Morgunblaðið - 03.07.1977, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. JULÍ 1977
Um leið og ungir og áhugasamir bíleigendur sækjast af kappi eftir hestaflafjöldaiOg mæla
spyrnur sínar hver við annan af sannri íþrótt, hefur annar hópur bíleigenda;tekið sig
saman um sína bílaeign. Hjá síðarnefnda hópnum eru hestöflin og spyrnaniekki aðalatriðið,
heldur aldurinn og útlitið. Síðustu ár hafa gamlir bílar verið fast sýningaratriði álýðveldis-
deginum á Akureyri og siðastliðinn 17. júní mætti Fornbílaklúbbur íslands með bílaeign
% sína og sýndi í Reykjavík. Bílaeign er ekki skilyrði til inngöngu í fornbílaklúbbinn,
heldur nægir að hafajáhuga á gömlum bílum óg viðgangi þeirra. Nú eru milli
70—8Q félagar í klúbbnum, en fornb'ílamarkið er sett við bíla, sem eru 20
ára og eldri. Akstur Fornbílaklúbbsinsiá 17. júní og sýning á bílunum
á eftir vakti talsverða athygli, enda margur bíllinn glæstur á að líta,
eins og meðfyljandi myndir Ol.K.M. bera með sér. Og fyrirsögn á
er sótt í orð ungrar konu, sem við heyrðum segja við vin
sinn að loknum akstri gömlu bílanna á 17. júní. „Þetta er nú
eitthvað annað en þessir nýju straumlínukaggar, sem þú ert
alltaf að tala um. Hérna sérðu bíla, sem hafa bæði sál
og sjarrna."
Gamlirbílar
með sálogsjarma
Chrysler
1929.
Elztu bflarnir voru frá árinu 1927. Þetta er Studebaker Erskine.
Á eftir Essexnum kemur kanadfskur Ford 1937.
Næstelzta árgerðin á sýningunni var 1928. Þetta er Graham Page frá þvf herrans ári.
Annar af elztu sortinni. Ford 1927, sfðasta T-m6delið.
Hér fer Ford 1930, sem hefur verið f stöðugri notkun undanfarin ár. Á eftir honum
kemur Essex 1928.
Ef til vill dreymir flesta um stóra og aflmikla bfla f afmælisgjöf, en hitt er líka
skemmtilegt að fá Essex 1931, eins og þennan f afmælisgjöf og það á sjálfan 17. júnf.
Þessi Ford-vörubfll 1947 er allt annað en ellilegur að sjá, enda heilsan slfk, að hann
er f fullri vinnu upp á hvern dag.