Morgunblaðið - 03.07.1977, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. JULl 1977
47
Norrænir
lyfjafrædingar
í Reykjavík
NORRÆNA lyfjafræðisambandið
heldur ráðstefnu á Hótel Sögu um
helgina. Stendur hún yfir frá
1.—4. júli. Um 20 lyfjafræðingar
frá öðrum Norðurlöndum sækja
ráðstefnuna og hún fjallar um
ýmis mál sem eru efst á baugi í
hverju landi fyrir sig.
Rannsóknir á
samsetningu
jardskorpunnar
INNAN skamms hefjast um-
fangsmiklar rannsóknir á sam-
setningu jarðskorpunnar undir
Suðurlandi og út Reykjanes-
hrygginn. Af hálfu islands munu
vísindamenn frá Orkustofnun og
Raunvisindastofnun taka þátt I
rannsóknunum, en vestur-þýzkir
vísindamenn hafa þar forystu,
auk þess sem rússneskir og brezk-
ir visindamenn taka þátt f rann-
sóknunum.
Að sögn Guðmundar Pálmason-
ar hjá Orkustofnun verða fram-
kvæmdar sprengingar fyrir
Suðuriandi og Norðausturlandi
og síðan mælt yfir landið; frá
norðaustri og suður á miðhálend-
ið og þaðan vestur um út á
Reykjaneshrygg.
Gulli sýnir
á Selfossi
LAUGARDAGINN 2. júlí opnar
Guðlaugur Jón Bjarnason — Gulli
— myndlistarsýningu í Safna-
húsinu á Selfossi. Gulli er Selfyss-
ingur að uppruna. Hann stundaði
nám í Myndlistar- og handiða-
skóla íslands I tvo vetur
(1968—70). Þetta er önnur mynd-
listarsýning Gulla, en þá fyrstu
hélt hann í Galleri SÚM haustið
1974. Á sýningunni i Safnahúsinu
á Selfossi eru 52 myndir, málaðar
með olfu- og vatnslitum. Myndirn-
ar eru allar til sölu nema tvær, og
syningin verður opin frá 14 til 22
um helgar og frá 16 til 22 virka
daga. Sýningunni lýkur sunnu-
dagskvöldið 17. júlí.
— Tívolí
Framhald af bls. 2
starfsemi af þessu tagi væri
lengst komin. Hugmyndirnar
hefðu litillega verið reifaðar bæði
við Davið Oddsson, borgarfull-
trúa, og Ellert Schram, alþingis-
mann, sem báðir hefðu sýnt mál-
inu áhuga. Það væri ljóst að mik-
ill áhugi væri á þvi meðal borgar-
búa að lifgað væri upp á borgar-
lífið og skapaðir fleiri möguleikar
til afþreyingar á borgarsvæðinu
sjálfu. Aðsókn fólks bæði að því
að skoða DAS-hús í Garðahreppi
og að vörusýningum í Laugardal
sýndi augljóslega að fólk vildi að
boðið yrði upp á einhverja til-
breytingu.
— Hvalveiðar
Framhald af bls. 1
húsi því er þeir dvöldust í í
Canberra. Voru friðunarmenn komnir
upp á áttundu hæð með geysimikinn
plasthval, sem blásinn var upp með
löfti. Síðar var plasthveli þetta aðal-
atriðið í táknrænni útför, sem sviðsett
var í minningu þeirra 2 7 þúsund
hvala, sem reknir eru fyrir ætternis-
stapa á ári hverju. Algjör friðun hvala
er markmið flestra friðunarhópanna,
sem gerðu árangurslaust kröfu um að
fá aðgang að fundum ráðstefnunnar,
en þeir voru haldnir fyrir luktum dyr-
um.
Til er folk, sem heldur að þvi meir, sem hljómtæki kosta
þeim mun betri séu þau. Að vissu leyti er þetta rétt, ef orðið
„betra" þýðir að þér getið spilað fyrir allt nágrennið, án
bjögunar.
Crown framleiðir einnig þannig hljómtæki. En við höfum
einnig á boðstólum hljómtæki, sem uppfylla allar kröfur
yðar um tæknileg gæði
CROWN>
3150
SHC
ALLT I EINU TÆKI
Magnari fjögurra vídda stereo magnari 12.5 W + 12 5
wött gerir yður kleift að njóta beztu hljómgæða
með fjögurravídda kerfinu.
LAUSNIN ER
SHC 3150 sambyggðu hljómtækin
Þér fáið sambyggt mjög vandað tæki, sem hefur að geyma
allar kröfur yðar.
Crown sambyggðu tækin eru mest seldu stereotæki lands-
ins.
Ef það eru ekki meðmæli, þá eru þau ekki til.
Ársábyrgðoq fullkomnasta viðgerðaþjónusta landsins.
Einnig fást Crown SHC 3330 Ver8 131.179.-
SHC 3220. Verð 157.420. -
Plötuspilari fullkominn plötuspilari, allir hraðar, vökva-
lyfta, handstýranlegur eða sjálfvirkur, tryggir
góða upptöku af plötu.
Segulband Hægt er að taka upp á segulbandið af plötuspil-
atanum, útvarpinu og gegnum hljóðnema, beint
milliliðalaust og sjálfvirkt. Segulbandið er gert
fyrir allar tegundir af cassettum, venjulegar og
Krómdioxið
Stereoútvarp með FM- lang- og miðbylgju Akaf
lega næmt og skemmtilegt tæki.
Utvarp
CROWN RADIO CORP. japan
Verð: 109.860.
NÓATÚNI, SÍMI 23800,vBUOIRNAR
KLAPPARSTÍG 28, SÍMI 19800/^’''^^—/
CROWN
Chaine Stereo
Stereo-Musikanlage