Morgunblaðið - 29.09.1979, Síða 30

Morgunblaðið - 29.09.1979, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 1979 Vœnn brúskur af sauðahnappi. Gullintoppa - Geldingahnappur Armeria GULLINTOPPAN öðru nafni GELDINGAHNAPP- URINN vex villtur í móum og melum um land allt, er því alþekktur og má teljast eitt af fallegustu blómunum sem spretta út um hagann á íslandi. Hann er það fallegur að gaman er að ætla honum pláss í garðinum — og auðvelt er að ná sér í plöntu af honum. I görðum unir hann sér vel og getur myndað allstóra, þétta og hvelfda þúfukolla. Geldingahnapp- urinn okkar — Armeria maritima — er ljós lillableikur að lit og lyftir hnöttóttum þéttum blómkollum sínum um það bil 18—20 sm upp úr jarðlægum þúfunum sem blöð hans mynda. Blöðin eru mjó, strik- eða þráðlaga og heilrend og líkjast nokkuð grasstráum. Það þarf því nokkra natni til að láta ekki grasstrá komast inn í þúfurnar og rétt að athuga það rækilega hvort að grasstráin geri sig ekki of heimakomin. Til eru ýmis afbrigði af Armeria. SAUÐAHNAPPURINN (Armeria caepitosa) er lág- vaxinn með stutt mjó blöð og rauðbleik blóm, ættaður frá Spáni. Armeria Bechwood hefur stóra dökkbleika blómkolla, Armeria Bevan er hárautt lágvaxið afbrigði. Armeria maritima „Vindictive" er nokkru hærri en íslenska armerían, þéttur og blómsæll, rauður að lit. A. maritima alba er gott hvítt afbrigði. ÖIl A. maritima-afbrigðin eru auðveld í ræktun. A. Ruby Glow og A. Bloodstone eru hávaxnari en A. maritima. Bloodstone hefur dýpsta rauða litinn. A. Bees Ruby hefur breiðari og gljáameiri blöð og verður um það bil 50 sm á hæð. Ber allstór bleik blómhöfuð. Það er fallegt afbrigði. Hávaxnari afbrigðin eru nokkru erfiðari í ræktun, þurfa skilyrðislaust vel framræsta jörð og sólríkan stað. Ef blómhöfuðin eru fjarlægð eftir blómgun svo jurtin leggi ekki erfiði í að bera fræ, heldur plantan áfram að koma með ný og ný blóm fram eftir öllu sumri. Armeríur kjósa fremur súran jarðveg, gott að blanda saman fínni möl og mómold. Þær eru langlífar sé þess gætt að velja þeim ekki votlendan vaxtarstað. Fara vel fremst í beði, sem raðplanta, eða í steinhæð. Auðvelt að fjölga hvort sem vill af fræi eða með skiptingu. S.Á. á EF ÞAÐ ER FRÉTT- »91 NÆMTÞÁERÞAÐÍ -f MORGUNBLAÐINU Vestfirðingar ekki á éitt sáttir um leyfis- veitingu Arnarflugs Heilmikið fjaðrafok hefur orðið um nýveitt flugleyfi Arnarflugs á þeim áætlunarleiðum flestum sem Flugfélagið Vængir hafði áður. Hafa ýmsir verið til kallaðir að standa fyrir máli sínu, samgöngu- ráðherra, flugráðsmenn, flugfé- lagaforstjórar og svo frv. Þá hafa meðmæli sveitarstjórnarmanna með Arnarflugi verið talin af hæpnum toga, og bellibrögðum verið beitt í þeim efnum. Inn í þetta spinnst svo landshlutapólit- ík sem eðlilegt er, einkum þar sem flugfélög í þremur landsfjórðung- um sóttu um flugleyfi í sínum fjórðungum, en fengu ekki nema að litlu leyti. Er ekki óeðlilegt að þessu sé gaumur gefinn með því að ráðherra kveðst hafa stuðzt mjög við vilja heimamanna í leyfisveit- ingum. Á Vestfjörðum er Flugfélagið Ernir starfrækt, með aðsetri á ísafirði. Hefur það annast sjúkra- flug í fjórðungnum svo og tilfall- andi leifuflug. Flugfélagið á tvær nýlegar vélar, og hefur allgóða aðstöðu á Isafjarðarflugvelli. Hörður Guðmundsson, flugmaður og forstjóri flugfélagsins, hefur lýst yfir furðu sinni opinberlega á stuðningsyfirlýsingu sveitar- stjórna við umsókn Arnarflugs og telur þar skjóta mjög skökku við orð og ályktanir sveitarstjórnar- manna á Vestfjörðum, m.a. Fjórð- ungsþings Vestfirðinga í septem- ber ’78 þar sem lýst var yfir ánægju og félaginu færðar þakkir fyrir vel unnin störf. Undirritaður gerði nokkra út- tekt á sjónarmiðum beggja aðila og sem hér birtist. Afstaða sveitar- félaga furðuleg Við fundum Hörð Guðmunssson að máli á afgreiðslu Flugfélagsins Arna á ísafjarðarflugvelli þar sem hann var í önn dagsins að afgreiða vél sem var að leggja upp til Hólmavíkur. „Mér finnst afstaða sveitarfé- laganna furðuleg. Menn hafa látið blekkjast af áróðri Arnarflugs- manna, sem þrýstu á um að skeyti yrðu send til ráðuneytisins." Veiztu til að sveitarstjórnarfundir hafi verið haldnir um málið? „Mér er ekki alfarið kunnugt um það, en ég veit að til dæmis á Suðureyri var ekki haldinn form- legur fundur, heldur munu menn hafa talað sig saman. Sveitar- stjórinn var að koma úr fríi og vissi lítið um málið fyrr en það var afgreitt frá hendi heimamanna, slíkur var flýtirinn." Höfðuð þið hjá Örnum nægilegt ráðrúm til að kynna ykkar sjónar- mið? „Ja, við sóttum um eins og aðrir og lögðum fyrir hvernig við hygð- umst þjóna þessu flugi. Meiningin var að fljúga 2 beinar ferðir til Reykjavíkur í viku og auk þess 3—4 ferjuflug fyrir Flugleiðavélar á ísafirði, Þingeyri og Patreks- firði. Eftir að hugur Stranda- manna kom í ljós kváðumst við einnig geta tekið upp beinar ferðir á rútunni Hólmavík — Gjögur — Reykjavík." Nú kynnu sumir að álykta, að þessi meðferð máls hjá ráðuneyti væri vísbending um vanhæfni landshlutaflugfélaga til að sinna því flugi sem Flugleiðir þjóna ekki. Hvernig horfir málið við þér? „Ég veit ekki hvað skal segja, en hér er verið að mæla með og veita óþekktu flugfélagi flugleyfi og auk þess félagi sem engan flugflota á til innanlandsflugs. Þá vil ég minnast frekar á afgreiðslu málsins sem var mjög óvenjuleg. Málið kom ekki fyrir flugráð, sem venja er, en hins vegar voru til kallaðir einstakir flugráðsmenn, t.d. Leifur Magnús- son, sem er varaform. flugráðs og jafnframt stjórnarmaður í Arnar- flugi. Auk þess má geta þess, að Vængjaflugmenn þeir sem þarna ganga til liðs við Arnarflug eru 4 og aðeins tveir sem flogið hafa í mörg ár hjá Vængjum. Varðandi spurninguna um flýt- inn á þessu vil ég lýsa yfir, að okkur gafst raunverulega ekki rúmráð til að kanna okkar sjónar- mið við sveitarstjórnir, enda var ef til vill ekki til þess ætlast. Hvað með nýtingu á flugvéla- kosti ykkar nú? „Það er nú kannski ekki rétt að tala um nýtingu í sjúkraflugi, en ef verkefni hefðu aukist, hefði opnast leið til betri nýtingar og til að kaupa meiri vélakost til að þjóna vestfirzkum byggðum. Það sem hér var um að ræða voru verkefni sem við gátum fyllilega staðið við, en þegar til kastanna kemur virðist þurfa að sækja allt til Reykjavíkur." Eðvarð Sturluson, oddviti í Súganda- firði: Sættum okkur ekki við afturför „Hörður er alls góðs maklegur, hann er búinn að sýna það og sanna. Það sem vakti fyrir okkur var að bæta þjónustuna t.d. með tveimur Islandervélum, hér er það skammur tími í skammdeginu sem hægt er að fljúga og því þarf góðan vélakost. Nú, það var ekki um það að ræða að Hörður kynnti sínar áætlanir fyrir okkur, aftur á móti höfðu þeir samband frá Arnarflugi. Viðar Hjálmtýsson, sem flogið hefur lengi fyrir Vængi, kynnti það sem fyrir lá. Væntanleg kaup á flugflota, tækniaðstöðu og svo frv. Okkur fannst að það yrði að leysa þessi mál á einu bretti, þetta sem fyrir Herði vakti var aðallega ferjuflug. Nú, þetta kom skart yfir menn og lítill tími til að gaumgæfa málið." Hélduð þið hreppsnefndarfund um málið? „Nei, menn töluðu sig saman og þetta var einlægur vilji manna. Það var vont að fá upplýsingar, það er rétt, blöðin í verkfalli og svo frv. Annars var ég að koma úr fríi og málið þá útkljáð." Veitt viðurkenning fyrir snyrtilega umgengni á lóð og húsi í Bústaðarsókn Bræðrafélag tíústaða- kirkju hefur á nokkrum undanförnum árum veitt viðurkenningar fyrir „Snyrtilega umgengni á lóð og húsi“ í sókninni. Að þessu sinni fékk við- urkenningu félagsins hús- eignin að Steinagerði 19, eign hjónanna Steinunnar Jónsdóttur og Arinbjörns S. Steindórssonar. Fleiri garðar eru í fremstu röð sem oft áður, má þar til dæmis benda á húseignirnar Breiðagerði 25, Steinagerði 6 og 17 og Teigagerði 6,11, 14 og 17. Ennfremur vill nefndin sem að þessari athugun stóð vekja athygli á báðum almenningsgörðunum á þessu svæði, sem eru skemmtilegir og frábær- lega vel hirtir, að því er segir í frétt frá Bræðrafél- aginu. Flugleiðaskák- in um helgina SKÁKKLÚBBUR Flugleiða efnir um næstu helgi til skákmóts á Hótel Esju í Reykjavík og stend- ur það laugardag og sunnudag. í mótinu taka þátt 24 lið fyrir- tækja og skákklúbba. Móttið verður með nýju sniði, tefldar 15 mínútna skákir og allar sveitir tefla saman. Þrenn sveita- verðlaun verða veitt fyrir þrjár beztu skákirnar og verðlaun fyrir beztan árangur einstaklinga. Keppendur verða 72 auk um 40 varamanna. Skákstjóri er Friðrik ólafsson stórmeistari og vara- skákdómari Jóhann Þórir Jónsson. Flugleiðaskákin hefst kl. 9.30. Ottó A. Michelsen og Sigurður Magnússon úr stjórn Bræðrafélags Bústaðasóknar afhenda Steinunni Jónsdóttur og Arinbirni S. Steindórssyni viðurkenninguna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.