Morgunblaðið - 29.09.1979, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 29.09.1979, Qupperneq 26
Fjallað um atvinnumál aldraðra „Heiðraði starfsmaður Yður er hér með sagt upp störfum frá og með n.k. aramótum. Ástæðan er sú, að þér eruð orðin(n) fullra 70 a/a og eigið því að hætta störfum skv. lögum þar um. Forráðamenn fyrirtækisins þakka yður vel unnin störf i þágu þess í áraraðir og árna þér og fjölskyldu yðar velfarnaðar. Virðingarfyllst, starfsmannastjóri. “ Bréf svipuö þessu hafa borizt fjölmörgum einstakling- um, er þeir hafa náö 70 ára aldrinum. Hver eru viöbrögöin? Margir fagna komu þess aö sögn og telja sig þá geta sinnt ýmsum áhugamálum og notiö þess að „setjast í helgan stein“ eins og þaö er oröaö, enda margir hverjir orönir þreyttir og vilja njóta ávaxta lífstarfs síns. Aðrir eru ekki eins ánægöir, þeir hafa unniö fullan vinnudag alla ævi, hafa ekki nein sérstök áhugamál utan vinnunnar tíl aö snúa sér aö og eiga enn mikla starfsorku ónýtta. Sumir þeirra fyllast vanmetakennd og finnst þjóöfélagiö hafna sér. Þar sem jög erfitt viröist vera fyrir þetta fólk aó fá vinnu vió sitt hæfi, setjast margir meö hendur í skaut sér, láta sér leiöast og bíöa þess jafnvel aö hverfa alfariö af sjónarsviöi þessa lífs. Samfara því fer heilsunni hnignandi og allir hafa áreióanlega heyrt sagt frá því „aö honum eöa henni hafi hrakaö stööugt frá því hann/hún varð aö hætta vinnu." Í gamla bændasamfélaginu var ekki vandamál aö finna öldruóum verkefni viö sitt hæfi. Sú tíö er lióin og sú þjóöfélgasbreyting sem átt hefur sér staö hefur skapaö þetta vandamál, ásamt svo mörgum öðrum, þó auövitaö hafi mikið áunnist til framfara. Þegar fjallaö er um atvinnumál aldraóra spila ýmsir hlutir inn í, s.s. heilsufarsmál, fjármál og ýmsar félagsleg- ar aöstæóur sem of langt mál yrói aö tíunda hér. En staóreynd viröist vera aö þessi mál vilja oft gleymast í umræöum um hagsmuni aldraöra og er iðulega mest kapp lagt á aö byggt sé nógu mikió af elliheimilum og ýmiss konar stofnunum. Mbl. ræddi vió nokkra aðila, sem fjallað hafa um þessi málefni. Bar þeim saman um, aó nauósynlegt væri að atvinnumál aldraöra væru oftar til umræöu og lausn fundin á. Ýmis störf væru vel til þess fallin aö aldrað fólk gæti tekiö þau aö sér í hlutastörfum og þaö hlyti aó vera þjoöhagslega hagkvæmt að nýta þessar vinnufúsu hend- ur. Á löggjafarsamkundu þjóóarinnar hafa aldraöir ein- staklingar, á aldrinum 70—80 ára, verið viö ýmis konar vörslustörf og hefur að sögn veriö mikil eftirspurn eftir þessum störfum. Aó sögn skrifstofustjóra Alþingis hafa þessir starfskraftar reynst vel og e.t.v. veróur þaó til þess, að stjórnendur landsins, sem þar ráöa ráðum sínum, sjái til þess aó fleira aldraö fólk fái aögang aö störfum viö sitt hæfi. Hér á eftir fara viötöl viö'nokkra aöila, sem þekkja málin af eigin raun. Önnur málefni, sem snerta aöbúnaö aldraöra hérlendis, s.s. hjúkrunarmál, veröa tekin til umfjöllunar á síöurn Mbl. síóar. „Sjálf- ræðið skiptir aldraða mestu” „Samtokin voru stofnuð fyrir sex árum í þeim tilgangi fyrsta lagi að byggja ibúðir fyrir aldrað fólk, sem ekki kemst í þar til byggðar íbúðir á vegum borgar- innar, þ.e. fólk, sem á stórar og óhentugar ibúðir og hús fyrir og þarf og vill minnka við sig. börfin er ekki síður brýn nú vegna sihækkandi fasteigna- gjalda“ sagði Hans Jörgensson skólastjóri og formaður Samtaka aldraðra i Reykjavik, er Mbl. spurði hann um starfsemi sam- takanna og álit hans á atvinnu- málum aldraðra. „Einnig og ekki siður er ætlun samtakanna að koma upp skrif- stofu, sem getur orðið tengill milli aldraðra og stjórnenda vinnumarkaðarins. Einnig er ætl- unsamtakanna að koma upp skrifstofu, sem getur orðið teng- ill milli aldraðra og stjórnenda „Aldraða starfsfólkið samvizkusamt með afbrigðum” -segir Friðjón Sigurðsson skrifstofustjóri Alþingis FRIÐJÓN Sigurðsson skrifstofu- stjóri Alþingis hafði eftirfarandi að segja um reynslu sína af því að hafa starfsfólk undir sinni stjórn, sem eldra er en 70 ára: „Reynsla mín af þessu starfs- fólki er mjög góð. Aldraða starfs- fólkið er samvizkusamt með af- brigðum. Við höfum reyndar einn- ig aldursmörk, þ.e. 80 ár. Sumir gætu eflaust unnið lengur, aðrir kannski ekki svo lengi, en með því að hafa ákveðið aldursmark tel ég, að sársaukinn við að þurfa að hætta sé ekki eins mikill." Friðjón sagði, að þau störf sem aldraða fólkið væri í á Alþingi væru eingöngu ýmiss konar létt vörzlustörf, s.s. lestrarsalar- fata- og gangavarzla. Friðjón Sigurðsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.