Morgunblaðið - 31.01.1979, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. JANÚAR 1979
Nýtt vikublað
í undirbúningi
— Ritstjórar Björn Vignir ogÁrni Þórarinsson
- Verður rekið í tengslum við Alþýðublaðið
ÞESSA dagana er verið að ganga
frá stofnun nýs útgáfufélags, sem
í marz eða apríl hefur útgáfu nýs
vikurits í tengslum við Alþýðu-
blaðið. Blað þetta fær aðstöðu hjá
Alþýðublaðinu í Blaðprenti, en
verður ekki flokkspólitískt. Rit-
stjórar blaðsins verða þeir Björn
Vignir Sigurpálsson blaðamaður
við Morgunblaðið og Árni bórar-
insson umsjónarmaður helgar-
blaðs Vísis. bá hefur Árni G.
Jörgensen útlitsteiknari á Morg-
unblaðinu verið ráðinn ritstjórn-
arfulltrúi á hinu nýja blaði, en
ætlunin er að 6—7 reyndir blaða-
menn verði ráðnir að því.
Bjarni P. Magnússon formaður
frainkvæmdarstjórnar Alþýður
flokksins sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gær að hugmynd um
slíkt blað hefði fyrir nokkru skotið
upp kollinum innan Alþýðuflokks-
ins. Síðan hefði^ verið haft samráð
við aðila utan flokksins og á
næstunni yrði stofnað sérstakt
útgáfufélag um nýja blaðið. A
flokksstjórnarfundi Alþýðuflokks-
ins í fyrrakvöld var samþykkt að
heimila blaðstjórn Alþýðublaðsins
að ákveða með hvaða hætti Al-
þýðublaðið kemur út í framtíðinni
og er þá átt við heimild til handa
blaðstjórn til samninga við hið
nýja útgáfufélag.
Alþýðublaðið kemur áfram út í
sinni núverandi mynd, þ.e. daglega
og' fjórar síður að stærð. Hvort
einhverjar breytingar verða síðan
á Alþýðublaðinu eftir að hið nýja
blað verður komið á laggirnar er
ekki endanlega ljóst, en Árni
Gunnarsson hættir væntanlega
sem ritstjóri blaðsins að sögn
Bjarna P. Magnússonar.
I vikuritinu nýja er fyrirhugað
að menningarmálum verði gert
hátt undir höfði, reynt verður að
skyggnast á bak við fréttir, sem
efst eru á baugi hverju sinni,
viðtöl verða í blaðinu og ýmislegt
léttmeti.
Óafgreiddar
hækkunarbeiðnir
SAMKVÆMT upplýsing-
um Ólafs Jóhannessonar,
forsætisráðherra, á Al-
þingi í gær við fyrir-
spurn Matthíasar
Bjarnasonar, alþingis-
manns, liggja eftirfar-
andi hækkunarbeiðnir
frá opinberum aðilum
fyrir hjá gjaldskrár-
nefnd en hafa ekki
hlotið samþykki stjórn-
valda:
Hækkun Pósts og síma 25%
Gjaldskrárhækkun Rafmagns-
veitu Reykjavíkur, 38%
Heildsöluverð Landsvirkjunar á
rafmagni, 35%.
Hitaveita Reykjavíkur, gjald-
skrárhækkun 20%.
Strætisvagnar Reykjavíkur, far-
gjaldahækkun 50%.
Þjóðleikhúsið, miðaverðhækkun
25%.
Þá las ráðherra upp þær
hækkunarbeiðnir, sem liggja
fyrir verðlagsnefnd, en gat ekki
um hve mikillar hækkunar væri
óskað. Beiðni liggur fyrir um
eftirfarandi:
Hækkun á verði á bensíni og
olíum.
Hækkun verzlunarálagningar.
Hækkun á verði miða kvik-
myndahúsa.
Hækkun á smjörlíkisverði.
Hækkun á verði steypuefnis.
Hækkun á gjaldskrá vinnuvéla.
Hækkun á verði steypu án
sements.
Hækkun á far og farmgjöldum
innanlandsflugs.
Hækkun gjalds fyrir út- og
uppskipun og pakkhúsleigu.
Hækkun strætisvagnagjalda
milli Reykjavíkur og Hafnar-
fjarðar.
Hækkun flutniningsgjalda með
vörubifreiðum.
Hækkun á brauðverði.
Hækkun á olíufarmgjöldum
innanlands.
Hækkun á verði harðfisks.
í máli ráðherrans kom fram
að ekki væri gert ráð fyrir fundi
í verðlagsnefnd fyrir 1. febrúar.
Ríkisstjórnin ákvað í gær, að
sé gjaldskrárnefnd og viðkom-
andi fagráðuneyti sammála um
afgreiðslu hækkunarbeiðni, þá
þurfi ekki að bera slíka beiðni
upp í ríkisstjórninni og getur þá
ráðuneytið fullafgreitt beiðnina.
Um ofangreindar beiðnir hefur
annaðhvort nefndin eða ráðu-
neytið ekki gert tillögu eða þá að
þau hafa ekki orðið sammála.
Lítið innanlands-
flug vegna verk-
falls og veðurs
Undir þeirra stjórn hefur nýtt vikurit göngu sína á næstunni, frá
vinstri: Árni G. Jörgensen ritstjórnarfulltrúi og ritstjórarnir Björn
Vignir Sigurpálsson og Árni Þórarinsson. (Ljósm. Kristján)
EKKERT verður flogið í dag til
Vestmannaeyja og Hafnar í
Hornafirði vegna verkfalls flug-
manna Flugfélags íslands. Þá
verður heldur ekkert flogið til
Glasgow og Kaupmannahafnar. í
gær lá flug niðri til Vestfjarða og
þangað hefur ekki verið flogið
síðan á fimmtudag vegna veðurs.
Innanlandsflug gekk erfiðlega í
gær vegna veðurs og var aðeins
flogið til Akureyrar og 1 ferð til
Egilsstaða.
Á morgun tekur verkfallið til
áætlunarflugs til Egilsstaða,
Norðfjarðar og London. Á föstu-
dag verður ekki flogið til Kaup-
mannahafnar, Akureyrar, Húsa-
víkur og Sauðárkróks. Á laugar-
dagskvöld klukkan 19 hefst síðan
verkfall, sem tekur til alls flugs
Ragnhildur Heigadóttir hefur
iagt fram í efri deild Alþingis
frumvarp til laga um breytingu á
lögum um grunnskóla, og er
tilgangurinn m.a. að vernda frið-
helgi einkalífs, að sporna gegn
pólitískum áróðri í skólum og
styrkja samband foreldra og
barna annars vegar og samstarf
heimila og skóla hins vegar með
því að virða rétt foreldra til að
tryggja að fræðslan gangi ekki
gegn trúar- og lifsskoðunum
þeirra, að því er kemur fram í
greinargerðinni. Kemur þar og
fram að tilefni þessa frumvarps
séu fréttir um að f grunnskól-
unum í Reykjavik og nágrenni
hefðu farið fram kannanir á
einkahögum nemenda, sem mikill
vafi léki á að væru viðeigandi og
hvort framkvæmdar væru af hæf-
um mönnum.
Helztu atriði þessa frumvarps eru
sem hér segir:
• Grunnskólinn skal leitast við að
haga störfum sínum í sem fyllstu
samræmi við eðli og þarfir nemenda
og stuðla að alhliða þroska, heil-
brigði og menntun hvers og eins.
Virða skal rétt forráðamanna nem-
enda til þess að tryggja það, að
menntun og fræðsla gangi ekki gegn
trúar- og lífsskoðunum þeirra. I
skólastarfinu skal forðast einhliða
áróður um slíkar skoðanir og um
álitaefni og ágreiningsmál í þjóðfé-
laginu.
• Óheimilt er að veita upplýsingar
um vitnisburði nemenda öðrum en
þeim sjálfum og forráðamönnum
þeirra, nema nauðsyn beri til vegna
flutnings nemenda milli skóla. Þó
skal skólastjóra heimilt að veita
öðrum þessar upplýsingar að fengnu
samþykki forráðamanna nemenda
vegna fræðilegra rannsókna, enda sé
krafist fullrar þagnarskyldu. Ef um
er að ræða víðtæka fræðilega rann-
sókn, sem líklegt er að hafi verulegt
gildi, er menntamálaráðuneytinu
heimilt að mæla svo fyrir, að þessar
upplýsingar um vitnisburði séu
veittar án þess að leitað sé samþykk-
is skólastjóra eða forráðamanna
nemenda. Birta skal auglýsingu um
slík leyfi í Lögbirtingablaði og geta
þess, hverjum það er veitt og í hvaða
skyni. Sá, sem leyfið fær, er bundinn
fullri þagnarskyldu, sem mennta-
málaráðuneytið getur mælt nánar
fyrir um, og hann ber að því leyti
ábyrgð sem væri hann opinber
starfsmaður. Hið sama er um starfs-
menn hans.
• Menntamálaráðuneyti, fræðslu-
stjórum, skólastjórum, kennurum og
öðrum starfsmönnum grunnskóla,
námsstjórum og starfsmönnum við
ráðgjafar- og sálfræðiþjónustu í
grunnskólum er heimilt að stunda
fræðilegar rannsóknir í skólunum
sjálfum og heimill aðgangur að
gögnum þeirra. Þeir, sem stunda
vilja rannsóknir^eftir þessari mgr.,
skulu skýra menntamálaráðuneytinu
frá því fyrir fram. Ráðuneytið skal
setja nauðsynleg skilyrði eða synja
um rannsóknaaðstöðu. Skal þá litið
til fræðilegs gildis hinna fyrirhug-
uðu rannsókna, menntunar og
reynslu þeirra, sem rannsóknírnar
vilja stunda, og rannsókna- og úr-
vinnsluaðferða. Þá þarf og til rann-
sóknanna leyfi viðkomandi fræðslu-
stjóra, skólastjóra og forráðamanna
barna. Menntamálaráðuneytið getur
leyft rannsóknirnar gegn áliti þéss-
ara aðila, ef ætla má að þær hafi
verulegt gildi. Ef rannsóknin varðar
ekki einkahagi eða skoðanir nem-
enda, heimilishagi þeirra, hagi for-
ráðamanna nemenda eða annarra,
þarf ekki leyfi forráðamanna.
Menntamálaráðuneytið getur leyft
öðrum en greindir eru í 1. mgr.
fræðilegar rannsóknir í grunnskól-
um og á gögnum þeirra. Um leyfi
viðkomandi fræðslustjóra, skóla-
stjóra og forráðamanna nemenda fer
eftir 1. mgr. Leyfi eftir þessari mgr.
skal aðeins veita ef fyrir liggur
rannsóknaáætlun, starfsmenn við
rannsóknina hafa nægilega menntun
og reynslu, rannsóknin hefur veru-
legt fræðilegt gildi og með trúverð-
ugum hætti er gætt hagsmuna sem
varða friðhelgi einkalífs. Kannanir á
viðhorfum nemenda, einkalífi þeirra
og heimilishögum, einkalífi og hög-
um forráðamanna þeirra, skóla-
félaga og annarra og á tilteknum
atburðum, sem nemendur hafa orðið
vitni að, skal ekki leyfa, nema
sérstaklega mikilvægir hagsmunir
krefjist þess. Ef leyfi er veitt skv.
þessari mgr., skal birta um það
auglýsingu í Lögbirtingablaði og
geta þess, hverjum það er veitt og í
hvaða skyni. Sá, sem leyfið fær, er
bundinn fullri þagnarskyldu, sem
menntamálaráðuneytið getur mælt
nánar fyrir um, og hann ber að því
leyti ábyrgð sem væri hann opinber
starfsmaður. Hið sama er um starfs-
menn hans.
Um könnunina, sem varð tilefni
þessa frumvarpsflutnings, kemur
fram í greinargerð frumvarpsins, að
fyrst og fremst sé átt við víðtæka
könnuna á högum nemenda og for-
eldra, sem gerð var 1974—75, en
gögn um hana voru síðar notuð sem
Flugfélags íslands, og stendur það
til klukkan 8 á þriðjudagsmorgun.
Ekki hefur verið boðaður sátta-
fundur í deilu Flugleiða og Félags
ísl. atvinnuflugmanna. Hallgrímur
Dalberg, einn sáttanefndarmanna,
sagði í gær að sáttafundur yrði
boðaður síðar í vikunni. Félags- og
samgönguráðherra var í gær gerð
grein fyrir stöðunni í deilunni.
Frumvarp Ragnhildar Helgadóttur um breytingar á grunnskólalögum:
Ætlað að vernda m.a. frið-
helgi einkalífs og sporna gegn
pólitískum áróðri í skólum
efniviður í prófritgerðir íslenzkra
sálfræðistúdenta við Árósaháskóla.
Ragnhildur lagði fram fyrirspurn til
menntsmálaráðherra um þessa
könnun og hefur hann svarað fyrir-
spyrjanda nú nýverið.
Ragnhildur segir í greinargerð
sinni ennfremur, að frumvarpið sé
samið í því skyni að settar séu
lagareglur um fræðilegar rannsóknir
í grunnskólum, þar sem bæði sé tekið
tillit til einstaklingshagsmuna og
þjóðfélagshagsmuna af því að í
grunnskólunum séu nemendur
ótruflaðir af öðru en því, sem skólinn
skal vinna að eftir grunnskólalögum,
og til hagsmuna af því, að fram fari
fræðirannsóknir, er ekki séu aðeins
frjálsar, heldur megi og fram fara í
grunnskólum, ef sérstaklega brýn
þörf er á.
Ragnhildur rekur í greinargerð-
inni að í lögum um hlutverk grunn-
skóla og skólarannsóknir verði ekki
séð að þau heimili að í skólum fari
fram annað rannsóknarstarf en það
sem er á sviði skóla- og uppeldis-
mála. Ragnhildur segir, að vafalaust
sé teygjanlegt hvaða- rannsóknar-
starf þarna sé um að ræða en langt
sé gengið ef kannanir á viðkvæmum
persónulegum viðhorfum, kynlífs-
reynslu og öðru slíku séu taldar
heimilar í grunnskólum eftir laga-
greinum. Ljóst sé að þörf sé á
skýrari reglum en nú eru í lögum um
þetta efni. Þá segir hún að við
könnun þessa máls hafi komið fram,
að æskilegt væri að setja í grunn-
skólalögin ákvæði um rétt forráða-
manna nemenda varðandi innræt-
ingu trúar- og lífskoðana og um
einhliða áróður um álita- og
ágreiningsmál.
Sjú: 1427 svöruðu ... bls. 15.
Góð loðnu-
veiði þar
til brældi
STORMUR er nú á loðnumiðun-
um úti af Dalatanga og ekkert
veiðiveður. Flest skipanna liggja
því inni á Eskifirði, Norðfirði og
Seyðisfirði. í fyrrinótt fékkst
ágætur afli, en undir morgun
versnaði veðrið á ný og mörg
skipanna urðu að halda til hafnar
með lítinn afla. Aflinn á
mánudag varð samtals 5590
lestir, en á þriðjudag tilkynntu
22 skip um afla, alls 4830 tonn.
Mánudagur: Huginn 100, Gísli
Árni 470, Gjafar 140, Helga
Guðmundsdóttir 450, Seley 340.
Þriðjudagur: Skarðsvík 100,
Hrafn 400, Hafrún 240, Sæbjörg
220, Gígja 320, Fífill 160, Óskar
Halldórsson 200, Grindvíkingur
400, Bjarni Ólafsson 550, Hákon
380, Sæberg 200, Jón Finnsson 200,
Jón Kjartansson 100, Sigurður 250,
Rauðsey 80, Húnaröst 200, Breki
250, Víkurberg 140, ísleifur 100,
Stapavík 40, Arnarnes 200.
Eskifjörður:
Landað úr 14
loðnuskipum
Eskifirði 30. janúar.
FJÓRTÁN loðnuskip hafa landað
hér á Eskifirði í dag um 4000
lestum af loðnu. Bræla er komin á
miðunum og flest skipin hafa
N verið með slatta. Mestan afla
hafði Bjarni ólafsson, 550 lestir.
Verksmiðjan hefur þá tekið á
móti 16.500 lestum af loðnu það
sem af er vertíð. Bræðsla hófst
fyrir rúmri viku. Þróarrými er
fyrir 25 þúsund tonn. Veður hér
er og hefur verið vont undan-
farna daga, kalt og hvasst.
— Ævar.
©'
INNLENT