Morgunblaðið - 29.09.1979, Page 13

Morgunblaðið - 29.09.1979, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 1979 13 trúaöur maöur og hef reynt aö fylgja boöum Kóransins, en ég get ekki beöið. Þaö er eins og úr mér sé allur þróttur. Hver dagur er skelfing og viö búum viö stööugan ótta.“ Idhi Amraie var á leiö til Kanada aö heimsækja dóttur sína og fjölskyldu hennar. Dóttirin haföi sent foreldrum sínum farseöla og beöið þau aö koma. Amraie sagði, aö konan sín væri ekki búin aö gera þaö uþþ viö sig, hvort hún færi. Þau hjón eiga son sem býr meö konu og börnum í Teheran skammt frá heimili gömlu hjón- anna og hún er treg aö fara. — Viö vildum ekki flýja, segir hann. — Viö vildum taka til hendinni og hjálþa til. En þaö getur enginn ímyndað sér þaö ástand sem ríkir í landinu. Blaöamenn geta ekki lengur fjallaö aö neinu ráöi um þaö, því aö þeir eru unnvörpum reknir úr landi, ef þeir anda einhverju út úr sér. Þaö útheimtir mikiö hugrekki aö vera erlendur blaöamaöur í íran nú. Viö höfum sjálf engin innlend biöö. Allt einkennist af ringulreiö, öngþveiti, hvert sem litið er. Atvinnuvegirnir eru í rústum, og í Qom situr ær maöur og gefur út moröskipanir til hægri og vinstri. Hann hefur svipt írani allri gleöi sinni. Þaö liggur viö þaö sé glæpur aö brosa, hvaö þá meira. Þaö gerir okkur fæstum neitt, þótt viö megum ekki neyta áfengis, því aö um áfengisneyzlu hefur veriö mjög lítiö. Hann hefur hins vegar lagt hömlur á miklu fleiri þætti sem varöa rétt einstaklings- ins og þess vegna er íran nú ógnarþjóöfélag. Um göturnar æöa menn, trylltir og vopnaöir — þeir skjóta fólk bara aö gamni sínu — allt í nafni Allah. Er þaö ekki voöalegt aö saurga nafn guös síns á þennan hátt? Hvenær geturöu hugsaö þér aö Allah myndi leggja blessun sína yfir þau hryöjuverk sem framin eru í nafni hans um þessar mundir? — Ég ber viröingu fyrir Bazar- gan forsætisráöherra, hélt Amraie áfram. — En hann var strax halaklipptur og hefur ekki ráö yfir einu né neinu. Hann viröist halda að hann geti verið einhver bremsa á Khomeini, en ég fæ ekki komiö auga á þaö. — Aftur á móti hallast æ fleiri aö því aö trúa aö Shapur Bakhtiar sé sá sem kynni aö geta rétt landiö viö. Þegar keisarinn skipaöl hann forsætisráðherra og féllst síöan á aö fara, var ég ánægöur. Bakhtiar er skeleggur og vitur og enginn getur boriö honum óheilindi á brýn. En hann varö aö fara. Þessir febrúardagar komu og viö fögnuö- um. Sjaldan held ég aö þjóöin hafi veriö jafn samstillt. Nú er ekki svo aö skilja aö ég vilji einhliöa for- dæma keisarann. Hann geröi marga stórmerkilega hluti og reif okkur út úr miööldunum. En hann fór of geyst, varö tortrygginn og grimmur. Samt eigum viö eftir aö njóta ávaxta margs þess sem gert var í hans tíö. En ég held enn, aö þrátt fyrir allt hafi hann oröiö aö fara, því að hans tími var liöinn. Okkur fannst mörgum aö trúarlíf í íran heföi verið stórkostlega van- rækt og meöal annars vegna þess hve íranir eru eölistrúaöir var Khomeini fagnað. Nú er hann búinn aö ráöskast meö okkur í meira en hálft ár og afleiöingar eru slíkar, aö ég fæ næstum því kökk í hálsinn. Þaö veröur svo mikill sársauki í hjartanu þegar fegursti draumur manna er fótum troöinn, sagöi Ihdi Amraie viö mig aö skilnaöi. Og sem Amraie er nú væntan- lega í góöu yfirlæti hjá dóttur sinni í Kanada heldur vitfirringin áfram í íran. Khomeini heldur áfram aö safna völdum í gamlar hendur sínar og er nú meöal annars aö bræöa meö sér hvort hann sé ekki í raun og veru hinn tólfti imam — sá sem týndist fyrir ellefu hundruö árum — endurholdgaöur og sé nú kominn til aö úthella réttlætinu yfir lýöinn. Nýjasta vinkona Karls Bretaprins Stúlkan á myndinni heitir Sabrína Guinnes og er nýjasta vinkona Karls Bretaprins. Mynd- in er tekin í s.l. viku á flugvelli í Lundúnum er Sabrína hélt í helgarfrí til Karls þar sem hann dvelst í Balmoral á sveitasetri í eigu frænda Filips prins. Sabrína er 24 ára, dóttir bankastjórans James Guinnes og er hún erfingi frægustu ölgerðar Bret- landseyja, Guinnes öl- gerðarinnar. Sabrína hef- ur nýlega sést mikið með Karli, meðal annars horfðu þau saman á póló- keeppni í s.l. mánuði.. Að keppninni lokinni héldu þau hvort sína leið. En er bifreiðar þeirra voru komnar nokkurn spöl frá leikvanginum, og þau skötuhjúin héldu að eng- inn sæi til, voru þær stöðvaðar og Sabrína hélt yfir í ökutæki prinsins. Sabrína Guinnes er ekki eina vinkona prinsins sem heimsækir hann á sveitasetrið í Balmoral. Sá heiður féll einnig í skaut lafði Jane Wellsley, fyrrverandi vinkonu prinsins. BLOM OG ROMAIYTIK •BLOMgÁ\EXrm 50 ára afmœlissýmng að Hótel Loftleióum, laugardagirm 29. september, sunmidagirm 30. september Dagsskrá báða dagana Opin blómavinnustofa kl. 10 - 12 f.h. Tilsögn í blómaskreytingum fyrir almenrúng. Sérstakur blómaveislumatseðill kl. 12 - 14 og kl. 18:30 í Blómasal hótelsins. „Blóm í hárið“ kl. 14 og 19 og 21 Hárgreiðslusýning með blómaívafi Elsa Haraldsdóttir, Salon VEH „Hausttískan 1979“ kl. 14:25 og 19:20 og 21:30 Marta Bjamadóttir, versl. EVA Snyrtist.Maja, Ingibjörg Dalberg Blómaskreytingar úr þurrkuðum blómum kl. 15:30 og 20:00 Skreytingar frá Erik Bering, Kaupm.höfn og Hendrik Bemdsen, Blóm & Avextir Guðrún A. Símonar kl. 20:3Q Undirleik artnast Arrú Elfar Blómahöldur frá 18. öld úr safrú Eriks Bering Pétur Friðrik, listmálari, sýrúr blómamyndir Blómamarkaður Þurrkuð og lifandi blóm á sérstöku blómatorgi Kynning Interflora Hr. J. Stampe OPIÐ FRÁ 10 f.h. til 23:00 báða dagana Aðgangseyrir: 1500 krónur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.