Morgunblaðið - 25.05.1977, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 1977
Einminnagiðiin
ÍBV: Páll Pálmason 3, Ólafur Sigurvinsson 2, Einar Friðþjófsson 2, Magnús
Þorsteinsson 2, Friðfinnur Finnbogason 3, Snorri Rútsson 2, Valþór Sigþórs-
son 2, Óskar Valtýsson 3, Sveinn Sveinsson 2, Tómas Pálsson 3, Karl
Sveinsson 3, Ómar Jóhannsson (varam.) 1
VALUR: Sigurður Dagsson 4, Kristján Ásgeirsson 2, Grímur Sæmundsen 2.
Hörður Hilmarsson 2, Dýri Guðmundsson 2, Magnús Bergs 3, Ingi Björn
Albertsson 3, Atli Eðvaldsson 2, Albert Guðmundsson 3, Guðmundur
Þorbjörnsson 3, Óttar Sveinsson 1. Bergsveinn Alfonsson (v) 2, Magni
Pétursson (v.) 2
DÓMARI: Arnþór Óskarsson 3.
er hægt
að treysta
litmyndir á 3 dögum.
L'irfl'jfflil!!
Kodak
Guðmundur Þorbjörnsson skorar sigurmark Vals með skalla.
BARÁTTA, HRAÐI, SKEMMTILEG
KNATTSPYRNA OG GÓÐ STEMMNING
„ÞETTA minnir mann á gömlu góðu dagana," sagði Eyjamaður einn við undirritaðan eftir
leik ÍBV og Vals í Vestmannaeyjum á mánudagskvöldið. Eflaust er mikið til í þessum orðum,
þvf leikurinn var eins og knattspyrnuleikir gerast beztir hér uppi á Fróni, hann bauð upp á
gífurlega baráttu, hraða og skemmtilega knattspyrnu, góð marktækifæri, fyrsta flokks
markvörzlu og góða stemmningu meðal áhorfenda. Eyjamenn réðu öllu meira gangi leiksins
og það var því I hæsta máta ósanngjarnt að Valsmenn skyldu fara á brott með bæði stigin.
En þeir gerðu það sem gera þarf til að vinna leiki, skoruðu mark 15 mfnútum fyrir leikslok og
það nægði til sigurs. Markið skoraði Guðmundur Þorbjörnsson með skalla.
HANS PETERSEN HF
BANKASTRÆTI
S:20313
GLÆSIBÆR
S: 82590
J
Hempd’s
dpamálning varnar
að stál og siór mæti
wl S/ippfé/agið íReykjavík hf
MálningarverksmiÖjan Dugguvogi
Símar 33433og 33414
GANGUR LEIKSINS
Eyjamenn léku undan allsnörpum
vindi í fyrri hálfleik og áttu Valsmenn
snemma í vök að verjast. Vörn þeirra
komst hvað eftir annað í hann krappan
í viðureign við eldsnögga Eyjamenn en
vörnin var þétt fyrir og því komst mark
Vals ekki oft í hættu í fyrri hálfleik Karl
Sveinsson átti mjög hættulegan skalla
að Valsmarkinu snemma í leiknum en
bjargað var naumlega í horn. Á 22.
mínútu var dæmd óbein aukaspyrna á
Val rétt utan markteigs, eftir að Snorri
Rútsson og Atli Eðvaldsson höfðu lent
í samstuði en þrumuskot Eyjamanna
lenti í varnarveggnum. Á 44. minútu
sendi Karl Sveinsson góða sendingu
inn í vítateiginn til Tómasar Pálssonar,
sem skaut þrumuskoti að marki rétt
innan vítateigslinunnar Small boltinn i
þverslánni og yfir. Valsmenn léku vel
saman úti á vellinum í fyrri hálfleik, en
tókst aldrei að skapa sér verulega góð
marktækifæri. Vildu þeir fá vítaspyrnu
í eitt skipti, þegar þeir töldu að brotið
hefði verið á Inga Birni innan vítateigs
en dómarinn lét leikinn halda áfram.
Valsmenn höfðu vindinn í bakið i
seinni hálfleik og eins og vænta mátti
voru þeir mun aðgangsharðari að
marki Eyjamanna en í fyrri hálfleik. Á
fyrstu mínútum hálfleiksins átti Guð-
mundur Þorbjörnsson góðan skalla að
marki ÍBV en hárnákvæmt framhjá. Á
58. mínútu komst Guðmundur upp að
endamörkum vinstra megin og sendi
góðan bolta fyrir markið til Inga
Björns, sem stóð fyrir opnu marki en
aldrei þessu vant brást Inga bogalistin
og hann hitti ekki boltann. Boltinn
barst til Berseksins en gamla kempan í
marki ÍBV, Páll Pálmason, varði glæsi-
lega Á 75 mínútu leiksins missti
Friðfinnur miðvörður Eyjamanna yfir
sig bolta, sem hann átti að geta skallað
frá og náði hann með naumindum að
bjarga boltanum í horn. Albert Guð-
mundsson tók hornspyrnuna frá
hægri, beint á höfuð Harðar Hilmars-
sonar. Hörður skallaði þvert fyrir mark-
ið aftur inn í markteiginn til Guðmund-
ar Þorbjörnssonar, sem einn og óvald-
aður skallaði boltann í netið.
Eftir markið tvíefldust Eyjamenn og
sóttu án afláts. Tvívegis var bjargað á
síðustu stundu, Sigurður Dagsson sló í
fyrra skiptið á ótrúlegan hátt boltann
frá markinu eftir skalla Tómasar Páls-
sonar og vildu Eyjamenn meina að
boltinn hefði þá farið inn fyrir mark-
línu. Svo gerðist það á 79. mínútu að
vítaspyrna var dæmd á Kristján Ás-
geirsson fyrir að hranda Karli Sveins-
syni og var það harður dómur. Ólafur
Sigurvinsson tók vítaspyrnuna og
Sigurlás miðherji hefði getað verið
með. Beztu menn ÍB voru Páll Pálma-
son, sem sýnir engin ellimörk í mark-
inu, Friðfinnur Finnbogason, sem var
mjög sterkur í vörninni, Óskar Valtýs-
son, sem barðist grimmilega á miðju
vallarins, og Tómas Pálsson og Karl
Sveinsson, en þeir voru frískastir í
framlínunni. Er Karl geysilega vaxandi
leikmaður, sem Eyjamenn hefðu mátt
nota meira.
í liði Vals var Sigurður hetja dags-
ins, enginn blómaleikur þetta hjá kapp-
anum. Einnig áttu ágætan leik þeir
Magnús Bergs, Ingi Björn, Guðmund-
ur Þorbjörnsson og Albert Guðmunds-
son. Og ef litið er á leikinn í heild
verður að segja, að nær allir leikmenn
liðanna hafi staðið sig vel.
í STUTTU MÁLI:
íslandsmótið 1 deild, grasvöllurinn
við Hástein í Vestmannaeyjum, mánu-
daginn 23. maí. ÍBV — Valur 0:1
(00).
MARK VALS: Guðmundur Þorbjörns-
son á 75. mínútu.
ÁMINNING: Engin.
ÁHORFENDUR: 691.
Þetta var f eina skiptið, sem Sigurður Dagsson kom ekki vörnum við og|
boltinn small f þverslá eftir skot Tómasar Pálssonar
ÍBV - Valur 0:1
Texti: Sigtryggur Sigtryggsson
Myndir: Sigtryggur Sigtryggsson
og Sigurgeir Jónasson.
skaut fremur lausu skoti hægra megin
á markið Sigurður Dagsson, sem lék
sinn 250. meistaraflokksleik með Val,
henti sér flötum og varði auðveldlega
Þar með fór slðasta von Eyjamanna
og undir lokin sóttu Valsmenn af
kappi Munaði litlu að Albert Guð-
mundssyni tækist að skora eftir góðan
undirbúning Guðmundar Þorbjörns-
sonar en Ráll varði stórglæsilega fast
skot Alberts.
LIÐIN
Þetta var jafn leikur og jafntefli hefði
verið sanngjörn úrslit Lið Eyjamanna
barðist af miklum krafti og enda þótt
byrjunin I mótinu hafi ekki verið upp á
það bezta hjá liðinu þarf það engu að
kvíða ef það leikur áfram jafn vel.
Kannski hefðu úrslitin orðið önnur, ef