Morgunblaðið - 25.05.1977, Síða 16

Morgunblaðið - 25.05.1977, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 19771 Utgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar R itstjórna rf ulltrúi Fréttastjóri Auglýsingasjóri Ritstjóm og afgreiðsla Auglýsingar hf. Árvakur, Reykjavlk. Haraldgr Sveinsson. Matthlas Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn GuSmundsson. Bjöm Jóhannsson. Árni GarBar Kristinsson. ASalstræti 6. slmi 10100. Aðalstræti 6. slmi 22480 Áskriftargjald 1300.00 kr. é ménuSi innanlands. í lausasölu 70.00 kr. eintakið. Hernaðarmáttur Sovétríkjanna u □ Viðtal HERDÍS ÞORGEIRSDÓTTIR Afundi leiðtoga Atlants- hafsbandalagsríkjanna, sem nýlega var haldinn í Lund- únum var ákveðið að gera verulegt átak til þess að efla varnarmátt bandalagsins. Sjálf- sagt kemur mörgum á óvart, að leiðtogar aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins skuli telja nauðsynlegt að auka varnarmátt herstyrks banda- lagsþjóðanna og auka raun- veruleg fjárframlög til varnar- mála I Ijósi þess, að heldur hefur batnað sambúðin á hinum pólitíska vettvangi milli austurs og vesturs. En þrátt fyrir batnandi andrúmsloft hafa Sovétríkin og fylgiríki þeirra unnið markvisst að því að efla hernaðarstyrk sinn og byggja hann upp á þann veg, að sérfróðum blandast ekki hugur um, að hann er fremur hugsaður til sóknar en varnar. Nú er talið, að fjórar og hálf milljón manna sé undir vopnum i Sovétrikjunum og að auki um hálf milljón manna, sem skipa sérstakar vopnaðar öryggissveitir, þannig að í raun hafa Sovétríkin, undir vopnum hvorki meira né minna en um fimm milljónir manna. Fylgiríki Sovétrikjanna í Austur-Evrópu hafa rúmlega 1100 þúsund menn undir vopnum og að auki 200 þúsund vopnaða menn í sérstökum öryggis- sveitum og landamæra- sveitum, þannig að samtals hafa Varsjárbandalagsrikin um sex og hálfa milljón manna undir vopnum. Þessar tölur um fjölda vopnaðra hermanna i Va rsjá rba nda la gsríkj u n um segja þó ekki alla söguna, vegna þess að allur vopna- búnaður og tækjabúnaður þessara herja hefur verið end- urnýjaður á undanförnum árum og gert það að verkum, að þessar fjölmennu hersveitir eru í raun mun hættulegri en þær voru fyrir nokkrum árum. Sovétríkin verja gífurlegum fjármunum til hernaðarmála og er talið, að þeir hafi að undan- förnu aukið framlög sín til hernaðarmála um 4% á ári að raungildi og að framlög þeirra til hernaðaruppbyggingar nemi a.m.k. 11 —12% af þjóðar- framleiðslu Sovétríkjanna og jafnvel hærri upphæðum. Þessi miklu framlög til hernaðarmála skýra þá staðreynd að lífskjör eru enn á tiltölulega lágu stigi í Sovétríkjunum, enda teljá ís- lendirigar, sem þangað koma, að Sovétríkin séu í lifnaðarhátt- um nokkrum áratugum og jafn- vel hálfri öld á eftir Vestur- löndum. Er augljóst, að megin- skýringin á því er sú, að hinum miklu tækniframförum I Sovét- rikjunum er öllum beint að hernaðaruppbyggingu og framleiðslu 1 þágu hernaðar- vélar þeirra. Til viðbótar þessu er Ijóst, að Sovétmenn vinna skipulags- bundið að þvl að efla hernaðar- mátt sinn með öðrum hætti. Enda þótt fjöldi eldflauga I eigu Sovétrfkjanna hafi ekki aukizt að ráði á undanförnum árum hefur eyðingarmáttur þeirra engu að síður vaxið með auk- inni tækni. Nýjar og full- komnari tegundir eldflauga eru teknar I notkun, nýir eldflauga- kafbátar knúnir kjarnorku taka við af eldri gerðum kafbáta. Stöðugt er unnið að þvl að efla sovézka flotann og flugherinn, og þannig mætti lengi telja. Því er stundum haldið fram, að það sé til marks um friðsam- lega stefnu Sovétríkjanna, að sovézkum hersveitum hafi ekki verið beitt utan lepprfkja þeirra með sama hætti og banda- rískum hersveitum hafi verið beitt t.d. I Víetnam Hið rétta er, að Sovétríkin beita hernaðarmætti sínum með margvíslegum hætti, þótt sov- ézkar hersveitir taki ekki bein- an þátt I bardögum. Þannig vekur það vaxandi athygli, að stuðningur Sovétrlkjanna og fylgiríkja þeirra við hinar fá- tæku þjóðir þriðja heimsins er I raun I algeru lágmarki og að svo miklu leyti, sem um slíkan stuðning er að ræða, er hann fyrst og fremst I formi hernaðarstuðnings, þe.a.s. Sovétmenn búa skjólstæðinga sína, sérstaklega í Asíu og Af- ríku, vopnum og standa með þeim hætti að baki margvís- legum hernaðaraðgerðum. Gleggsta dæmið urh það er t.d. innrásin I Zaire frá Angóla fyrir skömmu. Annað dæmi um það, hvernig Sovétmenn beita hernaðarmætti sínum er notkun kúbanskra hersveita I Afríku. Það er auðvitað alveg Ijóst, að beiting kúbanskra her- sveita, sem búnar hafa verið sovézkum vopnum I Angóla, sem réð úrslitum I borgarastyr- jöldinni þar, var undan rótum Sovétmanna runnin. Nú er talið, að kúbanskar hersveitir starfi með einum eða öðrum hætti I fleiri Afríkuríkjum, og er hér auðvitað um að ræða íhlut- un erlendra aðila og þá fyrst og fremst Sovétríkjana um innan- ríkismál Afríkuþjóða. Þegar á allt þetta er litið þarf engan að undra, þótt leiðtogar aðildarríkja Atlantshafsbanda- lagsins hafi talið nauðsynlegt að efla varnarmátt Atlantshafs- bandalagsríkjanna. AÐ FINNA staó á handleggnum á mér fyrir sprautunálina er oröið hreint helvíti. Handleggir mínir eru svo sundurgrafnir af sprautu- förum, að ég verð að finna auðan blett á fætinum fyrir nálina. Þetta sagði sænskur heróínneyt- andi. Þýzkur eiturlyfjaneytandi var orðinn hræddur um að lög- reglan kæmist auðveldlega að því að hann sprautaði heróíni í hand- legginn á sér, svo hann opnaði æðar á ristinni með rakvélablaði og nuddaði eiturduftinu inn i sár- ið. Mörgum kann að þykja þetta hrollvekjandi sem það og óneitan- lega er. Skyldi þetta eiga sér stað hér, kynni iika margur að spyrja. Það er alla vega vitað mál að eiturlyfjaneyzla í öllum hinum vestræna heimi hefur stóraukizt síðastliðinn áratug. Sér rætt um heróín eingöngu, sem er hvað skaðlegast, eru neytendur þess um alla Evrópu, allt frá Róma- borg norður til Stokkhólms, aust- ur frá Vinarborg til Lundúna. Um Bandaríkin þarf vart að tala, því þar er vandamálið að vaxa fíkni- efnalögreglunni yfir höfuð. En hvar stöndum við á íslandi? Það gæti einnig verið efni í margar greinar og forvitnilegt er að heyra álit þeirra, sem bezt til þessara mála þekkja, eða ættu að gera það, s.s. rannsóknarlögreglu- manna, lækna og annarra. En hvað með neytendurna sjálfa. Hvaða sögu hafa þeir að segja? Blaðamaður Morgunblaðsins átti tal við tvo í vikunni. Ekki svo að skilja að þeir séu jafn fúsir til viðræðna og hinir fyrrnefndu. Áður en talið hófst, gaf blm. lof- orð um að viðmælenda yrði ekki getið með nöfnum. En þeim skal báðum þakkað fyrir viðleitnina með von um að hún megi verða einhverjum víti til varnaðar, ef ekki unglingum þá alveg eins full- orðnum, því þeirra er sökin ekki síður, þ.e. ef um sök er að ræða. Því hvern á að sakfella í þessu efni? Viðmælendur mínir voru tveir, annar þrítugur maður sem hefur neytt fikniefna á annan áratug og ung stúlka, nítján ára gömul, sem byrjaði í áfenginu og fór út i pillurnar með þeim afleiðingum, að síðustu fimm ár, hefur hún hætt í skóla, verið atvinnulaus og m.a.s. verið rekin af hæli þvi, sem hún átti að hljóta endurhæfingu á. „Hann veit að ég gæti komið honum á kaldan klaka...“ HANN byrjar á því að sýna mér handlegginn á sér, sem er illa farinn af sprautuförum. „Það var árið 1972, að Joe vinur minn, sem nú er dáinn (vegna misnotkun- ar/ofnotkunar eiturlyfja), gaf mér fyrsta skotið. Það var á Litla- Hrauni. Við leystum meprobamat (róandi) upp með valium, en þessi tvö efni hituðum við i mat- skeið með þvi að bera eld undir, þannig að þau hitna snögglega og sugum upp i sprautuna. Joe sprautaði sig fyrst, síðan sótt- hreinsaði hann nálina með eldi og sprautaði mig. Þess vegna eru sprautuförin blá enn þann dag í dag.“ Hann segist geta hætt eitur- lyfjanotkun strax á morgun, eftir margra ára eiturlyfjaneyzlu og hælisdvöl hér heima og erlendis. Ég kemst fljótt að þvi, af hverju hann segist geta hætt á morgun en ekki I dag. Ástæðan er sú að þegar ég ræði við hann er hann undir áhrifum. Ekki i vimu en undir áhrifum. Meðan við tölum saman tekur hann af og til lítinn bauk með loki álimdu upp úr jakkavasanum. Dreypir á og læt- ur vökvann skolast lengi í munn- inum áður en hann kyngir. „Hvað er þetta?“ Hann lofar mér að lykta og kemst að því sér til mik- illar ánægju að ég er engu nær. Erhard Jacobsen í síi „Tíma bj er sóað í skólan Erhard Jacobsen „ÞAÐ sem skiptir meginmáli er að tíma barnanna er eytt til einskis. Þau læra ekki nóg. Það álit ég vera alvarlegast, ekki kannski beinlínis hinn pólitíska áróður, sem uppi er hafður," sagði Erhard Jacobsen, for- maður Miðdemókrataflokksins í Danmörku. Fyrir síðustu kosningar þar setti Jacobsen það mál mjög á oddinn að pólitfskur áróður fengi ekki að vaða uppi í skólum landsins. Mbl. ræddi við Jacobsen og spurði hann um framvindu þessa máls nú síðustu mánuði. „Við ráðumst aðallega gegn tímasóuninni I skólunum," sagði Jacobsen. „Við viljum að I dönsku- tímum sé kennd danska og I sögu- timum saga. Sögutimarnir nú eru til að mynda notaðir til að skrifa

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.