Morgunblaðið - 29.09.1979, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 1979
Richard Björgvinsson, bæjarfulltrúi:
Ekki get eg látið hjá líða að
svara með fáum orðum athuga-
semdum Asmundar Asmunds-
sonar í Mbl. í dag við grein mína
í blaðinu í fyrradag um launa-
greiðslur bæjarsjóðs Kópavogs
til hans, einkum því, að eg hafi
sumt látið kyrrt liggja og ekki
kynnt mér staðreyndir málsins,
en það er einmitt þver öfugt við
það sem eg gerði.
neitt, þetta er allt bæjarritaran-
um að kenna.
Bæjarstjórnarlaunin
Ásmundur segir, að hann hafi
hvað eftir annað reynt að fá
þessar launagreiðslur til sín
stöðvaðar. Þarna hefur þá þriðji
maðurinn, sem reyndi þetta
sama, bæzt í hópinn, áður höfðu
bæði bæjarstjóri og formaður
Stutt athugasemd
með þakklæti
Ekki er það beint stórmann-
legt hjá Ásmundi að skjóta sér á
bakvið embættismennina og
kenna fyrrverandi og núverandi
bæjarriturum Kópavogs um eig-
in gerðir og siðleysi sitt í launa-
málum. Rauði þráðurinn í grein
Ásmundar er: Eg gerði ekki
bæjarráðs, Björn Ölafsson,
flokksbróðir Ásmundar, lýst yfir
þessu sama. Eftir stendur aðeins
það, sem eg sagði áður í grein
minni, að allir þessir mektar
menn, bæjarstjóri, formaður
bæjarráðs og nú síðast, að eigin
sögn, Ásmundur bæjarfulltrúi,
reyndu í 6 mánuði að stöðva
þessar launagreiðslur, en það
tókst ekki, segja þeir. Trúi því
hver sem vill, að þetta hafi ekki
verið hægt ef hugur hefði fylgt
máli á öllum þessum tíma. Næst
verður sjálfsagt bókhaldstölvu
bæjarins kennt um málið.
Þess verður að sjálfsögðu að
krefjast, að menn eins og bæjar-
stjóri og formaður bæjarráðs
viti hvaða reglur gilda um
launagreiðslur til bæjarfulltrúa.
Launin þessa 5 mánuði, sem
Ásmundur átti ekki að fá greidd,
námu um 234 þús. kr., ekki 187
þús. kr. eins og Ásmundur segist
hafa endurgreitt, en það er
ánægjulegt, að afskipti mín af
þessu máli hafa nú leitt til
leiðréttingar.
Launin fyrir
starfsmatið
Ásmundur segir, að bæjarráð
hafi falið bæjarntara að gera
samning við sig vegna vinnu við
starfsmat. Þetta er alrangt.
Bæjarráð fól aldrei bæjarritara
að gera neinn samning við hann.
Það hefur aldrei verið i verka-
hring bæjarritara að semja við
bæjarfulltrúa um laun þeirra,
enda í hæsta máta óeðlilegt og
óviðunandi aðstaða fyrir emb-
ættismann að skipa honum að
semja við yfirboðara sína um
laun þeirra. Þetta hljóta allir að
sjá, og því hefur það aldrei verið
gert. Þetta veit eg að fyrrverandi
bæjarritari mun staðfesta hvar
sem er.
Á þeim bæjarráðsfundi, sem
Ásmundur var tilnefndur sem
fulltrúi bæjarstjórnar við starfs-
matið er aðeins bókuð tilnefning
hans af hálfu meirihlutans, ekk-
ert er bókað um neina launa-
samninga eða annað. Hinsvegar
bókaði eg við þessa afgreiðslu, að
eg teldi þetta mál meirihlutans
og eg léti það því afskiptalaust.
Að sjálfsögðu er tilnefning eins
manns mál meirihluta bæjar-
ráðs og hann hlaut að ráða. Eg
taldi sjálfsagt, að laun bæjar-
fulltrúa fyrir þessi störf yrðu
miðuð við þann launaflokk, sem
bæjarfulltrúar fá greitt eftir, og
því óþarfi að skipta sér af þeim
þætti. Eg er hinsvegar reynsl-
unni ríkari nú, það er ótrúlegt
hvað kommar leyfa sér í skjóli
meirihlutavalds.
Ásmundur talar um kostnað
atvinnurekenda í þessu sam-
bandi og reynir að láta líta svo
út, að mestu máli hafi skipt,
hvort sá kostnaður félli á hann
eða bæjarsjóð, en upphæð laun-
anna hafi raunar engu skiþt.
Hér er farið aftan að hlutunum.
Af launum bæjarfulltrúa,
nefndalaunum, og hér eru það
nefndalaun, Ásmundur var í
nefnd vegna starfsmats sem
fulltrúi bæjarstjórnar, greiðir
bæjarsjóður aðeins launaskatt,
3,5%, hinsvegar ekkert í lífeyris-
sjóð eða eitt eða neitt annað.
Kjarninn er aðeins sá, að
bæjarfulltrúar eiga allir og
hljóta allir að fá sömu laun
vegna starfa í þágu bæjarstjórn-
ar, en Ásmundur eins og aðrir
kommar vildi skammta sér
meira.
Læt eg svo þessum skrifum
um laun Ásmundar lokið af
þessu tilefni.
Kópavogi 28. sept. 1979
Richard Björgvinsson.
Jónas Gústavsson.
Skipaður
borgarfógeti
FORSETI íslands hefur að til-
lögu dómsmálaráðherra skipað
Jónas Gústavsson borgarfógeta
við Borgarfógetaembættið í
Reykjavík frá 1. desember n.k. að
telja.
Jónas Gústavsson er 38 ára
gamall, fæddur í Reykjavík 12.
marz 1941. Hann varð stúdent frá
MR 1961 og cand. juris. frá
Háskóla íslands 1968. Hann varð
fulltrúi yfirborgarfógetans í
Reykjavík 1970 og hefur gegnt því
starfi síðan. Umsækjendur um
embættið voru fjórir.
Fulltrúar
flokkanna
á Allsher j-
arþingið
ÞRÍR stjórnmálaflokkanna hafa
nú tilnefnt fulltrúa sína í sendi-
nefnd íslands á Allsherjarþingi
Sameinuðu þjóðanna.
Alþýðuflokkurinn hefur tilnefnt
Braga Níelsson lækni og alþing-
ismann. Framsóknarflokkurinn
tilnefndi Héðin Finnbogason lög-
fræðing og fulltrúa í Innheimtu-
deild Tryggingastofnunar ríkisins.
Fyrir hönd Sjálfstæðisflpkksins
fara á þingið þeir Birgir ísleifur
Gunnarsson borgarfulltrúi og
Lárus Jónsson alþingismaður. Al-
þýðubandalagið hefur ekki enn
tilnefnt sinn fulltrúa.