Alþýðublaðið - 22.11.1958, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 22.11.1958, Blaðsíða 2
iggjggj TEÐRIB : B. og S.-V. kaldi; skúrir, * SLYSAVARÐSTOFA Reykja víkur í Slysavarðstofunni er opin allan sólarhringinn. Læknavörður L.R. (íiyrir Vitjanir) er á sama stað frá kl. 8—18. Sími 1-50-30. 3;ÍÆTUí :VÖR:ÐUR er íReykja víkur apóteki, sími 1-13-30. ILYFJABÚÐIN Iðunn, Reykja víkur apóíek, Laugavegs apótek og Ingólfs apótek fylgja loki irtíma sölu- búða. Garðs apótek, Holts apótek, Austurbæjar apó- tek og Vesturbæjar apótek eru opin til kl. 7 daglega, nema á laugardö'gum til kl. 4. Holts apótek og Garðs apótek eru opin á sunnu- dögum milli kl. 1—4. e. h. HAFNARFJARÐAR apótek er opið alla virka daga kl. 9—21. Laugardaga kl. 9— 16 og 19—21. Helgidaga kl. 13—16 og 19—21. KÓPAVOGS apótek, Álfhóls- vegi 9, er opið daglega kl. 9—20, nema laugardaga kl. 9—16 og helgidaga kl, 13— 16. Sínii 23100. TJTVARPIÐ í DAG: — 12.50 óskalög sjúklinga. 14.00 Laugardagslögin. T6.30 Mið * degisfónninn, 17.15 skák- þáttur. 18.00 Tómtsunda- . þáttur barna og unglinga. 18.30 Útvarpssaga barn- anna. 18.55 í kvöldrökkr- inu: Tónleikar af’ plötum. . 20.30 „Kysstu mig Kata“: . Svavar Gests talar um Cole . Porter og kynnir lög eftir hann. 21.10 Leikrit: „Veð- , málið“, Miles Malleson . samdi upp úr sögu eftir Ant . on Tjekhov. Þýðandi: Ragn ar Jóhannesson. — Leik- stjóri: Einar Pálsson. 22.10 Danslög (plötur). 24.00 : Dagskrárlok. RAZAR ,,Sjálfsbjargar“ verð ur haldinn 6. des. Félagar •og aðrir velunnarar, sem vilja gefa muni, eru vinsam lega beðnir að koma þeim : á eftirtalda staði: Verzlunin Roði, Laugav. 74, Nökkva- vogur 16, kjallari, Steinhól • ar v/ Kleppsveg, Faxaskjól ' 16, Þormóðsstaðir við Skerjafjörð. * FERÐ AM ANN AGENGIÐ: 1 sterlingspund . . kr. 91.86 1 USA-doliar .... - 32.80 1 Kanada-dollar . . - 34.09 100 danskar kr. . . - 474.96 100 norskar lcr. . . - 459.29 100 sænskar kr. .. - 634.16 100 finnsk mörk . . - 10.25 1000 frans. frankar - 78.11 1.00 belg. frankar - 66.13 100 svissn. frankar - 755.76 100 tékkn. kr.....- 455.61 100 V.-þýzk mörk - 786.51 1000 lírur........ - 52.30 100 gyllini ...... - 866.51 , 1 Serlingspund 1 Eandar.dollar 1 KanadadoIIar 100 danskar kr. 100 norskar kr. 100 sænskar kr. 100 finnsk mörk í'iOÓO franskir fr. lOObelg. frankar 100 svissn. fr. • 100 tékkn. kr. 100 v-þýzk mörk F.OOO Lírur 100 Gyllini Dr. Victors von Urbancic minnzt. í upphafi minningartónleika um dr. Victor von Urbancic í Þjóðleikhfisinu á þriðjudaginn ílutti formaður Tónskáldafé- lagsins, Jón Leifs, ef tirfarandi ræðu: Maðurinn deyr, — en verkið lifir. — í fyrsta skipti tók dauðinn félagsmann úr Tónskáldafélagi íslands. Engan grunaði að Urbancic mundi fara fyrstur. ’Ségja má að hann hafi verið einn af yngri félagsmönnum Tónskáldaf élagsins, Segja má ef til vill einnig, að orsök dauða hans hafi ver- ið ofreynsla vegna örðugleik- anna í voru enn lítt þroskaða tónmenntalífi, Góðvild hans og samvizku- semi eru kunn. Hann var fús á að hjálpa öllum og takast á hendur svo að segja hvert það hlutverk, sem honum var falið, jafnvel þótt naumast væru tök á að leysa það, og hann reyndi ætíð sitt bezta. Hann var ekki sá eini, sem varð hér á landi að láta sér nægja að skila stundum hlutverki sínu óloknu við ófullnægjandi aðstæður og undirbúmng. Þegar umhverfið gerir of miklar kröfur og maður treð- ur leirinn og leðjuna, án þess að sjá íram á að ná markinu, — þá bilar maðurinn. Þannig fór Urbancic, Vér stöndum eftir undrandi, — getum ekki annað gert en að reyna betur en áður að ryðja brautina og reynum það nú hér í kvöld. Vér getum ekki lengur þrýst hönd þessa manns og þakkað honum. Ver getum ekki heyrt hér tújkun hans á meistara- verkum tónlistarinnar. Vér getum eingöngu minnst hans með því að hlusta á hans eig- in tónsmíðar. Þótt þær séu sumar kunnar einhverjum ykk ar, þá má gera ráð fyrir því að mörgum opnist nú hér nýr heimur við nánari kynni. Þegar maðurinn deyr, þá mega verkin fá að lifna við. Sölugengi kr. 45,70 16,32 16,96 236.30 228.50 315.50 5,10 38,86 32,90 376,09 226,67 391.30 26,02 431,10 ÍÞÖKU, bókasafni nemenda Menntaskólans í Rey.kjavík, sem er til húsa í hinu nýja fé- lagsheimili nemenda, hafa ný- lega borizt tvær rausnarlegar gjafir. Skömmu eftir vígslu félags- heimilisins gaf frú Alice Sig- urðsson hátt á annað hundrað bœkur til minningar um son sirm, Harald Sigurðsson, er fórst með Goðafossi á stríðsár- unum. Voru þetta einkum bæk ur á ensku og íslenzku eftir þekkta höfunda. Fáum dögum síðar barst safninu önnur gjöf eigi síður rausnarlegri en það er Ency- clopaedia Americana, 30 bindi í vönduðu bandi. Gefandinn er bandarísk kona, Mrs. Mildi’ed D. Allport. Safni nemenda er afar mik- ill fengur í báðum þessxxm höfðinglegu gjöfum og kunna nemendur gefendunum beztu þakkir fyrir. KÖRFUKNATTLEIKSMEIST- ARAMÓT Reykjavíkur hélt á- fram í gærkvöldi og fóru leik- ar þannig að í kvennaflokki sigraði Ármann 19:13 og í M.fl. karla sigraði ÍR KFR mteð 39:34 í nijög skenimtileguin leik. 7, slnfónfa Beethovens fSufí í hátíðasa! há a morpn* TÓNLISTARKYNNING verð- ur haldin í hátíðasal Háskólans á morgun, sunnudag 23. nóv. kl. 5 e. h. Verður þá haldið á- fram kynningunni á sinfóníum Beethoyans, sem tónlistarnefnd Háskólans gengst fyrir, og flutt af hljómplötutækjum skólaxxs sjöunda sinfónían í A-dúr. Eins Og áður mxm dr. Páll ísólfsso.n kynna verkið fyrir á- heyrendum og flytja skýringar. Aðgangur er ókeypis og öll- um Ixeimill, meðan húsrúm leyfir. Einróma sfuðning Nfjar bækur ALPYÐUBLAÐIÐ UitiDianai. ikJ.pýöuflokkurinn. Kitstjórar: Gísli J. Ástþófsson og Helg'i öæmuncisson (áb). Fulltrúi ritstjórnar: Sigvaldi Hjálmars- son. Freuastjóri: Björgyin Guömundsson. Auglýsingastjóri: Pét- ur Petu,rsson. Kitstjórnarsímar: 14901 og: 14902. Augdýsing'asími: 14906. Aígreiðslusími: 14900. Aðsetur: Alþýðuliúsi'Ö. Frentsmiöja Alþýöublaösins Hverfisgötu 8—10 ur í Bretlandi London, 21. nóv. FULLTRÚAR félaga hafnar- verkamanna í Breílandi ákváðu í dag að styðja alþjóðlegt af- •greiðslubann á skipum, er sigla undif flöggum Panama, Líber- íu, Honduras og Costa Rica til þess að komast hjá skattgreiðsl inn og launagreiðslum samkv. samningum heimalanda. Hefur Alþjóða flutningaverkamanna- sambandið beðið um afgi’eiðslu bann þetta á tímabilinu 1.—4. desember. Stuðningur við verk fallið var einróma. —• Að meðaltali komu 15 skip á viku undir þessunx flöggunu í brezk- ar liafnir. Frá Hollandi berast hins veg- ar þær fréttir, að hafnaryfir- völdin í Amsterdam og Rotter- dam hafi hafið lögsókn gegn hollenzku verkalýðsfélögunum vegna þessa fyrirhugaða af- greiðslubanns. Kemur xnálið fyrir rétt eftir helgi. — Reuter. Munchen, 21. nóv. KONRAD AÐENAUER, — kanzlari Vestur-Þýzkalands, sagði hér í dag, ao hann hefði sagt við rússneska sendiherr- ann í Bonn, Andrei Smirnov, er þe'r áttu íal saman í gær, að Vestur-Þj óðverj ar íeldu „nxjög mikilvægt“ ;að hafa hernámslið in áfram í Berlín. Á fundi kaþólskra og mót- mælendapresta hér sagði hann, að Smirnov hefði sagt við sig, að Þjóðverj.ar mundu fagna því, að hernámsliðið yrði flutt burtu, en kvaðst hafa bent Smirnov á, að Þjóðverjar litu á herliðið í Berlín sem vernd fyrir frelsið og teldu veru þess Þar uijög mikilvæga. -— Reuter. BÓKAÚTGÁFAN NORÐRI hefur gefið út bók, er nefnist „Leiðin til þroskans“. Höfund- Ur bókarinnar er Guðrún Sig- urðardótti. Tilefnislam ónot MORGUNBLAÐIÐ er jafnan öðru hvoru að ónotast yfir því, að núverandi ríkisstjórn skuli hafa sair.ráð við verka- iýðshreyfxnguna um efnaihagsmálin. Síðasta tilefixið á að- vera það, að rikisstjórnin bíði eftir Alþýðusanxbandsþinginu og ajiþingi hafi ekkert að gera á meðan. Á þetta að vera stórihætt'uilegt virðingui gP-þingJs og ákvclrðunarrétti um landsstjórnina. Um þessa meðferð á alþingi þarf ekki að ræða. Var ekkx löggjafarsamkoman iðjulaus langtímum saman á valda- dögum Sjáifstæðisflokksins, meðan Ólafur Thors og félagar hans reyndu að ná árlegu samkomulagi við útvegsmenn? Auðvitað mætti nefna fleiri dæmi, en þetta nægir. Út af fyrir sig var ekkert við ;það að athuga, þó að alþingi yrði að bíða samninga ríkisstjórnarinnar við útvegsmenn, meðaxx Ólafur Thors og Bjarni Benediktsson voru. landsfeður. Það var að ýmsu leyti eðlilegt, þó að framkvæmdin hefði stund- um mátt vera öðru vísi en raun varð á. Og það er heldur ekkert við það að athuga, þó að störf allþingis gangi hægt stuttan tíma vegna þess að rikisstjórnin þurfi að hafa sam- ráð við verkalýðshreyfinguna um efnahagsmálin. Alþingi hefur sannarlega orðið fyrir stærri og verri áföllum. Óixot Morguniblaðsins eru þess vegna tilefnislaus. Efnaliagsmál íslendinga verða ekki leyst með viðun- andi hætti nema í samráði við verkalýðshreyfinguna. Þess vegna markaði það tímamót, þegar núverandi rík- isstjórn hvarf að þessu ráði. Hitt er annað, að fraxn- kvæmdin stendur vafalaust tij bóta. Þetta samstarf þarf að skipuleggja þannig, að tafir og erfiðleikar á síðustu stundu komi ekki til sögunnar. Ríkisstjórnöx verður að gera sitt til þess að kom'a því skipulagi á og vei’kalýðs- hreyfing'ii að koma til móts við hana í þeirri viðleitni. Það ætíi að verða eitt af verkefniun næsta Alþýðusam- bandsþings að greiða úr í þessu efni og finna framtíðar- form á samstarf verkalýðshreyfingarinnar við ríkis- stjórnina unx efnahagsmálin. En Morgunblaðið bendir eltki á þetta. Það er andvígt þeirri tillitssemi við verka- lýðshreyfinguna, að hún ,sé spurð eins eða neins í efna- hagsmálunum. Fjölmennustu stéttir Þjóðfélagsins, sem eiga mestra hagsmuna að gæta varðandi afkomu atvlnnuveganna, verða ekki einangraðar. Og verkalýðshreyfingin er ekkert ómerk- ari samningsaðili um þau mál en.þeir þjöðfélagshópar, sem. Morgunblaðið hefur velþóknun á.’Alþýðublaðið telur sjálf- sagt og raunar nauðsynlegt, að atvinnurekendur séu hafcir með í ráðum um lausn þessara rnála, gert við þá samkomu- lag og reynt að ganga til móts við sanngjarnar óskir þeirra og kröfur. En auðvitað gildir sama og ekki síður um verka- lýðshreyfinguna. Ekki er minna í húfi fyrir hana. Morgun- blaðið ætti að gera sér ljóst, að sá tími er liðinn á íslandi, að vinnandi fólk til sjávar og sveita sé mlstið minna en þem •aðilar, sem reka atvinnutækin. Þessir aðilar seinja sín í milli. Og ríkisstjórnin þarf að hafa samráð við báða, svo að vel takist. Auðvitað má deila xxna viðhorf efnahagsmálanna. Erx það er alls ekki nýtilkomið. Ástandið í þessu efni er að ilestu leyti betra en var á valdadögum Sjálfstæðisflokksins. Og það, sem umdeitanlegt er eða aílaga fer, verður ekki á. nokkurn hátt fært á reikning þeirrar ákvörðunar núver- andi ríkisstj.órnar að vilja hafa samráð við verkalýðshreyf- inguna um efnahagsmálin. Hún hefur ekki á neinn lxátt gefizt illa. Hins vegar standa vonir til, að árangur henxxar verði enn msiri oS betri i iramtíðinni. Þannig er ssíxik hvernig litið er á þennan máiflutning Morgunblaðsins. Hann er seinheppilegui', enda ekkert annað en söixnun þess, að Morgunblaðið vill ekki unna verkalýðshreyfingunni þeirrar viðurkenningar, að ríkisstjórnin hafi samráð við hana. allri slátrun og mun féð hafa verið heldur neðan við meðal- lag. Slátrað var svipuðum fjölda og vant er og þyi’ftu bændur ekki að fækka búpen- ingi vegna heyleysis. SKÓLHALDIÐ. Níutíu og fjögur börn eru í barnaskólanum hér og fjörutíu og fimm nemendur í hús- mæði’askólanum. Er hann yfir- fullur, eins og undanfarin ár. Skólahaldið hefur gengið vel. Smávegis lasleika varð vart hér um daginn, en hanii er nú genginn hjá. B.A. í BorprM VARMALANDI í gær. TÍÐARFAR er ágætt hér urn slóðir, auð jörð, og öllum skepn um beitt, nema kúm að sjálf- sögðu ekki. Haustið hefur ver- ið gott. Heyskapur var heldur ncðan við meðallag hjá bænd- um, eix nýting heyja hins veg- ar ágæt. Háarspretta var engin vegna þurrkanna. Fyrir hálfum mánuði lauk 22. nóv. 1958 — Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.