Morgunblaðið - 25.05.1977, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 25.05.1977, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 1977 23 Maðurinn minn t SIGURÐUR GUÐMUNDSSON frá Skálholti er látinn. Anna Biering. t Móðir mln, RAGNA PÉTURSDÓTTIR. gullsmiBur, Grenimel 28. Reykjevlk, andaðistá Borgarspltalanum sunnudaginn 22. mar. Karl Jóhannsson. t Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi KRISTINN GÍSLASON Herjólfsgötu 7, Vestmannaeyjum, andaðist 20. maí. Útförin fer fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum föstudaginn 27. maí kl. 2 e.h. Ingirfður Friðriksdóttir, börn, tengdabörn og barnaböm. t Bálför föður míns, tengdaföður, afa og frænda STEINÞÓRS STEINSSONAR, sem andaðist 9. maí, hefur farið fram I kyrrþey. HörBur Steinþórsson, Brynja Pétursdóttir og börn, Ása Stina Ingólfsdóttir. Útför INGIBJARGAR ÓLAFSDÓTTUR fri ÞórustöBum i Bitru, verður gerð frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 26. þ.m. kl 1 5.00. Vandamenn t Minningarathöfn um mág minn og föðurbróður okkar, JÓN JÓNSSON. fré Svinafelli, er andaðist að Vífilsstaðahæli 22. mal s.l. fer fram I Fossvogskirkju fimmtudaginn 26. mal kl. 10.30. Útför hans fer fram frá Hofskirkju I Öræfum laugardaginn 28. mal kl 2 30 Fyrir hönd vandamanna. Sólveig Pálsdóttir. t Eiginkona mín, móðir og tengdamóðir, SIGRÍÐUR EINARSDÓTTIR, MelgerBi 20, R. verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 26. mai kl 1 3 30. Þeim sem vildu minnast hennar er vinsamlega bent á Sjálfsbjörg. félag fatlaðra. Pétur Lárusson ValgerBur Pétursdóttir Jóhanna Pétursdóttir GuBmar Pétursson Elsa Ágústsdóttir Einar Pétursson Edda Hákonardóttir Guðrlður Pétursdóttir Jón A. Kristinsson og barnaböm. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför BALDURS ÁRMANNS ÞORVALDSSONAR Húnabraut 25. Blönduósi. Sérstakar þakkir færum við Hjálparsveit skáta, Blönduósi, kvenfélaginu Vökum. Lionsklúbbi Blönduóss og þeim einstaklingum sem veitt hafa okkur ómetanlega hjálp I erfiðleikum bæði nú og undanfarin ár. Guð blessi ykkur oll Hulda Baldursdóttir og börn. Séra Hákon Lofts- son - In memoriam Fæddur 5. aprfl 1919 Dáinn 30. aprfl 1977 Hinn 30. apríl s.l. bárust hingað til lands þau sorgartíðindi að séra Hákon Loftsson, prestur kaþólskra i Stykkishólmi, hefði orðið bráðkvaddur í New York þann dag. Á þessu ári voru liðin 30 ár frá prestvígslu hans og hafði hann ákveðið að halda upp á það afmæli með því að heimsækja háskólann í Baltimore, þar sem hann bjó sig undir ævistarf sitt. Og þangað fór hann, en hann átti ekki afturkvæmt. Skapari okkar allra kvaddi hann til sin eftir þrjátiu ára dygga þjónustu í þágu kristninnar. Séra Hákon Loftsson fæddist i Reykjavik 5. apríl 1919 og var þvi nýorðinn 58 ára er hann lést. For- eldrar hans voru Loftur Guðmundsson ljósmyndari og kona hans, Stefania Elin Gríms- dóttir. Veturinn 1935—36 var hann við nám í Skotlandi og komst þar i kynni við kaþólskt fólk. Leiddi það, ásamt öðru, til þess að hann tók kaþólska trú árið 1937. Þegar Hákon kom heim aftur eftir námsdvölina I Skotlandi, hóf hann nám við Menntaskólann á Akureyri og tók stúdentspróf þaðan 1940. Næsta vetur lagði hann stund á norrænunám við Háskóla íslands en hafði eftir þann vetur tekið þá ákvörðun að gerast prestur í þjónustu kaþólsku kirkjunnar hér á landi. Þess vegna hélt hann til Banda- ríkjanna 1941 og gekk i presta- skóla i Baltimore. Þaðan lauk hann námi 1947 og meðtók prest- vígslu i Dómkirkju Krists konungs í Landakoti 24. mai sama ár. Það var fyrsta kaþólska prest- vigslan hér álandi eftir siðaskipti þvi að Jóhannes Gunnarsson, síðar biskup, og Jón Sveinsson (Nonni) voru báðir vígðir til prests erlendis. Séra Hákon þjónaði við Dóm- kirkju Krists konungs i Landakoti til ársins 1952, en þá fluttist hann til Akureyrar og þjónaði kaþólsk- um mönnum þar til ársins 1966. Auk þess kenndi hann tungumál við Menntaskólann á Akureyri. Árið 1972 fór hann til Stykkis- hólms, rétt fyrir jólin, til þess að hlaupa i skarðið fyrir kaþólska prestinn þar, séra Gerard Boots, sem þá var veikur. En svo fór að séra Hákon ilentist i Stykkishólmi og var þjónandi prestur við kapellu St. Franciskussystra til æviloka. Var þjónusta hans þar af hendi leyst með miklum ágætum og hef ég orð St. Franciskussystra fyrir því að hann hafi verið þeim frábær fræðari og sálusorgari. Sömuleiðis naut hann virðingar og vinsælda meðal Stykkishólms- búa, hvort sem þeir tilheyrðu kirkju hans eða ekki, enda voru margir þeirra tiðir kirkjugestir hjá honum. Séra Hákon var með afbrigðum ljúfur maður í umgengni, kurteis og prúður, gamansamur og vel að sér svo að mönnum leið vel í návist hann. Hann var mjög list- hneigður, svo sem hann átti ætt til, og samdi hann m.a. messutón- list, byggða á gregoríanskri og islenskri tónlistarhefð, og voru þau lög sungin við hámessur í kapellu systranna. Hann var trúr þjónn heims- kirkjunnar en átti jafnframt þvi fastar rætur i Islenskri menningu og sögu. Þetta tvennt, rómverska kristni og íslenska menningararf- leifð, leitaðist hann við að sam- eina og vildi þannig stuðla að mótun sterkrar, þjóðlegrar og um leið kristilegrar menningar. Saga hinnar fornu kirkju þjóðarinnar var honum mjög kær. Hann hafði tekið BA-próf i kirkjusögu Islands árin 1000—1550, og til kirkju þeirra tíma vildi hann m.a. sækja heiti hluta og hugtaka og gera þau á ný að lifandi þáttum islensks máls, einkum hvað snerti kirkjulegar bókmenntir og helga þjónustu. Hann skrifaði margt og þýddi fyrir kirkjuna; t.d. er messubók sú, sem nú er notuð, að verulegu leyti þýdd af honum; hann samdi texta við myndir hinna vinsælu barnabóka sem kirkjan hefur gefið út hér á undanförnum árum og hann bæði skrifaði í tímarit kaþólsku kirkjunnar, „Merki krossins“, og vann að gerð þess. Það var einkum hin siðari ár, eftir að séra Hákon tök við prest- þjónustu í Stykkishólmi, sem fundum okkar bar saman, og þær samverustundir verða mér ógleymanlegar, er við sátum i stofunni hans og ræddumst við, þessari stofu sem ekki átti sinn líka. Þar bar allt vott um hina einstöku snyrtimennsku, list- hneigð og hina einlægu trú séra Hákonar. Honum lá lágt rómur og allt andrúmsloft stofu hans var slíkt að engum hefði dottið í hug að vera þar hávær. Ljósum var stillt í hóf, ilm af reykelsi bar að vitum manns og það logaði á keri frammi fyrir mynd Guðs- móðurinnar, og séra Hákon bauð kaffi og ræddi af næmleika um kenningar heilagrar kirkju og íslenska þjóðtrú jöfnum höndum, grannvaxinn maður og ekki sterk- legur að sjá en styrkur hans fólst i einlægri trú og kærleika til allra manna. Hann sagði mér að ís- lendingar stæðu yfirleitt nær kaþólskri kristni en þeir gerðu sér sjálfir grein fyrir. Hin siðari ár átti séra Hákon við nokkra vanheilsu að striða og því hafði hann skjalfest ýmsar óskir sínar um hvernig að skyldi farið ef hann yrði skyndilega af þessum heimi kvaddur. Þeir sem þekktu auðmýkt hans undruðust það því ekki mjög að hann skyldi óska þess að jarðarför sín færi fram í kyrrþey. Hann hdfði lifað af hógværð og þannig vildi hann einnig kveðja. Starfsbræður hans hér urðu að sjálfsögðu við þessari ósk hans og því hefur líkami hans nú fyrir nokkru verið falinn jörðinni sem hann fæddist af, að Munkaþverá i Eyjafirði. Sálu- messa var lesin yfir jarðneskum leifum hans áður en þær voru sendar heim frá New York og sömuleiðis var lesin messa fyrir sál hans I kapellu St. Franciskus- systra í Stykkishólmi 14. þ.m. Þá var messa uppstigningardags í Dómkirkju Krists konungs i Landakoti helguð minningu hans. I erfðaskrá hans standa m.a. þessi orð: „Megi almáttugur Guð fyrirgefa mér allar syndir minar og veita mér eilíft líf í sér. Ég fyrirgef öllum sem ef til vill hafa gert á minn hlut og bið að þeir, sem ég hefi sært og syndgað á móti, fyrirgefi mér. Guð blessi biskup minn, presta, systur og söfnuð allan og kirkju sina hér.“ Biskup okkar kaþólskra var staddur í Róm þegar andlát séra Hákonar bar að. Hann átti einka- viðtal við hinn heilaga föður páfann rétt eftir að honum barst dánarfregnin og sagði hann páfa hin dapurlegu tiðindi. Páfinn sagði að þessi frétt ylli sér mikl- um sársauka, hann tæki einlægan þátt í sorg okkar og mundi ekki gleyma okkur. Hann bað fyrir sér- stakar kveðjur sinar til fjölskyldu séra Hákonar, með þakklæti fyrir hina dyggu þjónustu hans og lét i ljósi djúpa samúð með syrgjandi systkinum hans. Einnig bað hann fyrir sérstakar kveðjur til safn- aðarins á íslandi. Vegna þess, hvar og hvernig andlát séra Hákonar bar að, þurftu starfsbræður hans að leita fyrirgreiðslu og aðstoðar hjá ýms- um aðilum og mátti segja að hver hönd væri útrétt til hjálpar. Sér- staklega vilja þeir þakka ívari Guðmundssyni, ræðismanni íslands i New York, og Herði Helgasyni, skrifstofustjóra i utan- rikisráðuneytinu, fyrir þá ómetanlegu aðstoð sem þeir veittu. Einnig þakka þeir Hauki Guðlaugssyni, söngmálastjóra Þjóðkirkjunnar og organista á Akranesi, sem var svo vinsam- legur að annast organleik i Dóm- kirkju Krists konungs á uppstigningardag, er séra Hákonar var minnst, þvi að kirkjuna vantar organista eins og sakir standa. Þá ber sérstaklega að þakka séra Birni Jónssyni, sóknarpresti á Akranesi, sem sýndi þá einstöku velvild að færa til messutima sinn þann dag, svo að Haukur gæti leikið á orgel Kristskirkju. Slikur bróðurhugur er einmitt í anda hins látna. Hinn hugljúfi vinur okkar, séra Hákon Loftsson, er nú skilinn við okkur i biii og fluttur inn á það tilverusvið þar sem við eigum eftir að hitta hann á ný ef okkur tekst að lifa lífinu af trúmennsku við Skapara okkar. Við þökkum Guði að hann skyldi leyfa okkur að njóta samfylgdar hans og leiðsagnar þann tima sem hans naut við. Eftirlifandi systkinum hans og öðrum ástvinum flyt ég einlægar samúðarkveðjur fyrir hönd okkar allra, bræðra hans og systra i kirkjunni sem hann þjónaði svo vel. Torfi Ólafsson t Þökkum auðsýnda samúð og vináttu við andlát og úrtör SIGURRÓSAR GUÐMUNDSDÓTTUR Kárastíg 7, Hofsósi. Sérstakar þakkir til lækna. hjúkrunar- og starfsfólks á sjúkrahúsinu á Sauðárkróki, fyrir frábæra umönnun Börn, barnabörn og tengdabörn t Þökkum samúð og hlýhug viðfráfall og útför móður okkar, tengdamóð- ir og ömmu DAGBJARTAR EIRÍKSDÓTTUR, Hverfisgötu 83, Jón Magnússon. Páll Magnússon Eðvald Magnússon, Erla Magnúsdóttir. Magnea Magnúsdóttir. Margrét Magnúsdóttir, Kristján Einarsson, og barnaböm.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.