Morgunblaðið - 29.09.1979, Síða 16

Morgunblaðið - 29.09.1979, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 1979 F jórðungsmót á Kald- ármelum næsta sumar Austfirdingar vilja einnig halda fjórdungsmót VESTLENDINGAR hafa nú ákveðið að fjórðungsmót þeirra næsta sumar verði hald- ið á Kaldármelum á Snæfells- nesi. Er þetta í fyrsta skipti sem fjórðungsmót er haldið á Kaldármelum en til skamms tíma var talið að þetta mót yrði haldið í Faxaborg við Hvítá. Stjórn Hestamannafélagsins Faxa vildi hins vegar ekki taka að sér að annast fram- kvæmd fjórðungsmótsins að þessu sinni og bentu forsvars- menn Faxa á, að það hefði komið í þcirra hlut að standa fyrir fjórðungsmótum í iands- hlutanum fram að þessu og væri því ástæða til að önnur félög tækju nú við. Einnig töldu Faxamenn mótssvæðið í Faxaborg vart undir það búið að taka við fjórðungsmóti að sinni. Austfirðingar hafa einnig leitað fast eftir því að fá að halda fjórðungsmót næsta sum- ar en enn hefur ekki fengjst tilskilið leyfi Búnaðarfélags ís- lands til þess. Búnaðarfélagið greiðir verðlaunafé kynbóta- hrossanna á fjórðungsmótum. Að sögn Þorkels Bjarnasonar, hrossaræktarráðunauts, áttu Vestlendingar rétt á fjórðungs- mótinu nú en að réttu ætti ekki að halda fjórðungsmót á Aust- urlandi fyrr en eftir næsta iandsmót eða á árinu 1983. Fjórðungsmót 1981 á að vera á Suðurlandi. Þorkell sagði að Búnaðarfélagið hefði aldrei fallist á þá samþykkt ársþings Landssambands hestamannafé- laga á Höfn í Hornafirði 1977, að fjórðungsmót skyldu haldast á Austur- og Vesturlandi sama ár. Þorkell sagði, að sýningar- nefnd Búnaðarfélagsins, sem skipuð er fulltrúum félagsins og L.H., hefði fjallað um þetta mál í vor og ekki séð ástæðu til að breyta þeim reglum, sem gilt hefðu fram að þessu, og því mælt með, að fjórðungsmót næsta sumar yrði á Vestur- landi. „Þó að ákveðin samþykkt um þetta hafi verið gerð á þingi L.H. fyrir nokkrum árum Hestar Umsjón* Tryggvi Gunnarsson fannst okkur í nefndinni ekki liggja nógu skýrt fyrir hver væri vilji hrossaræktenda í þessu máli og vildum því kanna málið betur áður en við mæltum með því fyrirkomulagi að hafa tvö fjórðungsmót sama árið. Við bentum Austfirðingum hins vegar á, að þeir ættu þess kost að halda héraðssýningar sam- kvæmt búfjárræktarlögum. Héraðssýningarnar voru upp- haflega settar inn í lögin til að hægt væri að skjóta þeim inn í þegar langt væri á milli stór- móta svo sem lands- og fjórð- ungsmóta. Héraðssýningarnar gera nákvæmlega sama gagn fyrir kynbótastarfið og fjórð- ungsmóta eins og verður ef við fáum ekki mót næsta sumar. Fjórðungsmótin eru eini mögu- leikinn til að fá samanburð á hrossum innan fjórðungsins. Héraðssýningar koma ekki nema að litlu gagni, þar sem félögin hér eru lítil og svæðin innan fjórðungsins sundurskil- in og hestamenn á Austurlandi eiga ekki auðvelt með að koma saman nema við sérstakar að- stæður. Fjórðungsmótin eru líka alltaf hvati fyrir hesta- mennskuna og hrossaræktina á svæðinu. Því er haldið fram, að til þess aö unnt sé að halda tvö fjórðungsmót næsta sumar þurfi lagabreytingu en mér er spurn, á hvaða forsendu hefur slíkt þá verið heimilað áður.“ Fram kom hjá Ingimari, að Búnaðarsamböndin í Aust- ur-Skaftafellssýlu og á Austur- landi hafa skrifað stjórn Bún- aðarfélagsins og óskað eftir því að heimilað verði að halda fjórðungsmót á Austurlandi næsta sumar. Þá hefur stjórn Landssambands Hestamanna- félaga einnig fjallað um þetta mál. Ef af verður er gert ráð fyrir að mótið verði haldið á Iðavöllum, mótssvæði Freyfaxa. Kaldármelar eru mótssvæði Hestamannafélagsins Snæfell- ings og hefur Leifur Kr. Jóhannesson, ráðunautur í Stykkishólmi, verið ráðinn framkvæmdastjóri fjórðungs- mótsins á Kaldármelum næsta sumar. 5 fyrstu árgangar Hests- ins okkar endurprentaðir í SUMAR var lokið við að endurprenta fimm fyrstu árganga Hestsins okkar, tíma- rits Landssambands hcsta- mannafélaga. Ritnefnd Hests- ins okkar ákvað að hefjast handa við að endurprenta þau tölublöð, sem ekki eru lengur fáanleg i tilefni af 20 ára afmæli blaðsins. Eldriárgangar Hestsins okkar hafa síðustu ár margir hverjir verið ófáanlegir utan fáein einstök, sem slæðst hafa inn i fornbókaverzlanir. Vildi ritnefndin með þessari endurprentun gefa þeim stóra • — hópi fólks, sem bætst hefur í raðir hestamanna á síðustu árum tækifæri á því að eignast eldri árganga blaðsins en í því er að finna margvíslegan fróð- leik um hesta og hestamennsku. Sem fyrr sagði var í fyrstu tekið til við að endurprenta fyrstu fimm árgangana, sem út komu á árunum frá 1960 til og með 1964 en á þessum árum komu árlega út 3 tölublöð. Er ætlunin að framhald verði á þessari endurprentun og næst verði teknir fyrir 6. til 10. ár- gangur en forsenda þess að framhald verði á þessu starfi er að þau blöð, sem nú hafa verið endurprentuð seljist. Þau tölublöð, sem nú hafa verið endurprentuð eru eins og önnur blöð af Hestinum okkar til sölu á afgreiðslu blaðsins á skrifstofu Landssambands hestamannafclaga í Fáksheimil- inu við Elliðaár en skrifstofan er opin virka daga milli kl. 13 og 18. Þá er hægt að fá blöðin send í 1 póstkröfu. Hvert endurprentað tölublað er selt á 2.000 kr. og kostar árgangurinn því 6.000 kr. og allir fimm árgangarnir í heild 30.000 kr. Þau blöð, sem enn eru til af fyrstu prentun af Hestin- um okkar fram til þessa eru nú seld á 1.000 kr. blaðið. Áskriftar- verð Hestsins okkar 1979 er 3.500 kr. og að auki póstkröfu- gjald sé áskriftarverðið ekki innheimt af hestamannafélögun- um. Hér gefur að líta fyrsta árgang Hestsins okkar en alls eru það 15 blöð, sem hafa verið endurprentuð. Arni Ketilbiarnar frá Stukkishólmi 80 ára: „Ég vinn enn fullan vinnudag og má vinna allt til hundrað ára aldurs, ef ég get,“ sagði Árni Ketilbjarnar, en hann heldur upp á 80 ára afmæli sitt í dag. „Ég er við hestaheilsu og hef aldrei lagst á sjúkrahús á þessum 80 ára ferli mínum, og ekki kennt mér meins, að undanskildu kvefi, sem ég hef fengið nokkrum sinnum um æv- ina,“ sagði hann, er blaðam. Mbl. heimsótti hann á heimili hans við Strandasel í Reykjavík. Árni er fæddur 29. sept. 1899 að Klukkufelli í Reykhólasveit. „Faðir minn var bóndi þar, Ketilbjörn, sonur Magnúsar hreppstjóra og fræðimanns í Tjaldanesi við Gils- fjörð, Jónssonar hreppstjóra Orms- sonar, Sigurðssonar að Króksfjarð- arnesi og síðar að Kleifum í Gils- firði og konu Jóns hreppstjóra, Kristínar Eggertsdóttur Olafsson- ar í Hergilsey á Breiðafirði. Faðir minn var tvígiftur. Fyrri kona hans var Margrét Snorradóttir frá Álftatungu á Mýrum vestur og áttu þau þrjá syni, sem komust til fullorðinsára. Seinni kona hans var systir fyrri konunnar, Halldóra Snorradóttir. Ég var einn af fjór- um börnum þeirra, er komust til fullorðinsára." Árni er maður ættfróður og rekur ættir sínar langt aftur í aldir og getur þar um nöfn margra merkra manna, sem kunnir eru úr íslendingasögunum. — „Ég leik mér nokkuð að ættfræði og hef „Du,somkom” — Ný ljóðabók eftir Þorstein Stefánsson komin út í Danmörku Komin er út i Danmörku hjá Birgitte Hövrings Biblioteksforlag Ijóðabókin „Du, som kom“ eftir Þorstein Stefánsson. Þetta mun vera frumraun höfund- ar á sviði ljóðlistar en Þorsteinn er þekkt sagnaskáld hér heima og erlendis. Fyrsta bók hans „Frá öðrum hnetti" kom út 1935. Ungur að árum flyst Þorsteinn til Dan- merkur, fetar í fótspor frægra sam- landa sinna og tekur að skrifa á dönsku. Bækur hans fengu góðar viðtökur og hlutu lof gagnrýnenda. Til dæmis má geta þess að Þorsteinn hlaut hin mikilsvirtu H.C. Andersen bókmenntaverðlaun fyrir bók sína „Dalurinn". Alls munu á annan tug bóka hafa komið út eftir Þorstein og margar þeirra verið þýddar á íslensku. Einnig hafa bækur eftir hann verið þýddar á fleiri tungumál, t.d. ensku og gefnar út þar í landi. Á kápusíðu hinnar nýju ljóðabók- ar Þorsteins „Du, som kom“ er þess getið, að haustið 1975 hafi yfir- barnabókavörður Rigmor Birgitte Hövring (1930—1978) stofnað eigið útgáfufyrirtæki BHB með það mark- mið fyrir augum að kynna íslenskar bókmenntir. Kynning á kápusíðu er ekki lengri en eins og mörgum er kunnugt var Þorsteinn meðeigandi forlagsins frá stofnun og ^iuk þess aðalþýðandi. Þorsteinn er mikill tungumálamaður og jafnvígur á þrjú mál, íslensku, dönsku ng ensku. Það er í mikið ráðist að stofna bókaforlag með svo til tvær hendur tómar. En hvað um það, með sam- stilltum vilja og sameiginlegu átaki er hægt að lyfta Grettistökum. Birgitte og Þorsteinn áttu í ríkum mæli kjark, gáfur og dugnað, já, og síðast og ekki síst þann hugsjónaeld sem öllum hindrunum ryður úr vegi. Á þessum stutta tíma síðan for- lagið var stofnað hefur það starfað a miklum þrótti og gefið út nálægt hálfan annan tug íslenskra bóka, flestar í þýðingum Þorsteins, en hann hefur fyrir löngu hlotið viður-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.