Morgunblaðið - 13.08.1977, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. AGÚST 1977
Sterkt skáklið í
sexlandakeppni
ÁKVEÐIÐ hefur verið hverjir
tefla fyrir tslands hönd 1 sex
landa keppninni svokölluðu, sem
fer nú fram í Glúgsburg í V-
Þýzkalandi 8.—16. september n.k.
Störmeistararnir Friðrik Ölafs-
son og Guðmundur Sigurjónsson
verða á fyrsta og öðru borði, Ingi
Loðnuaflinn
nokkru meiri
en á sama
tíma í fyrra
Sumarloðnuveiðin er nú orðin
nokkru meiri en hún var á sama
tfma f fyrra. Andrés Finnboga-
son, starfsmaður loðnunefndar,
sagði Morgunblaðinu f gær, að nú
væri búið að landa liðlega 39.000
lestum, en f fyrra hefðu rétt um
38.000 lestir á verið komnar á
land.
Undanfarna tvo sólarhringa
hefur svo til engin loðnuveiði ver-
ið, enda bræia á miðunum. Þrett-
án skip héldu til hafnar í fyrra-
dag með samtals um 2050 lestir.
Fóru flest skipanna til Faxa-
flóahafna með aflann og var
Börkur NK með mestan afla, 300
lestir.
R. Jóhannsson, alþjóðlegur
meistari, á þriðja og Ingvar
Ásmundsson teflir á fjórða borði.
Helgi Olafsson teflir á borði
þeirra, sem eru undir 24 ára
aldri, og Guðlaug Þoreteinsdótt
k'eppir á kvennaborðinu.
Sex landa keppnin er árleg
skákkeppni Norðurlanda og V-
Þýzkalands. I fyrra lentu Islend-
ingarnir í þriðja sæti, en þá
keppti Ingvar Ásmundsson á
fyrsta borði. Fararstjóri íslenzka
liðsins verður Þorsteinn Þor-
steinsson og einnig mun Gfsli
Árnason sitja afmælistóf vestur-
þýzka skáksambandsins fyrir
hönd Skákeambands islands.
Á þessum tíma verða íslands-
meistarinn og Norðurlanda-
meistari unglinga, Jón L. Árna-
son að keppa á heimsmeistara-
móti unglinga, og veFður Margeir
Pétursson væntanlega aðstoðar-
maður hans þar.
—Fréttiraf ARA-A
Framhald af bls.32
Þá spurði Mbl. landlækni,
hversu langur timi liði þar til
lyf væri almennt komið í notk-
un frá uppgötvun þess. Kvaðst
landlæknir þá vilja undirstrika,
að þessar fréttir nú væru að-
eins af fyrstu tilraununum, en -
ef framhaldíð yrði jafn jákvætt,
þá þyrfti ekki svo langur tími
að líða frá frekari staðfestingu
þar til lyfið yrði komið í al-
menna notkun. Sagði landlækn-
ir til dæmis að innan við hálft
ár hefði þetta tekið, þegar pens-
ilinið kom fram og nú ætti þessi
tími að geta orðið enn styttri
með fleiri rannsóknastofum og
betri samgöngum.
„Ef þær vonir, sem nú hafa
vaknað, rætast fullkomlega“,
sagði landlæknir, „þá má vissu-
lega líkja uppgötvun þessa lyfs
við það þegar pensilínið kom
fram gegn bakteríunum".
— Sólarlanda
ferðir
Framhald af bls. 2
stórum stíl þar sem ekki er unnt
að fá viðbótarhúsnæði 1 þeim
gæðaflokki sem við viljum," sagði
Guðni Þórðarson, forstjóri
Sunnu, þegar Mbl. innti í gær
frétta af fjölda sólarlandafarþega
í sumar.
„Við erum með tvær flugvélar
alla sunnudaga til Mallorka," hélt
Guðni áfram, „og einnig til Costa
Brava, alla þriðjudaga til Grikk-
lands og alla föstudaga til Costa
del Sol, en að auki erum við með
nokkur aukaflug i ágúst og
september. Um mánaðamótin
ágúst—september verðum við
með um 800 manns á Mallorka,
450—500 á Costa del Sol, 250 á
Costa Brava og um 300 í Grikk-
landi, eða alls milli 1800—1900
manns á sama tíma.“
„Ég hugsa að þetta komi út
svipað og s.l. ár i heildina þótt
álagið hafi verið meira nú á
seinna fallinu," sagði Steinn Lár-
usson forstjóri Urvals í samtali
við Morgunblaðið i gær. Aukning-
in er þó nokkur, líklega um
10—15% á sumrinu, en hins veg-
ar er aukningin mun meiri á vetr-
arferðunum, þar er stórkostleg
aukning.
Alagið er þó mest á
ágúst—september og það má
segja að það seljist allt sem sett er
á markað. Við erum nú með að
staðaldri um 500 farþega á Ibiza
og Mallorka."
„Um þessar mundir er aðal
annatíminn hjá okkur,“ sagði
Kristin Aðalsteinsdóttir hjá Ut-
sýn í samtali við Mbl. í gær, „í gær
fór DC-8 vél, önnur í kvöld og ein
fer á sunnudag. Það er aukning á
suðurlandafluginu, en þó höfum
við ekki aukið sætaframboðið,
það er svipað og í fyrra. Nýtingin
er hins vegar betri nú. Við erum
nú með um 500 manns á Costa del
Sol, um 300 á Costa Brava og
liðlega 300 á ítalíu."
— Búið að veita
Framhald af bls. 32
landi, en þessir aðilar ætluðu að
veiða 4 háhyrninga, þá hefði Sæ-
dýrasafnið í Hafnarfirði fengið
leyfi til að fanga 6 háhyrninga í
samvinnu við Sea World í Banda-
rfkjunum og heollenzkan aðila.
Eins og kunnugt er hófust há-
hyrningaveiðar við Island um
hausjið 1975, en það var fyrst i
fyrra sem tókst að ná dýrunum og
flytja þau úr landi, en þá voru
fluttir út þrír háhyrningar, einn
til Frakklands og tveir til Hol-
lands.
— Sonur Sáms
Framhald af bls. 1
gögnum, sem lögreglan telur sig
hafa í höndunum.
Geðrannsóknin mun taka að
minnsta kosti 1 mánuð en flestir
lögreglumenn eru sannfærðir um
að Berkowitz verði úrskuróaður
geðveikur og ekki ábyrgur gerða
sinna og komi því aldrei fyrir
rétt.
—Mánaðarlaunin
Framhald af bls. 32
1. mai, er 104 stig frá
l.september, en vísitala fram-
færslukostnaðar hækkaði um
35.56 stig frá maíbyrjun til ágúst-
byrjunar, eða um 4.87%. Var þar
um að ræða hækkuna á mörgum
vöru- og þjónustuliðum, innlend-
um og eriendum segir í frétt Hag-
stofu Islands.
Samkvæmt samningum ASÍ og
VSl eiga mánaðarlaun fyrir fulla
dagvinnu að hækka um 880 krón-
ur fyrir hvert stig, sem verðbóta-
vísitalan hækkar, og eins og að
framan segir var sú hækkun 4
stig.
— Við munum
flytja
Framhald af bls. 2
aldrei komið til sumra þeirra
staða sem við heimsækjum nú.
Við flytjum t.d Sverðdansinn,
íslenzk lög og erlend, einsöngslög
fyrir einsöngvarana og einnig
dúetta, valsa eftir Strauss og í
stuttu máli verk sem fólk kannast
við og hefur alltaf gaman af að
heyra.
Það er okkar verkefni að fara
út á Iandsbyggðina og halda tón-
leika, sinfóníuhljómsveitin er
ekki einkabarn Reykjavíkur,
heldur þjóðarinnar allrar og það
hefur sýnt sig að þar sem hljóm-
sveitin kemur lætur fólk sig ekki
vanta. Ástæðan fyrir því að við
förum nú i eina langa ferð er sú
að við teljum það heppilegra á
margan hátt, því það er það mikið
fyrirtæki að koma sér af stað.“
Fyrstu tónleikar Sinfóníu-
hljómsveitar Isiands í þessari
ferð verða 7. sept. á Blönduósi,
síðan 8. sept. á Sauðárkróki, 9.
sept. í Siglufirði 10. verða barna-
tónleikar á Akureyri og aðrir tón-
leikar um kvöldið. Hinn 11. sept.
verða tónleikar síðdegis á Húsa-
vik og um kvöldið verða tónleikar
í Skjólbrekku. 13. sept. verða tón-
leikar á Egilsstöðum, þann 14.
sept. á Seyðisfirði, barnatónleikar
síðdegis á Eskifirði hinn 15. sept.
og kvöldtónleikar á Neskaupstað
sama dag. Hinn 16. sept. verður
hljómsveitin með tónleika á Höfn
I Hornafirði og siðustu tónleik-
arnir í þessari ferð verða á
Kirkjubæjarklaustri 17. sept.
— Þjóðhags-
stofnun
Framhald af bls. 32
konar fiskvinnsla sem ætti að
standa allvel að vígi og ekki mætti
aðeins tala um neikvæðu hliðarn-
ar. Loðnubræðslum I þessum
fjórðungum hefði vegnað vel á s.l.
vetrarloðnuvertið og stæðu þær
nú betur en I langan tíma. Síld-
veiðar hæfust innan skamms tíma
og mestum hluta síldarinnar væri
landað á svæðinu og þá mætti
ekki gleyma því að langmestur
humaraflinn kæmi á land á þess-
um stöðum.
— Bretland og
verðbólgan
Framhald af bls. 1
er betra en 81 milljón punda hall-
inn I júní, en menn höfðu átt von
á hagstæðum jöfnuði fyrir júli.
Einnig kom fram að framleiðni
iðnaðar I Bretlandi minnkaði
nokkuð á öðrum ársfjórðungi eft-
ir að hafa haldist stöðug um
margra mánaða skeið.
Roy Hattersley, verðlagsmála-
ráðherra Bretlands, sagði á fundi
með fréttamönnum I dag, að eng-
inn vafi léki á að verðbólgan
myndí haida áfram að lækka það
sem eftir væri ársins, en hvað
gerðist eftir það, byggðist ein-
göngu á þróuninni I launamálum.
Brezkir ráðherrar hafa undanfar-
ið sifellt hamrað á því í ræðum og
fréttaviðtölum að mikilvægast
fyrir þróun brezkra efnahagsmála
nú sé hófsemi I kröfugerð verka-
lýðsfélaganna i kjarasamningum
fyrir næsta ár og hafa þeir bent á
að allt bendi nú til að markmið
ríkisstjórnarinnar um 12% verð-
bólgu í árslok náist.
— Þór f allinn
Framhald af bls. 31
aði Þór. Hár bolti var gefinn inn i
vítateig KR og hugðist Magnús
markvörður s)á boltann frá en
mistókst og Sigþór Ömarsson
skoraði léttilega með skalla.
Menn voru nú farnir að búast við
jafntefli og þar með falli beggja
liða en tuttugu mínútum fyrir
leikslok gaf Sverrir Herbertsson
varamaður KR sér og félögum
nokkurn gálgafrest, þegar hann
skoraði sigurmark KR-inga. Langt
innkast var tekið nálægt enda-
mörkum og sló Ragnar markvörð-
ur boltann frá markinu fyrir fæt-
ur Sverris, sem skoraði með við-
stöðulausu skoti.
Hætt er við að Þór missi nú
nokkra af sínum elztu mönnum og
eru því líkur á því að liðið dvelji
einhvern tíma í 2. deild á meðan
endurnýjun á sér stað i liðinu.
Hins vegar verða að teljast likur á
þvi að dvöl KR I 2. deild verði
stutt, ef liðið þá fellur, sem mikl-
ar líkur eru á. Hjá KR átti Vil-
helm einna beztan leik að þessu
sinni en hjá Þór var Sigurður
Lárusson bezti maðurinn eins og
svo oft áður.
1 stttu máli:
Ákureyrarvöllur 12. ágúst, Is-
landsmótið 1. deild, Þór — KR 2:3
(1:2).
Mörk Þórs: Arni Gunnarsson á
36. mfnútu og Sigþór Omarsson á
59. mfnútu,
Mörk KR: Vilhelm Frederiksen
á 10. og 25. mfnútu og Sverrir
Herbertsson á 70 mfnútu.
Aminning: engin.
— Sprengingar
rússanna
Framhald af bls. 2
er það að segja að okkur var
sérstaklega vísað á þá tjörn af
talsmönnum Ljósavatnshrepps
og það er ekkert gat á botni
þeirrar tjarnar eftir sprenging-
una, en hins vegar hefur yfir-
borðið lækkað um eina 50 sm
vegna gusugangsins sem kom í
sprengingunni. Hitt er svo að
við vissum ekki að Veiðifélag
væri i Fnjóská, ella hefðum við
talað við þá að sjálfsögðu, því
við viljum fyrst og fremst frið
og engin náttúrusþjöll. Rúss-
arnir eru hér með tæki upp á
100 millj. kr. og Orkustofnun
fær að nota þau gögn sem rann-
sóknirnar skila af sér, en þessi
tæki eru ekki til i eigu inn-
lendra.
Hér er um að ræða landreks-
mælingar á svipuðu stigi og
fjölþjóðamælingarnar hér við
land fyrir skömmu. Það er ver-
ið að finn út hvers vegna ísland
er hér á hryggnum og hvaða
efni er undir landinu, hvort það
flýtur á púða eða er reist á
bjargi. Niðurstöður af þessum
mælingum verða siðan ræddar
hér á fundi vísindamanna
næsta vor.
Um þessar mundir erum við
að sprengja og mæla í Mývatns-
sveit i Sandvatni. Við erum þar
i einum smáenda vatnsins og
einnig austur af Námafjalli þar
sem við tökum eitt og eitt skot.
Alls eru 14 Rússar í þessum
leiðangri og íslenzkur sprengi-
sérfræðingur, en i hverri
sprengingu notum við 5—200
kg af dynamiti, en líklega er
meðalstærðin um 25 kg. Mála-
vafstrið í kring um þetta tel ég
hins vegar vera 99% tilfinn-
ingamál en ekki dynamit."
— Eftirhantöku
sonar Sáms
Framhald af bls. 15
arins Jimmy Breslin sýnir þetta er
hann segir þar með nokkrum þótta:
„Vinsamlegast skilið til lögreglunnar
að ég óski henni gæfu og gengis t
leit sinni"
Fjöldi manns gaf sig fram við
lögregluna og sagðist vera sonur
Sáms. Eins og áður hefur verið vikið
að fékk lögreglan einntg þúsundir
ábendinga frá fólki Allar slíkar voru
athugaðar vel og vandlega, enda
þótt árangurinn léti á sér standa
Hvað sem öðru líður draga New
York búar nú andann léttar. Þeim
finnst sem tilveran hafi — auk
þessa nagandi ótta við blóðþyrstan
morðingja, — verið þeim óblíð upp
á siðkastið og margir leiðindaat-
burðir, sem valdið hafa vandræðum
og erfiðleikum, hafa vissulega orðið
i borginni Sem stendur er það nú
allt gleymt í gleði yfir þvi að morð-
óður sjúklingur hefur verið hand-
samaður
SVAR MITT
EFTIR BILLY GRAHAM
ÉG á fjórtán ára son, sem varð fyrir slysi fyrir hálfu ári. Ég bað
þess f marga mánuði, að honum batnaði, en læknarnir segja
mér, að honum muni aldrei fara neitt fram. Ég vildi, að ég gæti
sagt yður, hve ég hata þessa ógeðslegu ókind, sem er kölluð
Guð. Segið honum, þegar þér biðjið hann, hversu ég fyrirlft
hann.
Skelfilegt er að heyra, hvernig þér snúizt við
þessu. En ég bið yður að skoða hjarta yðar og
samvizku! Er hugsanlegt, að sú trú, sem þér áttuð á
Guði, hafi verið háð því, hvað hann gæti gert fyrir
yður? Er hugsanlegt, að þér hafið þjónð honum,
eins og margir aðrir, fyrir það, sem hann gæfi
yður, er hann losaði yður við sársauka og þján-
ingu? Er hugsanlegt, aó þér hafið alls ekki elskað
Guð, heldur aðeins elskað bænheyrslur hans og þá
huggun, sem hann veitti yður — en þér hafið svo
brotnað, þegar á reyndi, og svokölluð trú yðar
snúizt í beiskju? Er hugsanlegt, að þér hafi snúið
við honum bakinu, jafnskjótt og hann virtist í
fyrsta sinn láta sér á sama standa um bænir yðar
og óskir?
Ég ætla að svarið við öllum spurningum sé „já“,
og ég skal segja yður, hvers vegna.
Ég á góðan vin, sem er prestur. Hann missti
nýlega konu sína. Hún hafði ólæknandi krabba-
mein. Konan hafði verið stoð hans og stytta. Börn-
in urðu móðurlaus. Hann stóð einn uppi með þau.
Missti hann trú sína á Guð og kærleikann til hans?
Nei, því fer víðsfjarri. Hjá honum fann hann kraft,
sem nægði dag hvern, og ljós til að lýsa fram á
veginn. Sjáið þér til: Kærleiki hans til Guðs var
óumbreytanlegur, og aðstæður breyta ekki kær-
leikanum.
Þessa sögu gæti ég endurtekið mörgum sinnum,
ef rúm væri til þess. Ótölulegur fjöldi manna hefur
fundið styrk og hugsvölun í erfiðleikum með því að
hvílast í hinum eilífu örmum. En þér hafið kosið að
kenna Guði um hvert slys, þegar eitthvað gerist
þvert ofan í óskir yðar og hann skundar ekki á
vettvang til að hjálpa yður. Það er ekki að furða, þó
að þér eigið bágt.