Morgunblaðið - 31.01.1979, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR
Páfi skorar á æskuna:
Moskvu — 30. janúar — Reuter.
HIN OPINBERA fréttastofa Tass skýrði frá því í kvöld
að þrír Armeníumenn hefðu verið teknir af lífi fyrir
sprengjutilræði í neðanjarðarbrautinni í Moskvu fyrir
tveimur árum.
Einn hinna líflátnu, Stepan
Zadikyan, áður námsmaður við
Yerevan-háskóla, var nafngreind-
ur, en hinir ekki. Þeir voru líflátn-
ir eftir að dómstóll úrskurðaði þá
seka um að hafa orsakað dauða
fjögurra manna í neðanjarðarstöð-
inni. Fréttastofan sá ástæðu til að
geta þess að fullnægjandi sannan-
ir hefðu legið fyrir um sekt mann-
anna þegar dómurinn var kveðinn
upp.
Af hálfu andófsmanna í Moskvu
hefur því áður verið haldið fram
að stjórnvöld hafi sviðsett um-
rædda sprengingu. Hafi hinir sak-
felldu verið andófsmenn og mála-
tilbúnaðurinn hafi verið félögum
þeirra til viðvörunar.
Snúið baki við hug-
myndafræði haturs, of-
beldis og örvæntingar
Mexico-borg — 30. jan. — AP
JÓHANNES Páll páfi II. skoraði í
dag á æsku heimsins að „snúa baki
við hugmyndafræði, sem elur af sér
hatur, ofbeldi og örvæntingu“ og
kvað uppvaxandi kynslóð vænlegra
að leita gleði, einlægni og friðar í
Kristi. Páfi ávarpaði mikinn mann-
f jölda við skóla einn í Mexico-borg,
en svo mjög var honum fagnað er
hann ætlaði að leggja af stað
þangað í bifreið, að ógerlegt var að
ryðja honum braut gegnum mann-
þröngina og varð að flytja hann í
þyrlu að skólanum.
Páfi hét á alla kristna menn að
taka höndum saman um að vinna
bug á „menningarlegri vanþróun í
mörgum ríkjum Suður-Ameríku" og
taldi vísast að árangri yrði náð með
því að jafna Hfskjör í heiminum.
Það vekur athygli að í Mexico-heim-
sókninni hefur gætt meiri íhalds-
semi en áður hefur orðið vart í
kenningu hins pólska páfa í andleg-
um málum en jafnframt þykir hann
hafa látið í ljós meira frjálslyndi í
tímalegum efnum en menn hafa átt
að venjast hingað til.
Frá Mexico-borg fór Jóhannes
Páll páfi II. til Guadalajara, sem er
næststærsta borg í Mexico, en þar lá
vinna að mestu niðri í dag vegna
komu hans. í Guadalajara urðu
gífurleg fagnaðarlæti hvar sem leið
páfa lá, sem og annars staðar í
landinu.
Haförninn sýnir um tveggja metra vænghaf sitt þar sem hann situr á handlegg Ragnars bónda á Brjánslæk
á Barðaströnd í gær. Hann var þá óðum að hressast eftir volkið og aðgerð dýralæknisins.
Sjá miðopnu blaðsins. Ljósmynd Morgunblaðið: Emilía Björnsdóttir.
Oryggi Taiwans engin
hætta búin - segir Teng
Washington — 30. janúar — AP.
Teng Hsiao-Ping, varaforsætis-
ráðherra Kfna, fullvissaði í dag
bandaríska öldungadeildarþing-
menn um að Kínverjar muni
hvorki beita vopnavaldi né efna-
hagslegum þvingunum til að ná
yfirráðum á Taiwan. Nær allir
öldungadeildarþingmenn voru
viðstaddir hádegisverð þar sem
Teng lét þessi ummæli falla, og
vakti það sérstaka athygii hve
mjög hinum kínverska leiðtoga
var á mun að sannfæra þá um að
öryggi Taiwans væri tryggt. Um
hádegisbilið lauk formlegum við-
ræðum þeirra Tengs og Carters
forseta. Carter lýsti viðræðunum
við fréttamenn og kvað þær hafa
verið „hreinskilnar, árangursrík-
Khoumeini til
írans í kvöld?
Teheran — 30. janúar — AP — Reuter.
SAMHERJAR AYATOLLAII KHOUMEINIS sögðu í kvöld, að loknum fundi með hinum aldna
trúarleiðtoga, að trúlega legði hann af stað til írans eftir 15 ára útlegð í kvöld. Tilmæli hafa þó borizt frá
áhangendum hans í íran um að hann fresti brottíörinni þar til á fimmtudag, svo tími vinnist til að búa
honum verðugar móttökur. Stjórn Baktiars hefur að því er næst verður komizt ekki sett Khoumeini nein
skilyrði vegna heimkomunnar, en ákvörðun um að honum skyldi leyft að koma til landsins var tekin á
löngum ríkisstjórnarfundi í Tehcran í dag.
Khoumeini kemur til Teheran
leiguþotu frá Air France, en stjórn
Baktiars hefur lýst því yfir að hún
geti ekki tekið ábyrgð á öryggi hans
við komuna þangað, enda þótt hún
muni gera 'sitt ýtrasta til að hann
geti verið óhultur.
Ekki kom til óeirða á almanna-
færi í Teheran í dag, en hundruð
múhameðskra kennimanna höfðu í
frammi mótmæli við háskólamosk-
una í borginni í dag. Þeir klifu
turnspírur og kölluðu frýjunarorð
til mannfjölda, sem safnazt hafði
saman á háskólasvæðinu. Slagorð
um „keisarann dauðan" og formæl-
ingar í garð Bandaríkjastjórnar,
Israels og öryggislögreglunnar
Savak glumdu í hátölurum mosku-
turnanna, en Ayatollah Montazeri
einn helzti leiðtogi Khoumeini-sinna
í borginni, hafði forystu fyrir mót-
mælendunum.
Bandaríkjastjórn fyrirskipaði í
dag brottflutning langflestra stjórn-
arerindreka sinna i íran og fjöl-
skyldna þeirra, og er búizt við að
þessir fólksflutningar hefjist nú í
vikunni.
ar, mjög ánægjulegar, stefnumót-
andi og í fyllsta bróðerni", en
Teng klykkti út með að segja:
«Ég er sammála forsetanum í
einu og öllu.“
Leiðtogarnir fengust ekki til að
svara spurningum varðandi ein-
stök mál í samskiptum ríkjanna,
svo sem hvernig þeir hygðust
umgangast Sovétstjórnina í fram-
tíðinni eða hvernig leysa ætti
ágreining varðandi framtíð
Taiwans. Áreiðanlegir heimildar-
menn hafa þó greint frá því að
Teng og Carter hafi rætt um
Sovétríkin, og hafi komið greini-
lega í ljós, að Teng sé fylgjandi
mun harkalegri stefnu í garð
Kreml-stjórnarinnar en Carter sé
reiðubúinn að fallast á. Hafi leið-
togarnir þá snúið sér að beinum
samskiptum Bandaríkjanna og
Kína og hafi þá allt fallið í ljúfa
löð.
Teng hefur boðið Carter forseta
að koma til Kína á næstunni í
opinbera heimsókn, og til endur-
gjalds hefur Carter boðið Hua
Kuo-feng forsætisráðherra Kína
að koma til Bandaríkjanna.
Ákveðið er að af báðum þessum
heimsóknum verði innan tíðar, en
ekki er vitað hvenær. Þeir Carter
og Teng hafa komið sér saman um
víðtæka samvinnu Kínverja og
Bandaríkjanna, einkum á sviði
tækni, vísinda, menningarmála og
geimrannsókna, auk þess sem
fyrirhugað er að koma á viðamiklu
skiptinemakerfi milli ríkjanna.
Samningar um þessi mál verða
undirritaðir er þeir Carter og Teng
hittast á morgun, en þá mun Teng
jafnframt eiga fund með Nixon,
fyrrum forseta Bandaríkjanna.
85% sögðu
„já”
Salisbury — 30. janúar — AP. .
85.4% ATKVÆÐISBÆRRA
Rhódesíumanna, sem að miklum
meirihluta eru ljósir á hörund,
greiddu í dag atkvæði með því að
komið skuli á í landinu meiri-
hlutastjórn með skilyrðum, en
þar munu blökkumenn hafa for-
ystu.
Kjörsókn í atkvæðagreiðslunni
var um 75%, en þegar kjörfundi var
lokið og sýnt var hver úrslitin yrðu,
lýsti Ian Smith, forsætisráðherra
bráðabirgðastjórnarinnar, sem nú
er við völd í landinu, því yfir, að
enginn siðferðilegur grundvöllur
væri lengur fyrir því að stjórnir
Bretlands og Bandaríkjanna viður-
kenndu ekki þá meirihlutastjórn,
sem kjörin yrði í almennum kosn-
ingum í apríl næstkomandi.
Þrír líflátn-
ir í Moskvu