Morgunblaðið - 25.05.1977, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 1977
Bezta rekstrar-
ár Cargolux
StÐASTA ár var bezta rekstrarár
í sjö ára sögu Cargolux, en félag
þetta eiga Flugleiðir að einum
þriðja hluta. Flugrekstrartekjur
voru 20% hærri en árið 1975 og
tekjur af viðgerðum hækkuðu um
212%. Er þessi mikla hækkun
rakin til stórbættrar skýlis- og
verkstæðisaðstöðu, sem orðið
hefur f Luxemborg á sl. 2 árum
en þar hefur Cargolux aðalbæki-
stöð s(na.
— Rekstrarhagn-
aðurFlugleiða
Framhald af bls. 32
í ræðu sinni og kvað hann vart við
því að búast að sömu afköst
næðust á þessu ári.
í ræðu Sigurðar kom enn-
fremur fram, að enda þótt far-
þegum félagsins á mikilvægasta
markaði þess, /N-
Atlantshafsleiðinni, fjöigaði um
4,2%, fjölgaði farþegum allra
flugfélaganna á þessari leið um
11,7% á þessari sömu flugleið á
árinu, og hlutdeild Flugleiða á
markaðnum varð 3,1% á árinu
1976 en varð 3,3% árið áður.
Hann kvað mjög harða samkeppni
vera á helztu flugleiðum félags-
ins, sérstaklega þó á N-
Atlantshafsleiðinni og Bahama-
leiðinni. Á báðum þessum leiðum
hefði samkeppni farið harðnandi
á síðasta og þessu ári vegna leigu-
flugs á milli Bandaríkjanna og
Evrópu, sem að undanförnu hefði
náð til æ fleiri staða. Kvað Sig-
urður augljóst að gefa þyrfti sér-
stakan gaum að auknu leiguflugi
á þessum mörkuðum félagsins
sem öðrum í náinni framtíð og ef
flutningaþróun stefndi almennt í
þessa átt væri óhjákvæmilegt að
Flugleiðir yrðu að hasla sér
frekari völl á þeim vettvangi.
Kristján Guðlaugsson,
stjórnarformaður, vék einnig að
leigufluginu, svo og að fragtflugi
og nefndi erlendar athuganir á
því sviði sem gerðu ráð fyrir að
fragtflutningar í lofti tvöföld-
uðust á árinu 1975 og fram til
ársins 1981. Sagði Kristján að
þessu tvennu, leiguflugi og fragt-
flugi, yrði stjórn Flugleiða að
gefa gaum ekki sízt af því, að
aðrir tekjuliðir gætu brugðizt og
væru óvissir svo sem tekjur af
þjónustu við AirÆSahama og píla-
grímaflugi er ráðið hefðu úr-
slitum að þvl er afkomu á síðasta
ári varðaði.
Kjörinn var ný stjórn á aðal-
fundinum í gær og skipa hana:
Alferð Elíasson, Örn Ó. Johnson,
Einar Helgason, Kristján Guð-
laugsson, Kristinn Olsen, Svan-
björn Frímannsson, Bergur Gísla-
son, Sigurgeir Jónsson, Halldór
H. Jónsson, Óttar Möller og
Sigurður Helgason.
Tíu erlend flugfélög hafa gert
samning við Cargolux um við-
gerðir og skoðanir. Það kom fram
á aðalfundi Fiugleiða að þessi
þróun tryggir nýtingu verkstæðis-
rekstursins og mannskaps.
Samanlagður hagnaður, þar með
talinn hagnaður af sölu flugvélar
og varahluta, var um 360 þúsund
dollarar eða um 69,5 milljónir
þegar búið var að afskrifa um 3,3
milljónir dollara. í árslok unnu
380 starfsmenn hjá Cargolux.
Leiðrétting
ÞAU MISTÖK urðu í frétt Mbl. sl.
sunnudag af byggingu tann-
lækna- og lækadeildarbyggingar
við Hringbrautina, að Garðar
Halldórsson var einn sagður arki-
tekt hússins. Hið rétta er að em-
bætti Húsameistara ríkisins hann-
aði bygginguna en þar starfar
Garðar og ásamt honum hafa unn-
ið að þessu verki húsameistari,
Hörður Bjarnason, Sigurður
Gíslason, Magnús Sigurjónsson,
Svavar Þorvarðsson, Kristinn
Sveinbjörnsson og Svala Pálsdótt-
ir auk þess sem fjöldi annarra
sérfróðra manna hefur þar lagt
hönd á plóginn.
— Kröfurnar
athugaðar...
Framhald af bls. 1
var i 12 daga þegar Mólúkkar
tóku farþegalestina fyrir tveimur
árum, eru einnig í móttökustöð-
inni til að gefa ráð. Um 7 til 800
hermenn og Iögreglumenn eru á
svæðinu þar sem lestinni er hald-
ið.
— Nýrnaveikin
staf ar af of
háu sýrustigi
Framhald af bls. 2
6,5—8,5 ph, en mælingar hefðu sýnt
að sýrustigið í vatninu væri allt að 9.5
ph. Hins vegar sagði Skúli auðvelt að
leiðrétta þetta með efnafræðilegum að-
gerðum gagnvart vatninu.
Skúli sagðist hafa fengið tvö bréf frá
norska sérfræðingnum Tore Hástein
sem svar við beiðnum hans um rann-
sóknir á fiski frá Laxalóni. í fyrra bréf-
inu, dagsettu 9. júní 1976, segir
Hástein, að í sambandi við liffæra-
breytingar á fiskirium, séu starfsmenn
Veterinærinstituttet í Ósló ósammála
um, „hvort þær breytingar, sem sann-
aðar hafa verið, stafi af hægfara sýk-
ingu, sem við komumst ekki að með
þeim aðferðum. sem þekktar eru. Hinn
möguleikinn er að hættuleg efni geta
hafa myndazt í gamla fóðrinu, sem þú
hefir notað ." Og bréfinu lýkur svo:
„Undir öllum kringumstæðum er ekki
þörf á neinni meðferð annarri en þeirri
að fiskurinn má ekki fá þurrfóður sem
hefir verið geymt það lengi að það er
orðið of gamalt." — „Eftir þessu fór ég
auðvitað strax," segir Skúli.
Síðara bréf Hásteins er dagsett 22.
september og er svohljóðandi:
„Fiskurinn virtist vera f góðum
holdum, engin merki sáust um ytri
áverka, snýkjudýr (ektoparasitter)
fundust ekki. Gellur eðlilegar, hjarta
eðlilegt, lifur margra fiska var þéttsetin
litlum hnúðum, á stærð við títuprjóna-
haus, að meira eða minna leyti, magi-
þarmur tómur, í miltinu var einnig að
finna stærri og minni þykkildi eða
hnúða á stærð við títuprjónshaus.
Nýrun voru að hluta verulega bólgin,
nokkuð litasprengd og að hluta alsett
hvítum hnúðum, vöðvalag eðlilegt.
Við vefjafræðilega smásjárskoðun í
lifur fannst allmikið af dauðum vefja-
frumum (nekroser) f lifrinni, nýrum og
milti á öllum fiskunum sem rannsak-
aðir voru. Við endurteknar rannsóknir
fannst mjög mikið af sýklum (gerlum) í
þessum dauða vef Þar er sennilega
um að ræða sýkil (geril) er nefnist
Corynebacterium piscium sem hefir f
för með sér hina svonefndu gerla-
nýrnaveiki eða Dee disease.
Við gerlafræðilegar rannsóknir hefir
okkur þó ekki tekist að sanna tilvist
gerilsins, en hann er mjög erfiður á
ræktun vegna sérstakra vaxtarskilyrða
sem þurfa að vera fyrir hendi og langs
ræktunartíma.
Við höfum nú tekið fram nokkuð af
hinu upphaflega rannsóknarefni og
ætlum að hefja ræktunartilraunir enn á
ný.
Gerlanýrnaveiki er best hægt að lýsa
sem þrásýki (kronisk sykdom) í fiski.
Hún brýst að jafnaði eitthvað út vor
eða haust þegar hitastig vatnsins er
lágt
Ekki er vitað með vissu hvernig
gerlanýrnaveiki berst í klakstöðvum og
fiskeldisstöðvum, en til eru sannanir
fyrir því að hún geti borist á milli á eða
inni í hrognum Smit frá sýktum
fiskum getur einnig átt sér stað og
getur þá t d borist með vatninu.
Gerlanýrnaveiki er einn þeirra sjúk-
dóma sem hvað erfiðast er að lækna
og venjan er sú að sjúkdómurinn gýs
upp á ný þegar að meðferð lýkur í
bókum segir að erythromycin eigi að
lækna sjúkdóminn. Það er einnig nefnt
að ef bætt var 1 0.1 g af joði / grammi
f fóður hafi dregið úr tíðni gerlanýrna-
veiki hjá chinook laxi. Þegar að vats-
sýni voru rannsökuð fékkst sá árangur
sem sýndurerá meðfylgjandi línuriti.
Eins og sjá er pH mjög hátt og
einnig magnið af sinki
Það er ekki hægt að líta fram hjá því
að þessi atriði geta haft sitt að segja
um gang sjúkdómsins.
Við nefndum sem hugsanlegan
möguleika að ástæðan til breytinga
þeirra er sáust í fiskinum er hann var
hér, gæti verið gerlanýrnaveiki eða
fiskberklar, en þegar engir gerlar fund-
ust í upphafi, varð einnig að leiða
hugann að öðrum orsökum "
„Af þessu má sjá, að allt tal um smit
og sýkingu í fiskinum hjá mér er einber
rógur og ekkert annað," sagði Skúli.
Hann kvaðst vilja geta þess að í
síðustu viku hefði hann selt regnboga-
silungshrogn til Frakklands fyrir tæpar
600 þúsund krónur og hefðu kaupend-
urnir ekki hræðzt það, þó á heilbrigðis-
vottorði væri skýrt frá nýrnaveiki f
laxaseiðum í stöðinni. „Og þeir vilja fá
meira Hafa talað um magn sem er að
verðmæti allt að tíu milljónir króna,"
sagði Skúli.
Þakkir til vina
SNÆBJÖRN Jónsson hefur beðiö
Morgunblaðið að tjá þeim vinum
innilegar þakkir, sem í einu eða
öðru formi vottuðu honum vinar-
hug á níræðisafmæli hans og
gerðu honum daginn með öllu
ógleymanlegan. Þeir eru miklu
fleiri en svo, að hann treysti sér
til að hafa beint samband við þá
einn og sérhvern, eins og komið
er um þrek hans, og mundi hann
þó helzt hafa kosið þá leiðina. En
hann vill að þeir viti, að fyrir
þeirra atbeina varð þessi sólbjarti
maídagur honum beinlínis undur-
samlegur og slær birtu fram á
veginn.
— Fátæktfólk
ogMánasigð
Framhald af bls. 2
Helga er það ekki einsdæmi og nefndi
hann til að bók eftir norska skáldið
Johan Borgen var lögð fram tvisvar !
röð og hlaut hann bókmenntaverðlaun-
in f seinna skiptið Auk Borgens man
nefna Danann Thorkild Hansen.
sænska skáldið Sven del Blanc og
finnska skáldið Vaino Linnðá sem höf-
unda. er átt hafa bækur ! samkeppn-
inni oftar en einu sinni og eru sá fyrst-
og slðastnefndi báðir verðlaunahafar
— Pílagríma-
flug í athugun
Framhald af bls. 2
sem kynni að verða félaginu mikilsverð
i framtiðinni og gat þess að nú færi
fram athugun á pilagrimaflugi frá
Indónesiu en það væri þó fremur i þvi
tilfelli að Nigeriusamningar tækjust
ekki
46.270,679 A.G. af eldsneyti og
greiddu fyrir það samtals
U.SS 1 9,606.896 Meðaltalsverð
ársins hafði hækkað um 2.8% frá
árinu á undan Árið 1976 var elds-
neyti það sem afgreitt er á Keflavik-
urflugvelli vegna Norður-
Atlantshafsflugsins keypt beint af
framleiðanda, en sú tilhögun var
fyrst tekin upp 1975 Viðskipti
þessi hafa reynst félaginu hag-
kvæm.
Launahækkanir urðu allverulegar
hér á landi árið 1976 Flugleiðir
greiddu þá 2,408 millj kr sem er
37.7% hækkun frá árinu á undan
Starfslið
Starfsfólki Flugleiða h f , Loftleiða
h.f. og Flugfélags íslands h.f. fjölg-
aði um 57 árið 1976. Mest var
fjölgun i flugáhöfnum, 41. og er
það vegna pilagrimaflutninga i lok
ársins. í árslok 1976 störfuðu
1.607 hjá félögunum. þar af 467
erlendis. Til viðbótar þessum starfs-
mannafjölda koma starfsmenn Inter-
national Air Bahama, sem i árslok
voru 67 og hafði fjölgað um einn á
árinu. Starfsfólk Hótel Esju h.f. var
69. Þess má geta að yfir sumarið
fjölgar starfsfólki félaganna veru-
lega. Á aðalfundinum var gefið yfir-
lit yfir flugflotann og nýtingu Flug-
leiðir áttu við árslok 19 76 eftirtaldar
flugvélar: Þrjár þotur DC-8-6-3CF;
tvær þotur Boeing 727-100C; fimm
skrúfuþotur Fokker Firendship Þá
var gerð grein fyrir dótturfyrirtækj-
um Flugleiða og hlutdeildarfyrir-
tækjum
Fjárfestingar
Á árinu 1976 keyptu Flugleiðir
þriðju þotuna af gerðinni DC-
8-63CF. Er hún sömu gerðar og
þær tvær sem fyrir voru Sú vél var
smíðuð 1969 og er í flugi fyrir
International Air Bahama Kaupverð
vélarinnar ásamt vara hreyfli og
frakthleðslukerfi var um 1 1 millj.
dollara Þotan greiðist á sjö árum
Engrar ábyrgðar var krafist fyrir
þessi kaup
Slðan 1975 hafa staðið yfir fram-
kvæmdir við byggingu skrifstofu-
húss félagsins á Reykjavlkurflug-
velli Um þetta leyti er lokið við að
flytja í húsið. Húsið er þrjár hæðir,
grunnflötur 701 fm Nú eru allar
skrifstofur aðaldeilda á einum stað,
en húsnæðið sem félagið hafði á
leigu í Bændahöllinni við Hagatorg
var losað I október s.l Hefur hin
nýjá skipan mikla hagræðingu I för
með sér. Þá var á árinu að mestu
lokið byggingu húsnæðis fyrir við-
haldsdeild og viðgerðardeild félags-
ins á Reykjavikurflugvelli. Sú bygg-
ing er rúmir 1000 fm á einni hæð
og er byggð við flugskýlið nr. 4 á
Reykjavíkurflugvelli. Flutt var í
bygginguna i ársbyrjun 1977 Þá
var byggð tækjageymsla á Keflavlk-
urflugvelli fyrir tæki þau sem notuð
eru við afgreiðslu flugvéla, en þau
höfðu áður staðið úti hvernig sem
viðraði Framkvæmdum við þessa
byggingu er að mestu lokið. Þá var á
árinu unnið að og. að mestu lokið
breytingum á flugstjórnarklefum og
loftsiglingartækjum i Fokker Friend-
ship flugvélum félagsins. Settur var
i skrúfuþoturnar margvíslegur við-
bótarútbúnaður og fyrirkomulag
samræmt. Þessar breytingar voru
hannaðar i verkfræðideild félagsins
á Reykjavíkurflugvelli og þykir Fokfc-
er Friendship floti félagsins nú mjög
vel búinn tækjum, sem öll voru
fengin ný og af nýjustu gerð
— Aðalfundur
Flugleiða
Framhald af bls. 3
rekstrarliða Á Norður-
Atlantshafsflugleiðum hækkuðu sér-
fargjöld 1 mai 1976 um 6.5%. í
nóvember s.l. var ákveðið að haust-
fargjöld skyldu gilda áfram og jafn-
gilti það um 5% fargjaldahækkun
að meðaltali Á Evrópuleiðum hækk-
uðu fargjöld um 5% hinn 1. april
1976 Öll fargjöld í millilandaflugi,
sem seld eru á íslandi hækkuðu um
20% i október 1976 og var hér um
að ræða leiðréttingu vegna gengis-
sigs islensku krónunnar
í innanlandsflugi hækkuðu far-
gjöld um 150 kr 1 mars þegar
flugvallarskattur var lækkaður úr
3 50 kr i 200 Þessi hækkun hefur
verið metin á 4.7%. í april hækkuðu
fargjöld slðan um 14% og þann 6.
október um 1 5% Er þetta alls 37%
á árinu Verðlag á íslandi hækkaði
um 32 2% árið 1 976 sem var nokk-
uð minni verðbólga en 1974 og
1 975, er hún var 43% og 49%.
Fargjöld innanlands hafa aldrei
haldið í við verðbólguna vegna þess
að beiðnir um leiðréttingar hafa yfir-
leitt legið lengi hjá yfirvöldum og er
þær hafa fengist hefu
vrðólgan verið komin langt fram úr
umbeðnum hækkunum.
Árið 1976 keyptu félögin
— Heróín flæðir
yfir
Norðurlönd
Framhald af bls. 32 ,
heróíni inn yfir Norðurlöndin.
Hass og amfetamínduft, sem
voru lang algengustu fíkniefn-
in fyrir nokkrum árum, hafa
vikið fyrir heróíni. Og fæstir
þeirra, sem ánetjast heróíni,
geta aftur snúið. Þeir verða
háðir efninu og deyja langt
fyrir aldur fram.
1000 HERÓÍNNEYTENDUR
í STOKKIIÓLMI
— I Stokkhólmi er ástandið
þannig, að talið er að um 1000
ungmenni neyti heróíns. Af
þeim fjölda eru 900 ungmenni
undir tvítugu. Reiknað er með
þvi að hver heróínneytandi noti
eitt gramm á degi hverjum
þannig að dagsneyzla þessa
hóps er eitt kíló af heróíni.
Kilóið er að jafnaði seit á eina
milljón sænskra króna, eða 45
milljónir íslenzkra króna. Eins
og þessar tölur bendá til þurfa
heróínneytendur á miklum
peningum að halda og þeirra er
oftast aflað á ólöglegan hátt.
Stúlkurnar leggjast í vændi og
piltarnir fremja innbrot og
önnur afbrot.
HERÓINIÐ: EITT FÓRNAR-
LAMB A DEGI HVERJUM
— í Svíþjóð deyr einn heróín-
neytandi á degi hverjum að
meðaltali. Þetta getur stafað af
langvarandi notkun og einnig
hinu, að neytandinn veit aldrei
fyrirfram hversu sterkt efnið
er, sem hann kaupir hverju
sinni. Stundum er það 15%
heróín en næsta dag kannski
99% heróín og þá er voðinn vís
og margir deyja af of stórum
skammti. Glæpahringirnir
beita ýmsum brögðum til þess
að gera unga fólkið háð heróín-
inu. Til dæmis var fyrir ekki
alls löngu mikið af morfínpiií-
um á Norðuriandamarkaðnum,
svokallaðar Pakistanpillur.
Mjög mörg ungmenni neyttu
þeirra að staðaldri, ungmenni
sem áður höfðu verið í hassi og
amfetamíni. En svo gerðist það
einn góðan veðurdag að morfín-
pillurnar hurfu alveg af mark-
aðnum og heróinið flæddi inn
og ungmennin voru orðin þurf-
andi fyrir sterkari lyf og byrj-
uðu að neyta heróíns.
EITT SINN EITURLYFJA-
SJÚKLINGUR, ALLTAF
EITURLYFJASJÚKLINGUR
— Eins og ég sagði áðan, kost-
ar það samfélagið gífurlegar
fjárhæðir að fást við þennan
vanda. Á sjúkrahúsum í Svi-
þjóð hefur verið komið upp sér-
stökum deildum, sem eingöngu
sinna eiturlyfjasjúklingum.
Sumum tekst að bjarga en öðr-
um ekki. Við, sem fáumst við
þessi mál, höldum þvi fram að
hafi einhver ánetjazt eiturlyfj-
um verði hann alltaf eiturlyfja-
sjúklingur. Ég get nefnt nýlegt
dæmi um mann, sem ég hafði
til meðferðar. Hann hafði ekki
snert á fíkniefnum í 10 ár, en
um daginn byrjaði hann
skyndilega að fást við þetta
aftur eftir allan þennan tíma_
NUNA eru HASSMÁLIN
AFGREIDD Á FÆRIBANDI
— Yfirleitt eru það ekki
nema smáskammtar, sem lög-
reglan á Norðurlöndunum
gerir upptæka af eiturlyfjum.
Stærsta sendingin sem náðst
hefur voru 13,5 kg. af heróíni,
sem náðust í Norköping I Sví-
þjóð.
Við teljum að við náum
kannski hálfu grammi af
hverju kilói, sem berst til Sví-
þjóðar og þar sem við tökum
meira og meira á hverju ári, má
segja að vandamálið verði alltaf
stærra og stærra. Þung viður-
lög eru við heróínsmygli í Svi-
þjóð. Til dæmist var stúlka ein
dæmd í eins árs fangelsi nýlega
fyrir að hafa undir höndum
rúm þrjú grömm af heróíni. En
þrátt fyrir þessi þungu viðurlög
halda glæpahringirnir sinu
striki við dreifinguna, hagn-
aðurinn er svo gífurlegur ef
smyglið tekst. Það voru reynd-
ar líka ströng viðurlög við hass-
smygli fyrir nokkrum árum, en
nú eru hassmálin afgreidd á
færibandi frá dómstólunum,
slík mál eru orðin svo mörg.
LÆRIÐAFMIS-
TÖKUM OKKAR
— ísland á þegar við nokkurn
vanda að stríða i fíkniefnamál-
um en enn sem komið er a.m.k.
er vandamál ykkar aðeins
brotabrot af þvi sem við fáumst
við. Enda þótt ísland sé eyja úti
í miðju hafi eru samgöngur
góðar við önnur lönd og margir
námsmenn stunda nám sitt i
skólum erlendis. Það fer því
ekki hjá þvi að ísendingar kom-
ist í kynni við eiturlyfin. Þetta
fólk kemur til íslands og
„smitar út frá sér“ ef má orða
það á þann veg. Þannig getur
vandamáiið magnazt. Ég tel rétt
fyrir ykkur Isiendinga aó þið
leggið strax peninga í fyrir-
byggjandi aógerðir á þessu
sviði og umfram allt eigið þið
að læra af okkar mistökum og
senda menn utan til þess að
kynna sér þessi mál, sagði
sænski fíkniefnalögreglu-
maðurinn Bent Söndergaard i
lok samtalsins við Mbl. -SS.