Morgunblaðið - 25.05.1977, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 25.05.1977, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. MAl 1977 17 Hann fæst ekki til aö segja mér hvað þetta er. Lyfið sé algerlega bannað á markaðinum og þetta geri hann eingöngu til að halda sér niðri á meðan hann er að afvenjast allri notkun. „Þetta er ekki ósvipað methadon," segir hann. Methadon er kvalastillandi lyf, skylt ópium og morfíni. Hann segist fá lyfið hjá apótekara. „Hann lætur mig fá þetta, þvi hann veit að ég gæti komið hon- um á kaldan klaka. Bæði er mér kunnugt um viðskipti hans, svo og að hann hefur neytt morfins sið- astl. 30 ár. Ég veit um tvo apótek- ara og einn lækni, sem selja lyf eða láta eins og þetta. Fyrir jól skrifaði ég landlækni og nefndi þar níu lækna, sem hafa selt ung- lingum lyf, eiturlyf út á lyfseðla. Síðan nefnir hann einn lækni, sem hann segist vilja drepa! Af hverju? „Sá djöfull. Hann var heimilis- læknirinn okkar. Sem barn var ég taugaveiklaður og órólegur. Ell- efu ára gamall fékk ég sár í skeifugörn. Hann lét mig fá keðjuverkandi lyf (marplan og melryn, sem er deyfilyf) sem verkar örvandi. Leikbróðir minn þá var sonur Sigurðar Sigurðsson- ar, þáverandi landlæknis. Það var Sigurður, sem fyrstur kom auga á það, að ég var ekki eðlilegur. Hann spurði mig á hvaða lyfjum ég væri og bað mömmu að sýna sér þau. Hann umturnaðist, þegar hann sá lyfin. Ég kenni þessum sama djöfli um að hafa drepið mömmu. Já, þú veizt hvernig þær eru þessar „kellingar", þær dýrka lækna. Alltaf sama viðkvæðið: Pilla fyrir þessu og hinu... Mamma þjáðist af taugabilun og heilarýrnun. Endanlega kom þessi læknir henni á „Strandhót- elið“, þaðan gat hún svo hringt i hann og fengið lyfjaskammta, ótakmarkað magn hvenær sem hún æskti þess. Hún var orðin dópisti, þegar hún dó 51 árs göm- ul. Einn morgun kom ég að henni látinni í rúmi sínu heima. Hún hafði tekið inn of mikið af pillum og sofnað fyrir fullt og allt. Aumingja mamma! Ég á líka mína sök á hennar siðustu æviár- um. Foreldrar mínir skildu, þegar ég var unglingur. Pabbi var alltaf mjög afskiptalaus gagnvart mér. Hann drakk mikið. Mamma hins vegar dekraði við mig. Ég fór á sjóinn strax að loknu skyldunámi. Morfíni sprauta ég í vöðva“ — Þegar ég var sautján ára, bað leigubilstjóri mig um að kaupa fyrir sig preludintöflur í Þýzka- landi (preludin er örvandi lyf, skylt amfetamíni. aths. blm.). Fyrir 25 mörk var hægt að fá 250 stykki. Þá var markið á þrettán krónur íslenzkar og eins áuðvelt að kaupa pillurnar og karamellur. Ég keypti þúsund stykki. Þegar ég kom heim fann ég bilstjórann ekki og át eitthvað af pillunum sjálfur. Var staddur í sjoppunni við Hlemm, þegar ég allt í einu fraus í fyllstu orðsins merkingu. Foreldrar minir komu og náðu í mig. Þetta var byrjunin. Að sjálf- sögðu reyndi ég síðar að haga neyzlu minni öðruvisi eftir þetta atvik. En móðir mín vissi allan timann meðan hún lifði hvað klukkan sló. Sem dæmi get ég nefnt að árið 1970 sagðist ég mundu hætta þessu öllu ef hún gæfi mér bíl. sem ég hafði auga- stað á. Það tók mig viku að fá hana til þess. Hún treysti mér, en ég brást þvi trausti og hún brotn- aði niður. Lyf. Ég hef selt þau til að afla mér fjár til að geta haldið áfram neyzlunni. í þrettán ár hef ég verið eitur- lyfjaneytandi". Eiturlyfjaneytandi fyrir lífstíð? „Já, en ég get haldið lönguninni niðri. Ég ætla að hætta. Leonard Cohen (söngvari, skáld) var her- óínisti og læknaði sjálfan sig á þremur árum. Nei, ég hef aldrei átt í erfiðleik- um með að útvega mér lyf. Nú er til dæmis skítur á leiðinni hingað til lands“. (Skitur: hass). Umræddur segist ekki hafa framið nein afbrot siðastliðin tvö ár. Hann hafi aðallega neytt am- fetamins á þessu tímabili. . . en. Hann hætti árið 1967 á sjónum. Vildi læra að vera þjónn og hóf nám á Hótel Loftleiðum. Þar var hann í rúmt ár, en var rekinn, sökum þess hve „ruglaður“ hann var að eigin sögn. Hann var kvæntur í þrjá mánuði og á eina dóttur. Hann skildi árið 1969 og kveðst ekki hafa unnið handtak síðan. Hann segir mér enn fremur að Kristján Viðar hafi verið einn sinn bezti vinur einmitt á því timabili, sem Geirfinnsmálið var að koma „i dagsljósið." Skömmu eftir morðið á Geirfinni segist hann oft hafa lent í yfirheyrslum hjá lögreglunni i sambandi við fíkniefni og smygl, og þá ásamt Kristjáni Viðari. Hann og Kristján Viðar hafi oft „ruglað sarnan", þ.e. reykt eða neytt ann- arra efna saman og þrátt fyrir að sá siðarnefndi hafi verið undir áhrifum hafi hann aldrei sagt sér neitt. Umræddur fór á hæli í fyrsta sinn árið 1971. Þá dvaldi hann á Kleppi i einn mánuð. Hann segist hafa neytt morfins oft en aldrei þorað að taka inn heróin. Hins vegar sé mikið um það að fólk EITUR- LYF A ÍSLANDI þefi af heróíni í stað þess að sprauta sig. „Morfini sprauta ég í vöðva (ekki í æð) til að ná mér niður eftir til að mynda fimm daga ferð á „speedi“, t.d. mescalíni, STP eða það sem við köllum „Green Monster". Þá hef ég blandað mor- fíni i fljótandi formi saman við whiskey. Það er hægvirk aðferð. Manni finnst þetta síast í gegnum slimhúðina og yfirleytt eru afleið- ingarnar þær að maður sefur I tvo daga samfleytt á eftir. Síðast neytti ég „Green Monster" í des- ember s.l. Þá endaði ég á deild 10 á Kleppi. Ég fór mömmu vegna einnig á Klepp árið 1973, þá í annað sinn. En þá var ég ekki staðráðinn í því að hætta. Eftir að ég losnaði það- an fór ég til Glasgow. Upphaflega var ferðinni heitið til Lundúna, en ég komst aldrei lengra en á brautarstöðina í Glasgow. Til- gangurinn var að sjálfsögðu að ná í „efni“ og hitta krakka. — Peningar? „Þeir voru að sjálfsögðu illa fengnir. Ég bjó yfir smáskammti af sýru og þarna á brautarstöð- inni gat ég ekki stillt mig um að fá mér og fór á ferð, með hundrað pund i vasanum. Þar hef ég svo verið hirtur. Ég rankaði við mér á hæli i smáklefa, ólaður niður i rúm. Þeir hafa eflaust notað largactil til að ná mér niður af sýrunni. Þarna dvaldist ég í þrjár vikur. Við brottförina var mér afhent armbandsúr mitt og um- slagið með peningunum minum. En upphæðin hafði meira en fjór- faldazt, því í umslaginu v(fru í stað 100 punda, 485 pund. Þessu hef ég stolið meðan á sýruferð- inni stóð. öll mín afbrot hef ég framið undir áhrifum, Nei, ég hef aldrei ráðizt á mann. Þetta hafa aðallega verið innbrot í fyrirtæki og skjalafalsanir. Síðast árið 1975 átti ég að fá fjórtán mánaða dóm fyrir slíkt. Ég var í þrjá mánuði i Síðumúlanum og 45 daga á Litla- Hrauni, þá var mér hleypt út. Losna úr þessu helvíti Þegar ég var á hælinu i Glasgow sögðu þeir mér að næsti stökkpall- ur minn yrði i heróínneyzlu. Til að hræða mig sýndu þeir mér nokkrar manneskjur, sem biðu eftir dauðanum sökum heróín- neyzlu. Hræðilegast var að sjá þrjár konur, skorpnar, gamlar fyrir aldur fram. Þær litu út eins og múmíur, sem reifarnar hafa verið teknar af. Ég minnist þess að hafa öskrað: Guð almáttugur, hleypið mér héðan út! En samt sem áður, ekkert af þessu hefur orðið mér víti til varnaðar. Kunningjar mínir hafa látið lífið — ég held áfram. Það er eins og ekkert af þessu geti haft áhrif á mig“. Og hann verður allt í einu hræðilega sorgmæddur á svipinn og andlit hans hefur tekið á sig ásjónu gamals manns. Hann er einnig einlægur í röddinni, þótt hann drafi svolitið um leið og hann segir: „Samt, mig hefur alltaf langað til að hætta. Losna úr þessu hel- víti“. Hann litur upp og horfir beint fram fyrir sig: „Stundum leggst ég i þung- lyndi. Þá ligg ég uppi í rúmi i nokkra daga og hugsa til baka. Hugsa um fimm til sjö ár af ævi minni, sem ég veit ekkert um.“ Þýzkir eiturlyf janeytendur sprauta sig f æð. ntaliviðMbl.: irnanna lum...” ritgerð um mótmælaaðgerðir gegn stríðinu í Víetnam 1 969 og annað er eftir því. Þetta er óþolandi ástand og gegn því viljum við vinna. Síðustu vikur og mánuði hef ég farið út um allt land og haldið fundi með foreldrum barna og áhugamönnum og hef ég orðið þess áþreifanlega var að þessu máli hefuraukizt mjög stuðningur. Fólki er farið að blöskra hvernig tímanum er sóað og hvernig kennslan er gerð að innantómu blaðri í stað þess að nemendur fái þá undirstöðumenntun sem þeir þurfa á að halda. Mér hefur sömu- leiðis borizt mikið af bréfum frá foreldrum sem sýna stuðning við þessa baráttu okkar miðdemó- krata, af öllu þykist ég geta með réttu dregið þá ályktun að málið fái almennan hljómgrunn. Við þurfum að snúa þróuninni i skólamálunum við. Það getur tekið okkur tíu ár — því að það sem er að gerast nú hefur ekki komið fyrirvaralaust að heldur, þetta hefur verið að gerast síðustu fimmtán árin." „Hefur þetta mál verið rætt innan danska þingsins?" „Við höfum lagt fram tillögu ásamt með Framfaraflokknum þar sem ráðist er gegn þessu svo og kveðið á um breytingar og úr- bætur. Við höfum stuðning nokkurra íhaldsþingmanna, og úr Kristilega þjóðarflokknum, en samt ekki nægan til að þetta komist gegnum þingið að svo stöddu. Hins vegar verður málinu nú vísað til mennta- og kennslu- málanefndar þingsins og þar vona ég að það verði rætt ítarlega. Bezt væri auðvitað að fá fram verulega almennar umræður um þetta efni, enda getur ekkert foreldri sem ber hag barna sinna fyrir brjósti látið þetta sem vind um eyru þjóta. Þessi almenna „frelsun" sem fór um Danmörku eins og eldur í sinu og hefur verið allsráðandi síðustu 10—20 árin er að syngja sitt síðasta vegna þess að menn gera sér grein fyrir þeim hættum sem því eru samfara að hafa frelsi i höndunum án þess að kunna að nota það sér og öðrum til góðs. Akureyringar sigursælir á sjóstangamóti í Keflavík Sjóstangaveiðimót var haldið á vegum Sjóstangar I Keflavík s.l.' laugardag. Þátttakendur voru um 40, frá Akureyri, Reykjavík, Vest- mannaeyjum og Keflavik. Lagt var af stað f róðurinn kl. 7 og róið f Garðsjó og komið að landi kl. 16, en veður var ekki sem bezt. Heildaraflinn varð 2.3 tonn. Mestan afla fékk Andri Páll Sveinsson frá Akureyri, 127 kfló, þá kom Ásgeir Nikulásson, Akur- eyri, og fékk hann einnig flesta fiska eða 103. Keppt var um sveitabikar, sem Hfbýlaval f Keflavfk gaf en það er farandbik- ar sem vinnst til eignar þeirri sveit, sem vinnur þrisvar í röð. Vestmannaeyingar voru búnir að vinna hann tvisvar í röð, en Akureyringar unnu hann nú og fengu 365 kiló. Sveitina skipa þeir Andri Páll Sveinsson, Þorvaldur Nikulásson, Ásgeir Nikullásson og Einar Einarsson. Vestmanna- eyingar voru i ööru sæti, þeir fengu 345 kiló, þá sveit skipa þeir sömu og búnir voru að vinna bik- arinn tvisvar, þeir Sveinn Jóns- son, Bogi Sigurðsson, Sigurður Sigurðsson og Halidór Pálsson. Sveit Keflavíkur varð siðan í þriðja sæti, en sjö fjögurra manna sveitir kepptu um bikarinn. Skipstjórabikarinn fékk Bene- dikt Guðmundsson, skipstjóri á Fram, en það var aflasælasti bát- urinn. Kvennabikarinn hlaut Margrét Helgadóttir, Keflavík. Stærsta fiskinn veiddi Gréta Ulfs- dóttir, Keflavik, og var það þorsk- ur sem vó 12,8 kiló. Stærsta ufs- ann og stærstu ýsuna veiddi Arn- þór Sigurðsson, Vestmannaeyj- um, stærsta karfann Sveinn Viðar Jónsson, Reykjavík, og stærstu lúóuna Kristinn H. Jóhannsson, Akureyri. Um kvöldið afhenti formaður Sjóstangar í Keflavík, Jóhann Lindal, verðlaunin í hófi, sem haldið var í félagsheimilinu Stapa. Tilbúin skóladagheim- iliseining frá Danmörku sett niður við Völvufellið -Við höfðum það í bakhöndinni aðfá tilboðfrá Danmörku um tilbúna skóladagheimiliseiningu til að setja í Breiðholtið, ef ekkert yrði af kaupum á húsnæðinu í Krummahólum 6", sagði Markús Örn Antons- son, formaður félagsmálaráðs Reykjavíkur, I samtali við Mbl. í gær. Það er nú Ijóst, að Reykjavíkurborg mun ekki kaupa húsnæðið að Krummahólum 6 og sagði Markús Örn, að danska tilboðið væri komið og myndi félagsmálaráð taka það til athugunar og afgreiðslu á fimmtudag. „Þessa einingu ætlum við að setja sem viðbótarbyggingu við heimilið við Völvufell og ég reikna fastlega með þvf, að henni verði komið upp fyrir haustið.”

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.