Morgunblaðið - 29.09.1979, Síða 2

Morgunblaðið - 29.09.1979, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 1979 Mikið bókasafn og skjöl Hólahrepps skemmdust í eldi Verðlagning síldar rœdd eftir helgina FUNDUR í yfirnefnd verðlagsráðs sjávarútvegsins um nýtt síldarverð verður haldinn á þriðjudag. Á mánudag halda síldarsaltendur fund í Reykjavík þar sem þeir ræða það síldarverð, sem ákveðið var fyrir tímabilið frá byrjun síldveiðanna, 20. ágúst til mánaðamóta, og sömuleiðis nýtt síldarverð. Síðan síldarbátarnir héldu á ný á miðin, eftir að „viðunandi síldarverð" var ákveðið, hefur aflast ágætlega og vonandi kemur ekki til þess að flotinn stoppi á nýjan leik, en á þessari mynd Jens Mikaelssonar sést hluti flotans bundinn á Höfn. íslenzkar kartöflur teknar úr verzlunum vegna frostskemmda Sauðárkróki, 28. september. LAUST fyrir klukkan 20 í gær- kvöidi kom upp eldur i íbúðar- húsi að bænum Hrafnhóli í Hjaltadal. Þar búa Guðmundur Stefánsson oddviti og kona hans Fjóla ísfeld. Kviknaði í út frá fitupotti í eldhúsi. Guðmundur bóndi, sem í haust er sláturhússtjóri hjá Slátursam- lagi Skagfirðinga á Sauðárkróki, var fjarverandi er eldurinn kom upp, en kom heim skömmu síðar. Sex ára sonur hjónanna varð fyrst var við eldinn og lét móður sína vita, sem þá var við mjaltir í fjósinu. Hún fór inn og slökkti í fitupottinum, en fór síðan aftur í fjósið, þar sem hún hélt nú að öllu væri óhætt. Skömmu síðar varð hún þess vör að eldur var uppi og gerði þá strax viðvart. Kallað var á slökkvilið frá Hofsósi og Sauðárkróki. Komu slökkviliðsmenn fljótt á vettvang og gekk fremur greiðlega að slökkva eldinn. Veður var kyrrt og Björn hættir sem skrif- stofustjóri MORGUNBLAÐINU barst í gær eftirfarandi frétt frá ríkiráðsrit- ara: Á fundi ríkisráðs í Reykjavík í dag féllst forseti íslands á tillögu forsætisráðherra um að veita Birni Bjarnasyni að eigin ósk lausn frá starfi skrifstofustjóra i forsætisráðuneytinu frá 1. október 1979. Þá féllst forseti íslands á eftir- farandi tillögur um veitingu emb- ætta frá dómsmálaráðherra: Um að skipa Friðgeir Björnsson og Garðar Gíslason í embætti borg- ardómara í Reykjavík, frá 1. desember 1979; um að skipa Jónas Gústavsson til þess að vera borg- arfógeti við borgarfógetaembættið í Reykjavík frá 1. desember 1979; og um að veita Rúnari Guðjóns- syni sýslumannsembættið í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu frá 1. nóv- ember 1979. Staðfestir voru ýmsir úrskurðir, sem gefnir höfðu verið út utan ríkisráðsfundar. Björn Bjarnason. Ráðinn að Morgunblaðinu EINS OG fram kemur í frétt frá ríkisráðsritara á öðrum stað hér í blaðinu hefur forseti íslands veitt Birni Bjarnasyni, skrifstofustjóra í forsætisráðuneytinu, lausn frá störfum að eigin ósk frá 1. október n.k. Morgunblaðið hefur ráðið Björn til starfa á ritstjórn blaðsins og mun hann fjalla um innlend og erlend málefni í skrifum sínum. Björn Bjarnason hefur áður starfað að blaðamennsku bæði hér á blaðinu og sem fréttastjóri erlendra frétta á Vísi. ekki urðu neinar skemmdir á öðrum byggingum. Ibúðarhúsið á Hrafnhóli er tvær hæðir og kjall- ari. Mestar skemmdir urðu á efri hæð, þar brann meðal annars stórt og verðmætt bókasafn þeirra hjóna, fatnaður og fleira. Auk þess brunnu skjöl og bækur varð- andi Hólahrepp, en Guðmundur er oddviti hreppsins eins og fyrr segir. Neðri hæðin skemmdist mikið af vatni og reyk. — Kári. Stöðug loðnuveiði — lítið þróarrými LOÐNUVEIÐI hefur verið góð undanfarið og ekkert þróarrými laust á þeim höfnum, sem næst eru miðunum út af Kolbeinsey. Margir bátanna hafa siglt til Vestmannaeyja, en þangað er tveggja sólarhringa stím af mið- unum. Hafa skipstjórar jafnvel velt þeim möguleika fyrir sér að landa loðnu í Færeyjum. Á fimmtudag tilkynntu 27 skip um afla, samtals 16.560 lestir. Þar til síðdegis í gær bættust 11 skip við með um 9 þúsund lestir. Loðnuaflinn er nú orðinn hátt í 170 þúsund lestir á vertíðinni, en frá því síðdegis á fimmtudag og fram eftir föstudeginum tilkynntu eftirtalin skip um afla til loðnu- nefndar: Fimmtudagur: Huginn 250, Harpa 640, Óskar Halldórsson 400, Skarðsvík 620, Bergur 500, Pétur Jónsson 680, Börkur 1050, Hafrún 630, Húnarösk 610, Sæberg 590. Föstudagur: Helga Guðmunds- dóttir 750, Loftur Baldvinsson 760, Svanur 650, Faxi 350, Sigurður 1400, Óli óskars 1350, Hákon 800, Þórshamar 560, Þórður Jónsson 460, Víkingur 1350, Náttfari 520. Nefnd kannar launakjör á fiskiskipum Sjávarútvegsráðherra hefur að höfðu samráði við forystumenn samtaka sjómanna og útvegs- manna ákveðið að skipa nefnd til þess að athuga tilhögun hluta- skipta og launakjör á fiski- skipum. I nefndina hafa eftirtaldir verið skipaðir: Eiríkur Tómasson fram- kvæmdastjóri, Ingólfur S. Ing- ólfsson forseti FFSÍ, Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ, Óskar Vigfússon formaður SÍ, Pétur Sig- urðsson formaður. Alþýðusam- bands Vestfjarða, Sigfinnur Karlsson formaður Alþýðusam- bands Austurlands, Vilhelm Þorsteinsson framkvæmdastjóri og Jón Sigurðsson þjóðhagsstjóri, sem jafnframt er formaður nefnd- arinnar. Mikil aðsókn að sýningu Jakobs í Gallery Háhól Akureyri, 28. september MIKIL aðsókn hefur verið að sýn- ingu Jakobs Hafstein í Gallery Háhól þar sem hann sýnir olíumál- verk, vatnslita- og pastelmyndir. Alls 74 verk. Nú þegar hafa 22 málverk selzt. Sýningunni lýkur á sunnudagskvöld og verður hún opin laugardag og sunnudag frá 15—22 báða dagana. — Sv.P. GRÆNMETISVERZLUNIN hef- ur orðið að taka til baka talsvert af kartöflum. sem komnar voru i verzlanir á Reykjavíkursvæðinu. Kom í ljós að kartöflurnar höfðu frosið í jörðu og eftir að þær. þiðnuðu í upphituðum verzlunum blotnuðu þær í gegn og mygluðu jafnvel. í verzluh,um í Reykjavík er þvi þessa dagana mest af dönskum kartöflum, sem eru heldur dýrari en þær íslenzku. Ástandið norðanlands er enn verra og hefur þurft að flytja kartöflur á bilum norður vegna lélegrar uppskeru nyrðra, en slíkt hefur ekki gerst i fjölda- mörg ár. Eðvald Malmquist, yfirmats- maður garðávaxta, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að upp- taka á kartöflum hefði byrjað almennt 10. september, en strax 11. september hefði gert nætur- frost og um miðjan mánuðinn hefðu þau verið mjög tíð og jafnvel 6—7 stig. Sandjarðvegur væri yfirleitt á aðalkartöflusvæð- unum og sagði Eðvald að fyrr frysi í slíkum jarðvegi heldur en moldarjarðvegi. Hins vegar sagði hann að það kæmi yfirleitt ekki fram fyrr en eftir nokkurn tíma hvort kartöflur hefðu frosið og jafnvel ekki fyrr en 2—3 vikum eftir að þær hefðu verið settar í neytendapakkningar og keyrðar í verzlanir. Því miður heföí-þetta gerzt í ár og hefði '* Grifenmetisverzlunin orðið að taka til baka hfuta þess sem búið var að dreifa. Hætt var að pakka kartöfl- unum meðan verið var að kanna betur frostskemmdirnar. Auk óþæginda neytenda, sagði Eðvald, að tjón framleiðenda væri gífurlegt. Þeir hefðu yfirleitt ekki fengið nema Vá hluta meðalupp- skeru sunnanlands,/nema e.t.v. í Skeiðum og Hrunamannahreppi þar sem uppskerari ‘ næði meðal- lagi. Er þessar skeqimdir bættust síðan við yrði útkoman enn verri eftir þetta kalda sumar. í Eyja- firði sagði Eðvald, að uppskeran væri víða svo rýr, að ekki yrði tekið upp úr sumum görðum og hefðu Akureyringar þurft að fá kartöflur með bílum að sunnan. Dagvistunargjöld: Rukka mismun fyrir september VEGNA daggj aldahækkunar á barnaheimilum, skal þess getið að ráðherraheimild fyrir hækkuninni gildir frá 1. september. Nokkur sveitarfélög hafa ákveðið að hin nýju daggjöld gildi einnig fyrir septembermánuð og hefur því verið ákveðið að fólk greiði mis- muninn með októbergreiðslunni. Þau sveitarfélög, sem Morgui blaðinu er kunnugt um um að æt að hafa þennan háttinn á, er Reykjavík, Akureyri, Seltjarnai nes og Kópavogur. Fyrir hálfsdaf vist barns á barnaheimili greiðas því um næstu mánaðamót 18.5C fyrir október og 2.500 fyrir sepi ember eða samtals 21.000 krónur Lagasetning vegna breytts olíugjalds VIÐ ÁKVÖRÐUN nýs fiskverðs var lagt til grundvallar, að olíugjald til fiskiskipa, sem verið hefur 15% verði 9% frá 1. október. Jafnframt er 3% olíu- gjald, sem komið hefur til skipta, fellt inn í fiskverðið. Breytingar þessar kalla á laga- breytingar og má vænta frum- varps þessa efnis í upphafi þings. Fréttatilkynning verð- lagsráðs sjávarútvegsins frá því í gær, um nýtt fiskverð er svohljóðandi: „Yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarútvegsins ákvað á fundi í dag nýtt fiskverð, sem gilda skal frá 1. október 1979. Ákvörðunin felur í sér að skiptaverð til sjómanna hækkar um 9,2%. For- senda fyrir þessari ákvörðun er, að olíugjald til fiskiskipa, sem verið hefur 15% verði 9% frá 1. október, jafnframt því sem 3% olíugjald, sem komið hefur til skipta, verði fellt inn í fiskverð- ið. Þetta hefur í för með sér að hráefniskostnaður fiskvinnsl- unnar hækkar um 7%. Verðupp- bót á ufsa og karfa er óbreytt. Verðið gildir til ársloka, og er það miðað við þá stærðarflokk- un, sem gilt hefur. Verðlagsráðið getur þó ákveðið að taka upp aðra stærðarflokkun, þannig að fiskur verði verðlagður eftir þyngd í stað lengdar frá og með 1. nóvember 1979, enda feli sú flokkunarbreyting ekki í sér verðbreytingu, þegar á heildina er litið miðað við ársafla. Frá og með 15. nóvember 1979 er heimilt að segja verðinu upp með viku fyrirvara, ef olíuverð til fiskiskipa fer verulega fram úr því verði, sem ætlað er að gildi í októberbyrjun. Samkomulag varð í yfirnefnd- inni um verðið. í yfirnefndinni áttu sæti: Jón Sigurðsson, forstjóri Þjóð- hagsstofnunar, sem var oddamaður, Kristján Ragnars- son og Ingólfur Ingólfsson af hálfu seljenda og Eyjólfur ísfeld Eyjólfsson og Benedikt Jónsson af hálfu kaupenda."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.