Morgunblaðið - 13.08.1977, Qupperneq 4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. AGUST 1977
mwm^ blMAK
jO 28810
car rental 24460
bílaleigan
GEYSIR
BORGARTÚNI 24
TÖftlÉÍdIr
-E 2 1190 2 11 38
Augliti
til
auglitis
Norræn
myndlistarsýning
1976—77
Norræna myndlistarsýningin
„Augliti til auglitis" — á sænsku:
Öga mot Öga — er væntanleg
hingað til lands i haust. Hún mun
standa yfir á Kjarvalsstöóum dag-
ana 10.—25. september að báðum
dögunum meðtöldum. Sýningin
kemur hingað á vegum Norræna
myndlistarbandalagsins og Félags
islenskra myndlistarmanna, sem
er aðili að því. Allt frá árinu 1946
hefur bandalagið gengist fyrir
meiriháttar samsýningum mynd-
listarmanna frá Danmörku, Finn-
landi, Islandi, Noregi og Svíþjóð.
Fyrst voru þær haldnar á hverju
ári i höfuðborgum landanna en
siðan annaðhvort ár t.d. í Bergen,
Gautaborg og Öðinsvéum. Slðasta
stóra samsýningin var á Kjarvals-
stöðum i tengslum við Listahátið i
Reykjavik 1972. Að henni lokinni
var ákveðið að gera hlé á slíku
sýningarhaldi um sinn og freista
nýrra leiða. A aðalfundi mynd-
listarbandalagsins 1974 var
endanlega ákveðið að fela Staffan
Cullberg listfræðingi i Stokk-
hólmi að setja saman norræna
samsýningu myndlistarmanna af
nýrri gerð. Þessi sýning Cullbergs
— (hann hefur verið algjörlega
einráður um skipulagningu henn-
ar, val verka og höfunda þeirra)
— var lengi í mótun. Hann ferðað-
ist milli landanna fimm árin 1975
og 1976, kynnti'sér stefnur og
leiðir i myndlist, skoðaði sýningar
og heimsótti marga myndlistar-
höfunda. Hingað til lands kom
hann tvívegis í þessu skyni.
Árangurinn af starfi Cullbergs
varð sýningin: Augliti til auglitis.
Hér verður ekki reynt að gera
grein fyrir tilgangi sýningarinnar
enda er hann listilega útskýrður í
stórri og vandaðri sýningarskrá,
sem verður til sölu á sýningunni
að Kjarvalsstöðum. Samt skal
þess getið, að „leikstjórinn" Cull-
berg vill sýna okkur myndlist og
formmótun í víðara samhengi en
tíðast hefur verið gert, víkja frá
hinum sérfræðilegu sjónarmiðum
og tekur þá um ieið mið af um-
hverfisvandamálum siðustu ára
og áratuga.
Sýningin: „Augliti til auglitis"
var opnuð I Stokkhólmi 19. nóv-
ember 1976 og stóð þar til 19.
desember í Liljewalhs konsthall.
Frá Stokkhólmi for hún til Osló
og var þar 20. janúar til 16. febrú-
ar 1977, í Bergen var hún fyrri
hluta marsmánaðar og í Helsing-
fors nær allan apríl. I sumar hef-
ur sýningin staðið í Nikulásar-
krikjunni i Kaupmannahöfn og er
reyndar nýlokið þar í hinu sér-
kennilega umhverfi. Áður er sýn-
ingin kemur hingað til Reykjavík-
ur, verður hún sett upp i nýju
Framhald á bls. 29
Útvarp Reykjavik
L4UG4RD4GUR
13. ágúst
MORGUNNINN
7.00 Morgunútvarp
Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og
10.10
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for-
ustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00.
Morgunbæn kl. 7.50.
Morgunstund barnanna kl.
8.00: Ilelga Þ. Stephensen
endar lestur sögunnar „Hvita
selsins“ eftir Rudyard Kipl-
ing f þýðingu Ilelga Pjeturss
(4).
Tilkynningar kl. 9.00. Létt
lög milli atriða.
Óskalög sjúklinga kl. 9.15:
Kristfn Sveinbjörnsdóttir
kynnir. Barnatfmi kl. 11.10:
Þetta vil ég heyra. Unglingar
sem, dvalizt hafa f Vatna-
skógi og á landsmóti skáta
spjalla við stjórnandann,
Guðrúnu Binru Ilannesdótt-
ur, og velja efni til flutnings
í samráði við hana.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilky nningar.
12.25 '7eðurfregnir og fréttir.
Tilkynningar. Tónleikar.
SÍÐDEGIÐ
13.30 Laugardagur til lukku
Svavar Gests sér um þáttinn.
(Fréttir kl. 16.00, veður-
fregnir kl. 16.15).
17.00 Létttónlist
17.30 „Fjórtán ár f Kfna“
Helgi Elíasson les kafla úr
bók Ölafs Ólafssonar kristin-
boða (2).
18.00 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
KVÖLDIÐ
19.35 Allt f grænum sjó
Stolið, stælt og skumskælt af
Ilrafni Pálssyni og Jörundi
Guðmundssyni.
19.55 „Grand Duo
Concertante“ eftir Frédéric
Chopin við stef eftir
Meyerbeer. André Navarra
leikur á selló og Jeanne-
Marie Darré á pfanó.
20.10 Sagan af Söru Leander
Sveinn Asgeirsson tekur
saman þátt um ævi hennar og
listferil og kynnir lög sem
hún syngur. Síðari hluti.
!1.05 Kvæði eftir Þórarin Eld-
járn
Höfundur les.
51.15 „Svört tónlist"
Umsjónarmaður: Gérard
Chinotti. Kynnir: Ásmundur
Jónsson. Þriðji þáttur.
2.00 Fréttir.
2.15 Veðurfregnir.
Danslög
c23.55 Fréttir. Dagskrárlok.
SKJÁNUM
_____LAUCAKDAGUK
13. ágúst 1977
18.00 Iþróttir Umsjónarmaður
Bjarni Felixson.
II lé
20.00 Fréttir og veður
20.25 Augiýsingar og dagskrá
20.30 Albert og Ilerbert (L)
Nýr, sænskur gamanmynda-
flokkur f sex þáttum. 2. þátt-
ur. Viltu dansa við mig?
Þýðandi Dóra Ilafsteins-
dóttir.
(Nordvision — Sænska sjón-
varpið)
20.55 Alþingishátíðin 1930
Kvikmynd þessa gerði
franskur leiðangur. Stutt er
sfðan vitað var með vissu, að
enn er til kvikmynd. sem
tekin var hina ævintýralegu
daga Alþingishátfðarinnar
1930.
Textahöfundur og þulur
Eiður Guðnason.
Mynd þessi var áður á dag-
skrá 29. júnf 1976.
21.25 Auúttir og óhyggðir___
Náttúrufræðingurinn Anth-
ony Smith kynnir fenja-
svæði Suður-Súdans.
Þýðandi og þurlur Ingi Karl
Jóhannesson.
21.55 Dauðinn f gróandanum
(La mort en ce jardin)
Frönsk-mexíkösk bfómynd
frá árinu 1956, byggð á sögu
eftir José André Lacour.
Leikstjóri Lusis Bunuel.
Aðalhlutverk Simone
Signoret, Charles vanel og
Georges Marchal.
Ævintýramaðurinn Chark
kemur f þorp nokkurt f
frumskógum Amasónsvæð-
isins. Þar er fyrir fjöldi
manna.sem leitað hafa dem-
anta f grendinni, en hafa nú
verið hraktir af leitarskik-
um sfnum með stjórnar-
ákvörðun. Er mikill kurr f
þeim, og kcmur til uppreisn-
ar gegn herstjórn svæðisins.
Þýðandi Sonja Diego.
23.35 Dagskrárlok.
Dauðinn í gróandanum kl. 21.55:
I kvöld er á dagskrá
sjónvarpsins sakamála-
mynd frá árinu 1956.
Myndinni leikstýrir Luis
Bunuel en hann er mörg-
um að góðu kunnur fyrir
myndir sínar. Myndin er
byggð á sögu eftir José
André Lacour.
Myndin greinir frá því
að ævintýramaður nokk-
ur, Chark að nafni, kem-
ur til þorps eins í frum-
skógum Amason-
svæðisins, en þar er fyrir
fjöldi fólks sem hefur
stundað demantsleit þar í
grennd en hefur nú verið
hrakið í burt af stjórn-
völdum. Er fólkið að von-
um lítt hrifið af þessum
aðgerðum stjórnvalda.
Chark lendir brátt í
ævintýrum og er hand-
tekinn, grunaður um
þjófnað. Þegar uppreisn
brýzt út á svæðinu tekst
honum þó að flýja og
leggur af stað ásamt
nokkrum öðrum í gegn-
um frumskóginn.
Seinni hluti myndar-
innar fjallar um flóttann
í gegnum frumskóginn.
Auk Charks taka þátt í
flóttanum hin mjög svo
vafasama kona, Djin,
Castin nokkur demanta-
leitari og hin mállausa
dóttir hans, María, og
Lizzardi, trúboðsprestur
sem vill ólmur komast í
tæri við mannætur og
annan ókristinn lýð. I
fyrstu tekur einn annar
skuggalegur náungi þátt
í flóttanum, en stingur af
mason
við fyrsta tækifæri með
mikinn hluta birgða
þeirra og aukast þar með
vandræði hinna að mun.
Með helztu hlutverk í
myndinni fara Simone
Signoret, sem leikur
Djin, Charles Vanel,
Georges Marchal og
Michel Piccoli.
Myndin er á dagskrá
i kl. 21.55.
Sagan af Söru Leander kl. 20.10:
Dýrkeypt samband
1 kvöld er á dagskrá útvarps-
ins sfðari þáttur Sveins Ás-
geirssonar um Söru Leander.
Sara Leander er sænsk og
varð mjög þekkt sem söngkona
og leikkona á fjórða áratugn-
um. Þýzka kvikmyndaheiminn
skorti tilfinnanlega sína Garbo,
eins og þeir í Hollywood, og þar
eð Marlene Dietrich var glötuð
þýzka kvikmyndafélaginu UFA
var Söru Leander gert tilboð,
sem hún tók.
Varð hún brátt yndi manna í
Þýzkalandi og meira að segja
æðstu manna ríkisins og það
átti eftir að verða henni dýr-
keypt.
Þetta var á stjórnartima
nazista og einn af fjölmörgum
aðdáendum Söru Leander var
enginn annar en Jósef Göbbels.
Hann reyndi margt til að ná
ástum hennar, en varð ekkert
ágengt. Samband hennar við
Göbbels nægði þó til þess að
eftir að hún kom til Svíþjóðar
að nýju árið 1943 var nafn
hennar ætíð bendlað við stjórn
nazista í Þýzkalandi.
Hún kom þó fram fyrir
nokkrum árum þar í landi og
var þá vel tekið.
I þættinum i kvöld hyggst
Sveinn Ásgeirsson einkum
fjalla um líf hennar og störf í
Þýzkalandi.
Þátturinn hefst kl. 20.10.