Morgunblaðið - 29.09.1979, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 1979
21
MagnúsL. Sveinsson:
Borgarstjóri ber sig
upp undan meirihlutanum
Fyrsti fundur borgar-
stjórnar eftir sumarfrí
var að mörgu leyti mjög
merkilegur. Borgar-
stjóri, Egill Skúli Ingi-
bergsson sá sig tilneydd-
an til að kvarta undan,
að hinn plitíski meiri-
hluti liti hann og aðra
starfsmenn borgarinnar
allmiklu hornauga. Meiri
hluti borgarstjórnar stóð
gjörsamlega afhjúpaður,
að hafa svikið svo til öll
stóru kosningaloforðin
um framkvæmdir og Guð-
rún Helgadóttir sagði að
„dauð hönd“ svifi yfir
framkvæmdum borgar-
innar.
Hinn pólitíski
meirihluti lítur
borgarstjóra hornauga
Sá einstæði atburður gerðist á
borgarstjórnarfundi 20. þ.m., að
borgarstjóri Egill Skúli Ingi-
bergsson sá sig tilneyddan að
kvarta undan því, að pólitíkus-
arnir litu hann og aðra starfs-
menn borgarinnar oft hornauga.
Orðrétt sagð borgarstjóri: „Póli-
tískir fulltrúar þeir líta okkur
embættismenn gjarnan allmiklu
hornauga." Ekki fór á milli
mála, að hér átti borgarstjóri við
pólitíkusa meirhlutans. Ofanrit-
uð ummæli sagði hann í ræðu
eftir að Guðrún Helgadóttir
hafði verið með dylgjur og ásak-
anir í garð starfsmanna borgar-
innar um að þeir lægju á fram-
kvæmdum borgarinnar og talaði
hún í því sambandi um „dauða
„Dauðhönd”
svífur yfir
framkvæmdum
borgarinnar
hönd“ embættismanna borgar-
innar.
Það er athyglisvert að borgar-
stjóri skuli sjá sig knúinn til að
gefa slíka yfirlýsingu á borgar-
stjórnarfundi eftir að hafa unnið
í rétt eitt ár undir stjórn póli-
tísks meirihluta vinstri manna í
Reykjavík.
Meirihlutinn
aumkunarverður.
Á borgarstjórnarfundinum
urðu allsnarpar umræður um
framkvæmdir (framkvæmda-
leysi) borgarinnar, og voru þær
bornar saman við öll stóru
kosningaloforðin.
Það var sannast sagna
aumkunarvert, að sjá fulltrúa
vinstri meirihlutans verða að
viðurkenna, að meginhluti allra
stóru kosningaloforðanna um
framkvæmdir hefur verið svik-
inn, þrátt fyrir stórauknar álög-
ur á borgarbúa.
Svikin í dagvistunar-
málunum brenna
heitt á baki þeirra.
Skuldinni skellt á
starfsíólk borgarinnar.
í umræðunum gat Guðrún
Helgadóttir sérstaklega svik-
anna í byggingu dagvistunar-
stofnana. Það er eðlilegt að svik
vistri meirihlutans í uppbygg-
ingu þeirra brenni heitt á baki
þeirra, því það er sá málaflokk-
Magnús L. Sveinsson
ur, sem þeir hafa hneykslast
hvað mest yfir litlum fram-
kvæmdum og hvergi voru þeir
örlátari á loforð um stórtækar
framkvæmdir, ef þeir kæmust til
valda.
Og það var einmitt hér, sem
Guðrún Helgadóttir greip til
þess lúalega bragðs, eins og svo
oft áður að saka starfsmenn
borgarinnar um, að þeir bæru
ábyrgð á framkvæmdaleysinu í
stað þess að viðurkenna hrein-
skilnislega hið rétta, að hún og
aðrir í hinum pólitíska meiri-
hluta bæru ábyrgð á svikunum.
Borgarstjóri tók
á sig sökina.
Það verður að segjast borgar-
stjóra til hróss, að eftir ásakanir
og dylgjur Guðrúnar Helgadótt-
ur í garð starfsmanna borgar-
innar tók hann á sig sökina um
leið og hann sagðist hafa góða
reynslu af starfsfólki borgarinn-
ar.
Guðrún Helgadóttir
& Co. stýra
„hinni dauðu hönd.“
Auðvitað vita allir, að fyrir-
skipanir borgarstjóra um frest-
un á framkvæmdum eru gerðar
samkvæmt fyrirmælum hins
plitíska meirihluta vinstri
manna, þar með talið Guðrúnar
Helgadóttur, sem ber því fulla
ábyrgð á framkvæmdaleysi
borgarinnar.
Það vita því allir, að „hinni
dauðu hönd,“ sem Guðrún
Helgadóttir sér nú svífa yfir
framkvæmdum Reykjavíkur-
borgar og hún hræðist, er stýrt
af henni sjálfri og öðrum pól-
itískum fulltrúum vinstri meiri-
hlutans í Reykjavík.
Viðhorf kommúnista
til starfsfólks
borgarinnar einkennist
af fyrirlitningu
og virðingarleysi.
Það er ekkert nýtt að
kommúnistar grípi til þess ráðs
að kenna öðrum um það sem
miður fer undir þeirra eigin
stjórn. En heldur er það
auðvirðilegt og lítilmannlegt af
borgarfulltrúa, að grípa í sífellu
til þess ráðs, að saka starfsfólk
borgarinnar um að bera ábyrgð
á framkvæmdaleysi, sem hinn
pólitíski meirihluti ber alla
ábyrgð á.
Það hefur ekki farið framhjá
almenningi, hvað viðhorf
kommúnista til starfsfólks borg-
arinnar einkennist af mikilli
fyrirlitningu og virðingarleysi.
Þó telja þeir sig hafa sérstaka
„löggildingu,„ sem „fulltrúar
fólksins" og alveg sérstaklega
launþeganna. Nú vita allir að
starfsfólk borgarinnar er allt
launþegar. Jafnframt er vitað að
mikill meirihluti þess aðhyllist
ekki pólitískar skoðanir
kommúnista. Það skyldi þó aldr-
ei vera, að einmitt það, réði
viðhorfi kommúnista til starfs-
fólksins og „umhyggja“ þeirra
fyrir launþegum mótaðist af
politískum skoðunum þeirra.
Stjörnubíó 30 ára:
Sýnir „Leynilögreglumann-
mn í tilefni
í DAG eru þrjátíu ár frá því að
Stjörnubíó hóf starfsemi sína, eða
29. september 1949.
Hefur bíóið af
því tilefni tekið til sýninga banda-
rísku sakamálamyndina Leyni-
lögreglumaðurinn, „The Cheap De-
tective“ , eftir Neil Simon.
•
Aðalleikarar myndarinnar eru:
Peter Falk, Ann-Margaret, Eileen
Brennan, Sid Caesar, Stockhard
Channing, James Coco, Dom De-
Luise, Louise Fletcher, John House-
man, Madeline Kahn, Fernando
afmælisins
Lamas, Marsha Mason og Phil Si-
lvers.
Söguþráður: Þegar starfsfélagi
einkaspæjarans Lou Peckinpaugh
finnst skotinn til bana í óþekktu
gistihúsi í Kínahverfinu í San Fran-
cisco, kemst Lou í mikil vandræði.
Fjölmargir menn og konur koma við
sögu. Sumir halda sambandi við
hann, aðrir týnast. Hann er svikinn,
samtímis því, að hann er beðinn að
finna dýran skartgrip, sem hefur
verið stolið. Lögreglan grunar hann
um morðið á félaga sínum, vegna
þess að hann hélt við konu hans.
Atrioi ur myndinni Leymiogreglumaðurinn, sem Stjörnubíó sýnir nú í
tilefni 30 ára afmælis sins.
MARKASKRÁ
AUSTlíR
BARÐASTRANDARSÝSUJ
1979
Ný markaskrá
fyrir A-Barða-
strandarsýslu
NÝLEGA er komin hér út marka-
skrá fyrir A-Barðastrandarsýslu
og er kápumynd af Ólínu Magnús-
dóttur fyrrv. kennara og bónda á
Kinnarstöðum í Reykhólasveit.
Hún ásamt systrum sínum, þeim
Guðrúnu og Guðbjörgu, var rétt-
arbóndi þar síðustu 40 árin, en nú
er búið að byggja nýja skilarétt í
Berufjarðarlandi.
Mikið verk liggur á bak við
þessa skrá þar sem útrýma á
sammerkingum við aðrar sýslur á
Vestfjarðakjálkanum svo og Dala-
sýslu. Ritstjóri er Játvarður Jök-
ull fræðimaður á Miðjanesi.
— Sveinn
F j alaköttur inn
farinn af stað
FJALAKÖTTURINN, kvik-
myndaklúbbur framhaldsskóla-
nema, hóf sitt fimmta starfsár 20.
september s.l. Sýningar eru eins
og áður í Tjarnarbíói á fimmtu-
dögum, laugardögum og sunnu-
dögum.
Það kennir margra grasa í
sýningarskránni, en að þessu sinni
eru meginstefin þrjú: Franskar
gamanmyndir, japanskar myndir
og þýzkur expressjónismi. Einnig
verður mikið um tónlistarmyndir.
Sýningar verða 34 auk tilfall-
andi sýninga. Verð skírteina verð-
ur 8000 krónur.
Um helgina verður sýnd myndin
Renaldo & Clara eftir Bob Dylan
með tónlist eftir Dylan og fleiri.
Skírteini verða seld í Mál &
menningu og í Tjarnarbíói fyrir
sýningar. Framkvæmdastjóri
Fjalakattarins að þessu sinni er
Óskar Þórisson.
AÞENA
— á mörkum hins ótrúlega.
Því eru nær engin takmörk sett, hversu iengi er hægt að hrífast af Akropolis
og gömlu musterunum þar. Alit er þetta sögu líkast. Það er líka jafn furðulegt,
hvað þessi borg, með tvær milljónir íbúa, hefur upp á margt að bjóða og þá ekki
bara á sviði iðandi skemmtanalífs. Tökum til dæmis þröngar götur gamla
borgarhlutans, þar sem allt úir og grúir af veitingastöðum og útiniarkaðir eru á
hverju strái, eða þá hafnarborgina Pireus, þar sem hægt er að
sitja niðri á bryggju og njóta góðrar máltíðar.
Og þaö er líka næsta ótrúlegt, að í námunda við svo stóra borg skuli
vera jafn stórkostlega fínar baðstrendur. Það allra merkilegasta er þó,
að hversdagsleikinn er ckki síöur hcillandi.
Verið velkomin til hinnar stórkostlegu borgar, Aþenu.
Grekiska Statens Turistbyrá
(Ferðaskrifstofa gríska rikisins)
Grev Turegatan 2 • Box 5298 • S-10246 STOCKHOLM
Sími 08-21II13