Alþýðublaðið - 07.11.1958, Page 12

Alþýðublaðið - 07.11.1958, Page 12
VEÐRIÐ: SV. stinningskaldij skúrir. ^íþýöublaöiö Föstudagur 7. nóv. 1958 Gylfi Þ. Gíslason menntatnáíaráðherra (lengst t. h.) og Helgi Sæmundsson form. Menntamálaráðs (í miðið) ræða við einn aí gestum sýningarinnar Sýning á sovétlist opnuð í gær fWenntamálaráðherra viðstaddur SÝNING á sovézkum grafik- invndum var opnuð í Þjóðminja safninu í gær. Gylfi Þ. Gíslason inenntamálaráðherra opnaði sýninguna. Ávörp fluttu amkassador sov éti-íkjanna hér á lancli, Alex- androyits, Og Helgi Sæmunds- son, formaður menntamálaráðs. Foresti Islands og frú voru viðstödd opnun sýningarinnar. Sýning' þessi er skiptisýnirig og fer í'slenzk sýnng austur til Sovétríkjanna í apríi n. k. Sýn- iíigin, sem hér verður opnuð í dag, fer héðan til Sviss. — A£ íslands hálfu hafa menntamála- ráðuneytið og menntamáíaráð annast uro sýninguna, Natali Sokolova, listfræðingur, og Or_ est Vereiskij, listamaður, frá Sovétríkjunum hafa dvalizt hér lendis í hálfa aðra viku og séð tim uppsetningu sýningarinn- ar. Á sýningunni kemur ekki fram nema lítill hluti þess, sem fremstu listamenn Sovétríkj- anna á sviði myndskurðar, stein prentunar og málristu hafa lát- ið frá sér fara síðustu tvö eða þrjú árin, Þar eru um 200 lista- verk og ætti hún þá að geta orð ið sýningargestum til nokkurr- ár glöggvunar á því, sem helzt einkennir þessa tegund sovézkr ar myndlistar. Menntamá'laráðherra fórust m. a. orð á þessa leið: „Heimur myndlistarinnar er margbreytilegur. Að baki hverrar myndar er náttúran, mannlífið, fegurðin, hin eilífa leit. Menn deila um bað,; að bæði náttúran og hin óhlut- kermda fegurð erú góðri mynd list jafn nauðsynleg og Ijósið blóminu? Hlutverk myndlistar er ekki að .vera spegill, heldur að sýna mönnum landíð, hafið, hímininn, mennina í nýju ljósi, — að láta menn skynja gleðina, sorgina, ástina á nýj an hátt. Sköpun listaverks er e.kki lokið, þegar . l.stamaður- inn leggur á það síðustu hönd, því lýkur ekki, fyrr en auga skoðandans opnast fyrir boð- skap þess. List er ekki aðeins fólgin í því að skapa, heldur einnig í því að njóta. iEg vona, að þessi sýning á gætra og fjölbreyttra lista- Ambassador Sovétríkjanna verka verði íslenzkum list- unnendum til ánægju og Ambassador Sovétríkjanna. hvatningar. — Ég býð velkomna hingað til lands full trúa menntamálaráðuneytis Ráðstjórnarríkjanna, þau frú Natalia Sokolova listfræðing Framhald á 3. síðu. Geislavirkni lífaldast í loflinu hér TÆKI til geislamælingn í lofti komu hin-gað til lands í lok ágúst og hófust mæling- ar þegar hinn 1. september. Ekki reyndist mikið af g'eisla virku ryki fyrr en um 18. sept., tók það að aukast mjög og hefur tífaldast eftr það. Bráðlega hefjast mælingar á vatni. Undanfarið hefur geisla- virkt ský verið í 10 km. hæð yfir Norðurlöndum. í Dan- mörku hefur komið í ljós tíu sinnum meiri geislavirkni í rigningarvatni en eðlilegt er. Vísindamenn telja, að þessi ískyggilega geisla- virkni í lofti og vatni hér á Norðurlönclum stafi af hin- um tíðu kjarnorkusprengju- tilraunum Sovétríkjanna í Norður-íshafinu að undan- förnu. Tilraunir stórveld- anna með þessa víicisorku leiða ósegjanlega hættu yfir mannkynið, eins o£ bezt má sjá af framangreindum upp- lýsingum. HLERAÐ Blaðið hefur hlerað — Að . Sjálfstæðisflokkurinn hafi í gær haldið hina ár- legu „thanksgiving“- hátíð sína, eða þakkargjörð, í Sjálfstæðishúsinu. Hún hófst með miklu kokteil- boði klukkan fimm. Er það venja flokksins að bjóða heildsolum, iðjuhöldum og öðrum peningamönnum, — sem greiða myndarlega í flokkssjóðinn, til þessarar hátíðar einu sinni á ári og skjalla þá dálítið og lofa þeimí að taka í hendina á Ólafi. Sagt er, að þegar Sjálf- stæðisflokkurinn var í stjórn, hafi þessar árlegu þakkarhátíðir verið haldn- ar í ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu og þá drukkið á kostnað ríkisins, en ekki veit blaðið sönnur á þessu. morgsin Benedikt Gröndal alþingismaður flytur erindi um landhelgismálið í upphafi þingsins .. .... 17. ÞING Sambands ungra jafnaðarmanna hefst á morgun. Vcrður þingið sett k]. 2 e. h. í Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu. Formaður SUJ, Björgvin Guð- mundsson, setur þingið, en síð- an mun Benedikf Gröndal al- þingisrr(aður, flytja erindi um landhelgismálið. Á laugardag verða starfs- rr.enn þingsins og. nefndir kosn btskupstru Meiri hluti altsherj deildar viil samh vr-' ra mn íiSJi ’ «r 7 v ;:?» ¥ - ar. Fluttar verða skýrslur stjórn arinnar og umræður um þær fara fram. Að loknum þing- fundi þann daginn taka nefnd ir til starfa og er áætlað, að þær ljúki störfum áður en þing fundur hefst að nýju næsta dag, sunnudag, kl. 10 f. h. Verða þá flutt álit nefnda og umræður um þau fram eftir degi. Er áætl að að þinginu ijúki kl. 6—7 á sunnudagskvöld. MIKUAR UMRÆÐUR urðu uin biskupafrumvarpíð í ncðri deild alþingis í gær. Fram kom álit állsherjarnefndar á frum- varpinu en nefndin hafði klofn. að um málið. Mælir meiri hluti nefndarinnar með frumvarpinu en minni hlutinn vill fella það Bjarni Benediktsson hafðí framsögu fyrir meirihluta alls- harjarnefndar, En meiri hlut- ann skipa þessir: Pétur Péturs- son, með fyrirvara. Bjarni Bene diktsson, Gunnar Jóhannsson og Ásgeir Sigurðsson. Minni hiutann skipar Gísli Guðmunds son. ÝMSIR MÆLA MEÐ FRUMVARPINU. Bjarni Benediktsson sagði, að frumvarpið hefði vei’ið sent til umsagnar ýmssa aðila. Hefðu kirkjuráð og kirkjuþing mælt með samþykkt frumvarpsins. Hann sagði, að flutningsrr.enn þessa- frumvarps vildu ekki breyta hámarksaldri ríkisstarfs manna yfirleitt, heldur aðeins varðandi biskup landsins. Benti Bjarni á, að þetta hefði verið gert þegar Jón bskup Helgason varð 70 ára, Kirkjumálaráð- herra, Hermann Jónasson hefði þá skorað á hann að gegna em- bætti áfram. Nú teldi hinn sami kirkjumálaráðherra, að það saprrýmdist ekki landslög- um, að biskup sæti lengur í em- bætti en til 70 ára aldurs. •— Bjarni sagði, að andlegir leið- togar þættu oft vel færir til starfs þrátt fyrir háan aldur. Nægði í því samhandi að vísa 1 til þess, að kaþólska kirkjáís hefðj nú nýleg'a valið 77 ára gamlan mann fyrir páfa.. ÁLIT LAGAPRÓFE8SORA,. Gísli Guðmundsson fylgdi s.ínu áliti úr hlaði. í því segir m. a.: ,,Þegar að því kom á hessis árj, að núverandi biskup Is- lands skyldi hæíta stör'fuinT, vegna aldurs, höfðu kirkjit-. málaráðuneytinu borizt undir skriftir mikils hluta þeirrai sóknarpresta og anrarra, er at kvæðisrétt liafa við biskups- lcjör, en með þeim undirskrifí um var þess farið á leit, að ná verandi biskup yrði látinr* gegna cmhætti „enn um sinn“, án þess að tími væri til tekinn,. Vegna þessara undirskrifta leitaði kirkjumálaráðuney tið álits tveggja prófessora viÆ lagadeild háskólans um lað, hvort telja bæri, að undant ki ingarákvæðið um embættis- menn, sem kjörnir eru almorn ri kosningu (prestar), tæki <51 hiskupsins yfir íslandi. A’i t prófessoranna var samhlj og töldu þeir, að svo væri ef kl, biskup væri kosinn af tik- mörkuðúm hópi manna (sv ; hundinn væri við stéttý o í væri það ekki „alirenn V -m- ing“. Samkvæmit þessu í ldi ráðuneytið, að undantek • ir-'t samkvæmt 13. gr. laga nr. 3 > 1954 kæmi ekki til greinr óm núverandi biskupi var fr’iö að gegna embætti, þangað tii Framhald á 2. síðu. ■ r FYRIR skömmu afhenti Vil hjálmur Finsen fyrrverandi sendiherra og ritstjóri stjórn Blaðamannafélags íslands 25 þúsund kr. g.jöf til Menningar- sjóðs félagsins. Skal þessi upphæð lögð í sér_ stakan sjóð, er beri heitið — „Blaðamannasjóður Vilhjálms Finsen“. — Árlegum vöxtum hans skal varið til styrktar ís- lenzkum blaðamanni til utanfar ar til að kynnast erlendri blaða mennsku. Stjórn sjóðsins skulu skipa tveir menn úr stjórn Blaöa- mannafélags íslands með aðai- ritstjóra Morgunblaðsins sem oddamanni við úthlutun styrks úr sjóðnum, Styrkúthlutun fer fram árlega hinn 7. nóveroher, á fæðing'ardegi gefanda, í fyrsta sinn 7. nóvember 1959. Með þessari höfðingiegu gjöf sendi Vilhjálmur Finsen hjart- anlegar kveðjur til alira ís- lenzkra blaðamanna, Stjórnir Blaðamannáfélags Islands og Menningarsjóðs. fé- lagsins hafa sent Vilhjálmi Fin sen innilegar þakkir fyrir gjöf- ina og þann hlýhug og rækt- arsemi, sem bak við hana ligg- ur. Vilhjálmur Finsen

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.