Morgunblaðið - 03.07.1977, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. JULl 1977
Kínverjar vara við
sovézkri skyndiárás
EVRÓPUBUAR gera sér ljósa
grein fyrir vaxandi strfðshættu
þrátt fyrir hávært tal ráða-
manna I Kreml um frið I
Evrópu, segir I grein frá frétta-
stofunni Nýja-KIna.
Fréttastofan segir að sama
tfma og Rússar tali um slökun
spennu I Evrópu hafi þeir stór-
aukið hernaðarmátt sinn, styrj-
aldarundirbúningur þeirra
hafi aukizt um allan helming
og nú sé svo komið að þeir séu
að umkringja Evrópu á landi, I
lofti og á legi.
Getur Evrópa forðazt þriðju
heimstyrjöldina? spyr frétta-
stofan Nýja-Kína I annarri
grein. Fréttastofan segir að
þessi spurning sé alls ekki út I
bláinn heldur I samræmi við
óumflýjanlegan og kaldan
raunveruleika, sem Evrópa
standi andspænis.
Haft er eftir sovézka
kommúnistaleiðtoganum
Leonid Brezhnev: ,,Hús Evrópu
er orðið afar lítið og það getur
hæglega kviknað í þvl,“ og
„Evrópa er orðin púðurtunna
eða réttara sagt kjarnorku-
tunna.“ En fréttastofan segir
að það sé Rússum að kenna.
Máli sínu til stuðnings nefnir
fréttastofan eftirfarandi:
AUKIN ÁRÁSARGETA
Á árunum eftir 1960 tefldu
Rússar fram rúmlega 600
meðaldrægum og langdrægúm
eins-odda eldflaugum gegn
Vestur-Evrópu, en nú tefla þeir
fram nýjum meðaldrægum og
langdrægum marg-odda SS-20
eldflaugum gegn Vestur-
Evrópu. Auk þess hafa þeir
flutt nýjar sprengjuþotur til
stöðva í norðvesturhlutum
Sovétríkjanna og þaðan geta
þær gert skyndiárásir á Vestur-
Evrópu.
Rúmlega 86% skriðdreka
Rússa er á vesturlandamærum
þeirra og í Austur-
Evrópulöndunum. Fjölgað hef-
ur f landher Rússa í Austur-
Evrópu úr rúmlega 500.000
mönnum í 600.000 menn. 19.000
sovézkir skriðdrekar eru f Mið-
Evrópu. Mönnum í hverju vél-
væddu herfylki Rússa hefur
verið fjölgað um 22% og f
hverju skriðdrekaherfylki um
19%. Stórskotavopnum her-
fylkjanna hefur fjölgað um
helming.
Hermönnum og hergögnum
Varsjárbandalagsins f Mið-
Evrópu hefur fjölgað um
25—30% á síðustu fimm árum.
Samkvæmt vestrænum heim-
ildum ræður Varsjárbandalagið
yfir 40% fleiri mönnum og
helmingi fleiri flugvélum en
NATO.
Árásargeta Rússa hefur jafn-
framt verið aukin. Rúmlega
helmingur um 30 sovézkra her-
fylkja, sem eru tilbúin að ráð-
ast fram, er skriðdrekaherfylki.
Þúsundir skriðdreka, bryn-
vagna og fallbyssna hafa verið
sendar til Austur-Evrópu til að
auka árásargetuna og herfylkin
þar hafa verið búin nýjum
skriðdrekum af gerðunum T-62
og T-72.
Um það bil einn fimmti fram-
linuflugvéla Varsjárbandalags-
ins er af nýjustu gerð, þar á
meöal MIG-23 og Sukhoi-19.
Nýir flugvellir hafa verið gerð-
ir og hernaðarlega mikilvægir
vegir lagðir í Mið-og Suður-
Evrópu. Margar loftbrúræf-
ingar hafa verið haldnar til að
gera Rússum kleift að flytja
herlið til framlínusvæða þar
sem gífurlegu magni hergagna
hefur verið safnað saman.
AUKIN
FLOTAMÁTTUR
Um 70—75% sovézkra kaf-
báta og ofansjávarskipa eru á
stöðugri siglingu á hafinu um-
hverfis Evrópu. Þennan flota-
mátt geta Rússar notað til að
stöðva lífsnauðsynlega aðdrætti
á sjó. Fyrir tíu árum fóru
sovézk herskip sjaldan til æf-
inga lengra en að Nordkap,
nyrzta odda Noregs, eða til
Eystrasalts og örfá sovézk her-
skip sigidu á Miðjarðarhafi. Nú
hafa Rússar fært athafnasvæði
sitt vestur til linunnar Græn-
land—Is-
land—Færeyjar—Skotland.
A nýlegum æfingum sigldu
skip úr Eystrasaltsflota Rússa
alla leið til Grænlandshafs.
Sovézkum skipum á Miðjarðar-
hafi hefur fjölgað um rúmlega
50, sem er alvarleg ógnun við 6.
bandaríska flotann. Mennirnir
i Kreml hafa beitt Norðmenn
pólitiskum og hernaðarlegum
þrýstingi til að reyna að koma
mestöllu Barentshafi undir
sovézk yfirráð. Fjölmargar æf-
ingar hafa verið haldnar til að
sýna getu Rússa til að ráða
hinni hernaðarlega mikilvægu
siglingaleið frá Noregshafi til
Atlantshafs og frá Eystrasalti
til Norðursjávar og Atlants-
hafs.
í flotaæfingum Rússa 1970
lokuðu sovézkir kafbátar haf-
inu milli Noregs og tslands til
þess að koma í veg fyrir
hugsanlegan óvinaliðssafnað í
Evrópu. í æfingunum „Okean-
75“ færðu kafbátarnir viglfn-
una suður til íslands, Færeyja
og Hjaltlands til að sýna að
Rússar gætu sett hafnbann á
Vestur-Evrópu. Sovézki flotinn
sýndi fádæma óskammfelni á
æfingunum nálægt dönsku
sundunum og á Norðursjó,
greinilega til að reyna að ráða
yfir einu siglingaleiðinni frá
Eystrasalti til Atlantshafs.
ÞÝÐING færeyja
Fréttaritari Nýja-Kína fór til
Færeyja í haust og segir frá
eftirfarandi um aukin umsvif
Rússa á því svæði:
A ferðalagi mínu til Færeyja
frétti ég hjá yfirmanni dönsku
flotastöðvarinnar, Raip, og öðr-
um embættismönnum að ásókn
sovézkra fiskiskipa hefði aukizt
svo mikið á undanförnum
tveimur árum, að sildarstofn-
inn væri á góðri leið með að
þurkast út. Til þess að hamla
gegn rányrkju Rússa tilkynnti
stjórn eyjanna 3. júni f fyrra að
færeyska fiskveiðilögsagan yrði
færð út i 200 mflur um áramót.
Færeyjar voru bitbein i stríð-
inu. Nú eru eyjarnar og haf-
svæðið umhverfis bitbein risa-
veldanna. Eyjarnar eru
hernaðarlega mikilvægar
vegna þess að frá þeim má
halda uppi yfirráðum yfir
neðansjávarhryggnum frá Fær-
eyjum til íslands og Grænlands.
Þessi siglingaleið yrði lífsnauð-
synleg Bandaríkjamönnum á
stríðstímum svo þeir gætu sent
liðsauka til Norðurlanda og
meginlands Evrópu og þessi
siglingaleið yrði lífsnauðsynleg
Rússum svo að þeir gætu sent
herskip sín og kafbáta úr
norðri inn á Atlantshaf.
Siglingaleiðin er miklu mikil-
vægari Rússum vegna þess að
sovézkir kjarnorkukafbátar
verða að sigla langt út á
Atlantshaf til þess að geta skot-
ið á skotmörk i Bandaríkj-
unum. Rúmlega sjötíu af hverj-
um hundrað kafbátum Rússa
hafa bækistöð á Kola-skaga og
þeir eru flestir búnir kjarn-
orkueldflaugum sem draga inn-
an við 1800 mílur.
HERTAKA
UNDIRBÚIN
Þar að auki hafa Rússar fært
sjóvarnir sínar fram til lin-
unnar Grænland—ís-
land—Færeyjar til þess að
koma í veg fyrir að floti NATO
sigli inn á hafið milli íslands og
Noregs og til þess að tryggja
það að kafbátar þeirra eigi
greiða leið inn á Atlantshaf. í
æfingunum „Okean 75“ tefldu
Rússar fram miklum fjölda her-
skipa, kafbáta og flugvéla með-
fram þessari línu til þess að
loka kafbátaleiðinni gegnum
neðansjávarhrygginn við
Færeyjar og til að geta sótt inn
í hana. Rússar hafa þar að auki
eflt Norðurflota sinn með land-
gönguliði og landgönguskipum
til þess að hertaka Noreg, is-
land, Grænland og Færeyjar á
stríðstímum.
Hernaðarumsvif Rússa um-
hverfis Færeyjar hafa aukizt á
undanförnum árum. Sovézk
herskip eru oft á siglingu i
grenndinni og halda æfingar.
Könnunarflugvélar þeirra
sveima yfir eyjunum við og við
og kafbátar þeirra eru á sveimi
í flóum og sundum. Fiskimenn
og bændur á eyjunum hafa oft
sagt frá slikum atburðum.
Sovézk njósnaskip finnast oft
við Færeyjar. Sovézk „fiski-
skip“ búin fullkomnum raf-
eindatækjum hafa oft sézt á
ferli að næturlagi í sundum og
flóum. Sovézk ,,kaupskip“
laumaðist inn i flóa í maí í fyrra
og hélt þar kyrru fyrir í nokkra
daga unz til þess sást og dönsk
flotayfirvöld hröktu það burtu.
Raip flotastöðvarðstjóri sagði
mér, að sovézk skip væru að
staðaldri undan ströndum eyj-
anna allan ársins hring undir
því yfirskyni að þau væru við
rannsóknastörf. Þau varpa oft
akkerum við ströndina undir
þvi yfirskyni að þau þurfi að
taka eldsneyti.
Mörg sovézk skip hafa komið
i „heimsóknir“ til færeyskra
hafna. Tvö 9.000 lesta herskip
komu í „óopinberar" heimsókn-
ir í fyrra. Áhafnirnar sögðu að
þær fengjust við hernaðarleg
og visindaleg verkefni á hafinu
frá Grænlandi til íslands og
Færeyja. 1 landi fóru áhafn-
irnar um allt með ljósmynda-
vélar búnar aðdráttarlinsum.
„Hvað eru Rússarnir að gera?“
spurðu eyjaskeggjar reiðir.
Færeyingar láta ekki friðartal
villa sér sýn, þeir hafa kynnzt
útþenslustefna Rússa af eigin
raun, segir fréttaritari Nýja-
Kina.
EVRÓPA UMKRINGD
Á suðurvæng NATO segir
Nýja-Kína enn fremur, hafa
Rússar hvað eftir annað reynt
að hagnýta sér skörð sem hafa
myndazt í varnargerð NATO.
Þeir hafa reynt að ná tangar-
haldi á nokkrum hernaðarlega
mikilvægum stöðum austan
Atlantshafs og á Miðjarðarhafi
með því að ýta undir ólgu og
misklíð og fiska síðan í grugg-
ugu vatni.
öll þessi umsvif sovézka flot-
ans eru samræmd umsvifum
sovézka hersins á landi til þess
að umlykja Evrópu. Æ fleirri
hermenn, blaðamenn og stjórn-
málamenn á Vesturiöndum
hafa vakið athygli á þeim
möguleika að Rússar geri
skyndiárás á Vestur-Evrópu.
Þeir telja að yfirburðir sovézka
heraflans og viðbúnaður Rússa
á framsvæðunum andspænis
Vestur-Evrópu séu komnir á
það stig að Rússar geti gert
venjulega leifturárás á Vestur-
Evrópu áður en Vesturlönd geti
gert hefndarárás með kjarn-
orkuvopnum.
Að sögn vestrænna sérfræð-
inga hefur kjarnorkuvigbúnað-
ur Rússa aukizt svo gífurlega
síðan fyrsti samningurinn um
takmörkun kjarnorkuvigbúnað-
ur (Salt-1) var undirritaður I
maí 1972 að það á sér enga
hliðstæðu. Rússar vörðu 100%
meira fé en Bandaríkjamenn til
smiði eldflauga sem draga milli
heimsálfa 1975. Kjarnorkueld-
flaugum Rússa hefur fjölgað
um helming á undanförnum
fimm árum. Herlið þeirra í
Evrópu sjálfri, þar með talinni
Austur-Evrópu, er skipað 3.1
milljón manna búnum um
33.000 skriðdrekum og 7.500
flugvélum.
„SKYNDIÁRÁS
LYKILLINN“
Siðan Helsinki-sáttmálinn
var undirritaður hafa Rússar
bætt við kjarnorkuvopnabirgð-
ir sfnar nýjum gerðum marg-
odda eldflauga, sem draga milli
heimsálfa, og teflt fram meðal-
drægum og langdrægum marg-
odda kjarnorkueldflaugum,
sem er miðað á Vestur-Evrópu
þrátt fyrir „andann frá Hels-
inki“. Af um 600 meðaldrægum
eldflaugum Rússa eru 90% í
Austur- og Mið-Evrópu. Þeir
hafa endurskipulagt herafla
sinn i Evrópu, bætt birgðaþjón-
ustu hans, búið hann nýjum
vopnum á siðustu mánuðum og
haldið tiðar heræfingar með
Evrópu fyrir skotmark.
Meira að segja málpípur
Sovétstjórnarinnar gefa til
kynna að Rússar geti gert
skyndiárás á Evrópu í krafti
stóraukins hernaðarmáttar
segir Nýja-Kína aó lokum.
Grein i ágústhefti sovézka
mánaðarritsins „Hertíðindi“
bar yfirskriftina „Skyndiárás
— Lykillinn að sigri“. Þar var
lögó áherzla á nauðsyn þess að
gera skyndiárás á óvininn og
sagt: „Tilgangur skyndiárásar
er að koma óvininum að óvör-
um þegar hann er ekki í að-
stöðu til að gera árangursríkar
gagnráðstafanir og hrinda að-
gerðum okkar.“