Alþýðublaðið - 26.10.1958, Síða 8
A ! |> ý » u b 1 a 3 Í 8
Sunnudagur 26. október 1958
| Leiðir allra, sem ætla að
kaupa eða selja
{ BÍL
liggja til okkar
! BíiasaSan
Klapparstíg 37. Sími 19032.
SKiNFAXI hf.
[ Klapparstíg 30
I Sími 1-6484.
f Tökum raflagnir og
breytingar á lögnum.
[ Mótorviðgerðir og við-
I gerðir á öllum heimilis-
tækjum.
iHMsnætoiðlunin
[ Bíla og fasteigiiasalan
1 Vitastíg 8A. Sími 16205.
Minnitigarspjöid
DA5
fást hjá Happdrætti DAS, Vest-
urveri, sími 17757 — Veiðafæra-
vérzl. Verðanda, sími 13786 —
Sjómannafélagi Reykjavíkur
sínii 11915 —1 Jónasi Bergmann.
Hátéigsyegi 52, sími 14784 —
Bókávérzl. Fróða, Leifsgötu 4.
sími 12037 — Qlafi Jóhannss.
Rauðagcrði 15, sími 33096 —
Nesbúð, Nesvegi 29 — Guðm.
Andréssyní, gullsmið, Laugavegi
50, sími 13769 — í Hafnarfirði
£ Pósthúsinu, sími 50267.
Áks Jakobsson
Og
Krístján Eiríksson
hæstaréttar- og héraðs-
dómslögmenn.
Málflutningur, innheimta,
samningagerðir, fasteigna-
og skipasala.
Laugaveg 27. Sími 1-14-53.
KAUPUM
Prjónatuskur og
vaðmálstuskur
hæsta vgrði.
Álafoss,
Þingholtsstræti 2.
Samúðarkort
Slysavarnafélags íslands kaupa
flestir. Fást hjá slysavarnadeild-
um um land allt. í Reykjavík í
Hannyrðaverzl. Bankastræti 6,
Verzl. Gunnþórunnar Halldórs-
dóttur og í skrifstofu félagsins,
Grófin 1. Afgreid í síma 14897.
Heitið á Slysavarnafélagið. —
Það bregst ekki.
Vasadagbókin
Fæst í öllum bókaverzlunum.
Verð kr. 30.00.
Húseigendliir.
Önnumst aílskonar vatns-
og hitalagnir.
Hiíalagnir s.f.
Símar: 33712 og 12399.
Kefívíkingar!
Suðumesjamenn!
Innlánsdeild Kaupfélags
Suðurnesja greiðir yður
liæstu fáanlega vexti af
innistæðú yðar.
Þér getið verið örugg um
sparifé yðar hjá’ oss.
Suó&irnesia,
Faxabraut 27.
Bifreiðasalan
og ieigan
Sími 19092 og 18966
Kynnið yður hið stóra út’
val sem við höfum af alls
konar bifreiðum stórt og
rúmgott sýningar-
svæði.
Bifreíðasalan
og Ieigan
Sími 19092 og 18966
Þorvaidur Ari Arason, hdi.
LÖGMANNSSKKIFSTOFA
Skóiavörðnstíg S8
c/o PéU fóh. Þorleifsson h.f - Pósth. €31
H416 og 1*417 - Slmnefni: AU
Sigurður Ólason
hæstaréttarlögmaður,
Porvafdur
Lúöviksson
héraðsdómslögmaður
Austurstræti 14.
Sími 1 5.5 35.
LEIGUBÍLAR
Bifreiðastöð Steindórs
Sími 1-15-80
Bifreiðastnð Keykjavíkur
Sími 1-17-20
Frarnhald af 7. siðu.
fengu þeir eitthvað annað? Þau
gögn hafa aldrei birzt og verð-
ur því ekki um það dæmt né
neitt fullyrt.
í greinargerð Hans Ander-
sens er þsss getið, að fyrrver-
andi dómari í alþjóðamálum
teldi jafnvel, að íslendingar
gætu gert tilkall til 10 sjómílna
landhelgi, en Risenfeld prófess-
or benti á þá Ieið að setja frið-
unarsvæði umhverfis land, og
var greinilega farið að hans
ráðum.
Með reglugerðinni var verið
að bendla Íandhelgi íslands á
varhugaverðan hátt við skand-
inavisku regluua svokölluðu um
4 sjómílna landhelgi. En f ís-
lenzkri löggjöf hafa aldrei ver-
ið til ákvæði um fjögurra sjó-
mílna fiskveiðilandhelgi, og er
fjarstæða. að halda því fram.
Við setningu reglugerðarinnar
mátti ekki minnast á orðið land
helgi — og var óljóst hvort
reglugerðin átti við friðunar-
línu, útfærslu landhelginnar
eða fiskveiðitakmörk.
En svo skeði það, að sjálfur
aðalráðunauturinn sagði á ráð-
stefnu í Lundúnum, að við hefð
um tekið upp 4 sjómílna land-
helgi í stað 3 sjómílna, og þann
ig urðu mörg fleiri mistök í
þessu máli. Það hefði verið nær
að halda því fram, að hér hefði
eingöngu verið um friðun að
ræða.
Eitt er víst, að þarna var ekki
stigið rétt spor. Að minnsta
kosti hefði ríkisstjórnin átt að
gera grein fyrir því, að hún
teldí sig eiga sögulegan rétt til
meiri landhelgi en fjögurra sjó-
mílna. Við setningu reglugerð-
arinnar var enginn fyrirvari
gerður um þetta, en þó vildi
svo til, að í leiðara í stjórnar-
blaðinu ,,Tímanum“ var þess
getlð um leið og fiskveiðireglu-
gerðin var sett, að þetta væri
ekki lokasporið, þetta væri spor
í rétta átt, og ekki mætti líta á
það sem endanlega lausn á
þessu máli.
Síðan gerðist það, að löndun-
arbann skall á, eins og ykkur
e,r kunnugt. Það voru gefnar út
„hvítar bækur“ af því tilefni,
að málið koma fyrir Evrópuráð
ið. Þessar „hvítu bækur“ gagn-
rýndi ég í tímaritsgreinum, t.
d. í tímariti lögfræðinga, og hef
ur þeirri gagnrýni ekki verið
andmælt né hnekkt.
Þess skal getið í sambandi
við gagnrýni mína á þessu máli,
að þar hefur verið leitazt við
að halda hlutlægt á málinu,
koma með þær aðfinnslur, sem
verið hafa tímabærar hverju
sinni, en siík- gagnrýní hefur
ekki fundið náð fyrir augum
vissra manna.
TOLF SJÓMÍLNA
LANDHELGI
Löndunarbannið héit áfram.
Ný ríkisstjórn settist að völd-
um, og í tíð hennar leystist lönd
unarbannið, og þessi ríkisstjórn
hafð'i að markmlði að færa land
heigina út, en í fyrstu þótti rétf
að fresta þeim aðgerðum að
sinni. Landhelgismál voru á
dagskrá hjá Sameinuðu þjóð-
unum, og það var jafnvel búizt
við því, að Sameinuðu þjóðirn-
ar settu einhverjar reglur um
landhelgi, en þær vísuðu mál-
inu frá og lögðu það fyrir sér-
staka ráðstefnu. Sú ráðstéfna
var sem kunnugt er haldin í
Genf á sl. vori, og var árangur
af henni lítill. Hún staðfesti
það, sem kom fram 1936, og
leiddi það í Ijós enn betur en
áður, að 3 mílna kenningin átti
sér færri formælendur en áður.
Nú var 12 sjómílna landhelgis-
víðátta talin jafnvel geta kom-
ið.til mála sem alþjóðaregla. —
Því miður gerðum við ekki
nægilega grein fyrir því þar, að
við teldurn okkur eiga söguleg-
an rétt til meiri iandhelgi en 12
sjómílna, ef út í það yrði farið
að setja slík ákvæði. — íslenzka
þjóðin hefur frá aldaöðli átt
lífsafkomu sína undir víðáttu-
mikilli landhelgi og því að geta
búið ein að fiskimiðum sínum,
og þess vegna hefði verið rétt
að halda því fram af íslands
hálfu, að jafnvel þótt settar
yrðu einhverjar alþjóðaregiur,
þá bæri fslandi sérstaða.
.En af ráðstefnunni leiddi, að
landhelgin var færð út, og sett
var reglugerð um hana. Á sín-
um tíma benti ég á að eðlilegra
væri að láta löggjafarsamkomu
þjóðarinnar og forseta landsins
hafa veg og vanda af því máli,
að setja löggjöf um landhelg-
ina, heldur en gefin yrði út
reglugerð um landhelgi, sem
bvggð er á löggjöf um friðun.
Eg verð að segja það, að þetta
ef •: aálítið andkannalegt, on
samt var Þannig á þessu haldið.
„ Þá var það, að nokkur ágrein
ingur kom upp í ríkisstjórninni
um þetta mál, — ekki um það,
hver víðátta landhelginnar
skyldi vera, það verðið þið að
hafa hugfast. Það yar einróma
álit stjórnarflokkanna, að það
væri lágmarskrafa, að landhelg
in yrði 12 sjómílur. Hins vegar
hafði Alþýðuíl. þá sérstöðu í
málinu, að hann taldi að rétt
væri að láta ekki þessa reglu-
gerð ganga í gildi samstundis,
eins og annar stjórnarflokkur
lagði til, heldur skyldi fresta
því nokkra mánuði að láta
reglugsrðina ganga í gildi. Síð-
ar náðist einróma samstaða um
þetta, — en þá byrjaði stjórnar-
andstaðan að klifa á því, að það
væri sundrung innan stjórnar-
innar um þetta mál, og var það
ódrengileg framkom.a og ámæl-
isverð af hálfu stjórnarandstöð
unnar Þerf hafa síðan haldið
uppi svona nuddi Og nagi, en
rétt er að geta þess, að þegar
til þeirra var leitað. — þá höfðu
þeir eiginlega sáraiítið til mál-
anna að leggja ÞeV vildu ekki
kveða upp úr um það, hvað
landhelgin ætti að vera víðáttu
mikil. Þeir gertíu óljósar á-
bendingar um grunnlínur, sem
Þeir höfðu þó sjálfir sett á sín-
um tíma og gagnrýndu þar með
sín eigin vinnubrögð.
Þannig var nú framkoma
þeirra í þessu máli.
Síðan var sett þessi reglu-
gerð um 12 sjómílna landhelgi,
og hún gekk í gildi 1. septem-
ber. Áður hafði verið unnið að
því, að máiið yrði kynnt og
leltað eftir vinsamlegum skiln-
ingi annarra þjóða og árangur-
inn af því varð þó nokkur, því
að svo virðist sem allar þjóðir
nema Bretar hafi að nokkru
leyti viðurkennt hina nýju land
helgi í reynd. N ðurstaðar. varð
sú, að Þeir stóðu einir uppi í
baráttu sinni — þóttust vera að
verja alþjóðalög, en voru að
br.jóta rétt,á smáþjóð.
Að sjáifsögðu er nauðsynlegt
að gera víðtæka áætlun um nýt
ingu fiskimiðanna umhverfis
landið, og það getur komið á
daginn, að rétt þyki jafnvel að
veiða innan Faxaflóa. Þær radd
ir hef ég.heyrt hjá fiskifræðmg-
um. — Og fyrsti vísir áð slíkri
áætlun er regiugerð, þar sem ís-
lenzkum^ togveiðiskipum er
meinað að stunda veiðar á viss-
um svæðum á tilteknum tíma
árs eða jafnvel algerlega.
Málið horfir þannig við í
dag, að Sameinuðu þjóðirnar
hafa landhelgismálin til með-
ferðar. Þar hafur utanríkisráð-
herra getio þess, að hann muni
beita sér fyrir því, að settar
yrðu alþjóðareglur umlandhelg
ina. Það getur ver ð gott og
blessað en þá ber okkur enn að
halda fram sérstöðu okkar. Við
eigum svo mikið undi.r land-
helginni og fiskimiðunum, að
vera má, að sú landhelgi sem. í
dag er 12 sjómílur, verði alls
ekki fullnægjandi eftir örfá ár.
Svo ört fleigir veiðitækninni
fram.
I lok ræðu sinnar fagnaði
ræðumaður því að stúdentar
skulí loksins hafa haff einurð
til þess að láta landhelgismálið
til sín taka. Rifjaði hann upp
rnistök, seni urðu hjá háskóla-
stúdentum um málið á sínum
tíma og kvað það ekki einleikið
að nú skuli enn hafa átt sér stað
mistök hjá íhaldsstúdentum,
þegar aiiir séu sammála um
nauðsyn þjóðareiningar um
rnálið, tíni þeir einan formann
stjórnarandstöðunnar út úr
hópnum til þess að flytja ræðu
um málið.
Loks hvatti ræðumaður til
einhuga-samstöðu um málið. .....