Morgunblaðið - 31.01.1979, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. JANÚAR 1979
23
Minning:
Guðrún Steinunn
Guðmundsdóttir
Fædd 20. desember 1878
Dáin 23. janúar 1979
Þriðjudaginn 23. janúar s.l. lézt
á sjúkrahúsi Akraness Guðrún
Steinunn Guðmundsdóttir fyrrum
húsfreyja á Mel í Hraunhreppi á
Mýrum. Guðrún var fædd í Hjörts-
ey þann 20. desember 1978 og var
því rétt nýorðin 100 ára, þegar hún
andaðist. Foreldrar hennar voru
hjónin Guðmundur Benediktsson
frá Anastöðum og síðari kona
hans, Kristín Petrína Pétursdótt-
ir. Þau eignuðust 9 börn, en með
fyrri konu sinni, Sigríði Andrés-
dóttur, átti Guðmundur 10 börn.
Af þessum stóra hópi lifir aðeins
ein alsystir Guðrúnar, María hús-
freyja í Lækjarbug, sem nú er hátt
á níræðisaldri.
Ung að árum giftist Guðrún
Pétri Runólfssyni, góðum og
greindum manni. Hófu þau búskap
að Saurum, en þar fæddust synir
þeirra, Aðalsteinn 6. okt. 1899 og
Guðmundur 2. marz 1907. Frá
Saurum fluttust þau að Litla
Kálfalæk í Hraunhreppi og bjuggu
þar í 3 ár, en festu þá kaup á
jörðinni Mel í sömu sveit og
bjuggu þar æ síðan.
Árið 1935 brá dimmum skugga
yfir heimilið, þegar húsfaðirinn
burtkallaðist yfir landamæri lífs
og dauða. Eftir það bjó Guðrún
með sonum sínum og hélt sem
áður reisn sinni og æðruleysi.
Höfum við hjónin átt margar
ánægjulegar samverustundir með
mæðginunum á Mel og kunnum vel
að meta þátt húsmóðurinnar í
fjörlegum samræðum, sem fyrir
hennar tilstilli urðu oft bæði
fræðandi og eftirminnilegar.
Vorið eftir andlát sonar síns
Guðmundar, brá Guðrún búi og
seldi jörðina, þá 94 ára gömul.
Fluttist hún þá ásamt Aðalsteini á
dvalarheimili aldraðra í Borgar-
nesi, sem þá var nýstofnað. Þar
undu þau mæðginin hag sínum vel
og notaði Guðrún tímann til
margs konar handavinnu og jók
við kunnáttu sína á því sviði, svo
sem auðið var. Fyrir nokkru tók
heilsu hennar að hraka til muna
og var hún þá flutt á sjúkrahúsið á
Akranesi, þar sem hún andaðist
eftir stutta legu.
þá löngum á sjúkrahúsum, en var
þó, eftir að hann var orðinn
rúmliggjandi, tíma og tíma á Mel.
Frá þeim dögum minnist ég þess,
að við Lóa komum að Mel í
nóvember, haustið áður en
Guðmundur dó. Hann lá í rúmi
sínu uppi á lofti og þar sátum við
og spjölluðum við hann um lífið og
tilveruna, meðan við virtum fyrir
okkur heiðríkju himinsins og
dimmblá fjöllin, en hnígandi
haustsólin skreytti landið hans
friðargeislum sínum á þessari
unaðslegu síðdegisstund. Yfir
Guðmundi hvíldi þessi sami friður
og heiðríkja. — En móðir hans
sem þá var yfir nírætt, sýslaði um
kaffið niðri og vildi ekki annað
heyra, en færa okkur það upp, svo
viðstaðan kæmi Guðmundi og
okkur að sem beztu gagni. Slík var
hennar hljóðláta umhyggja fyrir
sjúkum syni og því ekki undarlegt,
þótt honum væru þær stundir
kærar, sem hann fékk notið heima,
þar sem móðir og bróðir lögðust á
eitt um að gera honum lífið sem
léttbærast og ánægjulegast.
Og nú er þessi hugþekka merkis-
kona gengin á vit sonar síns og
annarra ástvina sem á undan voru
farnir yfir móðuna miklu.
Við hjónin biðjum henni
blessunar guðs um leið og við
sendum syni hennar Aðalsteini og
Maríu systur hennar innilegar
samúðarkveðjur.
Hallgrímur Th. Björnsson.
+
Systir okkar,
GUÐRÚN PÁLSDÓTTIR,
Nóatúni 26,
lézt aö Borgarspítalanum, mánudaginn 29. þ.m.
Hróðný Páladóttir,
Jón Pélason,
Sigríöur Páladóttir.
Móöir okkar, + LAUFEY ÞORLEIFSDÓTTIR,
Hrafnsstaöakoti,
Dahrik,
lést 29. janúar s.l. Baldvin Magnúsaon, Jónína Magnúsdóttir, Guömundur T. Magnússon.
+
Uttör móöur okkar, tengdamóöur og ömmu,
GUDRÚNAR HALLDÓRSDÓTTUR,
Iré Norötirði,
til heimilia aó Borgarholtabraut 43,
Kópavogi,
er lézt 21. þ.m. fer fram frá Fíladelfíukirkju, Hátúni 4, fimmtudaglnn 1. febrúar
kl. 3. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á starfsemi Ffladelfíusafnaöar-
ins' Fyrir hönd aöstandenda. Þórður Bjarnaaon.
Guðrún var vel af guði gerð,
bæði andlega og líkamlega og þótti
glæsileg á yngri árum. Hún var
verklagin og vinnusöm, hafði góða
skipulagshæfileika og einkenndist
heimili hennar af snyrtimennsku
og hagsýni, jafnt utan dyra sem
innan. Guðmundur sonur hennar
var búfræðingur að mennt, enda
kom í hans hlut að stjórna búinu
og sjá um rekstur þess. Raunar
voru þeir bræðurnir þar báðir að
verki, samvinnuþýðir og sam-
hentir og því styrkar stoðir móður
sinnar í öllu er að heimilishaldinu
laut.
Fjölfróð var Guðrún og átti
trútt minni, kunni mikið af snjöll-
um lausavísum, sem hún gjarna
greip til í rabbi við kunningja.
Bókhneigð var hún og víðlesin.
Hún var róttæk og umbótasinnuð,
en hlutlaus um skoðanir annarra.
Listræn var hún að eðlisfari, bjó
yfir ríkri sköpunargáfu og gerði
marga fallega muni, þegar annir
leyfðu, muni, sem einkenndust af
smekkvísi og hagsýni, því þá var
ekki hlaupið í næstu búð til efnis-
kaupa, heldur notast við það sem
til náðist á staðnum. En vegna
stopulla frístunda varð þessi
sköpunarþrá eins konar olnboga-
barn á heimilinu, allt þar til
ævikvöldið tók að nálgast. Þá fyrst
gat hún farið að sinna þessu
hugðarefni sínu nokkuð að ráði.
Á síðustu búskaparárum
Guðrúnar missti sonur hennar,
Guðmundur heilsuna og dvaldist
+
Eiginkona mín, móöir okkar, tengdamóöir, dóttir og systir,
GUDNÝ INGIBJÖRG JÓNSDÓTTIR,
Kúrlandi 30,
veröur jarösett frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 1. febrúar kl. 1.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaö. Þeir sem vildu minnast hennar láti
líknarstofnanir barna njóta þess.
Gunnar G. Gunnaraaon,
Ragnar Jón Gunnaraaon, Helga Birna Björnadóttir,
Einar Borg Gunnaraaon, Svandía Béra Karladóttir,
Þóray Björg Gunnaradóttir Hatdía Lilja Gunnaradóttir,
Þórey Jónadóttir,
Guöbjörg Jónadóttir.
Systir mín og móöir okkar,
ÞURÍÐUR EINARSDÓTTIR,
Árbraut 17, Blönduóai,
veröur jarösungin frá Blönduóskirkju laugardaglnn 3. febrúar kl. 14.
Margrét Einaradóttir,
Þorvaldur Þorlékaaon,
Pétur Þorlékaaon,
Einar Þorlékaaon,
Sigurbjörn Þorlékaaon.
+
Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför mannsins
míns, fööur, tengdafööur og afa,
SÉRA ÞORGEIRS JÓNSSONAR,
fyrrvorandi prófaata, Stigahlfó 4.
Jónfna Guömundadóttir
AEvar Þorgoiraaon Ingibjörg Hékonardóttir
Snorri Þorgairaaon Unnur Péturadóttir
Gyöa Þorgoiradóttir Siguröur Guðbjartaaon
og barnabörn.
Útför fööur okkar. + KRISTJÁNS VIGFÚSSONAR,
veröur gerö frá Fossvogskirkju, í dag miövikudaginn 31. janúar kl. 1.30 e.h. Blóm vinsamlegast afbeöin, en þeim, sem vildu minnast hins látna er bent á
líknarstofnanir. Erla Kristjénsdóttir, Sólrún Kristjénsdóttir.
+
Þökkum innilega samúö og hlýhug viö andlát og útför
BRYNJÓLFS NIKULÁSSONAR,
akipatjóra,
Hringbraut 82,
Koflavík,
Sigtúaína Ólafadóttir,
Guðrún Brynjólfadóttir, Borgpór Guðjónaaon,
Auöur Brynjóltadóttir, Ingiber Ólafaaon,
Nikuléa Brynjólfaaon, Þórarna Hanadóttír,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför eiginkonu
minnar.'móöur okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu,
ÖNNU S. JÓNSDÓTTUR,
Lindargötu 54
Þorgila Guömundaaon
Guöriöur Þorgiladóttir Axel Sigurgeiraaon
Höröur Þorgilaaon Mélfríður Siguröardóttir
Jóhanna Tremain Arthur Tremain
barnabörn og barnabarnaböm.
+
Þökkum innilega samúö og vinarhug viö fráfall og útför eiginmanns míns,
fööur og sonar MARINÓS AÐALSTEINSSONAR,
fré Féskrúösfiröi, Álfaskeiöi 86, Hafnarfiröi.
Þórlaug Júlíuadóttir, Valgeróur Marinósdóttir, Aöalsteinn Stefénsson.
+
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og hlýhug viö fráfall eiginmanns míns,
MARTEINS Þ. GÍSLASONAR,
yfirverkatjóra.
Fyrir hönd sonar og annarra vandamanna.
Elaa L. Siguróardóttir.
+
Þökkum innilega auösýnda samúö og vináttu viö andlát og jaröarför
eiginkonu minnar, móöur okkar, tengdamóöur og ömmu,
RÖGNU KRISTJÁNSDÓTTUR,
Birkihvammi 20,
Kópavogí.
Bjami Siguróason,
börn, tengdabörn og barnaböm.
+
Þökkum samúö og hlýhug auösýnda vegna andláts litla drengsins okkar
SAMUELS HENRIKS,
Þurióur Jana Ágúatadóttir,
Arnlaugur Samúelaaon,
og aórir vandamenn.
+
Hjartanlegar þakkir færum viö öllum sem sýndu okkur samúó og vináttu vió
andlát og jaröarför eiginmanns míns, föður okkar, tengdafööur og afa,
MARÍSAR ÓSKARS GUÐMUNDSSONAR,
múrarameistara,
Hlaöbæ 14,
María Guömundsdóttir
Anna Marísdóttir
Kristin Marisdóttir
Guömundur Marisson
Guörún Marísdóttir
Hulda Marísdóttir
Kéri Marísson
Katrin Marfsdóttir
Þorbergur Eysteinsson
Sigurjón Guömundsson
Mfnerva Sveinsdóttir
Davíö Sveinbjðrnsaon
Katrin Axelsdóttir
Bjöm Erlendsson
og bamaböm.