Morgunblaðið - 29.09.1979, Qupperneq 1
48SÍÐUR OG LESBÓK
213. tbl. 66. árg.
LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 1979
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
25fórustí
hótelbruna
Alls biðu 25 manns bana i hótelbrunanum, sem varð i Vinarborg i
fyrrinótt, þar af margir skemmtiferðamenn frá Bandarikjunum og
Júgóslaviu. Talið er að eldurinn hafi komið upp i ruslakörfu
næturvarðarins, en hann beið einnig bana i brunanum. Flestir
hinna látnu biðu bana af völdum reykeitrunar, þegar þeir önduðu
að sér eiturefnum frá brennandi linoleum-gólfdúkum hótelsins.
Mjög erfitt hefur reynzt að bera kennsl á hina látnu, þar sem
gestabók hótelsins eyðilagðist i brunanum. Rúmlega 100 gestir
voru i hótclinu, þegar eldurinn kom upp. (Simamynd AP)
Páfi kemur til
írlands í dag
Dublin. Róm. 28. september. AP. Reuter.
JÓHANNES Páll páfi 2. heldur i fyrramálið i ferð sina til írlands og
Bandarikjanna. Páfi kemur til írlands snemma i fyrramálið og mun
messa fyrir hádegið i Dublin. Gert er ráð fyrir því að allt að ein
milljón manna muni hlýða á messu páfa. Mikill fjöldi fólks hefur
komið frá N-írlandi i dag til að geta hlýtt á páfa. Páfinn verður þrjá
daga á írlandi áður en hann heldur vestur um haf, þar sem hann mun
m.a. ávarpa allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna.
Talsmaður páfagarðs sagði 1
dag, að páfi mundi flytja íbúum
írlands alls friðarboðskap. Páfi
mun meðan hann dvelur í Dublin
halda sérstaka friðarmessu með
tveim írskum erkibiskupum úr
biskupakirkjunni, en engir of-
stækisfullir mótmælendaklerkar
fá að taka þátt í þeirri messu. Páfi
mun einnig eiga fund með Phillip
Jeffrey, borgarstjórnarmanni í
Belfast á N-Irlandi, sem hyggst
afhenda honum undirskriftir 60
þúsund N-íra með ósk um að hann
komi í heimsókn til þess lands-
hluta.
Gífurlegar varúðarráðstafanir
hafa verið gerðar í Dublin og víðar
á írlandi vegna komu páfa. Óttast
er að skæruliðar á N-Irlandi kunni
að láta til skarar skríða gegn
honum og hefur írska stjórnin
gert víðtækar ráðstafanir til að
gæta öryggis hans.
Miklar öryggisráðstaíanir hafa verið gerðar á Irlandi vegna komu páfa þangað í
dag. Hér má sjá írska hermenn á verði skammt frá flugvellinum í Dublin.
(Símamynd AP)
Bjóða Formósu væga
sameiningarskilmála
Washington, 28. september. AP.
RÁÐAMENN í Peking gerðu
nýlcga ýmsar tillögur varðandi
sameiningu Kínverska alþýðulýð-
veldisins og Formósu og var þeim
komið á framfæri við ráðamenn í
Taipei fyrir milligöngu banda-
risks sérfræðings í málefnum
Kína, dr. Franklins Lamb. ^
er Lamb hefur nú skýrt frá voru
tillögur Kinverjanna mjög itar-
legar og var í þeim gert ráð fyrir
að Formósumenn viðurkenni
stjórnina i Peking sem hina einu
réttu stjórn Kina og taki upp
þjóðfána alþýðulýðveldisins.
Á hinn bóginn var einnig gert
ráð fyrir því í tillögunum að
Formósumenn hefðu áfram sinn
eigin herafla, lögreglu og dóm-
stóla. Formósumenn geti einnig
opnað viðskiptaskrifstofur á meg-
inlandinu og selt vörur sínar
þangað. Ennfremur geti þeir eftir
sem áður gefið út vegabréfsáritan-
ir og Formósubúum yrði heimilað
að heimsækja alþýðulýðveldið.
Upp yrðu teknar flugsamgöngur
milli Formósu og meginlandsins í
fyrsta sinn. Kínverjarnir stungu
einnig upp á því að viðræður
hæfust milli aðilanna tveggja inn-
an skamms, annað hvort í Peking
eða Taipei.
Að sögn Lamb færði hann
ráðamönnum á Formósu tillög-
urnar og hlýddu þeir á þær af
miklum áhuga, en sýndust að öðru
leyti ekki hafa hug á að víkja frá
hefðbundinni stefnu sinni um að
hafa ekki nein samskipti við
kommúnistastjórnina í Peking.
Tóku þeir sem Lamb ræddi við í
Taipei fram, að mikill óróleiki
hefði verið í Kína undanfarin 30
ár og Formósubúar gætu ekki
útilokað þann möguleika, að rót-
tæk öfl næðu yfirhöndinni í Pe-
king, sem vildu reyna að ná
yfirhöndinni á Formósu með
valdi.
Kúbumálið:
Carter flytur sjón-
varpsræðu á mánudag
Washington, 28. sept. AP — Reuter
CARTER Bandaríkjafor-
seti mun ávarpa þjóð sína í
sjónvarpi á mánudagskvöld
og gera grein fyrir því til
hvaða ráða hann hyggst
taka vegna sovézku her-
sveitanna á Kúbu. Miklar
umræður hafa verið á
æðstu stöðum innan banda-
rísku stjórnarinnar í dag
um mál þetta, en langur
fundur Vance utanríkisráð-
herra og Gromykos utan-
ríkisráðherra Sovétríkj-
anna um málið í gær varð
árangurslaus, að því er
næst verður komist. Vance
hefur aflýst fyrirhugaðri
för sinni til Panama á
morgun, þar sem hann
hugðist vera fulltrúi lands
síns ásamt Mondale vara-
forseta, þegar Panama-
menn taka Panamaskurð-
inn formlega í sínar hend-
ur.
Tveir áttbur-
annaennálífi
Napoli. 28. soptembor. AP.
SILVANA Chianese, einn átt-
buranna, sem fæddust í Napoli 16.
ágúst sl. er byrjuð að drekka
mjólk úr pela í stað þess að fá
næringu í æð. Að sögn lækna
heilsast Silvönu nú vel og er búizt
við því að hún verði úr allri
lífshættu innan fárra daga. Að-
eins einn hinna áttburanna er enn
á lífi, systir Silvönu, Anna að
nafni. Hún er ekki jafnvel á sig
komin og Silvana og hefur átt við
öndunarvandamál og meltingar-
erfiðleika að stríða. Báðar syst-
urnar vógu innan við tvö pund við
fæðingu, en Silvana er nú rúmlega
þrjú pund og Anna tvö og hálft
pund.
Kosningar í Dan-
mörku 23. október
Kaupmannahöfn, 28. september.
Reuter. AP.
ANKER Jörgensen forsætisráð-
herra Dana gekk í dag á fund
Margrétar drottningar og baðst
lausnar fyrir sig og ráðuneyti
sitt. Ákveðið hefur verið að þing-
kosningar verði i Danmörku 23.
Gullúnsan í
400 dollara
London, 28. september. AP. Reuter.
VERÐ Á gullúnsunni fór rétt yfir
400 dollara á gullmörkuðum í
Evrópu í dag í fyrsta sinn í
sögunni. Skráð verð var þó heldur
lægra, þegar markaðir lokuðu, t.d.
397,50 dollarar í London og 396,5
dollarar í Zúrich. Gullúnsan hefur
hækkað í verði um rúma 80 doll-
ara á einum mánuði.
október nk. Á blaðamannafundi í
dag létu Jörgensen og Henning
Christophersen utanríkisráð-
herra og leiðtogi frjálslyndra
báðir í ljós vonbrigði yfir þvi, að
ekki skyldi hafa tekizt samkomu-
lag flokka þeirra um efnahags-
málin. Lögðu þeir áherzlu á þann
árangur sem stjórnin hefði þrátt
fyrir allt náð á 13 mánaða ferli
sinum.
Stjórn Jörgensens mun sitja
áfram til bráðabirgða og þingið
kemur saman á þriðjudag til að
hlýða á tilkynningu Jörgensens
um nýjar kosningar. Síðan verður
ein almenn umræða um stjórn-
málin áður en þingið verður leyst
upp að nýju.
Skoðanakannanir, sem birtar
hafa verið í Danmörku að undan-
förnu, gefa til kynna að fylgi
flokkanna hafi lítið breyst frá því
í kosningunum 1977.