Morgunblaðið - 23.08.1977, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 23.08.1977, Blaðsíða 34
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. AGUST 1977 Þróttur vann Selfoss EFTIR 2—0 sigur sinn yfir Sel- fyssingum á Selfossi í gærkvöldi eru Reykjavíkur-Þróttarar enn við toppinn í 2. deildar keppninni og eiga góða möguleika á að endurheimta sæti sitt í 1. deild. Sigurinn í gærkvöldi var þó engan veginn fyrirhafnarlaus fyrir Þrótt, þar sem Selfyssingar sýndu þá einn sinn bezta leik í sumar — börðust vel og voru á köflum betri aðilinn á vellinum, sérstaklega í fyrri hálfleik. Selfyssingar áttu eina góða tækifærið sem gafst í þeim hálf- STAÐAN Staðan I 2. deildarkeppni is- landsmótsins i knattspyrnu er nú þessi: KA 14 11 1 2 44:19 23 ÞrótturR 14 10 2 2 32:14 22 Haukar 14 6 7 1 22:11 19 Ármann 14 7 3 4 23:18 17 ísafjörður 14 55 416:1715 ReynirS 14 5 4 5 21:23 14 Völsungur 14 34 7 14:22 10 ÞrótturN 14 3 3 8 17:26 9 Selfoss 14 2 2 10 11:31 6 ReynirÁ 14 13 10 13:32 5 leik er Sigurður Reynir skallaði að marki Þróttar á 3. minútu, en markverði Þróttar tókst þá að bjarga naumlega. Allan hálfleik- inn voru Selfyssingar svo öllu meira i sókn, en jafnan vantaði punktinn yfir i-ið hjá þeim, þannig að ekki tókst að skora. Var staðan i hálfleik 0—0. í seinni hálfleiknum náðu Þróttarar sér betur á strik og eftir að þeir höfðu fengið sannkallað gjafamark á 30. minútu var varla vafamál hvor aðilinn myndi hafa betur. Mark þetta kom þannig að einn af leikmönnum Selfoss- liðsins lagði knöttinn fyrir Þrótt- ara og tókst siðan Páli Ölafssyni að skora. Páll bætti síðan öðru marki við á 40. minútu hálfleiks- ins, og var það mjög fallegt. Selfyssingar fengu einnig góð færi í hálfleiknum, eins og þegar Kári Jónsson skallaði hörkuskalla rétt framhjá snemma í hálfleikn- um og er Óskar Marelsson skall- aði yfir af mjög stuttu færi undir lok leiksins. Reynismenn sjá ekki eftir 2. deild REYNIR og ísfirðingar mættust á fostudagskvoldið i 2. deildarleik á Árskógsstrandarvelli. Jafntefli varð, hvorugt liðið skoraði mark. Með Jafnt í Sandgerði REYNIR og Völsungur gerðu jafntefli i Sandgerði á laugardag- inn 1:1 og þar með þokuðu Hús- víkingarnir sér enn lengra frá falli. Leikurinn var mjög jafn lengst af, en undir lokin sóttu Reynis- menn þó öllu meira. í fyrri hálf- leik skoraði Magnús Kristinsson i eigið mark og staðan varð 1:0 fyr- ir Völsung en Magnús bætti fyrir mistökin i s.h. er hann jafnaði með fallegu skaliamarki eftir horn. Hjá Reyni var Pétur Sveinsson beztur en unglingalandsliðsmað- urínn Kristján B. Olgeirsson var beztur í liði Völsungs. þessum úrslitum má segja að Reynir hafi endanlega kvatt alla von um áframhaldandi veru í 2. deild. ..Það er engin eftirsjá að 2 deildinni hérna," sagðí Valdimar Kjartansson, fréttaritari Mbl á Árskógsströnd, þegar íþróttasiðan ræddi við hann eftir leik- inn. „Það hefur verið mjög erfitt fyrir okkur og ákaflega dýrt að taka þátt i keppni 2. deildar. Það eru svo margir sjómenn i liðinu að 2—3 bátar hafa hreinlega orðið að koma að landi til þess að hægt væri að spila leikina f 3 deildinni er þetta allt viðráðanlegra. leikirnir i næsta nágrenni við okkur og hægt að skjótast þetta á bilum." Um leikínn á föstudagskvöldið er ekki mikið að segja Hann var jafn og tækifæri fengust á báða bóga en þau nýttust ekki Reynismönnum hefur gengíð afar illa að skora siðan þeir komust upp i 2. deild. en fyrir hálfum mánuði voru þeir aftur á skotskónum er þeir unnu Dalvik 19:2 i Eyjafjarð- armótinu. I þeim leik skoraði Gylfi Baldvinsson 9 mörk, hann var áður fyrr mesti markaskorari Reynismanna en hefur nú lagt skóna á hilluna að mestu Vantar Reyni tilfinnanlega markaskorara á borð við Gylfa —SS. Armenningar sækja að marki KA en Akureyrarmarkvörðurinn gómar knöttinn orugglega. KA nú feti frá 1. deild KA trónar enn ó toppi 2. deildar eftir 5—1 sigur yfir Ármanni i Laugar- dalsvellinum Eins og markatalan gefur til kynna voru yfirburðir KA miklir og hefðu þeir jafnvel getað unnið leikinn með enn meiri mun. Gunnar Blöndal, markaskorarinn mikli hjá KA, var heldur betur i ham i þessum leik skoraði þrjú mörk, öll i fyrri hálfleik. og barðist vel allan leik- inn Frysta markið kom eftir 10 mln leik, Ármann Sverrisson átti skot á markið sem Ögmundur markvörður Ár- manns hélt ekki og Gunnar Blöndal potaði boltanum i netið S mskonar atvik kom upp mínútu siðar með sömu menn i aðalhlutverkum en Gunnar skaut þá yfir Hinsvegar urðu honum ekki á nein mistök skömmu siðar þegar hann fékk boltann eftir hornspyrnu og þrumuskot hans rataði rétta leið i netið framhjá varnarmönnum Ármanns. En Ármenningar náðu að laga stöðuna, Þ'ráinn Ásmundsson skoraði mark Gunnar Blöndal var greinilega ekki ánægður með þetta. því skömmu siðar skoraði hann fallegt mark eftir góða fyrirgjöf frá Ármanni Sverrissyni Staðan var þvi 3—1 i hálfleik. Strax í byrjun seinni hálfleiks fékk Sigurbjörn Gunnarsson góðan stungu- bolta frá Jóhanni Jakobssyni og hann skoraði örugglega framhjá Ögmundi Á. Síðasta mark leiksins skoraði Eyjólfur Ágústsson um miðjan hálfleikinn er hann skallaði í netið eftir hornspyrnu. Fleiri urðu mörkin ekki þrátt fyrir ágæt tækifæri. einkanlega KA-manna, þó áttu Ármenningar sln færi, það var helzt Egill Steinþórsson, bezti maður Ármanns i leiknum sem gerði usla i vörn KA KA-liðið sýndi i heild góðan leik og því erfitt að nefna beztu menn, i fram- linunni bar mest á Gunnari og Ár- HAUKAR unnu góðan sigur yfir Þrótti. Neskaupstað, á Kaplakrika velli á laugardag. Töluverður vindur stóð eftir endilöngum vellinum og setti hann sitt mark á leikinn, sem var heldur leiðinlegur á a8 horfa þrátt fyrir sex mörk. Haukar náðu forystu um miðjan fyrri hálfleik, þá átti Sigurður Aðalsteinsson gott skot á markið sem markvörður Þróttar náði að verja í horn og upp úr horninu skallaði Ólafur Jóhannesson boltann í netið. 10 mín. síðar náðu Þróttarar að jafna, Sigurður Friðjóns- son renndi boltanum i netið eftir að markmaður Hauka hafði misst frá sér skot Björgúlfs Halldórssonar En Hauk- manni, einnig áttí Sigbjörn góðan leik Þá skal einnig minnzt á „gamla mann- inn" i KA-liðinu, Þormóð Einarsson, sem barðist vel allan leikinn og dreif sina menn áfram. Dómari í þessum leik var Ólafur Valgeirsson og átti hann ekki góðan dag að þessu sinni. — HVH. arnir svöruðu fyrir sig með tveimur mörkum, Ólafur Jóhannesson skoraði aftur fyrir Haukana, úr þvögu eftir hornspyrnu. Og á sömu minútunni var Ólafur aftur á ferð, átti góðan skalla á markið sem markvörður inn hálfvarði og Sigurður Aðalsteinsson átti ekki I erfiðleikum með að pota knettinum inn. Þannig var staðan í hálfleik. 3— 1. Um miðjan siðari hálfleik náði Helgi Benediktsson að minnka muninn fyrir Þrótt með marki af stuttu færi. En skömmu siðar gulltryggðu Haukarnir sigurinn er Guðmundur Sig- marsson skoraði beint úr aukaspyrnu. Þannig urðu lokatölur leiksins 4— 2, sanngjarn sigur Hauka i frekar slökum leik, þar sem markmennirnir voru Jélegustu menn liðanna. Dómari leiksins var Baldur Scheving og stóð hann sig vel ___HVH islandsmðtlð 2. delld Oruggur Haukasigur f þetta sinn lagði Óskar Sæmundsson boltann svo nálægt holunni að andstæðingurinn tók upp boltann, henti honum til Óskars og gaf honum höggið. Óskar er fyrir miðju. Ljósm. Rax. Opna íslenzka meistaramótið: Glæsilegur sigurÓskars ÓSKAR Sæmundsson, GR, kom mjög á óvart með því að sigra örugglega í opna íslenzka meistaramótinu f golfi, „Iceland- ic Open“, sem fram fór á Hval- eyrarvellinum um helgina í mjög góðu veðri. Óskar er margreynd- ur kylfingur en hann hefur lftið getað stundað golf að undan- förnu, þar sem hann er loft- skeytamaður á rannsóknarskip- inu Arna Friðrikssyni. Keppni þessi er holukeppni með útsláttarfyrirkomulagi. 32 kylfingar hófu keppnina, allir með 7 í forgjöf eða lægra. Þetta var þvi önnur sterkasta golf- keppni sumarsins. Það vakti at- hygli að fslandsmeistarinn Björg- vin Þorsteinsson var úr leik strax fyrsta daginn, tapaði fyrir Sigurði Hafsteinssyni, GR. Til úrslita léku Óskar og Sveinn Sigurbergsson, GK, og þegar tvær holur voru eftir hafði Óskar unn- ið þremur holum meira og var því sigurvegari 3:2. í keppninni um þriðja sætið vann Sigurður Hafsteinsson Ragnar Ólafsson, GR. 3:2 Þetta síðasta stórmót sumarsins gaf 255 stig til landsliðs og þar hlaut Óskar 63,75 stig og er nú fjórði á landsliðslista Golfsam- bandsins í sumar með 92,20 stig. Efstur er Ragnar Ólafsson, GR, með 195,75 stig, annar Björgvin Þorsteinsson, GA, með 175,33 stig og þriðji Sveinn Sigurbergsson 153,35 stig.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.