Morgunblaðið - 29.09.1979, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 1979
23
Evrópuþingid for-
dæmir mann-
réttindabrot
Tyrkland:
Lögr eglust j ór i
í Adana myrtur
— blóðugasti dagur ársins í gær
Strassbourg, 28. sept. AP.
EVRÓPUÞINGIÐ samþykkti í
dag nokkrar mjög harðorðar
yfirlýsingar þar sem fordæmd
eru meint mannréttindabrot í
Austur-Þýzkalandi, Argentínu,
Afganistan og Kambodiu. Aust-
ur-Þjóðverjar voru víttir fyrir að
hafa i gildi lög sem heimila að
mann megi dæma i allt að tólf ára
fangelsi fyrir að gefa útlendingi
upplýsingar. sem kunni að skaða
ríkið. Þessi samþykkt var gerð
m.a. á þeirri forsendu að lög
þessi væru býsna teygjanleg og
byðu upp á að þeim væri beitt
gegn menntamönnum þeim til
múlbindingar.
Um Kambodiu var sagt að lítið
sem ekkert hefði verið gert til þess
að leyfa Evrópumönnum og þó
umfram allt fulltrúum hjálpar-
stofnana að koma til liðs við
hrjáða íbúa landsins. Um Arg-
entínu var sagt að það væri
forkastanlegt hvernig stjórnin
sætti sig við það og ýtti undir að
líflátnir væru þúsundum saman
andstæðingar stjórnarinnar og
þúsundir manna hyrfu þar án þess
nokkuð væri að gert. Nauðungar-
og þrælkunarbúðir Argentínu
væru hið ömurlegasta mál.
■ í
ERLENT
Kissinger:
1976 — Sýrlendingar hrekja
palestínska skæruliða úr fjalla-
stöðvum austan Beirút.
1972 — Formósa slítur sam-
bandi við Japan.
1968 — Stjórnarskrá grísku
herforingjastjórnarinnar sam-
þykkt í þjóðaratkvæði.
1965 — Rússar viðurkenna her-
gagnasendingar til Norður-Víet-
nams.
1961 — Sýrland segir sig úr
lögum við Arabíska sambands-
lýðveldið.
1944 — Rússar ráðast inn í
Júgóslavíu.
1941 — Beaverbrook og Harri-
man fara til Moskvu að sjá um
birgðasendingar til Rússa.
1938 — Miinchen-ráðstefnan
Varðandi Afganistan var sagt
að þar væri fólk ofsótt í nafni
trúar, fjöldamorð væru framin og
borgarastyrjöld væri í aðsigi.
Hvatt var til að allar þjóðir slitu
stjórnmálasambandi við Afganist-
an.
Veður
víða um heim
Akureyrí 4 heiðakírt
Amsterdam 17 bjart
Aþena 33 bjart
Barcelona 23 lóttskýjaö
Berlín 14 bjart
BrUssel 15 skýjað
Chicago 27 skýjað
Denpasar, Bali 30 bjart
Feneyjar 21 heiðskírt
Frankfurt 20 skýjað
Genf 15 bjart
Helsinki 13 bjart
Hong Kong 28 bjart
Jerúsalem 35 bjart
Jóhannesarborg 24 bjart
Las Palmas 22 úrkoma grennd
Kaupmannahöfn 17 bjart
Lissabon 25 bjart
London 18 bjari
Madrid 25 bjart
Majorka 24 léttskýjað
Malaga 23 léttskýjað
Miami 29 rigning
Moskva 17 skýjað
Nýja Delhi 35 bjart
Naw York 24 skýjað
Ósló 14 bjart
París 20 skýjað
Rio 35 bjart
Raykjavlk 6 skýjað
hefst: Þjóðverjar fá Súdeta-
héruðin og verða allsráðandi í
Evrópu.
1923 — Umboðsstjórn Breta í
Palestínu hefst.
1918 — Búlgarar semja vopna-
hlé við Bandamenn — Banda-
menn brjótast gegnum Hinden-
burglínuna.
1911 - ítalir segja Tyrkjum
stríð á hendur og gera flotaárás
á Tripoli.
1875 — Uppreisn á Kúbu.
1650 — Franska þingið knýr
fram Bordeaux-friðinn sem nán-
ast bindur endi á aðra
Fronde-uppreisnina.
1567 — Annað trúarstríðið hefst
í Frakkiandi milli Húgenotta og
Karls IX.
Ankara, 28. september. Reuter.
LÖGREGLUSTJÓRINN í Adana,
fjórðu stærstu borg Tyrklands,
var í dag skotinn til bana og i
ýmsum borgum og bæjum Tyrk-
lands kom til átaka og eru þau
sögð hin mestu i iandinu á þessu
ári. Heimildir nákomnar stjórn
Bulent Ecevits, forsætisráðherra,
sögðu að óttast væri að þetta væri
skipulögð tilraun til að hleypa
upp væntanlegum og allmikil-
vægum aukakosningum til neðri-
deildar þingsins sem eiga að fara
fram eftir tvær vikur. í þeim
kosningum kynni svo að fara að
stjórn Ecevits yrði að segja af sér
að þeim loknum, en hún hefur nú
minnihluta i neðri deildinni.
Síðan Ecevit tók við árið 1978
hafa tvö þúsund manns látist í
pólitískum óeirðum í landinu, þar
af um 200 í Adana, en þar er
munur ríkra og fátækra einna
mestur í landinu. Adana er iðnað-
arborg og þangað leita efnaiitlir
Tyrkir og margir Kúrdar eftir
atvinnu.
Lögreglustjórinn Cevat Yurda-
kul var á leið til vinnu sinnar
þegar byssumenn réðust að bíl
hans og skutu á hann með rifflum.
Tengdafaðir hans og bílstjóri slös-
uðust lífshættulega. Yurdakul var
37 ára og tveggja barna faðir.
Adana var eitt af 13 héruðum
1521 — Suleiman I tekur Bel-
grad og hefur sókn inn í Ung-
verjaland.
1066 — Vilhjálmur bastarður
gerir innrás í England.
Afmæli — Tintoretto, ítalskur
listmálari (1518-1594) -
Robert Clive, enskigr hermaður
& stjórr.málaleiðtogi
(1725-1774) - Horatio Neison,
enskur sjóliðsforingi
(1758-1805).
Andlát — Gústaf Vasa Svíakon-
ungur 1560 — Emil Zola, rithöf-
undur, 1902 — Jóhannes Páll
páfi I 1978.
Innlent — Ritsímasamband við
útlönd opnað 1906 — Sættafund-
ur í Deildartungumáli 1180 — d.
Finnbiörn Helgason 1255 —
sem herlög voru sett í í desember
sl. eftir blóðug átök. í Urfa, ekki
ýkja langt frá landamærunum við
Sýrland, var skotið á bæjarstjór-
ann og konu hans er þau voru í
bifreið sinni í morgun. Ekki er
Moskva. 28. sept. AP.
HÁTTSETTUR sovézkur embætt-
ismaður sagði i dag að 44 band-
ariskar bækur sem voru bannað-
ar á Bókasýningu Moskvu i
þessum mánuði hafi prédikað
ofbeldi, kynþáttamismunun og
hefðu aukin heldur innihaldið
and-sovézkar kenningar. Hann
sagði að útgefendurnir sem hefðu
sent þessar vondu bækur á sýn-
inguna hefðu verið með því að
reyna að eitra andrúmsloftið og
koma á upplausn og ieiðindum.
Bókasýningin stóð í eina viku.
Talsmaður þessi sagði að bæk-
urnar bönnuðu hefðu allar geng-
ið í berhögg við einkunnarorð
Hannes Stephensen 1856 —
Fundur Sunnlendinga í Reykja-
vík til stuðnings niðurskurði
1866 — Síðasta kind af gamia
fjárstofninum á Suðurlandi fclld
1952 — Ráðgjafanefnd Efta
fundar í Reykjavík 1975 — f. dr.
Guðbrandur Jónsson 1888.
Orð dagsins — Þrjózkur maður
hefur ekki skoðanir, en þær
halda honum föstum — Alex-
ander Pope, enskt skáld
(1688-1744).
vitað hvort þau eru lífshættulega
slösuð. I Bitlis sem er í grennd við
landamæri írans var gerð
sprengjuárás á heimili bæjar-
stjóra, en þar er ekki vitað um
manntjón.
sýningarinnar sem hefðu verið
„bækur í þágu friðar og fram-
fara.“ Sjötíu og fimm þjóðir áttu
bækur á sýningunni.
Meðal bóka sem voru gerðar
upptækar voru „Animal Farm“
eftir Orwell, „Fyrsti hringurinn"
eftir Solzhenitsyn, „Political Po-
wer“ eftir Brzezinski, „The Face of
the Third Reich“ og „Hitler“ eftir
Joachim Fest svo og tvær bækur
eftir Svetlönu Stalínsdóttur.
Einnig var bönnuð æfisaga dans-
arans Baryshinkovs og sjálfsæfis-
aga Begins forsætisráðherra
ísraels og „My Country and the
World“ eftir Sakharov.
Húbner og
Tal ef stir
Moskvu. Rio do Janeiro.
28. sept. AP. Reuter.
SOVÉTMAÐURINN Mikael Tal
bar sigur úr býtum á millisvæða-
mótinu í Riga. Tal vann biðskák
sína við Bretann Miles í dag og
hefur þar með tryggt sér sigur í
mótinu, þótt ein umferð sé eftir.
Tal hefur 13 vinninga, en næstir
eru Polugaevsky frá Sovétríkjun-
um og Ribli, Ungverjalandi, með
11 vinninga. Adorjan, Ungverja-
landi, hefur 10 vinninga, Gheor-
ghiu, Rúmeníu, 9,5 vinninga og
eina biðskák. Aðrir keppendur
hafa færri vinninga.
V-Þjóðverjinn Hubner er efstur
á millisvæðamótinu í Rio de Ja-
neiro með 3 vinninga eftir 4
umferðir, en Torre frá Filippseyj-
um og Petrosjan, Sovétríkjunum
hafa 2,5 vinninga.
Spáir framboði Kenn-
edys gegn Carter
Ilamborg, 28. sept. Reuter.
HENRY Kissinger, fyrrverandi
utanrikisráðherra Bandaríkj-
anna, sagði í viðtali við v-þýzka
blaðið Bild Zeitung sem kom út i
kvöld að hann efaðist ekki lengur
um að Edward Kennedy myndi
keppa við Carter Bandarikjafor-
seta um að ná útnefningu.
Kissinger sagði: „Kennedy hefur>
gert lýðum ljóst að hann lítur svo
á að Carter sé ekki réttur maður á
réttum stað.“ Kissinger sagði að
Kennedy væri feiknavinsæll og
hefði máttuga bandamenn en
Carter hefði nokkuð sterka stöðu
sem ríkjandi forseti. Kissinger
gagnrýndi Carter fyrir að hafa
með framgöngu sinni fengið ýmsa
bandamenn Bandaríkjanna til að
ala með sér efasemdir um tryggð
og stuðning. „Ég tel það til
skammar hvernig við höfum kom-
ið fram við íranskeisara síðan
honum var ýtt úr sessi," sagði
Kissineer.
Þetta gerðist
Bönnuðu bækumar
boðuðu ofbeldi og and-
so vézkar kenningar