Morgunblaðið - 29.09.1979, Side 8

Morgunblaðið - 29.09.1979, Side 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 1979 GUÐSPJALL DAGSINS: LÚK. 7.: Sonur ekkjunnar í Nain. DÓMKIRKJAN: Kl. 11 messa. Dómkórinn syngur, organleikari Marteinn H. Friðriksson. Sr. Hjalti Guðmundsson. ÁRBÆJARPRESTAKALL: Guðsþjónusta í Safnaðarheimili Árbæjarsóknar kl. 11 árd. Sr. Guðmundur Þorsteinsson. ÁSPRESTAKALL: Messa kl. 2 e.h. að Norðurbrún 1. Sr. Grímur Grímsson. BREIÐHOLTSPRESTAKALL: Guðsþjónusta í Breiðholtsskóla kl. 14. Aðalsafnaðarfundur að lokinni guðsþjónustu. (Ath. breyttan messutíma). Sóknar- nefndin. BÚSTAÐAKIRKJA: Messa kl. 2 (ath. breyttan messutíma). Organleikari Guðni Þ. Guð- mundsson. Kaffisala Kven- félagsins eftir messu. Sr. Ólafur Skúlason. LANDAKOTSSPÍTALI: Kl. 10 messa. Organleikari Birgir Ás Guðmundsson. Sr. Hjalti Guðmundsson. FELLA- OG HÓLAPRESTA- KALL: Guðsþjónusta í Safnað- arheimilinu að Keilufelli 1 kl. 11 árd. Sr. Hreinn Hjartarson. GRENSÁSKIRKJA: Fermingarmessa kl. 10:30 árd. Altarisganga. Organleikari Jón G. Þórarinsson. Sr. Halldór S. Gröndal. HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl. 11. Sr. Karl Sigurbjörnsson. Þriðjudagur: Fyrirbænaguðs- þjónusta kl. 10:30 árd. Beðið LITUR DAGSINS: Grænn. Litur vaxtar og þroska. fyrir sjúkum. Kirkjuskóli barn- anna á laugardögum kl. 14 í „gömlu kirkjunni". Sr. Karl Sigurbjörnsson. LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10. Sr. Karl Sigurbjörnsson. HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11. Organleikari dr. Orthulf Prunner. Sr. Arngrímur Jóns- son. KÓPAVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11 árd. Sr. Árni Pálsson. LANGHOLTSPRESTAKALL: Barnasamkoma kl. 10 árd. Sr. Árelíus Níelsson. Guðsþjónusta kl. 2. Organelikari Jón Stefáns- son. Prestur sr. Sig. Haukur Guðjónsson. Sóknarnefndin. LAUGARNESPRESTAKALL: Laugardagur 29 sept.: Guðsþjónusta að Hátúni lOb níundu hæð kl. 11. Sunnudagur 30. sept.: Messa kl. 11. Þriðjudag- ur 2. okt.: Bænaguðsþjónusta kl. 18. Sóknarprestur. NESKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11 árd. Orgel og kórstjórn Reyn- ir Jónasson. Sr. Guðmundur óskar Ólafsson. FRÍKIRKJAN i Reykjavík:Messa kl. 2. Organ- leikari Sigurður ísólfsson. Prest- ur sr. Kristján Róbertsson. KIRKJA ÓHÁÐA safnaðarins: Messa kl. 11 árd. Séra Emil Biörnsson. FILADELFÍUKIRKJAN: Barnaguðsþjónusta verður i dag, laugardag, kl. 2 síðd. Almenn guðsþjónusta sunnudag kl. 8 síðd. Organisti Árni Arin- bjarnarson. Einar J. Gíslason. ENSK MESSA verður í kapellu háskólans kl. 12 á hádegi. GRUND elli- og hjúkrunar- heimili: Messa kl. 10 árd. Séra Jón Kr. ísfeld Drédikar. MORMÓNAR Kirkja Jesú Krist hinna síðari daga heilögu, Skóla- vörðustíg 16: Samkomur kl. 14 og kl. 15. MOSFELLSPRESTAKALL: Messa að Mosfelli kl. 10.30 árd. Sóknarprestur. GARÐASÓKN: Barnasamkoma í skólasalnum kl. 11 árd. Séra Bragi Friðriksson. VÍÐISTAÐ ASÓKN: Barnaguðsþjónusta í Hrafnistu kl. 11 árd. Helgistund í Hrafn- istu kl. 14 í umsjá Hannesar Blandon og Ágústs Einarssonar. Séra Sigurður H. Guðmundsson. HAFNARFJARÐARKIRKJA: Sunnudagaskóli kl. 10.30 árd. Guðsþjónusta kl. 2 síðd. Sóknar- prestur. FRÍKIRKJAN Hafnarfirði: Guðsþjónusta kl. 2 síðd. Safnað- arstjórn. NÝJA POSTULAKIRKJAN, Strandgötu 29, Hafnarf.: Sam- komur kl. 11 árd. og kl. 4 síðd. KÁLFATJARNARSÓKN: Helgistund kl. 2 síðd. við vígslu nýs grunnskólahúss í Vogum. Séra Bragi Friðriksson. KEFLAVÍKURKIRKJA: Sunnudagaskóli kl. 11 árd. Sókn- arprestur. NJARÐVÍKURPRESTAKALL: Fjölskyldumessa íY-Njarðvíkur- kirkju kl. 11 árd. Séra Þorvaldur Karl Helgason. KIRKJUVOGSKIRKJA: Messa kl. 2 síðd. Sóknarprestur STOKKSEYRARKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 10.30 árd. Almenn guðsþjónusta kl. 2 síðd. Altarisganga. Sóknarprestur. AKRANESKIRKJA: Barnasamkoma kl. 10.30 árd. Messa kl. 2 síðd. Séra Björn Jónsson. Ný framhaldssaga á Barna og fjölskyldusíðu blaðsins Unglingur úr Búðar- dal, Friðrik G. Sturlu- son, teiknar skop- teikningar úr sögu íslands Barna- og fjöiskyldusíða Morgunblaðsins hefur á undan- förnum árum haft fjölbreyti- legar sögur á boðstólum. Hafa þær að jafnaði verið eftir börn og unglinga, og nægir þar að nefna tvær siðustu sögurnar: Söguna af S-15 eftir Bjarna Hinriksson, sem vakti tals- verða eftirtekt, bæði fyrir heil- steyptan söguþráð og vandaðar myndir, — og Ferðina til Mars, sem var samin og teiknuð af nokkrum ungum piltum úr Breiðholtinu, sem kölluðu sig Mex og Hassan. Nú hafa Barna- og fjölskyldu- síðunni enn borist skemmtilegar teikningar eftir ungan mann, Friðrik G. Sturluson frá Búðar- dal, og fjalla þær um sögu Islands í léttum dúr, eins og sjá má af sýnishornum þeim, sem fylgja með greinarkorni þessu. Barna- og fjölskyldusíðan hef- ur reynt að leggja áherslu á gott og náið samband við lesendur blaðsins, og vilja umsjónarmenn sérstaklega vekja athygli les- enda á könnun þeirri, sem nú stendur yfir og birtist hér til hliðar. Mikilvægt er að lesendur blaðsins láti álit sitt í ljós, bæði ungir og gamlir, foreldrar ekki síður en börn og unglingar. Það ætti að vera hvatning foreldrum og forráðamönnum barna á sjálfu barnaárinu að taka þátt í hugðarefnum og áhugamálum barna sinna og njóta þess í ríkum mæli. Með því að lesendur verði enn virkari þátttakendur í vali og á frumsömdu efni Barna- og fjöl- skyldusíðunnar, aukast mögu- leikarnir á þvi, að meginefni verði eftir innlenda aðila, og þykir mörgum nóg um erlendar teiknisögur t.d. bæði í blöðum, bókum og tímaritum. r Ur sögu Islands í léttum dúr Er ný teiknimyndasaga eftir Friðrik G. Sturluson, 14 ára, og mun fyrsti þátturinn um Harald hárfagra birtast í næstu Barna- og fjölskyldusíðu. Friðrik er fæddur og alinn upp í Búðardal og er nú í áttunda bekk grunnskóla stað- arins. Að eigin sögn hefur hann alltaf haft gaman af teikningu, en byrjaði ekki að teikna skop- myndir fyrr en um ellefu eða tólf ára aldur. Honum er margt til lista lagt eins og þar stendur. Hann hefur ekki einskorðað sig við teikningar, heldur lagt nokkra stund á tónlistarnám. Hann leikur á trompet með lúðrasveit tónlistarskóla staðar- ins, er að læra á píanó og leikur auk þess á bassagítar i hljóm- sveit, sem nokkrir piltar staðar- ins standa fyrir. Friðrik hefur fallist á að teikna fyrir Barna- og fjöl- skyldusíðuna næstu vikur og er það von umsjónarmanna, að margir hafi gagn og gaman af teikningum hans. Hvemig á Barna- og fjölskgldusíðan að vera? Eiga börn og fullorðnir ekki að taka meiri þátt í vali á efni? Flest börn hafa ótrúlega gaman af sögum fullorðinna frá því að þeir voru börn! Hvað manstu frá því að þú varst barn? Mörg börn þurfa uppörvun og hvatningu til að teikna, skrifa, semja ljóð, segja frá o.s.frv. Foreldrarnir og fjölskyldan í heild getur verið veigamikil stoð á þvi sviði. Okkur langar til að gera örlitla könnun um efnisval á Barna- og fjölskyldusíðuna og hvetjum bæði börn og fullorðna til að taka þátt í henni og senda okkur svörin: Barna- og f jölskyldusíða Morgunblaðsins Morgunblaðið, Aðalstræti 6, Reykjavik. Könnun 1. Hvað ertu gömul _______ ýra gamall -------- ára 2. Finnst þér, að efni frá börnum, teikningar, sögur, Ijóð o.fl. sé: of lítið □ mátulegt □ of mikið □ 3. Finnst þér, að sögur af ýmsu tagi séu: mátulega of fáar □ margar □ of margar □ 4. Finnst þér, að fræðandi efni sé: of lítið □ mátulegt □ of mikið □ 5. Finnst þér, að fullorðnir ættu að senda efni: stundum □ oft □ aldrei □ 6. Finnst þér, að það ættu að vera viðtöl við börn og unglinga. stundum □ oft □ aldrei □ 7. Finnst þér skemmtiefni, gátur, leikir, þrautir o.fl. vera: of lítið □ mátulegt □ of mikið □ 8. Finnst þér, að það ættu að vera framhaldssögur á opnunni: já □ stundum □ nei □ 9. Hvernig finnst þér að framhaldssögur ættu að vera (ef þú svaraðir hinni spurningunni játandi): skemmti- og spennandi fræðandi myndasögur □ sögur □ sögur □ 10. Finnst þér stærð Barna- og fjölskyldusíðunnar vera: of lítil □ mátuleg □ of mikil □ 11. Klippirðu opnuna út úr blaðinu: alltaf □ stundum □ aldrei □

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.