Morgunblaðið - 29.09.1979, Page 35

Morgunblaðið - 29.09.1979, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 1979 35 Ég vil beina því til nýnema að hagnýta sér vel fræðslu umsjón- arkennara sinna um námsferil og námskröfur. Og þá vil ég ekki síður minna þá á mikilvægi skóla- sóknar, sem er lykillinn að árangri þeirra og brautargengi í skólan- um. III Á skólaárinu sem nú er að hefjast, skólaárinu 1979—1980 verða nemendur skólans sennilega sem næst 1340. Samkvæmt töflu- gerð og innritun eru nemendur talsvert fleiri eða 1492. Af 1046 nemendum er nám stunduðu á síðastliðnu skólaári halda 894 áfram námi. Innritaðir nýnemar eru 598. Innritaðir nýnemar skipt- ast sem hér segir á námssvið skólans. IV Það er sagt, að frá aldamótum hafi Vesturlandabúar lifað þrjú tímaskeið. Hið fyrsta er kennt við háleitar hugsjónir og vonir. Það var bjartsýnisskeið aldamótanna og fyrstu áratuganna á eftir. Næst tók við tímaskeið bölsýnis og kvíða. Það var tímabil þrjátíu ára stríðsins síðara frá 1914 til 1945. Dagurinn í dag hinn fyrsti sept- ember, er minningardagur eins af dapurlegustu atburðum þessa annars skeiðs, en 1. september 1939 hófu Þjóðverjar innrás sína í Pólland, sem tveim dögum síðar, 3. september, leiddi til heimsstyrj- aldarinnar síðari, en það var annar þáttur þrjátíu ára stríðsins. Eftir síðari heimsstyrjöldina telja menn að þrátt fyrir allt hafi hið þriðja skeið byrjað og kenna það við frelsi og frelsun þjáðra og þjakaðra einstaklinga jafnt sem þjóða. Sé þetta rétt ályktað verður hlutur menntunar og menningar meiri og stórbrotnari en nokkru sinni fyrr. Hlutverk allrar mennt- unar er að auka þekkinguna og stuðla að raunverulegri sann- leiksleit. Það er sannleikurinn einn sem getur gert mennina frjálsa. Skyldur skólanna verða að sama skapi meiri, skuldin stærri. Hér, þar námsins föKur fræin falla í un^an hugarreit geisla, dögg og gródrarhlæinn. Guð. frá himni þínum veit. Komið heil til starfa, verið heil í starfi. námsbraut verður tekin upp í vetur, læknaritarabraut. Eins og upptalning þessi ber með sér hafa nú þegar mörg hundruð nemenda, líklega milli 400—500 nemendur lokið prófum frá Fjölbrautaskólanum í Breið- holti, þar af ellefu lokið sveins- prófi og 50 stúdentsprófi. Á almennu bóknámssviði, menntaskólasviði 119 nemendur. Á heilbrigðissviði 86 nemendur. Á hússtjórnarsviði 54 nemendur. Á listasviði 41 nemandi. Á tæknisviði 101 nemandi. Á uppeldissviði 63 nemendur. Á viðskiptasviði 134 nemendur. Vegna tengsla Ármúlaskólans í Reykjavík og Kvennaskólans í Reykjavík við Fjölbrautaskólann í Breiðholti var umsóknum vísað til þeirra sem hér segir: Til Ármúla- skóla 25 nemendum á heilbrigðis- sviði og 25 nemendum á viðskipta- sviði. Til Kvennaskólans í Reykjavík 37 nemendum á uppeld- issviði. Eldri nemendur Fjölbrautaskól- ans í Breiðholti skiptast á náms- svið sem hér segir: Á almennu bóknámssviði, menntaskólasviði 189 nem. Á heilbrigðissviði 142 nem. Á hússtjórnarsviði 34 nem. Á listasviði 66 nem. Á tæknisviði 156 nem. Á uppeldissviði 89 nem. Á viðskiptasviði 218 nem. Samkvæmt þessu yrðu nemend- ur skólans veturinn 1979—1980 1346 talsins og hefði fjölgað um Skólasetning i Bústaðakirkju. 300 frá siðasta skólaári, en þá hefur verið reiknað með að 12% skráðra nemenda mæti ekki. Ég býð hinn fjölmenna nemendahóp velkominn til skólastarfs. Eins og að líkum lætur fjölgar kennurum skólans. Settir voru 13 nýir kennarar við skólann frá 1. ágúst, flestir í raungreinum. Verða stöðugildi skipaðra og settra kennara þá 68 alls, en kennarar fleiri þar sem sumir eru í hlutastarfi. Þá munu 45 stunda- kennarar starfa við skólann næsta vetur. Ég býð kennara alla vel- komna til verka og óska þeim svo og nemendum þeirra heilla og blessunar. Eins og flestir er eitthvað þekkja til Fjölbrautaskólans í Breiðholti vita eru stjórnunar- störf rækt af tveim sveitum manna. Annars vegar eru fjórir aðilar, skólameistari, aðstoðar- skólameistari, námsráðgjafi og áfangastjóri. Hins vegar hafa ver- ið 12 aðilar, deildarstjórar kennsludeilda skólans. Þær breyt- ingar hafa orðið meðal fjórmenn- inganna frá síðasta skólaári að skipt hefur verið um áfangastjóra. Ingvar Ásmundsson sagði stöðu sinni lausri frá haustannarlokum um miðjan janúar á þessu ári. Við áfangastjórastarfinu hefur tekið Stefán Andrésson sem áður var kennari við skólann. Um leið og ég þakka Ingvari störf hans og marg- vísleg umbrot í þágu Fjölbrauta- skólans í Breiðholti býð ég Stefán Andrésson velkominn til vanda- samra og mikilvægra verka. Þá hefur dr. Bragi Jósepsson náms- ráðgjafi skólans verið ráðinn til háskólakennslu í Bandaríkjunum í eitt ár, en auk þess hefur mennta- málaráðuneytið sett dr. Braga sem lektor við Kennaraháskóla íslands. Virðast því allar horfur á að dr. Bragi Jósepsson námsráð- gjafi sé að hverfa frá Fjölbrauta- skólanum í Breiðholti og líklegast að hann taki við kennslu við Kennaraháskóla íslands þegar umsömdum starfstíma lýkur í Bandaríkjunum. Enn er samt ekki að fullu frá þessum málum gengið og því kveðjum við dr. Braga ekki við þessa skólasetningu þótt við óskum honum velfarnaðar við önnur störf erlendis næsta ár og biðjum honum heilla og farsældar hvar sem spor hans liggja og honum verður vandi á hendur falinn. Breytingar verða verulegar á skipan deildarstjóra á næsta ári. Tveir deildarstjórar láta af störf- um, Gísli Magnússon í íslensku- deild og Leifur ísaksson í tréiðna- deild og skulu þeim þökkuð heilla- rík störf við fyrstu mótun um- ræddra kennsludeilda. Deildar- stjórum mun fjölga verulega og verða alls 18 talsins. Ég mun ekki lesa nöfn þeirra hér, en geta þess sérstaklega að tvær nýjar kennsludeildir hafa verið stofnað- ar, annars vegar íþrótta- og fé- lagsstarfadeild, hins vegar tón- menntadeild. Um deildir þessar og framtíðarmöguleika þeirra mætti margt segja og ætti að segja, þótt ekki verði gert að sinni. Byggingarmál Fjölbrautaskól- ans í Breiðholti bæri að ræða á stundu sem þessari. Vonir standa til að byrjað verði á svokallaðri E-álmu skólans á þessu ári. Þar á öll stjórnunar- og þjónustuað- staða skólans að fá framtíðar- húsnæði svo og bókasafn, mötu- neyti, fyrirlestrarsalir, tónmenntakennsla að nokkuð sé talið. Fyrstu iðnsveinar er brautskráðust frá skóianum, húsasmiðir. Fjölbrautaskólinn í Breiðholti er settur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.