Morgunblaðið - 31.01.1979, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 31.01.1979, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. JANÚAR 1979 17 i á Brjánslæk á Bardaströnd sína að klóm arnarins róaðist hann snarlega. Heimilisfólkið á Brjánslæk hefur hat gaman af að fylgjast með samskiptum arnar- ins og bóndans og sérstaklega hefur Rósa ívarsdóttir kona Ragnars haft gaman af þeirri tilfinningu bónda síns að hér sé um kvenfugl að ræða. Talið er að um 90 ernir séu á íslandi nú, en þar af eru 35 ungar sem komust upp s.l. sumar. Hér fer á eftir frásögn Ragnars bónda á Brjáns- læk. „Það var á sunnudagsmorgun að tveir menn sem voru á ferð hér um sáu örn sem virtist vera særður um það bil 1 km frá bænum,“ sagði Ragnar Guðmundsson bóndi á Brjánslæk í samtali við blaðamann Morgunblaðsins á Brjánslæk á Barðaströnd í gær. „Þegar við gætt- um að var örninn á svæði milli túna, en áður en við gerðum nokkuð reyndum við að ná sambandi við dr. Pinn Guðmundsson fuglafræðing en það tókst ekki vegna þess að síminn va'r bilaður. Þá ákváðum við að reyna að ná fuglinum og í leiðang- urinn útbjuggum við okkur með lundaháf. Við fórum þrír. Ekki fundum við hann strax, en þegar við sáum tvo erni sveima yfir ákveðn- um stað tókum við stefnuna þangað og þar var fuglinn. Hann var þá á svolítilli hæð og gat náð fluginu, en átti bágt með það og komst ekki hærra en 1—2 metra. Þannig flaug hann 500—600 metra, staldraði við og náði síðan fluginu á ný, en það var mun styttra og þá sáum við að hyggilegast var að þreyta hann til þess að ná honum. Loks flaug hann fram á tangann við bryggjuna í Þrælavogi og við komumst þar fram fyrir hann sjávarmegin. Ekki virt- ist hann hafa neinn hug á að drekkja sér eða halda til hafs, því hann hörfaði nú upp til landsins, en þar sem hann flögraði yfir Þræla- voginn missti hann flugið og féll í Haförninn var ábúöarmikiil eins og vera bar, en honum virtist líka vel nœrvera bóndans. álsinn á mér“ voginn. Ekki leizt okkur þá á blikuna, því hann gat rétt baslað með vængjunum í sjónum og héld- um að við þyrftum að skjóta hann þarna áður en hann drukknaði því kuldinn var mikill, um 11 stiga frost. Hann gat þó bagsað nær landi og ég óð upp í klof á móti honum eða þangað til ég gat háfað hann í lundaháfinn. I háfnum bar ég hann nokkra leið, en tók hann síðan í fangið og í poka fluttum við hann heim í bæ. Það er merkilegt að hann virtist strax sætta sig við mig. Ég tók utan um hann og lét vel að honum því hann var með svöðusár, en hann hefur ekki gert neina tilraun til þess að rífa mig eða klóra á neinn hátt. Síðan við komum með hann hing- að heim hefur hann verið til húsa í forstofunni. Þar sem hann var sjóblautur og kaldur í fyrstu settum við hita á fyrst. Sárið á síðunni var lófastórt, líklega hefur hann flogið á gaddavír. Gunnar Már Gunnars- son dýralæknir kom hingað um ber er hver aö baki nema bróöur eigi. kvöldið og hann var liðlega tvo klukkutíma að sauma sárið og gera það í stand. Bæði vöðvar og hamur var sært og rifið. Ég hélt á össu allan tímann meðan aðgerðin fór fram og fuglinn hreyfði sig ekki, en þegar Gunnar Már var að sauma vöðvana kreppti fuglinn klærnar þannig að maður fann að hann fann til. Þegar saumaskapurinn var búinn var spennandi að vita hvort hann fengist til þess að éta, ella væri taflið tapað. En þetta gekk. Hann var leiðinlegur við mig fyrst að éta, ég varð að mata hann, en hann var óttalega stríðinn og vildi ekki renna niður fyrr en ég leit undan. Ég gat þó komið ofan í hann hjarta úr kind og hálsæð. Ég hef hlúð að honum eins og ég get, því hann er mjög rólegur hjá mér þótt hann sýni svip þegar aðrir nálgast. Hann hefur sýnt sig að því að fara í fýlu við mig, en ef ég tala við hann og segi honum að vera ekki í þessari fýlu, þá fer hann upp á steininn aftur, en ég kom skjótt fyrir steini í forstofunni Uppstoppaöur kjói til saman buröar viö stærð hafarnarins. til þess að hann gæti staðið á honum. Hann er afskaplega stoltur og sýnir ekki hræðslu eða svipbrigði þótt við opnum skyndilega hurðina inn til hans, en ef hann verður órólegur þá er auðsýnt að hann skilur nöldrið í mér sem einhverja tryggð og mér sýnist horfa vel með það að unnt verði að láta hann lifa, borða sjálfan. Síðan þegar hann fer að braggast meir og sár verða gróin þá mun ég setja hann út í stóra nýbyggða hlöðu þar sem hann á að geta jafnað sig betur og flögrað um. Til marks um skynsemina í þess- um fugli þá hefur hann ekki borið við að reyna að hreyfa við sáraum- búðunum og ég tel augljóst af fasi hans að hann skilur að það er verið að hjálpa honum. Hann er spikfeit- ur þannig að hann á að vera betur búinn þannig undir slys sem þetta, en ég tel þetta vera fullvaxinn kvenfugl þótt ég hafi nú ekki annað fyrir mér í þeim efnum en það hvernig hann tók anzi hlýlega utan um hálsinn á mér í dag þegar ég var að lyfta honum upp. Hann klifraði þá snarlega upp handlegginn á mér og upp á höfuðið, en það var svona í það dýpsta sem hann læsti klónum í hálsinn á mér. Hann er rólegastur þegar við erum tveir og er fljótur að skynja ef maður talar við hann og snússar. Einhver hér á heimilinu sagði að hann skildi náttúrulega aðeins íslenzku, en þótt hann treysti manni takmarkað þá hefur hann sýnt að hann treystir mér og mér þykir ákaflega skemmtilegt að fá tækifæri til þess að kynnast þessum fugli þannig þótt þetta sé að sjálf- sögðu fangelsi um sinn fyrir þennan konung fuglanna. Örninn er óvenjulegur gestur á þessu heimili þótt nær daglega sjáum við þessa tígulegu fugla svífa hátt yfir. En maður getur ekki sagt annað en að hann sé með óvenju- legri fuglum hér þótt ýmsa furðu- fugla beri að garði hér á gestkvæmu heimili." „Sofðu blíðusf barnkind min, gæti Ragnar bóndi verið að raula yfir haferninum. en nú þarf að fá hann til þess að „Svona vinurinn, petta er allt í lagi.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.