Morgunblaðið - 03.07.1977, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. JULl 1977
3
Ráðherrafundur OECD í París:
Stef nt skal að 5% hag-
vexti á árinu 1978
Ólafur Jóhannesson sat fundinn fyrir Island
ÁRLEGUR ráðherrafundur Efna-
hags- og framfarastofnunarinnar,
OECD, var haldinn ( Parls dagana
23. og 24. júní sfðastliðinn, en þar
var rætt um alþjððleg efnahags-
leg tengsl með sérstöku tilliti til
þróunarlandanna. Af tslands
hálfu sat fundinn Ólafur Jóhann-
esson, viðskiptaráðherra, og með
honum voru Þórhallur Ásgeirs-
son, ráðuneytisstjóri, Einar Bene-
diktsson, sendiherra, og Helgi
Gislason, sendiráðsritari.
I fréttatilkynningu, sem Morg-
unblaðinu hefur borizt frá við-
skiptaráðuneytinu, er fjallað um
þennan fund. Á fundinum var
rætt um þróunarlöndin eins og
áður segir, en einnig fóru fram
umræður um efnahagsmál og tók
Ólafur Jóhannesson þátt í þeim. I
umræðum um efnahagsmál voru
Þjóðverjar og Japanir sérstaklega
hvattir til þess að grípa til örvun-
araðgerða á efnahagssviðinu. Þá
kom fram að atvinnuleysi, sér-
staklega meðal ungs fólks, er
mönnum víða áhyggjuefni, sem
og greiðslujafnaðarerfiðleikar
einstakra smærri OECD-landa. I
fréttatilkynningu fundarins er
m.a. tekið fram að stefnt skuli að
5% hagvexti á árinu 1978. Er það
í fyrsta skipti, sem OECD gerir
skammtíma samþykkt um efna-
hagsmarkmið. Ætlunin er að að-
ildarriki leggi siðar á árinu fram
áætlanir sinar um þróunina á
næsta ári og var sú hugmynd m.a.
rædd að ef til vill væri þörf á
sérstökum ráðherrafundi til að
ræða þau mál um eða eftir næstu
Línubrengl
í leiðara
LÍNUBRENGL urðu i lokakafla
forystugreinar Morgunblaðsins i
gær. Réttur átti kaflinn að vera
svohljóðandi: „Þjóðin ber mikið
traust til fiskifræðinga Haf-
rannsóknastofnunar. Þeir hafa
hvað eftir annað sýnt, að þeir eru
starfi slnu vaxnir. En Hafrann-
sóknastofnun hefur með þessari
ákvörðun farið út fyrir eðlileg
mörk. Með þessu er engan veginn
sagt, að ákvörðunin sé efnislega
röng, heldur hitt, að ákvarðanir,
sem hafa svo viðtækar afleið-
ingar, hljóta pólitískir aðilar að
taka.“
áramót. Fram kom að þess væri
brýn þörf í mörgum löndum að
ráða bót á verðbólguvandanum.
Talið er að ekki verði nægilegur
hagvöxtur og minna atvinnuleysi
nema dregið verði úr verðlags-
hækkunum. Lögðu ýmsit ráðherr-
anna áherzlu á nauðsyn betra
samstarfs við aðilana á vinnu-
markaðinum.
Ráðherrafundurinn framlengdi
til eins árs samþykkt þá, sem
fyrst var gerð árið 1974 og gengur
undir nafninu „Trade Pledge".
Er samþykktin sú, að ekki skuli
gripið til hafta- eða verndunarað-
gerða I viðskip.tum til að leysa
efnahagsvanda einstakra landa.
Talið er að frjálst og marghliða
viðskiptakerfi sé undirstaða þess,
að leysa megi efnahagsleg vanda-
mál og þvi beri að reyna að koma
skriði á yfirstandandi viðskipta-
viðræður í GATT.
Ráðherrarnir áttu svo sem
venja er ýmsar viðræður utan
funda. Var m.a. haldinn fundur
ráðherra Norðurlandanna og
embættismanna þeirra áður en
fundur hófst 23. júni, þar sem
viðfangsefni ráðherrafundarins
voru rædd.
Það eru ekki allir sem kunna að standa á haus og þvf
ekki að nota hjálpartækið fyrst það er fyrir hendi?
Grípið tækifær:ið
og pantið
Simapantanir:
20100-27232
Skrifstofutimi
kl. 09.00—17.30.
AUSTUfíSTRÆT/ 17,
//. HÆÐ
sólarlanda
Aðeins
kr
í útborgun
eftirstöðvar
greiðist á 5 mánuðum
Þetta sértilboð Útsýnar gildir aðeins 1 eftirtaldar ferðir:
Costa Brava
15. júll örfá sasti laus.
Hinir vinsœlu gististaSir Útsýnar.
íbúðir Zodiac, Hótel Athene, Hótel Gloria.
Verðfrá kr. 59.100
Lignano
13. júlí örfi sæti laus. 3 vikur
20. júll. Laus sæti I 2 og 3 vikur.
Glæsilegar Ibúðir Luna alveg vi8 ströndina.
VerS frá kr. 69.400
Costa del Sol
1 7. júll örfi sæti laus I 3 víkur — 24. júll. Laus sæti.
GististaSir I sirflokki alveg i ströndinni.
El Remo. Santa Clara, Tamarindos, Perlas.
Verðfrá kr. 75.500,-