Alþýðublaðið - 07.11.1958, Page 4
Alþýðublaðið
Föstudagur 7. nóv. 1958
&
NÝJU ÖKUREGLURNAR við
Mikiatorg og víðar í bænura,
sem gera ráð fyrir tvöfaklri bif-
i eiðaröð, eru í raun og veru tii
mikilla bóta. I>ær auðvelda um-
íérðiiia, auka umferðarhæfnina
og létta aksturinn fyrir bifreiða
stjórana.
EN EINS OG raunar má segja
um allar aðrar umferðarreglur,
veltur allt á því að bifreiöa-
■ djórarnir kunnf reglurnar til
fulls —• og fari nákvæmlega eft-
ir þeim. Ef þeir læra þær ekki
-— og ef þeir fara ekki nákvæm-
iega eftir þeim, þá er farið úr
Uskunni í eldinn — og nýju reg!
urnar verða til þess -eins að
valda árekstrum og auknu öng-
Þveiti.
UPPHAFLEGA létu umferðar
.yfirvöldin mála merki á göturn-
«r — og var sérstök áherzla lögð
á það, að gera akbrautirnar við
Miklatorg sem bezt úr garði.
»>árna stóðu bg lögregluþjónar
<>g leiðbeindu fólki til að byrja
með á kurteislegan og alúðlegan
ihátt meðan það var að læra þær.
En í rigningunum leið ekki á
löngu áður en málningarlínurn-
ar hurfu — og um leið hurfu
iögreglumennirnir.
VITANLEGA er hvorki hægt
að krefjast þess, að sett séu
j.nerki á göturnar, sem' standist
öll veður eða að lögreglumenn
standi þarna alltaf á verðj til
ieiðbeiningar, enda á fólk að
í?eta lært reglurnar til fulls svo
•ið hvorki þurfi merki né leið-
beinendur. En því miður virðist
xaunin vera önnur.
UNÐANFARIÐ hefur mjög
borið á því, að ýmsir ökumenn
Nýju umferðarreglurn-
ar gát'ust vel til að byrja
með.
En kæruleysi sumra
vegfarenda valda vand-
ræðum.
Nauðsynlegt að hafa miklu
strangara eftirlit.
Myrkur við Langagerði
svipti ökutæki sínu snögglega af
þexrri braut, sem þeir hafa tekið
og yfir á aðra, sem þeir eiga
ekki að taka. Og þao sem verst
er er það, að svo viröist sem
þetta stafi ekki af kunnáttuleysi
eða vanþekkingu, heldur sé hér
urn annað og verra að ræða. Hér
er nefnilega aðallega um stærri
ökutækj að ræða, sem oft níðast
í umferð — og óttast minna
skemmöir af völdum árekstra
en minni öktuæki. j
ÞETTA ER MJÖG VÍTA-
VERT og sýnir þegnskaparleysi.
Ég legg eindregið til að við og
við verði lögreglumenn látnir
taka sér stöðu á helztu brautun-
um til þess að koma lögum yfir
þá, sem brjóta reglurnar. Ef til
vill myndi það nægja, en í þessu
efni sem víðar virðist nauðsyn-
legt að beita hörðu til þess að
kenna fólki.
VEGFARANDI skrifar mér
fyrir nokkru: ,, Snernma sumars
komu menn, að ég hygg frá raf-
veitunni og tóku þá ljósastaura
burtu, sem stóðu við afleggjar-
ann nr. 50—70 við Laugagerði.
Það var hald manna þá, að það
ætti að endurnýja þessa ljósa-
staura, en það virðist ekki hafa
verið svo, því að það hafa engir
staurar eða Ijós komið í þeirra
staö, og verðum við því, sem bú-
um á þessu svæði, að paufast
það í myrlirinu.
VIÐ HINA afleggjarana eru 3
og 4 ljósastaurar og hefur það
sennilega verið talin hæfileg
upplýsing. Við, sem búum við
þennan afleggjara, teljum okkur
því illa afskipta í þessu efni og
munum una því illa, ef þetta á
að vera svo lengi ennþá. Þá má
og geta þess að aðalgatan er illa
uppiýst, vantar sennilega Ijcsa-
kúlur á nokkra staura þar.‘;
SÍÐAN ÞETTA BRÉF var
skrifað munu einhverjar um-
bætur hafa verið gerðar þarna,
en alls ekki fullnægjandi.
Ilannes á horninu.
LEIKRIT Archibalds Mc
Leish, ,,J. B.“, verður frumsýnt
á Broadway í nóvember næst-
komandi með Pat Hingle í að-
alhlutverkinu. Leikur . þessi
fjallar um Job okkar daga, og
honum er síjórnað af Elia Ka-
zan. „J. B.“ var sýnt í fyrsta
sinn á Salzborgarhátíðinni í
Austurríki og hlaut þar ein-
róma lof gagnrýnenda.
ÞÆR þykja furðu líkar vin-
konurnar fyrrverandi Birgitte
Bardot og Anette Ströyberg,
sem er dönsk. Og þær eiga
fleira sameiginle.gt en útlitið,
því Anette er nú gift fyrrver-
andi eiginmanni. BB, franska
leikstjóranum Roger Vadim, en
þessi þrenning var óaðskiljan-
lég hér áður fyrr, þar til Roger
skildi við BB og giftist Anette.
Og nú langar hana til að reyna
við kvikmyndirnar. Ætti það
að reynast henni auðvelt, því
Roger var ekki í neinum vand-
ræðum með að gera BB fræga,
og því þá ekki Anette, sem er
alveg eins?
ALLIR kannast við Hawaii,
þótt ekki. sé nema af gíturun-
um, sem gert hafa eyjarnar
frægar um allan heim. í Am-
eríku er Hawaii kölluð „Para
dís Kyrrahafsins". Þetta er
•allstór eyjaklasi úti í miðju
hinu mesta úthafi jarðarinn-
ar. Eyjarnar eru orðlagðar
fyrir fegurð, fagrar konur,
Ijúfa söngva, í einu orði: ró-
mantík, þótt aðrar eyjar hins
suðlæga Kyrrahafs séu ef til
víll enn meira sveipaðar ljóma
ævintýranna.
Þungar úthafsbárurnar
gnauða óaflátanlega við
strendur eyjanng og miðar
nckkuð við niðurrifsstarf sitt,
en þar í mót kemur það afl,
sem reist hefur þær úr djúpi
hafsins, jarðelduinn, sem enn
vakir og sendir hraunstrauma
niður hlíðarnar.
Alls eru eyjarnar 24, þar
af níu byggðar, þegar sleppt
er öllum þeim smæstu.
Stærsta eyjan er Hawaii. All
ar stóru eyjarnar eru eldfjöll,
og á sjálfri Hawaii eru tveir
miklir gígtindar, Mauna Loa
og Mauna Kea, báðir yfir 4000
rnetrar á hæð yfir sjó, sá síð-
arnefndi hærri.
Til þess að gera sér nokkra
hugmynd um myndun og
form eyjanna er gott að
minnast þess, að hafdýpið er
víða 5000 metra!- eða meira
skammt frá þeim. Hæðurmun
urinn er því allmikill frá
hafsbotni og upp á týid á
Mauna Kea.
Mauna Loa gýs enn og
stundum hleypur hraunið allt
í sjó fram. En eldfjallið Ki-
lauea gýs stöðugt. Þetta er
150 m. djúp skál tæplega km
á lengd en rúmdr 600 metrar á
breidd.
. Loftslag eyjanna er orðlagt
fyrir það, hve það. er heilnæmt
°g Þægilegt. Eyjarnar liggja
um hvarfbauginn nyrðri, en
rakir norðaustan vinöar valda
þar svaia og mikilli úrkomu.
Háfjöll eru stundum snævi-
krýnd, en biíða niðri í bvggð
um.
Vitað er um samfellda
byggð manna á eyjunum frá
því um 500 e. K. og stundum
voru samgöngur við fjarlæg-
ar eyjabyggðir í Kyrrahafi
furðulega tíðar, en þess á milli
voru langir tímar fullkominn-
ar einangrunar. Frumbyggj-
arnir eru Polynesar eða
skyldir þeim. Fyrstur Evrópu
manna kom J. Cook, land-
könnuðurinn heimskunni, til
eyjanna 1778.
• Hawaiieyjar eru nú orðið
kunnur ferðamannastaður, og
eyjaskeggjar, sem eru blanda
úr fjölda þjóða og kynþátta,
gera sitt til að halda við hátt-
um frum'byggjanna í flestu
því, er viðvíkur ferðamönnum
og dvöl þeirra. Lengra nær
rómantíkin varla nú orðið,
en þrátt fyrir það er Hawaii
einhver viðkunnanlegasti og
Ijúfasti staður á jörðinni.
-i!
Blómarósir dansa húla-dansa fyrir erlenda ferðamenn
Anette til vinstri, Brigitte til
hægri.
Þýzk bókasýning í
Reykjavík í marz.
í LOK febrúarmánaoar
1959 verður þýzk bókasýning
opnuð í Bogasal Þjóðminja-
.■safnsins. Undanfarin ár hafa
verið sýndar þar með góðum
árangri bækur frá Noregi, Ðan
mörku, Svíþjóð og Englandi og
fyrir skömmu lauk í Reykja-
vík bandarískri sýningu. Hefur
lengi verið unnið að því, að
koma hér upp þýzkri bókasýn-
ingu, að tilhlutan íslenzkra bók
sala, Gylfa Þ. Gíslasonar,
menntamálaráðherra, og þýzka
sendiráðsins í Reykjavík. Frá
þessu segir í einu Hamíborgar
blaðanna nýlega.
London, fimmtudag.
HÁTÍÐAHÖLDIN vcgna 41
árs afmælis októberbyltingar-
innar í Rússlandi hófust í dag
með miklum fjöldafundi á Len
inleikvanginum í Moskva. Voru
helztu leiðtog'ar kommjúnista-
fl(íkl5SÍr;S, ríkistsjórnarinnar,
hersins og ýmissa félagssam-
taka viðstaddir fundinn. Aðal-
rseðuna flutíi Anastas Mikojan,
fyrsti vara-forsætisráðherra,
sem hélt því fram, að á meöan.
Sovétríkin sæktu fram á öllum
sviðum, versnaði efnahagsá-
standið í Bretlandi, og öðrum
kapítalistískum ríkjmn/ stöðugt.
Jaínvel fjandmenn vorir geta-
ekki borið á m.óti þeim fram-
förum, sem orðið hafa í Sovét-
ríkjunum á þeim 41 ári, sem lið
in eru frá byltingunni, sagði
Mikojan. En hann bætti við, að
Framhald á 7. síðu