Morgunblaðið - 13.08.1977, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. AGUST 1977
5
þeim fjölgaö nokkuð hratt á síð-
ustu árum; ’47 voru þeir 71, ’57
160, ’67 293. Þakkaði Jón Gauti
það virkjunarframkvæmdum í
nágrenni Hellu. Þar væru nálægt
300 Rangæingar i vinnu og ætti
eflaust þátt i því að koma í veg
fyrir að fólk flyttist þaðan. Þó
sagði Jón að þetta hefði einnig
vissa erfiðleika i för með sér, at-
vinnufyrirtæki heima fyrir gætu
varla keppt við virkjunarfram-
kvæmdir hvað laun snerti.
Af dagskráratriðum, sem verða
hinn • 20. ágúst má m.a. nefna
hátíðarræðu Ingólfs Jónssonar,
minnisvarði verður afhjúpaður,
afhentar verða viðurkenningar
fyrir snyrtileg hús og lóðir, sýndir
verða þjóðdansar og haldnar mál-
verka- og ljósmyndasýningar. Á
málverkasýningunni munu 12
listamenn eiga verk, m.a. Eyjólf-
ur Eyfells og Ölafur Túbals en
ljósmyndasýningin samanstendur
af teikningum, sem Helga Skúla-
dóttir frá Keldum gerði af öllum
bæjum i Rangárþingi kringum ár-
ið 1930, svo og Ijósmyndum sem
teknar hafa verið af bæjunum
1970. Þessum sýningum, svo og
iðnsýningunni lýkur fimmtudag-
inn 25. ágúst.
Stal ávís-
unumfyrst
MORGUNBLAÐIÐ hefur verið
beðið um að koma þvi á framfæri,
að maðurinn, sem sveik 30 orlofs-
ávisanir út úr Pósti og sima, vann
ekki á póstgíróstofunni. Hins veg-
ar var maðurinn í þannig stöðu
hjá Pósti og síma, að hann hafði
mikil lyklavöld. Er talið að hann
hafi farið að næturlagi á þann
stað, sem ávisanirnar voru
geymdar og stolið þeim, en öðru
visi hefði hann ekki getað leyst
þær út.
Merkingar á
laxi ogsilungi:
50 ára afmæli
byggðar á Hellu
LAUGARDAGINN 20. ágúst n.k.
mun þess verða minnst á Heilu að
50 ár eru liðin fra því að þar
settist að fyrsti „landnámsmaður-
inn“ eins og hann er nefndur,
Þorsteinn Björnsson. Verður af-
mælisins minnst með hátfðardag-
skrá og um leið verður iðnsýning
á Hellu, en hún mun verða opnuð
af iðnaðarráðherra föstudaginn
19. ágúst kl. 13.30.
Jón Gauti Jónsson, sveitarstjóri
Rangárvallahrepps, kynnti fyrir
fréttamönnum dagskrá hátiða-
haldanna, sem hann sagði að sér-
stök afmælisnefnd, er hreppurinn
hefði skipað, sæi um. Hana skipa
Sigurður Haraldsson, Kirkjubæ,
Páll G. Björnsson, Hellu, Unnur
Þórðardóttir, Hellu, Sjöfn Árna-
dóttir, Hellu, og Einar Kristins-
son, Hellu. Jón Gauti sagði að
leitað hefði verið eftir samstarfi
við islenzka iðnkynningu og hefði
það orðið að samkomulagi að efna
um leið til iðnkynningar á Hellu.
Munu milli 25 og 30 iðnfyrirtæki
kynna framleiðslu sína á iðnsýn-
ingu og verður dagur iðnaðarins
haldinn 19. ágúst og fundur um
iðnaðarmál verður i Hellubiói kl.
14.30 þann dag. Iðnsýningin mun
standa yfir til 25. ágúst.
steinn Björnsson, en hann fluttist
siðastur manna með alla búslóð
sína frá Húnvatnssýslu yfir fjall-
vegi suður i Rangárvallasýslu og
settist að á Hellu. Sagði Jón Gauti
Jónsson að hann væri því eigin-
lega fyrsti landnámsmaðurinn á
Hellu. Af öðrum frumbyggjum
þar nefndi hann Ingólf Jónsson,
sem tók eiginlega við af Þorsteini,
og sagði Jón Gauti að Ingólfur
ætti einna mestan þátt í uppbygg-
ingunni á Hellu ef hægt væri að
þakka hana nokkrum einum
manni. tbúar Hellu eru nú skv.
manntali 1. des. 1976 496 og hefur
Gert hefur verið merki Rangár-
vallahrepps og var efnt til sam-
keppni um það. Hlaut fyrstu verð-
laun, kr. 50.000, Kristinn Schev-
ing, en alls skiluðu 9 aðilar 13
tillögum. Þá hafa verið gerðir
veggplattar, þar sem eru tvær
teikningar, önnur er sýnir elztu
byggðina á Hellu og hin, er sýnir
Hellu í dag.
Fyrsti íbúi á Hellu var Þor-
Verðlaun
fyrir upp-
lýsingar um
merktan fisk
Á vegum Veiðimálastofnunar hefur
undanfarin ár verið merktur töluverður
fjöldi lax og silungs víðsvegar um
landið
Við merkingar þessar hafa bæði ver-
ið notuð sérstök fiskmerki, sem fest
eru á fiskinn, eða klipptur er af seiðun-
um uggi og á það sérstaklega við um
laxamerkingar
Þess er sérstaklega vænzt að merktir
laxar veiðist í sumar i eftirtöldum
vatnasvæðum vegna merkinga á
gönguseiðum vorið 1976: Ártúnsá
(vinstri kviðaruggi), Andakilsá (veiði-
uggi) vatnasvæði Hvitár i Borgarfirði
vegna merkinga á laxaseiðum sem
sleppt var i Norðlingafljót (hægri kvið-
aruggi), Botnsá í Súgandafirði (ugga-
klippingar), Hofsá á Skagaströnd
(veiðiuggi) og Laxeldisstöð ríkisins í
Kollafirði, en þar voru gönguseiði
merkt bæði með merkjum og veiðj-
uggaklippingu Auðvitað getur merktur
fiskur fengizt víðar en i þeim ám, sem
fiskur hefur verið merktur i
Silungar hafa verið merktir á eftir-
töldum stöðum síðustu ár: Djúpavatni
á Reykjanesi, Elliðavatnssvæðinu, Lár-
ósi, Eystra Friðmundarvatni á Auðkúlu-
heiði, Laxá i Þingeyjarsýslu (Efri Laxá),
Mývatni og Stóra-Fossvatni á Land-
mannaafrétti.
Það eru tilmæli Veiðimálastofnunar
til veiðimanna að þeir athugi vel hvort
að fiskur, sem þeir veiða í sumar, sé
merktur, og ef svo er að láta Veiðimála-
stofnunina vita um það Slíkum upp-
lýsingum þarf að fylgja vitneskja um
tegund fisks, kyn, lengd og þyngd og
veiðidag og veiðistað Veitt eru verð-
laun fyrir upplýsingar um merktan fisk.
(Frá Veiðimálastofnuninni)
1
i
í
.