Morgunblaðið - 29.09.1979, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29, SEPTEMBER 1979 3
Skólastjóraveitingin í Grindavík
„ Tvímœla
laustum
pólitíska
veitingu
aörœða”
— segir Eiríkur
Alexandersson
„ÞARNA er tvímælalaust um
pólitíska veitingu að ræða,“
sagði Eiríkur Alexandersson,
bæjarstjóri í Grindavík, um
stöðuveitinguna. „Reyndur og
Kæfur maður var í starfinu,
maður sem allir vildu að starf-
aði áfram. Þær sérkennilegu
aðstæður höfðu skapast hér að
Eiríkur Alexandersson
fyrrverandi skólastjóri sagði
ekki lausri sinni skipun fyrr en
í byrjun september, eða rétt um
það leyti sem skólinn átti undir
venjulegum kringumstæðum að
vera að hef jast.
Þá gerist það að minnihluti
skólanefndarinnar, einn fulltrúi
af fjórum, sem voru mættir,
óskar eftir því, að staðan sé
auglýst. Aðrir nefndarmenn
vildu hins vegar að Bogi Hall-
grímsson, sem verið hefur skóla-
stjóri undanfarin þrjú ár, héldi
áfram undirbúningi skóla-
starfsins. Þetta myndi valda
óhjákvæmilegum töfum á skóla-
starfinu," sagði Eiríkur.
Hann sagði að þessi sjónarmið
hefðu verið hundsuð og að það
væri tæplega tilviljun að þessi
eini fulltrúi í skólanefndinni
væri flokkssystir menntamála-
ráðherrans og veitingin hefði
einnig verið í samræmi við það.
Boga Hallgrímssyni hefði verið
hafnað en sá fengið stöðuna sem
væri Alþýðubandalagsmaður.
„Þá var umsóknarfresturinn
um stöðuna óvenju stuttur, eða
aðeins 9 dagar," sagði Eiríkur.
„Ég held að aðrar hvatir hafi því
ráðið afgreiðslu þessa máls held-
ur en umhyggja fyrir skólanum
og skólastarfinu. Afgreiðslan
kom fólki mjög í opna skjöldu og
greinilegt var að koma átti Boga
út úr þessu starfi hvað sem það
kostaði," sagði Eiríkur ennfrem-
ur.
Hann bætti því við að
undirskriftarlistar sem safnað
hefði verið meðal bæjarbúa
sýndu svo ekki yrði um villst
vilja bæjarbúa. Söfnunin hefði
tekið 3 daga og þrátt fyrir erfiða
tíma vegna fjarvista úr bænum
hefðu samt sem áður um 80%
atkvæðabærra manna skrifað
undir.
„Þá er rétt að geta þess,“ sagði
Eiríkur, „að Bogi Hallgrímsson
er bæjarfulltrúi Framsóknar-
flokksins, en það kom ekki í veg
fyrir það, að fólk úr öllum
stjórnmálaflokkum skrifaði und-
ir. Bogi hefur enda verið mjög
vel liðinn og hefur staðið sig
mjög vel í skólastjórastarfinu."
„Fundur stjórnar níunda
kjörsvæðis Sambands grunns-
kólakennara (Reykjanesum-
dæmi) haldinn 28. september
mótmælir harðlega gerræðis-
legum vinnubrögðum mennta-
málaráðherra, sem koma fram
við veitingu stöðu skólastjóra
grunnskóla Grindavíkur. Við
„Fólki
gremst
þessi með-
ferð á góð-
um manni”
— segirHalldór
Ingvason
„ÞETTA ER algert pólitískt
hneyksli og hefur vakið mikla
og réttláta reiði fólks hér í
Grindavík,“ sagði Halldór
Ingvason, kennari við
Grunnskóla Grindavíkur.
Ilann hafnaði í fyrradag yfir-
kennarastöðu við skólann í
mótmælaskyni við stöðuveit-
ingu Ragnars Arnalds,
menntamálaráðherra. En svo
stöðuveitingu þessa þverbrýtur
ráðherra áttundu grein laga um
embættisgengi opinberra
starfsmanna frá 1978 með því
að sniðganga réttindamann er
sótti um stöðuna.
Fundurinn beinir því til
stjórnar SGK að fast verði
sem kunnugt er var réttinda-
laus flokksbróðir ráðherrans
ráðinn skólastjóri í stað manns
með full réttindi sem naut
stuðnings meirihluta skóla-
nefndar og hafði gegnt stöð-
unni í þrjú ár.
Þá sagði Halldór að eins gott
væri að forða sér ef allt ætti að
fara eftir þessari stöðuveitingu
þar sem réttindi manna væru
einskis virt.
„Aðdragandi málsins er ann-
ars skýr,“ sagði Halldór einnig,
„því þó hægt sé að níða Boga
niður bæði hér og annars staðar,
þá er það staðreynd, að hann tók
starfið að sér á sínum tíma fyrir
áeggjan formanns skólanefndar-
innar sem nú er fyrst til að
sparka honum.
Við Bogi höfum átt mjög gott
samstarf í þrjú ár og það er
samdóma álit allra þeirra sem
til þekkja að Bogi hafi staðið sig
mjög vel í sínu starfi, enda er
ógurleg reiði meðal manna hér
vegna þessa máls. Fólki gremst
þessi meðferð á góðum manni
sem fær óverðskuldaða bak-
hrindingu á síðustu stundu."
haldið á máli þessu og í eitt
skipti fyrir oll stöðvað ofríki
menntamálaráðherra í málefn-
um kennara.
Mál þetta snertir
hagsmuni allra kennara og því
verða þeir að standa saman i
þéttri fylkingu um réttindi sín
og síns stéttarfélags."
„Kennara-
samtökin
sgni klœrn-
ar með rót-
tœkum
aðgerðum ”
— segirÁsgcir
Guðmundsson
„ÞAÐ FER ekki á milli mála að
þessi stöðuveiting í Grindavík
striðir gegn lögum um embætt-
isgengi kennara. Það eru því
forkastanleg vinnubrögð að
ráða til starfsins réttindalausan
mann þegar maður með réttindi
á hlut að má!i,“ sagði Ásgeir
Guðmundsson, formaður Félags
skólastjóra og yfirkennara á
grunnskólastigi.
Ásgeir sagði að félagið hefði
ekki sent frá sér formleg mót-
mæli. Það lægi þó alveg ljóst
fyrir að kennarastéttin htyti að
mótmæla slíkri afgreiðslu.
„Við höfum aftur á moti
Ásgeir Guðmundsson.
reynslu af því hve gagnslaus
pappirsmótmæli eru í slíkum
málum og kennarasamtökin eiga
að mínu mati að sýna klærnar
með róttækum aðgerðum," sagði
Ásgeir.
Hann sagði að ýmsar mein-
ingar gengju um embættið í
Grindavík, en hann væri ekki í
aðstöðu til að vega og meta þær.
„Meginmálið er hins vegar
spurningin um það hvort ráða
eigi mann án réttinda þegar
maður með réttindi sækir einnig
um starfið og þá skiptir engu
máli hvort um setningu eða
skipun er að ræða. Það er því
hrein hártogun að halda því fram
að heimilt sé að setja mann í
starf sem þetta og skipa hann
síðan þegar hann hefur aflað sér
nægilegra réttinda eins og ein-
hvers staðar hefur komið fram.
Þá þykja mér furðuleg um-
mælin sem höfð eru eftir
menntamálaráðherra um
„embættisafglöp" þessa manns,
enda skipta þau engu varðandi
embættisveitinguna.
Ég vona að ráðherrann sjái að
sér og dragi veitingu þessa til
baka,“ sagði Ásgeir Guðmunds-
son að lokum.
„Ofríki menntamálaráð-
herra verður að stöðva í
eitt skipti fgrir öll”
Á FUNDI stjórnar grunnskólakennara í Reykjanesumdæmi í gær var harðlega
mótmælt gerræðislegum vinnubrögðum menntamálaráðherra varðandi veitingu
skólastjórastöðunnar í Grindavík. í ályktun fundarins segir ennfremur að ofríki
menntamálaráðherra í máiefnum kennara verði að stöðva í eitt skipti fyrir öll.
Stjórnarfundinn sátu Ellert Borgar, Albert Már Steingrímsson, Magnús Jón
Árnason og Ragnar Gíslason, allir úr Hafnarfirði, og Guðni Ölversson úr
Grindavík. Ályktun fundarins er svohljóðandi:
Skipaður sýslumaður
FORSETI íslands heíur að tillögu
dómsmálaráðherra skipað Rúnar
Guðjónsson sýslumann Mýra- og
Borgarf jarðarsýslu frá 1. nóvember
n.k. að telja.
Umsækjendur um embættið voru
10 og samkvæmt upplýsingum, sem
Mbl. aflaði sér í gær, var Rúnar
sjötti í röðinni hvað starfsaldur
snerti í dómskerfinu á eftir þeim
Elíasi I. Elíassyni bæjarfógeta í
Siglufirði, Hermanni G. Jónssyni
fulltrúa á Akranesi, Ólafi St. Sig-
urðssyni héraðsdómara í Kópavogi,
Halldóri Þ. Jónssyni fulltrúa á
Sauðárkróki og Guðmundi L. Jó-
hannessyni fulltrúa í Hafnarfirði.
Þá hefur Rúnar jafnlangan starfs-
aldur og Barði Þórhallsson bæjar-
fógeti á Ólafsfirði. Aðrir umsækj-
endur voru Leó E. Löve, Gísli
Kjartansson, Jón Sveinsson og Sig-
urberg Guðjónsson.
Rúnar Guðjónsson er 39 ára gam-
all, fæddur 1. desember 1940 í
Miðkoti í Fljótshlíð. Hann varð
stúdent frá MR 1961 og cand. juris
frá Háskóla íslands 1969. Hann varð
fulltrúi sýslumanns Rangæinga
sama ár og settur sýslumaður þar
1973. Hann var skipaður sýslumaður
í Strandasýslu í ágúst 1975 og hefur
gegnt því embætti síðan.
Rúnar Guðjónsson.
I gæziu grunuð
um skjalaf als
í GÆRMORGUN var 26
ára gömul stúlka úrskurð-
uð í gæzluvarðhald til 5.
október n.k. grunuð um að
hafa falsað víxla, skulda-
bréf, ávísanir og
veðskuldabréf. Leikur
grunur á því að stúlkan
hafi við iðju sína notað
nöfn skyldmenna sinna og
tekizt á þann hátt að
svíkja út umtalsverðar
fjárhæðir. Rannsóknar-
lögregla ríkisins hefur mál
þetta til meðferðar.