Morgunblaðið - 29.09.1979, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 29.09.1979, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÓIÐ, LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 1979 Birgir ísl. Gunnarsson: Átak tíl eflingar trjá- rækt í Reykjavík Áhugamenn um skógrækt á Islandi hafa bundist samtökum um að gera næsta ár að sérstöku skógræktarári í tilefni af 50 ára afmæli Skógræktarfélags ís- lands. „Ár trésins 1980“ er það nafn, sem þessu framtaki hefur verið valið. Sérstök samstarfs- nefnd hefur verið skipuð og eiga í henni sæti fulltrúar fjölmargra félagasamtaka og stofnana, sem málið varðar. Trjárækt í þéttbýli í kynningu á „ári trésins 1980“ kemur m.a. fram, að áherzla verði lögð á að kynna trjárækt, skógvernd og skógrækt á Islandi. Ekki verður sízt lögð áherzla á að hvetja til trjáræktar í þétt- býli. Einstaklingar verði sér- staklega hvattir til að fegra með trjáplöntum í kringum hýbýli sín og félög verða hvött til að vinna að fegrun umhverfis innan sinna starfssvæða. Opinberir aðilar, þ.m.t. sveitarfélög, verða hvattir til að fegra á hliðstæðan hátt svæði í kringum byggingar, svo sem skóla og hverskonar þjónustubyggingar svo og á öðr- um almenningssvæðum, sem liggja innan marka þeirra eða eru í þeirra umsjá. Umhverfi og útivist Af þessu tilefni er vert að minna á, að Sjálfstæðismenn í borgarstjórn Reykjavíkur hafa lengi haft það sem eitt af sínum höfuðmarkmiðum að fegra um- hverfið í borginni. Að skilja eftir ríflegt magn af opnum svæðum, rækta þau upp og gera þau aðlaðandi, þannig að borgarbúar geti sótt þangað og notið frí- stunda í slíkum vinjum innan borgarmarkanna. I þessu sam- bandi er skemmst að minnast áætlunar um „umhverfi og úti- vist“ frá 1974. Framtak áhugamanna um „Ár trésins 1980“ fellur því vel að þessari stefnu okkar og þess- vegna höfðum við frumkvæði að því að Reykjavíkurborg gerði sérstakt átak í þessum efnum á næsta ári. Fulltrúar Sjálfstæðis- flokksins í umhverfismálaráði fluttu fyrir nokkru svohljóðandi tillögu: Tillaga Sjálf- stæðismanna „Vegna erindis, sem umhverf- ismálaráði hefur borizt til um- sagnar varðandi „Ár trésins" gerir ráðið eftirfarandi tillögu: Reykjavíkurborg samþykkir að gera sérstakt átak árið 1980 við að gróðursetja tré og runna og að vekja áhuga almennings á trjárækt. Verði þetta starf unnið í samvinnu við samstarfsnefnd um „Ár trésins 1980“. Til að vinna að framgangi þessa máls verði skipuð sérstök nefnd á vegum umhverfismálaráðs, sem starfi í samvinnu við borgar- verkfræðing og garðyrkjustjóra. Starfinu verði í stórum dráttum hagað sem hér segir: Nefndin leiti til félaga og hvers konar samtaka í borginni, þ.á m. húsfélaga og fái þá aðila til samstarfs. Kannaður verði áhugi meðal félagsmanna á þessu sameiginlega átaki og frumkvæði og áhugi borgarbúa nýttur til hins ítrasta. Einstakl- ingum utan félaga verði einnig gefinn kostur á að leggja fram sinn skerf með þátttöku í gróð- ursetningu. Á þennan hátt verði reynt að fá sem almennasta þátttöku í gróðursetningu. Nefndin athugi og geri tillögur um, hvar í Reykjavík eigi helzt að gróðursetja tré eða runna (á útivistarsvæði, við opinberar. byggingar, á leikvöllum, með- fram akbrautum út úr borginni, við fjölbýlishús svo að eitthvað sé nefnt). Undirbúningur jarð- vegs hefjist við fyrsta tækifæri og athuganir gerðar á vali trjá- tegunda. Þeim, sem áhuga hafa á að fegra og bæta umhverfi Reyk- víkinga með trjágróðri, en hafa ekki tök á að taka sjálfir þátt í gróðursetningu, verði gefinn kostur á að greiða ákveðna upphæð í sérstakan sjóð og fái barmmerki „Ár trésins" til vitn- is um þátttökuna, en borgaryfir- völd sjái síðan um gróðursetn- ingu, e.t.v. í samvinnu við Skóg- ræktarfélag Reykjavíkur. Gert verði ráð fyrir sérstakri fjárveitingu á næsta ári til þessa framtaks til kynningar, hvatn- ingar og undirbúnings." Tillagan samþykkt Tillaga þessi var að meginefni samþykkt í umhverfismálaráði og þess er því að vænta að hér í Reykjavík verði þessu mikilvæga umhverfismáli sinnt rækilega á næsta ári. Fátt er líklegra til að stuðla að hlýlegu og manneskju- legu umhverfi en að auka gróður í borginni og ljóst er, að verulegt átak verður ekki gert nema borgin hafi markvissa forystu, en laði jafnframt borgarbúa til sem almennastrar þátttöku. „í tilefni af „Ári trésins 1980“ hafa Sjálfstæðismenn í umhverfismálaráði flutt tillögu um að borgin geri sérstakt átak i trjárækt innan borgarmarkanna á næsta ári. Tillaga þessi var í meginatriðum samþykkt og því er von til að þessu mikilvæga umhverfismáli verði rækilega sinnt á næsta ári“. Sunnudaginn 16. september s.l. var afhjúpaður minnis- varði um Hermann heitinn Jónasson fyrrum ráðherra og þingmann Strandamanna í Skeljavík við Hólmavík og skýrði Mbl. frá því á sínum tíma. Nú hefur Mbl. borizt mynd frá afhjúpun minnisvarðans. í ræðustóli er Rúnar Guðjónsson sýslumaður en einnig má sjá á myndinni Pálínu Hermannsdóttur og mann hennar Sveinbjörn Dagfinnsson, Steingrím Hermannsson og konu hans Guðlaugu Eddu Guðmundsdóttur og ennfremur Eystein Jónsson fyrrverandi ráðherra. „Stjómmálaslagorð sértrúarflokks,, HREGGVIÐUR Jónsson hefur ritað útvarpsráði bréf, þar sem hann kvartar undan því að i útvarpinu sé leikin plata, sem sé mað stjórnmálaslagorðum „sér- trúarflokks“ eins og hann kallar það i bréfinu. Morgunblaðið sér ástæðu til þess að birta bréf Hreggviðs, sem fer hér á eftir: Útvarpsráð Skúlagötu 4, Reykjavík. í tilefni þess, að ég opnaði fyrir útvarp í bifreið minni kl. 13.25 í gær og heyrði þá óma stjórnmála- slagorð sértrúarflokks, sem vill ísland úr NATO, krefst ég þess af útvarpsráði að það sjái þegar til þess, að slík hrosshausa ljóðagerð verði tafarlaust tekin af dagskrá hljóðvarps og sjónvarps. Það er krafa hins almenna borgara, að útvarpsmenn sjái sóma sinn í því, að múgæsinga- söngvar stjórnmálalegra sértrúar- söfnuða séu ekki sífellt á dagskrá, erida brot á hlutleysisreglu ríkis- fjölmiðla. í þessu sambandi óska ég eftir að gerð verði könnun á því, hve oft áður nefnd skífa hafi verið spiluð í útvarpinu eftir útkomu hennar. Er þessi ósk gerð, vegna þess að mér hefur verið tjáð af fjölda fólks, að hún muni hafa verið leikin óeðlilega oft í hljóðvarpinu. Ég vil að loka vara útvarpsráð við að sofna ekki á vöku sinni í þessum efnum og bendi á að útgáfa hljómverka með stjórn- málaslagorðum, sem er ætlað að sefa fólk til fylgis við ákveðið sértrúartema, gæti auðveldlega leitt til svipaðra múgæsinga og voru samfara t.d. valdatöku Hitl- ers og Komeinis. Einnig má minna á nýlega sýnda þætti í sjónvarp- inu, þar sem glögglega sézt hvern- ig múgæsing kommúnista verður að einu allsherjar hneggi á fund- um þeirra. ílenzkt stjórnarfar er byggt á lýðræði, frjálsri hugsun og and- legri reisn, en ekki andlegu ofbeldi og lágkúrulegu gubbi stjórnmála- söngva, sem hellt er viðstöðulaust yfir fólk án vilja þess. Ég vil að síðustu minna á það, að þorri þjóðarinnar vill fá að vera í friði fyrir slíkum heila- þvotti í ríkisfjölmiðlum, hross- hausarnir geta látið sér nægja að lesa „bænablað" sitt og haft viðtöl við hrosshausa sína þar, mín og annarra vegna. Virðingarfyllst, Hreggviður Jónsson. Tveirnýir borgardómarar FORSETI Islands hefur að til- lögu dómsmálaráðherra skipað þá Friðgeir Björnsson og Garðar Gislason borgardómara i Reykja- vík frá 1. desember n.k. að telja. Friðgeir Björnsson er 38 ára að aldri, fæddur í Presthvammi í Aðaldal 18. október 1940. Hann varð stúdent frá MA 1963 og cand. juris. frá Háskóla íslands 1970. Sama ár varð hann fulltrúi hjá yfirborgardómaranum í Reykjavík og hefur verið það síðan, nema hvað hann var eitt ár fram- kvæmdastjóri þingflokks Fram- sókarflokksins. Hann hefur verið settur borgardómari um nokkurt skeið. Garðar Gíslason er 36 ára að aldri, fæddur í Reykjavík 29. Friðgeir Garðar Björnsson Gislason október 1942. Hann varð stúdent frá MR 1962 og cand. juris. frá Háskóla íslands 1967. Hann varð fulltrúi yfirborgardómarans í Reykjavík 1970 og settur borgar- dómari 1974. Umsækjendur um borgardóm- araembættin voru átta.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.