Morgunblaðið - 23.08.1977, Side 40
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. AGUST 1977
Gerry Francis, fyrirliði Queens Park Rangers (t.v.), og Denis Mortimer berjast um boltann I leik QPR og
Aston Villa á laugardaginn. Villa vann lcikinn 2:1. Símamynd AP.
KnatlsDyrnuúrsilt
ENGLAND, 1. DEILD:
BirminRham — Manchester Utd 1:4
Bristol City — Wolverhamton 2:3
Coventry — Derbv 3:1
Everton — Nottingham Forest 1:3
Ipswich —Arsenal 1:0
M anchester City —Leicester 0:0
Middlesbrough — Liverpool 1:1
Newcastle — Leeds 3:2
QPR — Aston Villa 1:2
West Bromwich —Chelsea 3:0
West Ham — Norwich 1:3
ENGLAND. 2. DEILD:
Blackpool — Oldham 1:1
Burnley — Bolton 0:1
Cardiff — Bristol Rovers 1:1
Fulham —Charlton 1:1
Hull — Sunderland 3:0
Luton — Orient 1:0
Mansfield —Stoke 2:1
Millwall —Crvstal Palace 0:3
Notts Countv — Blackburn 1:1
Southampton — Brigton 1:1
Tottenham — Sheffield Utd 4:2
ENGLAND, 3. DEILD:
Bradford —Cambridge 4:0
Burv — Lincoln 1:0
Chester — Hereford 4:1
Gillingham —Colchester 1:3
Oxford — Rotherham 2:3
Peterborough — Portsmouth 0:0
Plvmouth — Preston 0:0
Port Vale —Chesterfield 1:3
Sheffield Wednesday — Swindon 1:1
Shrewshurv — Wrexham 2:1
Tranmere —Carlisle Ctd 3:2
Wallsall — Exeter 1:3
ENGLAND. 4. DEILD:
Barnsley — Rochdale 4:0
Brentford — Northhampton 3:0
Doncaster — Newport 2:2
Crewe — Bournemouth 3:1
Grimsby — Darlinjjton 2:0
Hartlepool — Torquay 1:2
Huddersf ield — Swansea 0:0
Reading — Southend Utd 1:0
Soulhport—Scunthorpe 1:1
Stockport — Watford 1:3
Wimbledon — llalifax 3:3
YorkCitv — Aldershot 1:2
SKOTLAND, CRVALSDEILD:
Ayr Utd —Celtic 2:1
Clvdebank — Aberdeen 1:3
Dundee Utd—St. Mirren 2:1
Motherwell — Partick Thistle 3:0
Rangers — Hibernian 0:2
SKOTLAND, 1. deild:
Airdrie — Montrose 0:3
Hearts — Dundee 2:1
Morton—Alloa 4:2
Queen of the South — Hamilton 2:1
St. Johnstone—East Fife 3:0
Stirling Albion — Kilmarnock 2:1
BELGlA. l.DEILD:
Úrslit I 2. umferð belglsku knattspyrn-
unnarum helgina:
LaLouviere — Winterslag 1:2
Beerschot — Anderlecht 1:1
Molenbeek — Antwerpen 3:1
FC Brugge—Courtrai 4:1
Beringen — Lokeren 0:1
Standard Liege — Boom 3:1
Lierse — Liegeois 1:0
Beveren—Charleroi 3:0
Waregem—CercleBrugge 5:0
Standard, lið Asgeirs Sigurvinssonar, er
eitt af efstu liðunum með 4 stig eftir 2
umferðir.
HOLLAND 1. DEILD:
Amsterdam—AZ’67 2:9
Volendam — Enlo 2:0
Telstar Velsen — Nijmegen 0:5
GoAhead —FCHaag 3:2
Kerkrade — Sparta Rotterdam 1:1
Feienoord — PSEindhoven 1:1
NACBread—Twente Enchede 2:0
Vitesse — Harlem 2:0
lltrect—Ajax 1:2
Nijmegen og Ajax hafa 6 stig eftir 3
leiki. Tekið skal sérstaklega fram að 9:2
sigur AZ '67 er ekki prentvilla.
Mörkunum rigndi í
fyrstu umferðinni
Enska knattspyrnan í fullan gang
ENSKA deildakeppnin hðfst á
laugardaginn og fyrsta umferðin
af alls 42 bauð upp á f jöruga leiki
og mikið af mörkum. 36 mörk i 11
leikjum 1. deildar er alls ekki svo
slæm byrjun. Nokkuð var um
óvænta sigra og vlst er að úrslitin
hefðu platað margan „tipparann"
ef getraunastarfsemin væri byrj-
uð. Toppliðin frá 1 fyrra byrjuðu
allvel, Ipswich, Manzhester Utd
og Newcastle unnu á heimavöll-
um en Liverpool og Manchester
City gerðu jafntefli. West Ham,
QPR og Bristol City, sem gekk svo
illa 1 fyrra að þau voru lengi 1
fallhættu, byrjuðu keppnina illa
að þessu sinni, töpuðu öll á
heimavöllum.
Liverpool hóf titilvörnina i
Middlesbrough og hafði skorað
eftir aðeins 6 minútur. Var þar að
verki hinn nýkeypti og rándýri
Kenny Dalglish i sinum fyrsta
deildarleik fyrir Liverpool, en
hann tók stöðu Kevins Keegan i
liðinu. A 50. mínútu urðu McDer-
mott á slæm mistök er hann ætl-
aði að senda knöttinn til
Clemence markvarðar. Dave
Armstrong komst inn i sending-
una og jafnaði metin 1:1 og þann-
ig lauk leiknum. Manchester
Chity fékk Leicester í heimsókn
og þar varð markalaust jafntefli í
daufum leik. Mike Channon, sem
City keypti fyrir 340 þúsund pund
frá Southammton i sumar gat
ekki nýtt tækifæri, sem fengust i
byrjun leiksins þegar vörn
Leicester var mjög óörugg.
Hitt Manchesterliðið, United,
fór til Birmingham og lék þar
sinn fyrsta deildarleik undir
stjórn nýja framkvæmdastjórans,
Dave Sexton. Og United sigraði
örugglega 4:1. Skotinn Lou
Macari var maðurinn bak við sig-
ur liðsins. Hann skoraði þrjú af
mörkum þess það frysta eftir að-
eins 5 minútna leik. Fjórða mark
Manchester skoraði útherjinn
Gordon Hill. Terry Hibbitt skor-
aði eina mark Birmingham fljót-
lega í seinni hálfleik og bendir
margt til þess að Brimingham ætli
að eiga í basli i deildinni enn eitt
árið. Áhorfendur voru 30 þúsund.
Stórrigningar hafa gert
Englendingum gramt i geði að
undanförnu og áhorfendur að
leik Ipswich og Arsenal og svo
auðvitað leikmenn fengu að
kenna á rigningunni á laugardag-
inn. t fyrri háifleik var allt í lagi
og Pat Jennings, sem nú stendur í
markinu hjá Arsenal eftir Ianga
veru hjá Tottenham, varð að taka
á honum stóra sinum til að verja
skot frá* gráðugum framherjum
Ipswich. Þremur mínútum fyrir
hlé varði hann mjög vel skot frá
Paul Mariner en hélt ekki boltan-
um og David Geddis fylgdi eftir
og skoraði. Þetta er komungur
piltur, sem lék nú sinn frysta leik
með Ipswich. I seinni hálfleik
kárnaði gamanið og Krikpatrick
dómari ákvað að gera hlé á leikn-
um vegna úrfellisins. Leikurinn
var stöðvaður í 12 minútur en
þegar leikmenn komu út á völlinn
aftur var svo mikið vatn á honum
að raunar var hann óhæfur til að
leika á honum. En leikurinn var
leikinn til enda og mörkin urðu
ekki fleiri. 30 þúsund manns
horfðu á leikinn.
Leikurinn Bristol City, og
Wolverhamton var ekki siður
sögulegur því dómarinn Ron
Grabb, fangavörður i Exeter,
dæmdi hvorki meira né minna en
fjórar vítaspyrnur i leiknum.
Þrjár þeirra heppnuðust og
Ulfarnir hirtu bæði stigin með
þvi að sigra 3:2, annarlega góð
byrjun hjá þeim eftir eins árs
fjarveru frá 1. deild. Peter
Cormack skoraði bæði mörk
Bristol, hvortveggja vítaspyrnur
en Willie Carr, (víti), Alan
Sunderland og Martin Patching
fyrir Ulfana, en þessi 18 ára gamli
piltur skoraði sigurmarkið á 73.
mínútu. Sigurinn var sanngjarn,
Ulfarnir voru betri bæði í vörn og
sókn. 25 þúsund manns horfðu á
leikinn.
Hitt Miðlandaliðið, sem kom
upp í 1. deild í vor, Nottingham
Forest, byrjaði einnig mjög vel,
vann Everton 3:1 á útivelli. 30
þúsund manns voru mættir til að
horfa á Everton með nýja menn í
sínum röðum, meðal þeirra Dave
Thomas nýkeyptan frá QPR fyrir
200 þúsund pund. En allt kom
fyrir ekki, Forest hafði náð
tveggja marka forystu eftir 38
mínútur og Everton átti sér aldrei
viðreisnar von. Mörk Nottingham
Forest skoruðu White, Roberts-
son og O’Neill en Pearson skoraði
eina mark Everton.
Chelsea, þriðja liðið sem kom
upp úr 2. deild, byrjaði aftur á
móti illa, tapaði fyrir West Brom-
wich Albion 3:0. Hvorugt liðið
skoraði mark í fyrri hálfleik en
þrisvar munaði litlu að WBA
skoraði. Á 63. mínútu hálfleiksins
var dæmd vítaspyrna á Chelsea og
skoraði Tony Brown örugglega úr
spyrnunni. Brown hélt upp á
markið með öðru marki mjög
glæsilegu á 77. minútu og David
Cross innsiglaði sigur WBA með
góðu marki skömmu fyrir leiks-
lok. Ahorfendur að þessum leik
voru 20 þúsund.
Það var ekki að sjá að hin alvar-
lega launadeila hjá Newcastle
hefði mikil áhrif á leikmenn liðs-
ins þvi þeir sigruðu Leeds 3:2 og
kom sigurmarkið ekki fyrr en að
loknum venjulegum leiktima en
nokkrum minútum hafði verið
bætt við vegna meiðsla. Fyrstu
þrjú mörk leiksins komu á fyrstu
25 mínútunum. Burns skoraði tvö
af mörkum Newcastle og
Kennedy eitt mark en þeir Ray
Hankin og Peter Lorimer (viti)
skoruðu mörk Leeds. Ahorfendur
voru rúmlega 36 þúsund.
Lundúnaliðunum QPR og West
Ham gekk herfilega. Queens Park
Rangers fékk Aston Villa i heim-
sókn. 25 þúsund áhorfendur
horfðu á það skelfingu lostnir er
Villa skoraði tvivegis í mark
heimaliðsins með stuttu millibili í
upphafi seinni hálfleiksins. John
Deehan og Frank Carrodus skor-
uðu mörk Villa. Eftir þetta lögð-
ust leikmenn Villa í vörn og það
breytti litlu þótt Peter Eastoe
tækist að minnka muninn
skömmu fyrir leikslok. Norwich
kom í heimsókn á Upton Park,
völl West Ham, og vann léttan
sigur, enda heimaliðið mjög slakt.
Aðalframkvæmdastjórinn Ron
Greenwood var á leik Liverpool
og Middlesbrough að njósna fyrir
enska landsliðið, sem hann mun
sjá um í næstu leikjum. Bob
Robson skoraði eina mark West
Ham úr vítaspyrnu en Jones 2 og
Ryan skoruðu mörk Norwich.
Áhorfendur voru 33 þúsund.
Þá er aðeins ógetið leiks Coven-
try og Derby þar, sem heimaliðið
vann öruggan sigur 3:1. Ferguson
2 og Wallace skoruðu mörk
Coventry en David Nish skoraði
eina mark Derby i leiknum.
I 2. deild gékk á ýmsu. Hér fer á
eftir yfirlit yfir leikina, getið er
úrslita þeirra, nöfn markaskorara
eru í svigum og á eftir nöfnum
liða er fjöldi áhorfenda:
Blackpool (Suddaby) 1 — Old-
ham (Halom, viti) 1, 11,021.
Burnley 0 — Bolton (Greaves) 1,
14,716.
Cardiff (Went) 1 — Bristol
Rovers (Randall) 1,7,603.
Fullham (Maybank- viti) 1—
Charlton (Abrahams) 1,9,849.
Hull (Roberts 2, Bannister) 3 —
Sunderland 0, 16,189.
Luton (Buckley) 1 — Orient 0,
8,061.
Mansfield (Wyrett, Sharkey, viti)
2 — Stoke (Lindsay, viti) 1, 14,
070.
Millwall 0 — Crystal Palace
(Evans, Hilarie, Chatterton) 3,
14,856.
Notts County (Bradd) 1 — Black-
burn (Ruggéiro) 1,24,306.
Tottenham (Duncan, Jones, Os-
good 2) 4 — Sheffield United
(Hamilton, viti, Edwards) 2,
27.673.
í Skotlandi urðu þau óvæntu
úrslit að bæði Celtic og Rangers
töpuðu og hefur Aberdeen nú for-
ystu i úrvalsdeildinni með 4 stig
að loknum tveimur leikjum.
Áhorfendur voru færri á leikj-
unum á laugardaginn en á leikj-
um fyrstu umferðar í fyrra og er
það vegna nýrra reglna um áhorf-
endafjölda. Flestir áhorfendur
voru að þessu sinni á leik Man-
chester City og Leicester eða 46
þúsund talsins. I fyrra voru þeir
flestir á leik Manchester United
og Birmingham eða 59 þúsund. A
leik Middlesbrouth og Liverpool
voru að þessu sinni 32 þúsund
áhorfendur en 30 þúsund á leik
Birmingham og Manchester Uni-
ted. Þrátt fyrir að áhorfendur
væru færri voru óeirðir víða og
settu þær Ijótan blett á leiki
fyrstu umferðarinnar.
Önnur umferð ensku deilda-
keppninnar verður leikin núna í
vikunni og þriðja umferðin á
laugardaginn og þeir leikir verða
á fyrsta islenzka getraunaseðlin-
um.
— SS.
Macari skoraði fyrsta markið
ÞAÐ vekur alltaf eftirvænt-
ingu hvaða leikmaður f ensku
knattspyrnurini skorar fyrsta
mark deildakeppninnar.
Fyrstu tvö mörkin komu á
fimmtu mínútu, Lou Macari
skoraði fyrir Manchester Utd.
gegn Birmingham og Alan
Whittle skoraði fyrir Barnsley
gegn Rochdale í 4. deild. Talið
er að Macari hafi verið nokkr-
um sekúndum á undan að setja
boltann i netið. Einni minútu
síðar eða nákvæmiega á 6,07
minútu i leik Liverpool og
Middlesbrough skoraði Kenny
Dalglish mark fyrir sitt nýja
félag Liverpool.
Paul Hooks, framherji Notts
County var fyrstur til að fá
rauða spjaldið á nýbyrjuðu
keppnistimabili. Hann var rek-
inn af Ieikveili aðeins þremur
minútum eftir að hann hafði
komið inná sem varamaður i
leik félags síns gegn Black-
burn.