. Bank — Mikkelsen, fram-
kvæmdastjóri i danska félagsmála
ráðuneytinu, flytur í dag fyrirlestur f
hátíðarsal Menntaskólans við
Hamrahlíð.
Nefnist fyrirlesturinn Markmið og
leiðir í umönnum vangefinna en fyrir-
lesarinn hefur í meir en tvo áratugi
verið framkvæmdastjóri deildar danska
félagsmálaráðuneytisins. sem fer með
mál vangefinna Þá hefur hann enn-
fremur verið formaður Nordiska för-
bundet psykisk utvecklingsháning frá
stofnun þess 1963, en að þeim sam-
tökum standa Norðurlöndin sex. Þessi
samtök halda hér um þessar mundir
Margrét, Edda Björk, Amar, Egill
við getum ekki brugðizt Eþíópum
með að fara. Við vitum að starfs-
möguleikarnir eru fyrir hendi, það er
beðið um biblfufræðslu og við vilj-
um ekki skorast undan þvi. En þetta
er engin ævintýramennska, sem að
baki þessu býr hjá okkur. Stjórnvöld
hafa enn ekki gert neitt til þess að
hindra starf kristniboðsins, því þó að
þeir hafi tekið útvarpsstöðina þá
hafa þeir ekki fett fingur út í starf
kristniboðsins. Það skýra þeir út á
þann veg að öll trúarbrögð eigi að
vera jafnrétthá og því skuli ekki leyft
að kristin trú búi yfir slíku tæki sem
útvarpið er
Það sem þau hjónin sögðu að
væri þeim erfiðast væri það að þurfa
ef til vill að senda þrjú börn sín frá
og KristFn. Ljósm. Kristinn
sér i skóla i Addis, en þar er rekinn
skóli fyrir börn kristniboðanna En
þau tóku fram að ef áframhaldandi
róstur yrðu i Addis þá yrði skólinn
án efa færður Eins og fyrr segir
halda þau héðan i dág og munu
dveljast i Noregi um nokkurra daga
skeið og siðan halda þau áfram um
miðjan júnímánuð til Eþíópiu.
Jónas Þ Þórisson, sem dvalið
hefur s.l. 5 ár í Eþíópíu á vegum
Samb. ísl. kristniboðsfélaga, mun
ásamt fjölskyldu sinni fara af stað frá
Addis í dag áleiðis til íslands og eru
þau væntanleg hingað eftir miðjan
mánuðinn og verða hérlendis i eitt
ár og fara utan aftur að öllu
óbreyttu.
árlegan stjórnarfund sinn í fyrsta skipti
á Islandi og áformað er að næsta
Norðurlandaþing samtakanna verði
haldið hérlendis í ágúst 1 979
Fyrirlestur Bank Mikkelsens verður
túlkaður á íslenzku en Styrktarfélag
vangefanna í Reykjavik stendur að fyrir-
lestrinum.
Leidrétting
frá húsameist-
ara ríkisins
MORGUNBLAÐINU hefur borizt eft-
irfarandi frá húsameistara rikisins:
Sunnudaginn 22 þ m birtist frétt í
Morgunblaðinu um byggingu lækna-
og tannlæknadeildar á lóð Landspítal-
ans neðan Hringbrautar sem nú er
hafin, en þar gætir nokkurs misskiln-
ing um einstök atriði
1. Flutningur Hringbrautar á umræddu
svæði er að sjálfsögðu til suðurs en
ekki til norðurs.
2". Stækkun Landspitalalóðar er einnig
til suðurs svo sem augljóst má vera.
3. Ekki er að öllu leyti fullráðið hver
hlutfallaskipting rýmis verður í húsinu,
milli þeirra deilda sem þar verða
4. Embætti húsameistara ríkisins vinn-
ur að hönnun þessa verkefnis, og hefir
verið falið það ásamt arinarri mann-
virkjagerð á lóðum Landspítalans Það
er þvi með öllu misskilningur að ein-
hver einn starfsmaður embættisins.
svo sem nefnt var i fréttinni. beri
ábyrgð á því, eða hafi sérstaklega verið
falið það. Þessar byggingar Landspital-
ans eru unnar af allfjölmennum sam-
starfshópi arkitekta. verkfræðinga og
annarra sérfræðinga. er að hönnun
vinna frá fyrstu áætlunargerð til útboðs
og úttektar, og á slik verkaskipting sér
stað við öll meiri háttar verkefni á
vegum embættisins
Trudeau
Prófsteinn
Trudeaus
Montreal, 24 mai Reuter
AUKAKOSNINGAR um fimm sæti á
sambandsþinginu í Ottawa fara fram
f Quebec í dag og eru prófsteinn á
vinsældir Pierre Trudeaus forsætis
ráðherra og þá stefnu hans að varð-
veita einingu Kanada.
Skilnaðarstefna stjórnarflokksins i
Quebec, Parti Quebecois, hefur ekki
komið við sögu í kosningabaráttunni
en Trudeau hefur sagt að ef Frjálslyndi
flokkurinn standi sig illa í kosn-
ingunum verði úrslitin túlkuð sem van-
traust á forsætisráðherrann, stefnu
| hans og hugsjónina um einingu
Kanada.
Frjálslyndi flokkurinn hefur haft fjög-
ur þingsæti af þeim fimm sem kosið er
um og Trudeau hefur hjálpað öllum
frambjóðendum flokksins í
kosningabaráttunni til að hamla gegn
áhrifum Parti Quebecois
Stjórnmálasérfræðingar telja að
Trudeau kunni að efna til almennra
þingkosninga i haust ef frjálslyndir
standa sig vel En þrjú þeirra kjör-
dæma, sem kosið er í, eru á svæði sem,
er talið sterkt vígi Parti Quebecois og
frambjóðendur frjálslyndra gætu því
tapað
3 Hulltogarar á
Ástralíuveiðar
Þrlr stórir frystitogarar frá Hull verða gerðir út á veiðar t suður-
höfum. Þeir bætast við flota fyrirtækis f hafnarbænum Albany í
Vestur-Astralíu er brezka togarasambandið (BUT) hefur keypt
helming hlutabréfa f.
Áhafnir verða valdir í Hull til
að sigla með togarana til Ástralíu
og BUT mun einnig senda menn
til að stjórna útgerðinni og starf-
rækslu nýrrar fiskvinnslustöðvar
sem verður reist í Albany.
Forsætisráðherra Vestur-
Ástralíu, Sir Charles Court, segir
í yfirlýsingu að þeta samstarf
marki tímamót í áströlskum
sjávarútvegi þar sem fiskveiðar-
nar færist hér með frá ströndinni
til úthafsmiða. Þar með segir
hann að Ástralíumenn verði í
góðri aðstöðu til að hagnýta auð-
lindir innan nýrrar 200 milna lög-
sögu ef hún verði að veruleika.
Togararnir, sem verða sendir
frá Hull, eru systurskipin Othello,
Orsino og Carsino. Þeir verða allir
endurnýjaðir og gert er ráð fyrir
þvi að fyrsti togarinnc fari frá
Hull seint í sumar eða í haust.
Othello er hið fræga aðstoðar-
skip brezku togaranna á íslands-
miðum i þorskastriðinu. Skipið er
um þessar mundir i fyrstu veiði-
ferð sinni síðan því var breytt i
frystiskip.
Samningaviðræður hafa staðið i
marga mánuði um samstarfið. Þvi
er spáð að mörg önnur brezk út-
gerðarfyrirtæki fari að dæmi
BUT þar sem Bretar hafa hrakizt
af mörgum miðum og veiði hefur
verið takmörkuð á þeim miðum
sem eftir eru.
bara spred
latlantisl
Sigtún 3 - simi 86255