Morgunblaðið - 13.07.1978, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. JULÍ 1978
Fremur rólegt var á Kröflusvæðinu í gær. Jarðskjálftavirkni fer
dvínandi og siginu norður í Gjástykki má hcita lokið. Töluverð
hveramyndun mun þó vcra þar á yfirborðinu og fóru jarðfræðingar
í gær til að kanna það. Myndin var tekin fyrir Gjástykki í fyrradag
en hana tók fréttaritari Mbl. á Ilúsavik.
Maður fannst látinn
hjá Keflaváíurhöfn
Var rændur skömmu áður en hann lézt
MAÐUR um sextugt fannst í
grjóturð niðri við Keflavikurhöfn
í gærmorgun og var hann látinn
þegar að var gætt. í fyrstu var
talið að ekki væri allt með fclldu
um dauða mannsins. þvi' að hann
Vinnuskóla-
krakkarnir
mótmæla
launakjo^um
KRAKKARNIR hjá Vinnu-
skóla Reykjavíkurborgar, sem
verið hafa uppi í Heiðmörk,
munu ekki mæta þar til vinnu
í dag. Þess í stað munu þau
safnast saman nú árdegis á
Lækjartorgi og hyggjast fara
í kröfugöngu til að mótmæla
lágum launum.
Krakkarnir ætla að ganga
fyrir Gunnlaug Pétursson,
borgarritara eða Sigurjón
Pétursson, forseta borgar-
stjórnar, og ef þau hitta á
hvorugan þá fyrir Guðrúnu
Helgadóttur til að mótmæla
launakjörum sínum, sem þau
telja svo slæm að ekki sé unnt
að una við þau lengur. Þau
segjast fá 305 krónur á tímann
meðan krakkarnir í Mosfells-
sveit fái 335 krónur og
krakkarnir í Kópavogi hafi
enn töluvert betri laun.
var með áverka á höfði og auk
þess einsýnt að hann hafði verið
rændur skömmu áður en hann
lézt. Nú þykir hins vegar allt
benda til að áverkarnir hafi ekki
verið af mannavöldum en hins
vegar hafa tveir 13 ára piltar
viðurkennt að hafa rænt mann-
inn. þar sem hann lá ofurölvi
skammt frá þeim stað er hann
síðan fannst látinn.
Að sögn rannsóknarlögreglunn-
ar í Keflavík var maðurinn sem
hér um ræðir úr Hafnarfirði.
Hann starfaði uppi á Keflavíkur-
flugvelli, en var drykkjumaður og
hafði ekki mætt þar til vinnu um
skeið. Við rannsókn málsins í
gærmorgun varð uppvíst að pilt-
arnir tveir komu að manninum
þar sem hann lá ofurölvi lítið eitt
frá þeim stað sem hann síðan
fannst látinn, og að þeir rændu
hann þar nokkrum fjármunum.
Við rannsókn málsins hefur hins
vegar ekkert komið fram sem
bendir til að þeir hafi síðan veitt
honum áverka eða verið þess
valdandi að hann féll fram af brún
við höfnina og lenti þar ofan í
grjóturð með oddhvössum stein-
um. Er talið líklegast að hann hafi
hlotið áverka þá, sem hann var
með á höfði, við þetta fa.ll.
Réttarkrufning mun hins vegar
fara fram til að skera úr um þetta
atriði.
Grindavík:
SLITNAÐ hefur upp úr tneiri-
hlutasamstarfi, sem nýlega hafði
tekizt milli fulltrúa Alþýðuflokks
og Alþýðubandalags í bæjar
stjórn Grindavíkur.
Á fundi í bæjarstjórninni í dag
bar Kjartan Kristófersson, fulltrúi
Alþýðubandalagsins, fram tillögu
um að auglýst yrði eftir bæjar-
stjóra í stað Eiríks Alexanders-
sonar, sem gegnt hefur starfi
bæjarstjóra undanfarin ár, en
tillagan var felld þar eð annar
Alþýðuflokksmaðurinn greiddi
atkvæði gegn tillögunni. Þegar þau
úrslit lágu fyrir stóð Kjartan upp
og lýsti því yfir að grundvöllur
fyrir meirihlutasamstarfi þessara
tveggja flokka væri brostinn.
Alþýðuflokkur, Alþýðubandalag
og Sjálfstæðisflokkur hafa 2 full-
trúa hver flokkur í bæjarstjórn-
inni en Framsóknarflokkur 1.
Vegfarendur spurðir
álits á hækkununum
Áfengi
og tóbak
ÞAÐ HEFUR eflaust ekki farið
fram hjá_ mörgum að í gær voru
útsölur ÁTVR lokaðar og í dag
býðst mönnum að kaupa áfengi
og tóbak á að meðaltali 20%
hærra verði en var í gær.
Til að fólk gcti bctur áttað sig
á þessari hækkun fara hér á eftir
nokkur dæmi um verð og er þá
gamla verðið haft í sviga fyrir
aftan til samanburðar:
Sígarettur 470 (390). Algcng
tegund píputóhaks 390 (325).
Lítil dós af neftóbaki 240 (200).
Brennivín 5,100 (4,200). Algeng
tegund aí vodka 6,700 (5,500).
Algeng tegund af wiskíi 7,200
(5,900). Algcng tegund af gini
7,100 (5,800). Kláravín 5,750
(4,700). Álgeng tegund af púrt-
víni 2,350 (2,000). Algeng tegund
af vermut 2,600 (2.200). Algeng
tegund af rauðvíni 2,400 (2,000).
Algeng tegund af hvítvíni 2,600
(2,200).
Til þess að kanna álit almcnn-
ings á þessum hækkunum brugð-
um við okkur niður í miðbæ og
tókum þar nokkra vegfarendur
tali.
Fyrst spurðum við fólkið um
hvað því fyndist um þessa hækk-
un og síðan hvort það teldi að hún
hefði einhver áhrif á neyzluvenj-
ur fólks á áfengi og tóbaki.
1 r
X
Það voru ekki allir sem áttuðu sig á því að Áfengisútsölurnar voru
lokaðar í gær.
„ Verðið var
alveg nógu
hátt fgrir”
Gréta Sigurðardóttir.
— Mér líst mjög illa á þessa
hækkun. Verðið var alveg nógu
hátt eins og það var. Hvernig
skyldi þetta annars enda?
— Fólk fer bara að gera eitt-
hvað annað í staðinn. Ætli það
minnki ekki drykkjuna fyrst, en
svo fer þetta ábyggilega aftur í
sama farið. Ég hugsa að fólk
minnki ekki reykingar, því fólk
sem reykir eitthvað á annað borð
setur verðið ekki fyrir sig. Mér
fyndist ekkert ólíklegt að fólk
gerði meira að því að brugga sitt
eigið áfengi eftir að það er orðið
svona dýrt að kaupa það.
Þorskveiðibann
frá 1. til 7. ágúst
Skuttogurum bannaðar þorskveiðar
í 30 daga fram til 15. nóvember
l£
Meirihlutinn brast út
af bæjarstjóranum
Sjávarútvegsráðuneytið hefur
ákveðið að banna allar þor'skveið-
ar í ísl. fiskveiðilandhelgi í 7
daga 1. til 7. ágúst n.k. nema hvað
útgcrðarmönnum skuttogara er
heimilt að velja um að stöðva
þorskveiðar á fyrrgreindu tima-
bili eða dagana 8. til 14. ágúst.
Auk þessa eru þorskveiðar skut-
togara bannaðar í 30 daga frá
útgáfu reglugerðar sjávarútvegs-
ráðuneytisins til 15. nóvember
n.k. Er hin nýja reglugerð
sjávarútvegsráðuneytisins að
mestu sama efnis og sú sem gefin
var út í júlf á sl. ári.
I reglugerð sjávarútvegsráðu-
neytisins, sem gefin var út í gær,
segir, að á tímabilinu 1. ágúst til
7. ágúst n.k., að báðum dögum
meðtöldum, séu allar þorskveiðar
Könnunarviðræður Alþýðubandalags og Alþýðuflokks:
Engin afstaða til
vísitölumálsins
„ÞAÐ MA segja að við höfum velt
fyrir okkur þremur leiðum til að
taka kjarasamningana aftur f
gildi en málið komst ekki á það
stig að við tækjum afstöðu til
þeirra," sagði Benedikt Gröndal
cr Mbl. spurði hann f gær um þátt
vísitölumálsins í kifhnunarvið-
ra;ðum Alþýðuflokksins og Al-
þýðu bandalagsi ns.
Benedikt sagði að reiknaðir
hefðu verið út þrír möguleikar en
vildi ekki gera grein fyrir því í
hverju þeir væru fólgnir. Spurn-
ingu um það hvort Alþýðuflokkur-
inn fyrir sitt leyti hefði tekið
afstöðu í málinu svaraði Benedikt
á þá leið, að þetta mál væri
„viðkvæmt samningsatriði á milli
flokka" og því vildi hann ekki ræða
það opinberlega.
bannaðar í íslenzkri fiskveiðiland-
helgi. Útgerðaraðilum skuttogara
sé þó heimilt að velja um að stöðva
þorskveiðar á fyrrgreindu tímabili
eða dagana 8. ágúst til 14. ágúst
1978, að báðum dögum meðtöldum,
enda sé sjávarútvegsráðuneytinu
tilkynnt um það eigi síðar en 20.
júlí n.k.
í annarri grein reglugerðarinn-
ar segir ennfremur, að skuttogar-
ar, með aflvél 900 bremsuhestöfl
eða stærri, megi ekki stunda
þorskveiðar í 30 daga samtals í
íslenzkri fiskveiðilandhelgi frá
útgáfudegi reglugerðarinnar til 15.
nóv. n.k. og séu þá meðtaldar
takmarkanir þær, sem um getur í
1. gr. Útgerðaraðilar geta ráðið
tilhögun þessarar veiðitakmörkun-
ar, þó þannig að hver skuttogari
verður að láta af þorskveiðum ekki
skemur en 7 daga í senn.
Síðar segir að útgerðaraðilar
skuli tilkynna sjávarútvegsráðu-
neytinu eigi síðar en 15. ágúst
hvernig þeir hagi veiðitakmörkun
á þörskveiðum samkvæmt ákvæð-
um 2. greinar. Verði slíkar áætlan-
ir ekki látnar í té geti ráðuneytið
ákveðið hvenær viðkomandi togar-
ar skuli láta af þorskveiðum.
Útgerðaraðilar séu bundnir við
áætlanir sínar og verði að leita
___________Framhald á bls. 20.
Óþrif í
minkabúi
MJÖG fljótlega verður gengið í
að hreinsa til á minkabúi í
Ileigadal í Mosfellssveit. sem lagt
var niður fyrir hálfu öðru ári. Að
sögn Einars Inga Sigurðssonar.
heilbrigðisfulltrúa. var viðskiln-
aður eigenda minkabúsins slæm-
ur. en þeir hafa nú gefið íyrirheit
um að hrcinsa staðinn hið fyrsta.
Minkabúið er úr almannaleið og
því ekki kunnugt um viðskilnaðinn
fyrr en fólk kom í nálægan
sumarbústað og börn, sem þarna
voru, tóku sig til og fóru að skoða
sig um á búinu. Þegar þau komu
heim voru þau alsett af flóm og
var þá heilbrigðisyfirvöldum gert
aðvart.
Minkabúinu hefur nú verið
lokað með bráðabirgðaaðgerðum
þar til fullnaðarhreinsun hefur
farið þarna fram auk þess sem
sumarbústaðurinn hefur verið
eitraður og hús viðkomandi
minkabúinu.