Morgunblaðið - 29.09.1979, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 29.09.1979, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 1979 Björgunars tarf ofar dœgurþrasi og erjum Svo aðrir megi lifa DETACMME.K1T 14 Iheimsókn hjá hjörgunarsveit Varnarliösins Fyrri grein Texti: Ágúst I. Jónsson Myndir: Kristján Einarsson o.fi. I maimánuði 1977 nauðlenti finnsk ferjuflugkona eins hreyfils sjóflugvél sinni 110 sjómilur suðvestur af Reykjanesi. Konunni var bjargað um borð í rannsóknaskipið Árna Friðriksson og síðan um borð í þyrlu björgunarsveitarinnar, sem fljótlega kom á vettvang. (Ljósm.: Oskar Sæmundsson). „bAÐ FER ekki á milli mála, að sú hjálp við sjúka og sára og björgun manna úr bráðum lífsháska, sem björgunarsveit varnarliðsins hefur veitt á und- anförnum árum, hefur að vonum vakið verðskuldaða athygli þeirra, sem láta sig þessi mál varða og setja þau ofar öllu dægurþrasi og erjum.“ Svo ritar Hannes Hafstein framkvæmda- stjóri Slysavarnafélags íslands i árbók SVFÍ 1975 og fer hann þar nokkrum orðum um giftudrjúgt starf þessarar sveitar, sem hóf störf með varnarliðinu á Kefla- víkurflugvelli siðla árs 1971. Aðstoð varnarliðsins við leitar- og björgunarstörf var engan veg- inn óþekkt hérlendis áður en þessi sérþjálfaða björgunarsveit hóf störf. Þau verkefni höfðu áður verið innt af hendi frá stöðvunum i Woodbridge á Eng- landi og Lajez á Azoreyjum. Höfðu sveitirnar hverju sinni um tveggja vikna viðdvöl hér hver hópur með Hercules-björgunar- flugvélar, en þá voru hér þyrlur af gerðinni H-19 frá flughernum bandariska og H-34 frá sjóhern- um. Þáttaskil urðu er björgunar- sveitin, sem er Sveit 14 innan 39. sveitar ARRS eða Aerospace Rescue and Recovery Squadron, hóf störf hér á landi. Á Kefia- vikurflugvelli eru þrjár Jolly Green Giant-þyrlur. Sömuleiðis er þar ávallt ein Hercules- björgunarflugvél, en um þann þátt i starfi sveitarinnar er höfð samvinna við herstöðina í Wood- bridge i Englandi. Frá 1971 hefur 14. sveitin bjarg- að 155 manns, en á þessu ári eru bjarganirnar orðnar 10 talsins. Ferðirnar, sem sveitin hefur farið til hjálpar sjúkum og særðum, eru þó orðnar mörgum sinnum fleiri. í þessum tölum eru aðeins taldar ferðir þegar mannslífum hefur verið bjargað, annað er ekki skráð sérstaklega í bókum ARRS t.d. almennir sjúkraflutningar. Það er ekki tilviljun að Sveit 14, eins og björgunarsveitin á Kefla- víkurflugvelli verður kölluð hér eftir í þessari grein, hefur tvívegis verið valin bezta flugbjörgunar- sveitin innan bandaríska flug- hersins. Síðara skiptið var 1977— 78. Að verða slíks heiðurs aðnjót- andi segir e.t.v. meira en mörg hástemmd lýsingarorð um hæfni og hetjudáðir þeirra manna, sem innan sveitarinnar starfa og þeir hafa unnið við hinar erfiðustu og ólíkustu aðstæður. Að staðaldri er Sveit 14 skipuð 44—46 mönnúm, sem allir hafa hlotið mikla þjálfun og margir þeirra eru með langan starfsaldur að baki við björgunarstörf. Til þess að vera betur undirbúnir og til að geta náð sem beztum árangri við erfið björgunarstörf, eru æfingar mjög tíðar. Þær eru látnar líkjast sem mest raunveru- leikanum og því sem kann að bera að höndum næst þegar kallið kemur. 9 þyrluflugmenn eru í sveitinni, 5 vélamenn eða flugvélstjórar og 8 fallhlífastökkvarar. Allir hafa þessir menn hlotið mjög mikla þjálfun og þá einkum hver á sínu afmarkaða sviði, en t.d. eru stökkvararnir ekki síður sérstak- lega þjálfaðir sem sjúkraliðar. Mikil og ströng skilyrði eru gerð til þessa starfs, og auk stökksins sjálfs við margbreytilegar aðstæð- ur, er aðstoð við sjúka og sára þeirra sérfag. Skiptir þá ekki máli hvort staðurinn er á fjöllum uppi, í frumskógum eða á hafi úti. Flugvirkjarnir gegna miklu hlut- verki og það er í þeirra verkahring að sjá svo um að þyrlurnar séu ávallt tiltækar og geti skilað því hlutverki, sem þeim er ætlað. Talið er að hver flugtími þyrlu útheimti 16 tíma eftirlits- og viðhaldsvinnu. Áhafnir og það lið, sem starfar á og við Hercules-vélarnar, telst ekki til Sveitar 14, en samvinnan er svo náin að vart verður á milli skilið. Eitt af því, sem krefst sérstakrar þjálfunar og æft er regiulega, er að taka eldsneyti á þyrlurnar á flugi frá Hercules-vél. Þyrlurnar hafa 4 tíma flugþol þegar flogið er með 110 hnúta flughraða, en hámarksflugþol Hercules-vélar miðað við 350 hnúta á klukkustund er um 16 tímar. Með tilliti til takmarkaðs flugþols þyrlanna er eldsneytis- takan frá Hercules-vélinni mjög mikilvæg í erfiðum langferðum. I sumum tilvikum verður að losa þyrlurnar við eldsneyti til að létta þær áður en farið er að slysstað til björgunar. Nefna má í þessu sambandi, að er slasaður sjómaður var sóttur um borð í brezka togarann North- ern Jewel í marz 1974, þurfti þyrlan þrívegis að taka eldsneyti frá Hercules-vél. Vegna mjög óhagstæðra flugskilyrða báðar leiðir og þá sérstaklega sívaxandi mótvinds á heimleið tók flugið 8 klukkustundir, en togarinn var staddur 50 sjómílur út af Langa- nesi. Eldsneytistakan er æfð sér- staklega og þykir af mörgum mjög hættuleg og vandasöm. Flugmenn- irnir á vélunum vilja þó ekki gera mikið úr því, slíkt er liður í starfinu, segja þeir. FYRSTA BJÖRGUNIN VAR UNNIN Á METTÍMA Fyrsta æfing sveitarinnar hér á landi var haldin 16. nóvember 1971 og fyrsta ferðin var farin að beiðni Slysavarnafélagsins 26. desember sama ár. Þá sótti þyrla fárveikan dreng að Hellissandi og flutti til Reykjavíkur. Allir vegir á Snæfellsnesi, svo og flugvöllurinn á Sandi, voru ófærir vegna snjóa og ísalaga. I annálum sveitarinnar er þessi ferð ekki skráð sem björgun en ferðin er talandi dæmi um þær mörgu ferðir, sem þyrlur sveitarinnar hafa farið til aðstoð- ar þegar öðrum hjálpartækjum varð ekki komið við. Fyrsta „opinbera björgun" Sveitar 14 hérlendis, eins og segir í skrám sveitarinnar, var farin 5. janúar 1972. Frá því að Jolly Green Giant hóf sig á loft á Keflavíkurflugvelli og þar til þyrl- an lenti þar að nýju að lokinni vel heppnaðri björgun liðu aðeins 40 mínútur. Þessi björgun var unnin á mettíma og í samanlögðum frá- sögnum af slíkum aðgerðum er varla að finna dæmi um snaggara- legri viðbrögð. Klukkan 13.16 hinn 5. janúar tók Jolly Green Giant þyrla sveitarinnar sig á loft frá Keflavíkurflugvelli til björgunar flugmanni Cessnu 172, sem nauð- lent hafði á sjónum skammt norður af Engey. Með það í huga hversu skamma stund menn geta lifað í köldum sjónum í kringum landið á þessum tíma árs gerði áhöfn þyrlunnar sér fulla grein fyrir því, að örfáar mínútur gátu skipt sköpum. Það gerði allar aðstæður erfiðari hversu vont veður var þennan dag og er þá sama hvort menn hafa í huga leitina að flugmanninum eða björgun hans úr sjónum. Þrátt fyrir erfiðleikana var áhöfn þyrlunnar búin að finna flugmanninn klukkan 13.37 og sveimaði yfir honum aðeins 21 mínútu eftir að lagt var upp frá Keflavík. Þremur mínútum síðar var flugmaðurinn kominn um borð í þyrluna og hafði snarlega verið vafinn inn í hlý ullarteppi. Níu mínútum síðar lenti þyrlan heilu og höldnu á Reykjavíkurflugvelli og síðan á Keflavíkurflugvelli klukkan 14.02, aðeins 40 mínútum eftir að lagt var af stað. Fyrsta björgunaraðgerð sveitar- innar hafði tekizt eins og framast var hægt að hugsa sér — og það á mettíma. Margar slíkar aðgerðir, sem einkennst hafa af snarræði, hugdirfsku, mikilli þjálfun og reynslu, góðum útbúnaði og góðu skipulagi hafa síðan fylgt á eftir. Björgunarsveitirnar innan banda- ríska flughersins, sams konar og sú á Keflavíkurflugvelli, eru 30 talsins og eru flestar þeirra í Bandaríkjunum. Utan þeirra eru slíkar sveitir í Englandi, V-Þýzka- landi, Spáni, Okinawa, Filippseyj- um og Kóeru auk Islands, en þess má geta að slík sveit starfaði í Víetnam á sínum tíma. „ÞEIR STUKKU í HAFIÐ TIL HJÁLPAR“ Millifyrirsögnin hér að ofan er sótt í árbók Slysavarnafélagsins frá 1975, en þar greinir frá björgun skipverja á norska skip- inu Stolt Vista. Sprenging varð í vélarrúmi skipsins og neyðar- skeyti var sent út að morgni 4.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.