Morgunblaðið - 29.09.1979, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 1979
«
Bandamannasaga hin nýrri
„.../yrir föUdð og með fólkimu.”
Á Vestfjörðum fæddist fyrr á öldum sveinbarn svo pasturslitið, að
því var ekki hugað líf. Dagarnir liðu þó einn af öðrum, svo að alitaf
hjarði snáði. Siðast var hann skirður Lifgjarn og fara engar sögur af
honum úr því. Nú er sagt, að við völd sé ríkisstjórn í landinu. Þannig
er haft fyrir satt, að þeir Karl Steinar úr Keflavik og Guðmundur jaki
sem flutt hefur kóngsins mann yfir Skerjafjörð kaupráns og
kjaraskerðingar, hafi verið í hlutverki yfirsetukonunnar, en Lúðvik
Jósepsson guðfaðirinn. Lengst af hefur rikisstjórnin verið i móki
siðan, en þó má þekkja asnaspörkin, þegar ferillinn er rakinn.
Gunnar Thoroddsen orti svo i síðustu þingveizlu:
„Að vera eða vera ekki?“
Vilhjálmur Shakespeare spurði forðum.
„Að vera og að vera ekki“
er vinstri stjórn í fáum orðum.
Nú hefur það spurzt út í lönd og álfur, hvers konar fyrirbæri
„ríkisstjórnin“ islenzka sé, svo að sá kostur var tekinn að snúa
kviðlingi þessum yfir á enska tungu til þess að hafa yfir diplómötum
erlendum, sem hingað koma, þegar þeir spyrja um stjórnarfarið:
„To be or not to be?“
was what Shakespeare meant.
„To be and not to be“
that is the government.
„Og menn geta
spurt sjálfan sig... “
Hinn 19. október í fyrra er
nú flestum gleymdur og verður
trauðla rifjaður upp, þegar sagan
verður síðar rakin, fyrir þá sök, að
þá hafi orðið tímamót. En þessi
dagur var sum sé valinn fyrir
stefnuræðu forsætisráðherra og
til þess að samráðherrar hans
gætu látið ljós sitt skína. Við þetta
tækifæri sagði forsætisráðherra
m.a. og lagði þunga á hvert orð:
„Hlutverk þessarar stjórnar verð-
ur þó fyrst í stað, að mínum dómi,'
fyrst og fremst það að vera við-
náms- og aðhaldsstjórn. En ég
held ég geti sagt, án þess að það
séu innantóm orð, að við viljum
stjórna fyrir fólkið og með fólk-
inu.
Gengi þessarar stjórnar er
því ekki hvað sízt undir því komið,
að henni takizt að fylgja þeirri
leiðarstjörnu. Og menn geta spurt
sjálfa sig: Ef þessari stjórn tekst
það ekki — hvað þá?“
„Ríkið, — það er ég,“ sagði
Lúðvík XIV. Frakklandskonungur
á sínum tíma og laugaði sig í
ljómanum af sjálfum sér. Eflaust
hefur hann hugsað eins og Ólafur,
að sú hin franska þjóð væri illa
komin, ef hans nyti ekki við: Ef
mér tekst það ekki hvað þá? En
eftir á verður það jafn víst um
báða tvo, að þjóðir þeirra voru
betur settar, áður en þeir tóku við
völdunum, en þegar þeir urðu að
sleppa þeim.
Ég hygg að nákvæm skoðun
sögunnar leiði það í ljós, að Lúðvík
XIV. hafi látið sér það í léttu rúmi
liggja, hvað „lýðurinn" — þjóðin
— hugsaði um hann, svo að það
stóð honum ekki fyrir svefni. Á
hinn bóginn hefur hugur Ólafs
áreiðanlega oft hvarflað að þessu
engu síður en hugur þeirra Svav-
ars eða Gröndals. — „Þessi ríkis-
stjórn ætlar sér ekki þá dul að
gera alla ánægða," sagði Ólafur í
hásætisræðunni og brosti með
vinstra andlitinu. Nú hefur hann
náð þeim einstæða „árangri" að
gera alla óánægða, — þó svo að
það hafi verið „von ríkisstjórnar-
innar að geta stuðlað að því að
Nú ku nýr stjórnarsáttmáli vera
i burðarliðnum eins og lamb á
haustdegi. Ekki þótti Kristjáni á
Hólmavaði það á vetur setjandi.
bæta samfélagið og lífsskilyrði
þess á ýmsa lund, þannig að
íslenzkt þjóðfélag megi verða öðr-
um til fyrirmyndar á sem flestum
sviðum“.
En sú von fæddist feig.
Mislagðar hendur —
þó handarvana!
Fólk las um það í Alþýðublaðinu
vorið 1978 að kratar væru gengnir
í endurnýjun sinna pólitísku líf-
daga, — hefðu fengið hormóna-
sprautu frá Vilmundi eins og
Chaplin og Adenauer í Sviss eftir
stríðið. Kjartan Jóhannsson var
fulltrúi þessarar „hormónakyn-
slóðar Alþýðuflokksins" í ríkis-
stjórninni. Þess vegna var þess
beðið með eftirvæntingu, hvað
hann hefði að segja 19. október:
Ég held að of margir hafi gert
sér of litla grein fyrir þeim vanda
og þeirri hættu sem verðbólgan
skapar í þjóðfélaginu, hafi gert sér
of litla grein fyrir því, hvernig
verðbólgan fæðir sjálfa sig og
leiðir þannig til enn frekari verð-
bólgu. 40—50% verðbólga, eins og
við höfum mátt búa við að undan-
förnu, ruglar allt verðmætamat.
Allar peningalegar ákvarðanir,
hvort heldur þær eru teknar í
fyrirtækjunum eða á heimilunum
við þetta verðbólgustig, eru
brenglaðar," sagði hann, enda
hefði þjóðin búið við efnahagslega
óstjórn árum saman".
Það felst mikið fyrirheit í þess-
um orðum. Það kæmi raunar
engum á óvart um ungan mann,
eftir að hafa hlustað á hann tala
svona, þótt hann færi úr jakkan-
um og segði um leið og hann bretti
upp ermarnar á skyrtunni: Við
skulum láta hendur standa fram
úr ermum!
Og þegar við rifjum upp þetta
ár síðan í fyrra og skiptum því
niður í tímabil eftir eindögum
Alþýðuflokksins og hugsum okk-
ur, að í hvert sinn sé Kjartan
Alþýðuflokkurinn, þá sjáum við
hann líka oft fara úr jakkanum og
bretta upp ermarnar. — En samt
standa hepdur ekki fram úr erm-
um, þótt skrýtið sé! Allan þennan
tíma hefur ríkisstjórnin verið
handalaus, og þó hefur henni
fallið verk úr hendi; — henni hafa
verið mislagðar hendur, ekkert
innan handar og þó handarvana.
„Stjórnin verður
langlíf, ef...u
Menn gerðu sér ekki miklar
hugmyndir um Svavar Gestsson,
þegar hann varð ráðherra. Að vísu
þóttust menn skilja það eftir val
hans í embættið, að ríkisstjórnar-
flokkunum þætti embætti við-
skiptaráðherra lítilsháttar miðað
við margt annað, enda í samræmi
við þá rækt, sem Ólafur hafði lagt
við það í næstu stjórn á undan,
meðan hann var að byggja upp
það dómsmálakerfi, sem Vilmund-
Eggert litli varð fjögurra ára fyrir skömmu og er hér með vini sinum.
Þeir gætu báðir heitið Lífgjarn fyrir þá sök, að þeir hafa lifað af
hörmungarnar, og eru þær vonandi allar að baki.
Aðalfundur Kaupmanna-
félags Austurlands
Fyrsti aðalfundur Kaupmanna-
félags Austfjarða var haldinn á
Seyðisfirði 15. september, en fé-
lagið var stofnað hinn 26. ágúst
1978. Fimmtán kaupmenn
víðsvegar að af Austfjörðum,
sátu fundinn auk fjölda gesta.
Gísli Blöndal, Seyðisfirði, var
endurkjörinn formaður félags-
ins, en auk hans eru í stjórn:
Margier Þórormsson, Fáskrúðs-
firði, Elís Guðnason, Eskifirði,
Gunnar Hjaltason.Reyðarfirði,
Háskólafyrirlest-
ur um hetjukvæði
á Islandi og Wales
Joan Turville-Petre, frá Somer-
ville College í Oxford, flytur
opinberan fyrirlestur í boði heim-
spekideildar Háskóla íslands
mánudaginn 2. október 1979 kl.
17.15 í stofu 201 í Árnagarði.
Frú Truville-Petre er ekkja
Gabriels Turville-Petre, sem var
prófessor í forníslenskum fræðum
í Oxford, og störfuðu þau hjónin
náið saman að fræðum sínum.
Aðalfræðigreinar hennar eru
fornenska, forníslenska og velska,
og meðal annars hefur hún skrifað
um íslenskar hómilíur.
Fyrirlesturinn nefnist „Hetju-
kvæði á íslandi og í Wales" og
verður fluttur á íslensku. Öllum er
heimill aðgangur.
(Frétt frá Háskóla íslands).
Gunnar Vignisson, Hlöðum.
Varamenn eru Pálína Imsland,
Neskaupstað, Björn Sveinsson,
Hlöðum. Fulltrúi í Fulltrúaráð
Kaupmannasamtaka íslands var
kjörinn Gunnar Hjaltason, en
auk hans á formaður félagsins
sæti í ráðinu. Endurskoðendur
voru kjörnir Brynjar Júlíusson,
Neskaupstað, Gunnþórunn Gunn-
laugsdóttir Seyðisfirði.
I frétt frá felaginu segir að á
fundinum hafi komið fram miklar
áhyggjur vegna aukinns tilkostn-
aðar í verzunarrekstri á lands-
byggðinni og bent var á að álagn-
ing er í engu samræmi við dreif-
ingarkostnaðinn. Jafnframt var
bent á að fullnægjandi birgðahald
við núverandi aðstæður er
óhugsandi. Fram komu margar
hugmyndir um aðstoð opinberra
aðila við verzlun utan Reykja-
víkursvæðisins. Má þar nefna auk-
na þjónustu Ríkisskip, jöfnun
símakostnaðar, leiðréttingu í
skattamalum, eflingu lánasjóða
verzlunarinnar, o.m.fl.
Eftirfarandi ályktanir voru
samþykktar:
1. Aðalfundur Kaupmannafélags
Austfjarða haldinn á Seyðis-
firði 15. sept. s.l. skorar á
Skipaútgerð ríkisins, að hraða
endurskipulagningu á leiða-
kerfi Ríkisskip og haldið verði
áfram að auka þjónustuna við
landsbyggðina með tíðari ferð-
um. Fundurinn telur að þeim
fjármunum, sem varið er til
eflingar Ríkisskip, sé hagkvæm
fjárfesting, sem varðar alla
landsmenn.
2. Fundurinn beinir því til sér-
leyfishafa og þeirra aðila sem
stunda vöruflutninga á Austur-
landi, að þeir komi upp
þjónustuneti um svæðið. Fund-
urinn bendir á að auðvelt væri
að leysa þetta vandamál með
því að fella þetta inn í
fltuningakerfi Flugleiða.
3. Að fyrivöld símamála vinni
viðstöðulaust að jöfnun síma-
gjalda, í landinu og því verði
lokið á sem sekmmstum tíma.
4. Að malefni landsbyggðarverzl-
unarinnar verði án tafar tekin
til athugunar og niðurstaða
fáist sem fyrst, svo verzlunin
megi þjóna þbí hlutverki sem
henni er ætlað.
1
Iðnaðarbankinn hefur nú hækkað
hámark mánaðarlegra innborgana í
IB-lánakerfinu úr
75 þúsund í 100 þúsund krónur.
Þetta er gert með tilliti til
verðlagsþróunar, - til að mæta þörfum
fólks.
Horfðu eitt ár fram í tímann: Þinn
Sþarnaður og IB-lánið. Samtals allt að
krónum 2.545.000,-