Morgunblaðið - 29.09.1979, Page 15

Morgunblaðið - 29.09.1979, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 1979 15 Róbert syngur lög Gylfa Þ. á nýrri plötu Nýlokið er upptöku á nýrri hljómplötu hjá Fálkanum þar sem Róbert Arnfinnsson leikari syngur lög Gylfa Þ. Gíslasonar við ljóð ýmissa skáida þjóðarinnar. Þetta er önnur hljómplatan sem Róbert syngur með lögum Gylfa, en fyrri platan heitir:við Sundin blá. Jón Sigurðsson bassaleikari sá um útsetningu plötunnar eins og þeirrar fyrri, en von er á plötunni á markað innan skamms. Gítarleikur... ii^^^^HHHHHHHHHHHHI „Vona að landinn lœri að meta klassíska gítarinn” SÍMON H. ívarsson gítarleikari heldur um þessar mundir klass- iska gítartónleika viða um land, en Símon er einn af fáum íslend- ingum sem stundað hafa lang- skólanám i gitarleik. Hann mun að þessu sinni halda tónleika i Vestmannaeyjum, á Akureyri, Húsavik, í Reykjavík og víðast á Austfjörðum. Við röbbuðum við hann um feril hans og námið. „Ég er að læra í Vín, hef verið þar undanfarin fjögur ár og stefni að því að ljúka námi næsta vor. Ég hef einbeitt mér að klassískri tónlist þessi fjögur ár, en hef nú snúið mér að flammingotónlist, sérstaklega vegna tækniþjálfunar þar sem hún veitir mjög góða þjálfun í tækni." Að loknu námi í Vín ætlar Símon að fara til frekara náms hjá mjög þekktum gítarleikara í Sviss, „en síðan hyggst ég koma hingað heim,“ sagði hann í spjall- inu við Hlaðvarpann. „Það hefur hins vegar vakið furðu mjna,“ hélt hann áfram, „að svo virðist sem markaðurinn fyrir sígilda tónlist á gítar sé fullmett- ur og hefur það vakið furðu mína. Ég hef orðið var við það að þegar ég hef kannað möguleika á að halda tónleika úti á landi þá svara menn því til að það gangi ekki af því að ég hafi komið í fyrra. Einir tónleikar á ári er ekki mikið á einum stað, en ef til vill þarf fólk að venjast þessu fyrirkomulagi. Ég get hins vegar ekki neitað því að þetta hefur valdið mér von- brigðum, en ég vona að landinn muni læra að meta klassíska gítarinn." HELGARVIÐTALIÐ 90 ára í Spánarferð „Og svo uoru allar þessar ftugvélar að skipta um fólk ” Á nítugasta aldursári brá hún Bér til Spánar og spók- aöi sig í sólinni eins og hver annar, lá meira aö segja á ströndinni í makindum. Hún gaf ekkert sinn hlut meö stafinn sinn, jafnvel um nóttina þegar seinkun varö á fluginu heim til íslands fór hún sínu fram í rólegheitun- um. Hins vegar þótti sumum það kynlegt aö hún gekk meö þeim síöustu um borö í flugvólina og varö aö leita sér aö sæti, allir hinir yngri voru víst svo þreyttir aö þeir gátu ekki hliöraö til fyrir gömlu konunni. Viö röbbuö- um viö hana um feröina sem hún fór meö dóttur sinni, Þórdísi í Ferjukoti, en sjálf heitir konan Guörún Berg- þórsdóttir og býr í Borgar- nesi. „Jú, ég verö níutíu ára í maí á næsta ári, en þaö eru nokkrir áratugir síöan ég fór til útlanda. Þá fór ég tíl Noregs og Færeyja, viö fór- um þá með Ingólfsstyttuna þegar hún var gefin Norö- mönnum. Jú, jú, þaö gekk allt vel á Spáni, mér líkaöi Ijómandi og engin ástæöa til þess aö setja út á. Þaö var allt ná- kvæmt á hótelrnu, viö fengum mat og svo gátum við sofið í flugvélinni heim eftir seinkun- Ina. Neí, ég er ekkert eftir mig og var frísk alla dagana. Ég lá stundum úti á ströndinni á beddunum þar. Ég var svona tíma og tíma í einu í sólinni, er nú ekki sólgin í hana. Llt að skemmta mér? Jú, við fórum í boð í hótelinu og þeir örguöu og görguöu þar spilararnir, þeir voru ósköp villimannlegir greyin, en ég er ekkert aö dæma þetta ef þetta verður aö vera svona. Guðrún Bergþórsdóttir á heimaslóð. Ljósmynd Einar Ingimundarson. Hóteliö? Viö vorum á gríð- arstóru hóteli, en ekki vil ég nú vera aö bera nafnið fram. Þar heima gátum við eldaö á gasi og höföum þaö alveg ágætt. Aftur? Nei, ég myndi ekki fara aftur í neina siglingu héöan af, ekki af því að ég sé lasin, heldur vegna þess aö mig langar mest að vera kjur heima, það fer nú aö halla undan fæti þótt ég hafi haft lítið af veikíndum að segja. Ég lá aðeins á spítala í sumar og fékk kúluliö í mjöðmina, hef ég heyrt maður getur ekki séö þetta sjálfur. Brún í sólinni? Jú, ég varö dálítið útitekin og hraustleg. Varö aldrei þreytt, því aö viö fórum altt í strætisbílum eöa hinseginbílum hvort sem viö fórurr. í verzlanir eöa eitthvað annað aö gamni. Fannst þér ekki asi í út- landinu? Jú, mikil ósköp, fólkiö var á ferö og flugi og straumurinn í borginni gassalegur. Svo voru allar þessar flugvélar sem voru að koma og fara og skipta um fólk. Manni bregö- ur dálítiö viö úr fámenninu, en þetta haföi engin vond áhrif á mig og engin heyrði ég styggöaryrðin. - á.j. Forneskja... „Hefðbundinn ” svartigaldur á íslandi Við rákumst á frétt í vikunni frá íslandi á forsíðu í dagblaðinu Hongkong Standard. Þar var fyrirsögn um svartagaldur á íslandi. í fréttinni segir að andstæðingar flotaheimsóknar NATO til Reykjavíkur fyrir skömmu hafi framið svartagald- ur að „hefðbundnum sið“ gegn herskipunum í flotaheimsókn- inni með því að reisa nýskorinn hrosshaus á stöng þar sem skipin lágu við bryggju. Segir blaðið síðan að þessi táknræni svartigaldur hafi eitt sinn verið notaður til þess að reka burtu óvini, en hafi að þessu sinni ekki haft nein sýnileg áhrif á flotann. Hins vegar hafi hestamaður í borginni kvartð til lögreglunnar yfir níðstönginni þar sem hestar hans hafi fælzt. Það er nú munur að fá slíkar landkynn- ingar þar sem útlendingar halda að slíkar athafnir séru siðvenja í íslenzku þjóðfélagi í dag. Vísan... Haf tilfininga Tvær vísur birtar í Hlað- varpanum í dag sem við lærðum af gamalli konu fyrir all löngu, en ekki vitum við hver er höfund- ur vísnanna. Tilfinningaheftu haf hugrenninga vanda. Geðshræringum æstum af óhamingjur standa. Lánaðu mér lítinn skammt af lífsreynzlunni þinni. Verði þér í geði gramt ó, gættu að skynseminni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.