Alþýðublaðið - 26.10.1958, Side 1
1
'XXXIX. árg.
Sunnudagur 26. október 1958
243. tbl.
í sáff og samlyndi
! ■ 'i náði í
INGRID RERGMAN hefur
nú endurheimt börnin sín
þrjú, þau sem hún átti með
manni sínum nr. 2, Roberío
Rossellini. Gerðist þetta méð
dramatískum hætti í Parss.
Rossellini fékk hörnin til
sín í heimsókn fyrir þiremur
mánuðum, en Ingrid hafði
verið faiin umsjá þeirra með
an á skilnaðarstappinu stóð.
Nú neitaði ítalski leikstjór-
inn að skila börnunum aft-
ur. En síðastliðinn mánudag
frétti Ingrid, að hann væri
að koma m.eð þau til Parísar.
Hún brá skjótt við og mætti
á járnbrautastöðinni, þegar
lestin kom< Þar varð fáít
um kveðjur bjá hjónunum
fyrrverandi, en fundi þeirra
lauk með því, að Ingrid hafði
tvíburadætur sínar á brott
með sér. Sama dag hringdi
hún svo á hótel Rossellinis
og hótaði að snúa sér til lög
reglunnar, ef liún fengi ekki
drenginn líka. Rossellini lét
undan eftir nokkurt þóf, og
um kvöldið voru börnin öll
kömin til móður sinnar.
FYRSTA reglulegt þing Sjó-
mannasambands Islands var
sett í gær í Alþýðuhúsinu við
Hverfisgötu í Reykjavík. Höfðu
tvö ný félög sótt um upptöku
og voru þau bæði telcin inn í
sambandið. Þingið sitja 24 full
trúar 6 félaga.
Jón Sigurðsson formaður Sjó störfum. og mun því ljúka
mannasambands Islands setti kvöld.
þingið. Skýrði hann frá starf-
lýðs- og Sjómannafélags Akra- j
ári. Þá var hosið í nefndir þings ■ , eru Sjómannadeild Verka
i.ns og störfuðu þær í gærkvöldi. j semi sambandsins á liðnu starfs
2177 FÉLAGAR,
Félögin, sem tekin voru inn
í dag heldur þingið svo áfram í
Framhald á 5. síðu.
„UNDANFARIÐ hafa staðið
yfi samningar milli varnar-
máladeildar utanríkisráðuneyt
isins og varnaliðsins á Kefla-
víkuflugvelli um greiðslur til
STEFs vegna tónflutnings út-
varpsstöðvar varnarliðsins á
Keflavíkurflugvelli. Nýlega hef
ur verið gengið frá samkomu-
lagi, semj tryggir greiðslur til
STEFs fyrir tónflutning út-
varpsins á Keflavíkurflugvelli“.
Tilkynningin, sem hér birtist
— barst blaðinu í gær frá varn-
armáladeild utaníkisráðuneyt-
isins. Þar eð Jón Leifs, for-
maður og framkvæmdastjóri
STEFs er utanlands, sneri blað
ið sér til Sigurðar Reynis Pét-
ussonar, lögfræðings STEFs, og
spurði hann nánari fregna af
þessu samkomulagi.
30 MÁL í SUMAR.
Siguður Reynir kvað STEF
hafa höfðað um 30 mál á hend-
ur yfirmanna varnarliðsins í
sumar og auk þess eitt á hendur
ríkissjóði. Leiddi málarekstur
þessi til þess, að samkomulag
tókst og var ekki dæmt í mál-
inu. Kvað Sigurður þessi mála-
lok mikinn sigur fyrir eigendur
flutningsréttar og hafa grund-
vallarþýð.ngu fyrir STEFin í
löndum Vestur-Evrópu í bar-
áttunni fyrir rétti sínum. •—
Sagði hann, að þýzka STEF
hafj farið af stað með mál gegn
bandarískum. útvarpsstöðvum
þar í landi á svipuðum grund-
velli og væri aðeins tímaspurs-
mál, hvenær önnur STEF
kæmu á eftir.
7 ÁRA BARÁTTA.
Sigurður Reynir gat þess, að
Jón Leifs hefði haft forgöngu
um mál þetta frá upphafi. — Á
þingi alþjóða STEFs í París var
honum falið að hafa forystu um
málaferli gegn varnarl!iðs-út-
varpi og hefur sú barátta stað-
ið í sjö ár og kostað mikið fé og
fyrirhöfn. Fyrsta málið vannst
í október 1956, en síðan hefur
róðurinn verið hertur, þangað
til nú, að mikilvægur sigur hef
ur unnizt.
■■iiiiiii
uaaflagnaiBBBB
NYUTKOMIÐ hefti af
bandaríska tímaritinu News
vveek birtir eftirfarandi
bréf:
Við íslendingar byggjum
afkonni okkar að öllu leyti á
fiski, og engum leyfist að
eyða landi okkar með því að
ausa fiskimiðin þurr, eins og
brezkir togarar hafa gert.
Lýsing Newsvveek á því,
hvað vakir fyrir hiniim
kommúnistiska sj ávarútvegs
málaráðherra, er eflaust
rétt. Hinu má þó ekki
gleyma, að árið 1952 færði
íhaldsstjórn fiskveiðimörk-
in út um eina mílu, og við
vissum þá, að meiri stækk
un var óhjákvæmileg. Við
kunnum að ráða yfir „færri
mönnum og færri byssum”,
en baráttukjarkinn vantar
okkur vissulega ekki.
H. Ólafsson.
Reykj avík.
LAUST eftir klukkan 13 í
gær vár slökkviliðið kvatt að
húsinu númer 10 við Frakka-
stíg. í húsinu, sem er .timbur-
liús á steyptum kjallara, hafði
komið upp eldur í kvisther-
bergi, sem veit út að Frakka-
stíg. Slökkviliðinu gekk vel að
ráða niðurlögum eldsins, notaði
til þess tvær slöngur frá há-
þrýstidælu.
Skemmdir urðu nokkrar, m.
a. hrunnu sængurföt o. fl. Ekki
er fullkunnugt um upptök elds
ins, en fjögrra ára harn kom
fyrst niður á næstu hæð húss-
ins Ojr sagði frá honum.
EINS og frá var skýrt hér í hlaðinii í síðastpðínni viku, bVn-gaði 17
ára stúlka á Bíldudal átta ára dr«ng frá árukknun með því að steypa sér
fram af hafskipabryggjunni á staSnu i o" halda drengnum uppi unz hjálp
barst. Hér birtum við mynd af stýlkrnvi lánsömu og drengnum, sem þó var
lánsamari. Hún heitir Jóhanna Krisli :sdótt r og er dóttir Kristins Péturs-
sonar og Kristínar Pétursdóttur. Drehg’ivi«n heitir Biörn Jónsson og eru for-
eldrar lians þau Jón Hannesson og Margrét Hrrmannsdóttir.
Jóhanna vann björgunarafrek sití í srðamyrkri. Þegar hún fleygði sér'
til sunds,- hlupu vinkonur hcnnar, sem m.eð henni vom, upp í Hraðfrystihús
Suðurfjarðariirep'ps og náðu í BrynjóU Flriksson, sem þar var við vé’gæzlu.
• Brynjólfur. brá við skjótt, hljóp fram . á ■ bryggjuna og gat náð til Jóhönnu
með krókstjaka.
Þess skal að lokum getið, ■ að blaðið gerði ráðstafanir til að fá -meðfylgj-
andi myndir fyrir góðri viku, en végna tregra samgangna við Bíldudal, komu
þær ekkj fyrr en í gær.