Tíminn - 22.06.1965, Side 12
12
ÍÞRÓTTIR
TÍMINN
ÍÞRÓTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 22. júní 1965
liðin hafa ennþá möguleik
Jafntefli Fram og Keflavíkur 1:1
Þaú ,ómögu!ega'var mögulegt
Það er ekki oft, sem Dönum
tekst að sigra Svía í landsleik í
knattspymu, eu þegar það skeður,
er það stórkostlegur atburður í
augum Dana. Um síðustu helgi
tókst danska landsliðinu að sigra
Svía á Idrætsparken með 2:1, og
voru öll mörkin skoruð í fyrri
hálfleik. Eins og nærri má ge'ta,
varð fögnuður hinna dönsku áhorf-
enda gífurlegur ,því að þetta var
fyrsti sigur gegn Svíum síðan 1951.
í síðustu viku gerðu Svíar jafn-
tefli við ítali í Stokkhólmi, 2;2,
og sýndu slakan leik, og eftir
þann leik skrifaði „Ekstrabladet“
danska: ,Það ómögulega er mögu-
legt“, — og átti við, að Danir ættu
að geta sigrað Svía. Ályktun blaðs
ins reyndist rétt.
Danska liðið virðist sterkt um
þessar mundir, þrátt fyrir, áð Dan-
ir hafi að undanfömu misst marga
leikmenn yfir í atvinnumennskuna.
— Á myndinni hér að ofan sjást
þrír „stórir“ í danska liðinu, Ole
Sörensen, sem sýndi frábæran leik
og skoraði sigurmarkið, Bent
Hansen og Ole Madsen, sem skor-
aði fyrra markið. Væntanlega fá
íslenzkir knattspyrnuáhugamenn
að sjá þá leika bér með danska
landsliðinu í næsta mánuði.
ur miss
a
Akranes hefur fikraö sig wpp af bofninum og er í 3. sæti eftir sigur yfir VaE 3;2
Hsím. — mánudag.
Skagamenn eru erfiðir heim að sækja, og það sannaðist
enn á sunnudag, þegar efsta liðið 11. deild, Valur, lék þar á
hinum tyrfða, óslétta grasvelli á Langasandi, og mátti láta
af hendi bæði stigin — fyrsti tapleikur Vals í mótinu. En
Valsmenn geta sjáifum sér um kennt. Þeir fengu tækifæri til
að „gera út um leikinn“ á fyrstu fimm mínútunum. Strax í
byrjun komst Ingvar Elísson frír að markinu og átti Helga
markvörð Daníelsson einan eftir, en „mokaði“ knettinum
fram hjá, og rétt á eftir fékk Bergsveinn svipað tækifæri,
en spyrnfi knettinum beint í Helga. Furðulegur klaufaskap-
ur, og lið, sem misnotar slík tækifæri, getur varla reiknað
með því að hljóta Islandsmeistaratitilinn.
Skagamenn léku undan snörp-
um vindi í f.h. og þegar frá eru
skildar fyrstu mínúturnar höfðu
þeir yfirtökin í leiknum ög sigr-
uðu verðskuldan 3-2 eftir að hafa
haft 2-0 í hléí. Þeir voru fljötari
á knöttinn og samleikur oft sæmi-
legur, auk þess sem þeir höfðu
þann neista, sem Valsmenn skorti
— sigurvilja.
Liðið er óþfekkjanlegt frá fyrstu
leikjum þess í mótinu — mistök-
in þá hefur orðið því mikiil lær-
dómur. Árangur af dvöl Eyleifs
hjá Rangers er nú að koma í ljós,
og stöðubreyting Ríkharðs hefur
haft afgerandi áhrif og þar er
maður, sem hefur kunnáttu til að
stjórna liði. Og ekki má gleyma !
því, að liðið hefur ekki tapað leik í
Skozkur dómari á ieik
Islands og Danmerkur
Alf—Reykjavík, mánudag.
Ákveðið hefur verið að skozki
milliríkjadómarinn Thomas
Wharton dæmi Iandsleik ís-
lands og Danmerkur, sem fram
fer á Laugardalsvellinum 5. júlí
n.k. Wliarton er kunnur dómari
í heimalandi sínu ,og hefur
dæmt leiki víða um Evrópu.
Ekki hefur verið ákveðið ennþá
hverjir verða línuverðir á leikn
um, en dómaranefnd Knatt-
spyrnusambands fslands mun
taka ákvörðun um það einhvern
næstu daga.
síðan Helgi kom aftur í markið,
ákafi hans og leikgleði smitar út
frá sér, og „vandræðabarn" liðs-
ins, vörnin, setur traust . sitt á
hann.
Skagamenn skoruðu tvívegis í
fyrri hálfleik og var Eyleifur að
verki í bæði skiptin og einkum
var fyrra mark hans mjög gott —
skot frá vítateig neðst. í mark-
hornið — en bezta tækifæri sitt
í hálfleiknum fór hann illa með,
spyrnti yfir markið frír á mark-
teig. Þá átti Ríkharður tvívegis
góð skot á mark, sem Sig. Dags-
son varði. Valsmenn voru linir,
nema rétt í byrjun, kantarnir ^Jla
nýttir, en leikmenn þjöppuðust
saman á miðjunni.
í síðari hálfleik nutu Valsmenn
aðstoðar vindsins og sóttu þá
meir, en sóknin var illa skipu-
lögð sem áður. Um miðjan hálf-
leik skoraði Ingvar skemmtilega
með skalla eftir aukaspyrnu, og
þótt munurinn væri eitt mark,
jókst baráttuvilji Valsmanna ekki.
Skagamenn fengu góð tækifæri,
en bæði Eyleifur og Rílcharður
spyrntu yfir af stuttu færi, áður
en Björn Lárusson kom knettin-
um í mark eftir mistök í Vals-
vörninni.
Og þá fyrst vöknuðu Valsmenn
aftur og sóttu ákaft lokamínúturn-
ar. Þorsteinn miðvörður skoraði
mjög örugglega úr vítaspyrnu.
sem dæmd var á hendi hjá Kristni,
og eftir það dansaði knötturinn
‘í vítateig Skagamanna áður en
dómarinn, Steinn Guðmunds-
son, flautaði í leikslok — og sig-
urinn 3-2 var staðreynd, sigur.
sem gerir mótið miklu tvísýnna,
eins staðan í mótinu ber með sér.
Alf — Reykjavík. — ASeins 5 mínútum fyrir leikslok
skoraði Ásgeir Sigurðsson jöfnunarmark fyrir Fram gegn
Keflavík í gærkvöldi og forðaði þar með Fram frá því að
vera algerlega aðskilið frá hinum 1. deildar liðunum. Að
vísu er Fram ennþá á botninum í deildinni, en aðeins eitt
stig skilur á milli Fram og Keflavíkur, svo staða Fram er
langt frá því að vera vonlaus. Með leiknum í gærkvöldi lauk
fyrri umferð keppninnar og eftir hana er staðan svo tvísýn,
að ennþá hafa öll liðin möguleika á að sigra.
Það var heldur léleg knattspyma
sem áhorfendum á Laugardalsyell-
inum var boðið upp á í gærkvöldi,
raunar var hún á núllpúnkti. Horf
ur vom á því,» að Keflavík hlyti
bæði stigin, því liðið hafði skorað
1:0 snemma í hálfleiknum og sótti
síðan nær stanzlaust að Fram-mark
inu. Hefði Keflavík sigrað, væri
staða Fram í deildinni slæm, því
næstu lið fyrir ofan hefðu hlotið
5 stig, meðan Fram væri aðeins
með 2 stig. En Ásgeir Sigurðsson
fékk áhangendur Fram til að anda
rólegar, því aðeins 5 mín fyrir
leikslok skoraði hann jöfnunar-
mark fyrir Fram, — eitt glæsileg-
asta rnark, sem sézt hefur í 1.
deiladr-keppninni. Hann fékk send
ingu frá vinstri, þar sem hann
stóð rétt fyrir utan vítateig, og
hafði engin umsvif, heldur „negldi'
knöttinn viðstöðulaust upp í v.
horn Keflavíkurmarksins.
Mark Keflavíkur skoraði Jón Jó
hannsson á 11. mín. síðari hálf-
leiks. Hann fékk knöttinn sendan
frá Hólmbert og skoraði af stuttu
færi, en Fram-vörnin, sem komin
var úr sambandi, fékk ekki við
neitt ráðið. Aðeins einni mín síð-
ar munaði sáralitlu, að Keflavík
skoraði annað mark. Jón Ólafur,
h. útherji komst einn í gegn, en
brenndi gróflega af.
Eins og fyrr segir, var leikurinn
tiíþrifalítill, — bæði liðin léleg,
Fram þó öllu lélegra. Keflavíkur-
liðið er hvorki fugl né fiskur þessa
dagana og sýnir engan meistara-
leik, mildu fremur knattspyrnu,
sem á heima í 2. deild. Bezti maður
liðsins fannst mér vera Jón Jó-
hannsson, sem barðist ágætlega í
framlínynni.
Fram-liðinu tókst illa upp, og
getur hrósað happi fyrir að hafa
hlotið annað stigið. Leikur liðsins
var ekki sannfærandi, — og
mikið má Fram taka sig á, ef lið
ið á ekki að falla niður í 2. deild.
Baráttan í 1 .deild er miskunnar-
laus, og þar duga engin vettlinga-
tök .
Leikinn dæmdi Einar Hjartar-
son.
Urslit í 1. deild:
Akranes:Valur 3:2
Akureyri:KR 1:3
Fram:KefIavík 1:1
Staðan er þá þessi;
Valur 5 3 11 12:8 7
KR 5 2 2 1 10:8 6
Akranes 5 2 12 11:11 5
Akureyri 5 2 12 8:10 5
Keflavík 5 12 2 4:6 4
Fram 5 113 7:9 3
f 2 .deild fóru þessir Ieikir fram um helgina: Haukar.-Siglufjörður 3;1 ísafjörður:FH 3:2 Víkingur:ÍBV 2:4
Staðan í 2. deild er þá þessi: A;riðill:
Þróttur 4 3 10 24:6 7
Haukar 3 2 0 1 4:5 4*
Siglufjörður 3 111 8:7 3
Reynir 2 0 0 2 1:7 0
Skarphéðinn B:riðill: 2 0 0 2 0:12 0
FH 4 2 11 11:3 5
ÍBV 3 2 0 1 10:7 4
ísafjörður 3 2 0 1 12:9 4
Breiðablik 2 10 1 3:9 2
Víkingur 4 0 13 4:12 1
GEKK VEL
Á AKUREYRI
! AI-Akureyri, mánudag.
i Illa upplagt Akureyrar-lið
| stóðs ekki snúning í 1. deild, þeg-
| ar liðin mættust hér á sunnudag-
| inn. KR-ingar fóru með bæði stig-
in eftir 3:1 sigur, sem eftir atvik-
um var sanngjarn. Það hefur jafn-
an verið barizt af miklum krafti,
þegar KR hefur heimsótt Akur-
eyri, og yfirleitt um jafna Ieiki
að ræða, en því var ekki að heilsa
í leiknum á sunnudag. Akureyr-
ingar léku greinilega uudir getu
og þess vegna áttu KR-ingar til-
tölulega léttan dag.
Aðeins i 10 mínútur af hinum
90 mín. leik veitti Akureyrar-lið-
ið KR verðuga keppni, en það var
á 10 fyrstu mín. síðari hálfleiks.
KR hafði forystu í hálfleik, 1:0.
en markið skoraði Gunnar Fel. á
7. mín. Akureyringar sóttu mjög
fast á fyrstu mín. í síðari hálfleik
og litlu munaði, að Kári Árnason,
sem nú lék sinn fyrsta leik með
ÍBA á keppnistímabilinu, skoraði,
en Heimir Guðjónsson varði
hörkuskot hans. Eftir þetta dvín-
aði baráttuvilji heimamanna og
KR-ingar efldust. KR skoraði 2:0
á 21. mín. og var Guðm. Haralds-
son að verki. Fyrir mistök Akur-
eyrar-varnarinnar náðu KR-ingar
knettinum nálægt miðju og léku
upp. Guðm. rak endahnútinn og
knötturinn rann á milli fóta
Samúels markvarðar sem hefði átt
að geta varið. Þriðja ,mark KR
skoraði hinn fljóti miðherji, Bald
vin Baldvinsson, á 39. mín. eftir
skemmtilegan einleik. — Sitt eina
mark skoraði Akureyri úr víta-
spyrnu á 43. mín. Magnús Jónat-
ansson tók hana og skoraði örugg-
lega. Lokatölur urðu þannig 3:1
Dómari var Gunnar Gunnars
son og dæmdi leikinn vel.