Morgunblaðið - 25.05.1977, Síða 32
(ÍLYSINÍÍASIMINN EK:
22480
AUííLYSINíiASIMINN EK:
22480
JHsrflimliInbib
MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 1977
Hlutafé Flugleiða
aukið um 373 millj.
Á AÐALFUNDI Flugleiða í gær var
samþykkt að auka hlutafé félagsins
um 373 milljónir tæpar og einnig að
gefa út jöfnunarhlutabréf og tvö-
falda þannig hlutaféð í tæpa 2 6
milljarða króna. Samþykkt var að
greiða hluthöfum 2.95% arð af
hlutafé.
j ársbyrjun 19 75 var hlutafé félags-
ins 143.2 milljónir króna Það ár voru
gefin út jöfnunarhlutabréf að upphæð
11404 milljónir. þannig að hlutafé
fyrir samþykkt aðalfundarins í gær var
1 283,6 milljónir króna Sem fyrr segir
verður það nú tvöfaldað
í stjórn félagsins voru kjörnir; í aðal-
stjórn Alfreð Elíasson, Örn Ó John-
son, Einar Árnason, Kristján Guðlaugs-
son, E K Olsen. Svanbjörn Frímánns-
son, Bergur G Gíslason, Sigurgeir
Jónsson, Halldór H Jónsson, Óttarr
Möller og Sigurður Helgason Og I
varastjórn Dagfinnur Stefánsson, Grét-
ar Br Kristánsson. Ólafur Ó Johnson
og Thor R Thors
Samþykkt var tillaga um fjölda
stjórnarmanna, sem verða ellefu aðal-
menn og fjórir varamenn til aðalfundar
1 979, en síðan verða níu aðalmenn og
þrír varamenn
Nýir tóm-
atar í
verzlanir
FYRSTU (slenzku tómatarnir
á þessu vori eru um þessar
mundir að koma f verzlanir.
Að sögn Þorvalds Þorsteins-
sonar, framkvæmdastjóra
Sölufélags garðyrkjumanna,
koma tómmatarnir nú á mark-
aðinn um svipað leyti og á und-
anförnum árum. Um verð á
tómötunum sagði Þorvaldur að
það væri nú 25% hærra en það
hefði verið er tómatar komu
Jyrst á markað í fyrrasumar.
Verð á einu kílói af tómötum í
heildsölu er nú 675 krónur en
álagning verzlana á tómötum
sem öðru íslenzku grænmeti er
frjáls. í þeim verzlunum, sem
Morgunblaðið hafði tal af var
verð á hverju kilói af 1. verð-
flokki tómata út úr verzlun að
meðaltali um 950 k,rónur.
UMFERÐARDEILD lögreglunnar I
Reykjavlk og Bif reiSaeftirlitið
stóðu I gær fyrir herferS gegn
óskoðuSum bllum og bllum I
slæmu ásigkomulagi. 15 lög-
reglumenn á mótorhjólum og bll-
um voru á fleygiferS um bæinn
og tóku alla grunsamlega bfla.
Ber mönnum saman um aS
ástandið I umferðinni hafi batnaS
eftir aS fyrrnefndir aðilar byrjuSu
að standa fyrir vikulegum aðgerS-
um af þessu tagi. Nánar segir frá
þessu I Mbl. á morgun.
Ljósm. Mbl RAX
Aðalfundur Flugleiða:
Um 462 millj. kr. rekstrar-
hagnaður varð á síðasta ári
IIEILDARTEKJUR Flugleiða hf.
á sl. ári urðu 15,701 miiljón króna
en voru 12,109 milljónir kr. árið
áður. Hagnaður af rekstri Flug-
leiða á sfðasta ári varð 462 mill-
jónir kr. en afskriftir á sl. ári
námu 466 milljónum króna en
árið á undan námu afskriftir 295
milljónum króna. Þetta er annað
árið í röð sem hagnaður verður af
rekstri férafsins en árið 1974 varð
tap á rekstrinum að upphæð 425
milljónir króna. Fjafrmagns-
kostnaður á árinu nam nettó 416
milljónum króna en var 377 mill-
jónir króna árið 1975.
Þessar upplýsingar komu fram
á aðalfundi Flugleiða sem hald-
inn var í gær og vikið er nánar að
á bls. 3. Þar kom einnig fram að
Skipulagið um eins dags
verkföll samþykkt í
SKIPULAG dagsverkfalla, sem
Morgunblaðið skýrði frá í gær,
var samþykkt af formannafundi
reykvfskra og hafnfirzkra verka-
lýðsfélaga, sem haldinn var f Iðn-
aðarmannahúsinu við Ilallveigar-
stfg í gær klukkan 17. Þar var
samþykkt að fyrsta verkfallið
yrði föstudaginn 3. júnf og verður
það boðað með lögboðnum fyrir-
vara eftir að trúnaðarmannaráð
verkalýðsfélaganna hafa tekið
endanlega ákvörðun um verkfall-
ið, en fundir verða almennt
haldnir f félögunum f dag. Sfðan
er ætlunin að f öðrum hlutum
landsins verði verkföll dagana 6.
til 9. júní að báðum meðtöldum
og rekur hvert verkfallið annað.
Björn Jónsson, forseti ASÍ,
kvað verkalýðshreyfinguna grípa
til þessara aðgerða til þess að
þoka samningunum eitthvað
áfram án þess að gripið sé til
allsherjarverkfalls, a.m.k. kvað
hann þetta vera tilraun til þess að
forðast slikt verkfall, sem ætti því
að verða ekki eins þungbært bæði
fyrir þá, sem í þvi standa svo og
fyrir þjóðfélagið i heild. Alls
verða verkfallsdagarnir fimm,
föstudagurinn 3. júní í Reykjavík,
en endanlega hefur enn ekki ver-
ið ákveðið hver röð verður á dags-
verkföllunum á hinum svæðunum
fjórum. Svæðin eru: Reykjavik,
Vesturland, Vestfirðir og Austur-
land, Norðurland, Suðurland og
Reykjanes.
Formannafundurinn i gær var
haldinn í húsnæði Trésmiðafélags
Reykjavíkur og var þessi tilhögun
verkfallsmálanna, sem var tillaga
frá 10-manna nefnd ASl, þar sam-i
Framhald á bls. 19
afgangur til ráðstöfunar sam-
kvæmt rekstrarreikningi siðasta
árs er samtais 685 milljónir króna
á móti 512 milljónum króna árið
áður. Heildareignir Flugleiða i
árslok 1976 námu 11.776 mill-
jónum króna en skuldir 9.650
milljónum króna og eigið fé
félagsins í árslok er því rösklega 2
milljarðar króna.
Flugfélögin þrjú innan Flug-
leiða fluttu á siðasta ári rúmlega
665 þúsund farþega og er það um
4,5% aukning frá árinu áður.
Starfsfólk hjá Flugleiðum, Loft-
leiðum og Flugfélagi íslands í árs-
lok var 1.607 auk 67 starfsmanna
Air Bahama og 69 starfsmanna
Hótel Esju.
í ræðu Arnar Ó Johnson, for-
stjóra, á aðalfundinum kom fram,
að enda þótt fjárhagsafkoma fél-
agsins yrði að teljast sæmilegeftir
atvikum hlyti það að vekja að-
standendur þess til umhugsunar
um, að sá hagnaður, sem varð af
reglulegri starfsemi, fékkst með
því sem telja yrði í námunda við
75,7% hleðslunýt-
ing forsenda hag-
stæðrar fjárhags-
afkomu félagsins
hámarksnýtingu á flugvélakosti
og framleiðslu. Væri 75,7%
hleðslunýting vafalaust með því
hæsta sem þekktist í áætlunar-
flugi. Sagði örn að með óbreyttu
framleiðslumagni en hleðslunýt-
ingu eins og hún var 1975, þ.e.
71,9%, hefði orðið tap á rekstrin-
um. Hlyti þetta að valda áhyggj-
um, svo og hitt að heildarfram-
leiðsla félagsins og flutningar í
áætlunarflugi hefðu dregizt
saman undanfarin ár. Tekizt
hefði sl. tvö ár að skila hagnaði
með því að auka hleðslunýt-
inguna eina. SigurðurHelgason,
forstjóri, vék einnig að þessu
atriði Framhald á bls. 18
Auglýsend-
ur athugið!
AS venju kemur Morgunblaðið
ekki út á Hvftasunnudag. SfSasta
blað fyrir helgi kemur út laugar-
daginn 28. maf. Auglýsingar sem
birtast eiga í þvf blaSi þurfa aS
hafa borist auglýsingadeildinni
fyrir kl. 18 á morgun fimmtudag.
Auglýsingar sem birtast eiga f
miSvikudagsblaSi 1. júnf þurfa aS
hafa borist auglýsingadeildinni
fyrir kl. 10.00 f.h. þriðjudaginn
31. maf.
Herói'n flæðir X 1 J •______ J. J_ _
yfir Norðurlönd: , ,Islendlllg8.r 801111 80
læra af mistökum okkar”
— segir sænskur fíkniefnalögreglumaður í samtali við Morgunblaðið
— ÞAÐ ER mín von, aö
þið íslendingar lærið af
mistökum okkar Svía í
fíkniefnamálum. Við
vorum of seinir að átta
okkur á vandanum og of
sparir á peninga til fyrir-
byggjandi aðgerða. í dag
er fíkniefnavandamáiið
orðið svo ískyggilegt I
Svíþjóð að það kostar
sænska ríkið margfalt
meira að eiga við afleið-
ingar þess en fyrirbyggj-
andi aðgerðir hefðu kost-
að, sagði sænski fíkni-
efnalögreglumaðurinn
Bent Söndergaard í sam-
tali við Morgunblaðið.
Söndérgaard var hér á
ferð fyrir skömmu vegna
starfs síns, en hann
starfar við eiturlyfja-
deild lögreglunnar I
Gautaborg.
NORÐURLÖND KJÖRINN
VETTVANGURFYRIR
EITURLYFJASM YG LARA
— Á allra síðustu árum hefur
ástandið í þessum málum gjör-
breytzt á Norðurlöndum, sagði
Bent Söndergaard. Alþjóðlegir
eityrlyfjasalar, hafa komið
auga á Norðurlönd sem
ákjósanlegan markað. Þar er
ungt fólk, sem hefur mikla pen-
inga undir höndum og þetta
hefur því reynzt kjörinn vett-
vangur fyrir alþjóðlega eitur-
lyfjasala. Þetta eru samvizku-
lausir menn og þeirra boðorð er
aðeins eitt, að græða sem mesta
peninga. í þeirra augum skipta
mannslif engu máli. Mestur
gróði fæst með heróínsölu og
þessir menn hafa nú dembt
Framhald á bls. 18