Morgunblaðið - 29.09.1979, Page 27

Morgunblaðið - 29.09.1979, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 1979 27 Ilans Jörgensson formaður Samtaka aldraðra: vinnumarkaðarins. Einnig er ætl- unin að skrifstofan verði upplýs- ingamiðstöð og geti starfað sem milliliður á milli Tryggingar- stofnunar og aldraðra. Of margir veigra sér við að leita réttar sins i frumskógi kerfisins. Það er mjög mikilvægt fyrir fólk, sem verður að hætta störfum vegna 70 ára aldursmarksins, að það geti haft eitthvað við að vera. Ekki er alltaf um það að ræða að fólk þurfi að halda fullri atvinnu, né geti það, en hlutastarf er nauðsyn mörgum að geta gengið að.“ — Hvað vetður þú helst var við að aldraðir óski sér í þessu sam- bandi? „Ég veit að sjálfræðið skiptir það mestu og það vill hafa eitt- hvað fyrir stafni. Það er því þung raun að vera kippt úr sambandi við þjóðfélagið, eins og mætti orða það. Margir atvinnurekendur geta og vilja nýta þennan vinnukraft, og að hafa aldraða í vinnu er t.d. talinn sjálfsagður hlutur víðs vegar úti á landsbyggðinni. Mér finnst einnig, að meiri möguleika ætti að gefa með hlutastörfum. Mörg störf eru þess eðlis, að aldraðir gætu hæglega gengið að þeim að hluta, þ.e. í hálfsdags- eða tímastarfi. Lífeyrissjóðirnir mættu taka þetta til athugunar og gefa kost helmingagreiðslum úr sjóðum sínum. En auðvitað geng- ur þetta ekki með öll störf, mörg eru þess eðlis, s.s. ýmis konar stjórnunarstörf o.fl.“ — Finnst þeir þjóðfélagið hafa brugðist öldruðum að þessu leyti? „Eg er á því, að það verði að hafa einhver aldursmörk — ein- hverja viðmiðun, og 70 ára aldur- Hans Jörgensson form. Samtaka sldraðra. inn er eflaust ekki verri viðmiðun en einhver önnur fyrir neðan eða ofan. En það þarf að vera meira sveigjanleiki, enda hlýtur það að vera þjóðhagslega hagkvæmt að nýta hverja vinnufúsa hönd“. — Hversu margir félagsmenn eru í samtökunum og hvað er efst á baugi hjá ykkur nú? „í samtökunum eru rúmlega þrjú hundruð félagsmenn. Við erum að komast í samband við sams konar samtök á Norðurlönd- um og bindum nokkrar vonir við að það efli samtökin. Efst á baugi hjá okkur nú eru byggingarmálin. í undirbúningi er að hefja bygg- ingu íbúða á næsta ári. Við höfum sótt um lóðir á ákveðnum eftir- sóttum stöðum, en óvíst er um árangur. Við höfum reyndar feng- ið vilyrði fyrir lóð á góðum stað en ekkert skriflegt leyfi ennþá og á meðan svo er, er ekki hægt að segja ákveðið um framkvæmda- áætlun. Ég vil taka það fram, að nú er verið að ganga frá reglugerð um sölu og endursölu íbúða, sem byggðar verða á vegum samtak- anna þannig að tryggt verði að íbúðirnar haldist í eign aldraðra þó að um endursölu sé að ræða og ekki verði braskað með þær. Einn- ig verði tryggt að íbúðareigandi fái það fé, sem lagt hefur verið í íbúð, endurgreitt við endursölu með byggingarvísitöluhækkunum frá kaupdegi til söludags. Fastar reglur verða settar um sölufyrir- komulag og ráðstöfunarrétt. Þessi málefni eru mjög mikil- væg. Ég er viss um, að það er æskilegast fyrir alla aðila, að aldraðir geti sem lengst hugsað um sig sjálfir, elliheimilin eru ekki bezta lausnin, nema þá sem hjúkrunarheimili. En það hefur orðið mikil hugarfarsbreyting hérlendis í þessum málum síðustu 2-3 árin.“ Hans Jörgensson sagði í lokin, að hann teldi að aldraðir ættu að standa saman og vinna að þessum málefnum sjálfir. „Við verðum að hafa meiningar og koma okkar áliti til réttra aðila. — Með því móti náum við beztum árangri." Þær stöllur sögðust koma saman i herbergi 400 svo til daglega með handavinnuna sina. Guðriður er lengst til vinstri á myndinni, i miðið er Ingibjörg og Oddný lengst til hægri. Ljósm. Mbl. RAX. „Auðveldara að vera gömul kona en gamall karl” „Hér er gott að vera, þetta er eins og að vera heima hjá sér,“ sagði Guðríður Dagbjört Jóns- dóttir, vistmaður á Hrafnistu i Hafnarfirði, er við litum inn á herbergi 400 þar sem hún og Oddný Marteinsdóttir búa. Gest- komandi hjá þeim stöllum var Ingibjörg Jónsdóttir, sem einnig er vistmaður á Hrafnistu, og sátu þær við hannyrðir og röbbuðu saman. Herbergið bar með sér, að ekki hafa konurnar setið auðum höndum um dagana. Púða, dúka og ýmsa aðra listavei unna hluti gat að sjá hvert sem litið var. Ekki sögðust konurnar hafa gert mikið af þvi að selja handavinnu sína. Mest af henni færi til vina og vandamanna, enda ynnu þær hana sér til ánægju og lifsfylling- ar. „Handavinnan bjargar mér“ Guðríður, sem er fædd alda- mótaárið og því nær 80 ára gömul, sagðist hafa unnið við sitthvað um ævina, eftir því sem heilsan hefði leyft. „Ég hef þó alltaf haft eitthvað milli handanna og eyði tímanum hér mest við hannyrðir." Hún sagðist telja, að það væri mjög nauðsynlegt fyrir aldraða að hafa eitthvað fyrir stafni. „Það hefur margoft sýnt sig, að fólk, sem hættir snemma að vinna og hefur ekkert við að vera því leiðist, — það verður einmana og þá er ekki að spyrja að því að heilsunni hrakar." Guðríður sagði að henni fyndist hún vera komin á öruggan stað og sér liði vel á Hrafnistu. „Ég býst við því að verða hér fram að enda. Ég er nú orðin 80 ára og leiðin okkar allra liggur í sömu átt. Það þýðir ekkert að kvarta, þótt heils- an sé ekki eins og bezt væri á kosið, en handavinnan bjargar mér frá öllu athafnaleysi. „Heilsan mikilvægustu Oddný Marteinsdóttir er 73 ára að aldri. Hún sagðist hafa hætt vinnu vegna fötlunar fyrir nokkuð löngu síðan. „Ég held að það sé auðveldara að vera gömul kona en gamall karl. Við getum gripið í okkar handavinnu. Konur af minni kynslóð eru einnig vanari því að vera heima við. Karlarnir geta jú sett upp lóðir, hnýtt o.fl., en handavinnan og ýmis bústörf eru okkur tamari og ekkert sem stoppar okkur frá því að halda þeim störfum áfram." Oddný sagði að hún teldi að árafjöldinn skipti ekki mestu máli, heldur væri heilsan mikil- vægust. „Mér finnst ég ekkert sérstaklega gömul, ég er allavega staðráðin í því að lifa fram að aldamótum", sagði hún hressilega í lokin. „Einstaklingsbundið hvenær fólki finnst þörf á að hætta störfum “ Ingibjörg Jónína Jónsdóttir frá Gunnarsbæ í Hafnarfirði er 75 ára gömul. Hún sagðist hafa unnið úti fram til ársins 1974, en þá fundist hún vera orðin það fullorðin og þreytt að hún hafi hætt. „Það er áreiðanlega mjög einstaklings- bundið hvenær fólki finnst þörf á að hætta vinnu. Ég á t.a.m. systur, sem er 74 ára og vinnur enn við símavörzlu. Hún fékk uppsagnar- bréf, þegar hún var 70 ára, en síðan hefur ekki verið stuggað við henni og hún ætlar að halda áfram starfi sínu meðan það ástand helst.“ Ingibjörg sagðist vera mjög sátt við lífið og tilveruna. „Heilsan er góð, hér er ég frjáls allra ferða minna og hef alla þá þjónustu sem ég þarf á að halda og ágætan félagsskap jafnaldra minna hér. Karl Helgason „Að finna sig megn- ugan en vera hafnað skapar vanmetakennd og ýmsan krankleika ” — segir Karl Helgoson þingvörður Karl Helgason þingvörður, fyrrv. póst- og símstöðvarstjóri á Akranesi og Blönduósi, er 75 ára að aldri. Hann hætti formlega störfum hjá hinu opinbera 70 ára, skv. gildandi lögum þar um. Fyrir atbeina góðra manna, eins og hann orðar það sjálfur, fékk hann starf á Alþingi sem þingvörður og hefur starfað við það í fjóra vetur. Við hittum Karl að máli niðri i Kringlu i alþingishúsinu og spurðum hann álits á atvinnumálum aldraðra og hans reynslu i þeim efnum. „Ég hætti störfum sem póst- og símstöðvarstjóri á Akranesi árið 1973 og fékk mig fluttan í sím- stöðvarhúsið í Reykjavík þar sem ég taldi meiri möguleika á að fá starf eftir 70 ára aldurinn í Reykjavík. Með hjálp góðs manns fékk ég þá starf hjá Jóni Loftssyni og vann þar í þrjá mánuði en varð þá að hætta vegna erfiðra að- stæðna á atvinnumarkaðinum. Þá var ég svo lánsamur að fá þing- vörzlustarfið fyrir atbeina góðra manna og hef verið hér á fimmta ár.“ — Hvernig fannst þér að standa frammi fyrir því sjötugur að þurfa að hætta þinu lífsstarfi og vera í óvissu með að fá annað starf? „Ég vissi alltaf hverjar reglurn- ar voru og gerði mér ljóst að ég þyrfti að hætta við þennan aldur. En það kom nú þannig út, að dagurinn var allt í einu runninn upp, án þess að ég hefði gert mikið í málinu. Það er alltof algengt, að menn koðni niður við það að þurfa að hætta að vinna, en þetta er mjög persónubundið. Sumir eru við hestaheilsu, aðrir farnir að gefa sig. En menn verða að hafa eitt- hvað við að vera, tómstundastarf getur t.d. alveg eins komið í stað atvinnu." — Telur þú að aldraðir geti þá vel komist af fjárhagslega? „Ég veit að margir eiga nú í erfiðleikum á þessum vitlausu verðbólgutímum, en flestir hafa þó eftirlaunin og síðan er það ellistyrkurinn svonefndi. Mér finnst að það sé bráðnauðsynlegt að finna nýtt orð yfir hann, t.d. aldurslaun. Það á ekki að láta aldraða fá það á tilfinninguna að þeir séu styrkþegar og öðrum til byrði. Þegar fólk hefur unnið alla sína ævi og gengið upp í sinni vinnu, er því nógu erfitt að þurfa að hætta störfum svo slík hugsun bætist ekki ofan á. Aldurslaun, eða jafnvel aldursverðlaun nær betur hugsuninni á bak við þessi laun, að mínu áliti. — Talandi um aldur — hvenær verður maður gamall? „Þar kemur nú heilsan fyrst til. Ef heilsan er í góðu lagi þá getur fólk verið ungt í anda þrátt fyrir langan lífaldur. Ég held að menn séu jafngamlir og þeir hugsa sér að þeir séu — en við verðum að miða tímann við eitthvað og þá nefnum við ár.“ — Hvernig finnst þér búið að öldruðum hérlendis? „Það er ákaflega vel búið að öldruðum, en það mætti gjarnan skapa aðstöðu til að fólk þurfti ekki að setjast með hendur í skauti sér. Fólk verður þreyttara á að gera ekki neitt en að hafa eitthvað fyrir stafni. Að finna sig megnugan þess að gera þjóðfélag- inu gagn, en vera hafnað, skapar vanmetakennd og ýmsan krank- leika.“ — Hvernig er atvinnu þeirra, sem komnir eru yfir 70 ára aldur- inn háttað hér á Alþingi? „Þetta eru nú eingöngu vörzlu- störf sem við erum í hér. Við störfum aðeins meðan þing stend- ur yfir og hér er einnig aldurs- mark, þ.e. 80 ár. Ég tel að þetta hafi komið vel út, samstarfið skiptir máli, en ekki aldurinn. Ef skapsjafnvægið er í lagi þá gengur allt vel. Mér hefur stundum komið í hug, að einhvers konar hæfnispróf væri réttari leið en aldursmörk, en það er auðvitað mun erfiðara við- fangs." — Hvað með með framtíðina, kvíðir þú 80 ára markinu og því sem þá tekur við? „Eg loka huganum fyrir því. Ég hef þó músíkinaa til að hverfa til. Ég var organisti í 15 ár og hef mjög gaman af sígildri músík. Sonarsonur minn, Karl Sighvats- son, hefur verið mikið í músík og spilaði oft opinberlega þá tegund hennar sem höfðar til unga fólks- ins. Hann kom einu sinni fram í sjónvarpi og ég hlustaði á útsend- inguna og hafði gaman af. — Já, ég held að músíkin verði mitt athvarf, þegar mér verður alfarið hafnað á vinnumarkaðinum." Karl sagði í lokin, að hann vildi sérstaklega ítreka, að eins mikið og gert væri fyrir aldraða á sviði heilbrigðismála o.fl. þá mætti hafa sérstaklega í huga, að fólk félli ekki algjörlega úr starfi, — því væri gert mögulegt að vinna að einhverju við sitt hæfi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.