Morgunblaðið - 29.09.1979, Síða 14

Morgunblaðið - 29.09.1979, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 1979 HLAÐVARPINN Isframleiðsla... Stöllurnar á myndinni gæða sér á ísnum sem virðist fara vel í þær ef dæma má eftir svipnum, en þær eru aðeins með brotabrot af þeim þúsund tonnum af ís sem íslf ndingar háma i sig á ári. Borðum 1000 tonn af ís á ári Láta mun nærri að íslendingar borði um 1000 tonn af ís á hverju ári og má varla minna vera eins og oftast er hlýtt í veðri á gamla Fróni. Mjólkursamsalan fram- Ieiðir um 1,5 milljón lítra af ís á ári, en eðlisþyngdin á isnum er um o,5 þannig að um 700— 800 tonn er að ræða. ísgerðirnar eru þrár, Mjólkursamsalan, Kjöris og Rjómaísgerðin sem framleiðir blönduna fyrir mjólkurisvélarn- ar. Mjólkursamsalan er langstærsti framleiðandinn og hefur fram- leiðslan aukizt um 15% á s.l. tveimur árum. Höfuðuppistaðn í ísnum er mjólk og rjómi.en að auki eru ýmis efni, svo sem bragðefni. Kjörís framleiðir hins vegar jurtaís, með jurtaolíu í stað rjóma og fitugjafa. Vinsælasti ísinn á íslandi, eins og í öðrum löndum, er vanilluísinn og síðan kemur súkkulaðiísinn. „Sturlungaöld í Skagafirði ” ••• ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ Ráðherra í fangbrögð- um undir garðslöngubunu ÞEGAR Ragnar Arnalds mennta- málaráðherra veitti stöðu skóla- meistara á Sauðárkróki fyrir skömmu virti hann að vettugi álit neirihluta skólanefndar sem mælti með ólafi Víði Björnssyni yfirkennara í Reykjavik, en hann er Sauðkræklingur og mun hafa undirbúið sig sérstaklega til þess starfs sem hann sótti um. Ragnar veitti hins vegar flokksbróður sinum, Jóni Hjartarsyni, embætt- ið, en hann hefur starfað á Akureyri. Hefur ráðherrann ugg- laust ekki skynjað það að enn er heitt blóðið í Skagfirðingum, því að ekki var málinu endanlega lokið með pennastriki ráðherr- ans. Ólafur Viðir mun hafa verið mjög vonsvikinn með úrslitin, en enn hefur það sannast að ber er hver að baki nema sér bróður eigi. Bróðir Ólafs Víðis tók sig til eitt síðkvöld og sótti ráðherrann heim á heimili hans í Varmahlíð í Skagafirði. Barði hann dyra er langt var Iiðið á kvöld og kom eiginkona ráðherrans til dyra. Tilkynnti komumaður henni um- búðalaust að hann væri kominn til þess að koma ráðherranum fyrir kattarnef, því að ekki væri seinna vænna. Gerði eiginkonan engar athugasemdir við það, en kvað ráðherrann hins vegar ekki heima og komumaður skyldi því koma sér strax á dyr þar sem þetta væri ekki hennar mál. Var dyrum síðan skellt í lás. Ekki lét Skagfirðing- urinn deigan síga þrátt fyrir þetta og tók nú til við ýmiss konar snyrtingu á garði hússins, það er að segja í öfugu hlutfalli við það sem það orð merkir og fauk nú sitthvað fram og til baka í garðin- um af trjám og öðru sem ekki var algjörlega jarðfast. Þar kom að er ráðherranum, sem hafði fylgst með bak við gluggagardínur, þótti ráðlegast að snaka sér í brækur og reyna að verja land sitt fyrir komumanni og varð nú skjótt mikill hamagangur á hlaðinu, fangbrögð snör, veltur og dynkir. Ekki leið á löngu þar til ráðherr- ann fór ískyggilega mikið halloka fyrir komumanni. Þótti eiginkon- unni þá ráðlegast að grípa til sinna ráða. Hljóp hún til og sótti forláta garðslöngu sem nýlega hafði verið keypt, allkraftmikla og kom hún bununni á fangfélagana, sem urðu all rosalegir ásýndum. Mun moldarleðja afa spýtzt í augu komumanns og slapp ráð- herrann þá úr fangbrögðunum að slöngunni og náði taki á henni með konu sinni. Gátu þau síðan hrakið komumann á brott með kraftmikilli bununni og færðist þá friður yfir en þjakaður mun ráð- herradómurinn hafa verið næstu daga á eftir. „Þvíég þarfeinnig aðlifa” Alfreð Jónsson oddviti í Grímsey er landsþekktur fyrir snörp tilsvör sín og frásögur. Nýlega þurfti Alfreð að fara til læknis og sagðist honum svo frá þeirri ferð: Eg fór til læknisins og að lokinni skoðun skrifaði hann lyfseðil og síðan þurfti ég að borga honum offjár. Ekki þótti mér það neitt undarlegt, því að læknirinn þarf jú að lifa. Síðan hélt ég til lyfsalans og fékk lyfið, þegar ég hafði borgað enn meira en hjá lækninum. Ekki þótti mér það skrítið, því að lyfsalinn þarf jú einnig að lifa. Að þessu loknu fór ég heim og henti lyfjunum, því að ég þarf einnig að lifa. Lœknirinn og píparinn Og svo var það sagan af læninum og píparanum. Læknir nokkur hringdi í pípulagningamann kl. 6 á aðfangadag og bað hann að koma hið snarasta þar sem eldhúsvaskurinn væri stíflaður hjá honum og allt í volli þar sem ekki yrði hægt að vaska upp eftir jólamatinn. Píparinn benti lækninum á það hvaða dagur væri, en læknirinn svaraði því til að ekki væru læknarnir spurðir að því hvaða dagur væri þegar þeir væru ræstir út á öllum tímum sólarhringsins. Píparinn lét þetta gott heita og mætti á staðinn. Þegar hann kom að vaskinum, bankaði hann í gripinn og setti síðan töflu úr glasi ofan í vaskinn, skrúfaði frá, en ekkert skeði, þá setti hann aðra töflu og skrúfaði frá, en ekkert skeði, þá setti hann aðra töflu og skrúfaði enn frá en ekkert skeði. „Þú hringir í mig eftir þrjá daga ef þetta verður ekki orðið gott þá,“ sagði píparinn um leið og hann kvaddi. Bregttu Flugleiða- merkinu Verkalýðsblaðið, málgagn einingasamtaka kommúnista tók sig til í vikunni og breytti hinu nýja merki Flugleiða eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Meira erfiði en hjá Guði Það var á Spáni fyrir skömmu, nánar tiltekið á Torremolinos, að einn íslenzki ferðaskrifstofustjórinn efndi til hátíðar sem ferða- langar á hans vegum gátu keypt miða á og var talsverður mannfjöldi mættur á staðinn. í upphafi veizlunnar hélt forstjórinn ræðu og hóf mál sitt á þessa leið: Samkvæmt Biblíunni kostaði það Guð mikið erfiði að skapa himin og jörð, en þið vitið ekki hvað það hefur kostað mig mikið erfiði að skapa ykkur þá aðstöðu sem þið hafið hér.— Dauaþögn mun hafa ríkt um stund að lokinni yfirlýsingunni. Sólveig á ferðinni í Kaupin Þessa dagana stendur yfir sýn- ing á verkum Sólveigar Eggerz Pétursdóttur í Gallerí Gammel Strand í Kaupmannahöfn, en Sólveig hefur sýnt þar á hverju ári um árabil og verk hennar eru stöðugt í sölu í Kaupmannahöfn. Stíll hennar þykir mjög sérstæður og hafa verk hennar áunnið sér marga aðdáendur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.