Morgunblaðið - 29.09.1979, Page 38

Morgunblaðið - 29.09.1979, Page 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 1979 Minning: Margrét Stefánsdóttir Vestmannaeyjum Fædd 10. febrúar 1898. Dáin 18. september 1979. Hún verður jarðsungin frá Landakirkju í dag, kona sem öllum mun Ijúft að minnast. Margrét Stefánsdóttir var fædd á Hofi í Norðfirði 10. febrár 1898, yngsta barn hjónanna Jónínu Sig- urbjargar Jónsdóttur og Stefáns Þorkelssonar. Hin börnin voru Þórður sem enn er á lífi, búsettur í Vík í Mýrdak, og systirin Guð- finna sem látin er fyrir nokkrum árum. Þau hjón hafa sjálfsagt haft heldur lítið fyrir sig að leggja. Stefán var skaftfellingur og aldamótaárið flyzt hann með fjöldkylduna í sína heimasveit; þar deyr hann svo þetta sama ár, og þá er fjölskyldan leyst upp. Eldri börnunum var komið í fóst- ur til vandalausra, en Margréti litlu sem þá var tveggja ára hafði móðirin hjá sér og réðst með hana í vistir sem oft vildu verða misj- afnar og kom það stundum illa niður á barninu. Þó minntist Margrét ávallt með þakklæti veru sinnar á sumum bæjum, eins og t.d. í Garðakoti hjá Jónatan og Guðfinnu og á Hvoli hjá þeim Eyjólfi og Arnþrúði. En þótt systkinin færu svona hvert í sína áttina, héldu þau þó sambandi sín á milli og var alla tíð síðan einstaklega kært með þeim, jafn- vel svo að til þess var tekið. Einkum urðu þó Margrét og Guð- finna samrýmdar, enda eignuðust þær seinna sinn bróðurinn hvor. Þegar Margrét óx upp, fór hún sjálf í vistir og var vinnukona á ýmsum bæjum í Mýrdalnum. Um tvítugt réðst hún svo að Neðra- Dal og giftist einum syninum þar, öðlingsmanninum Sigurði Þórðar- syni. Þau Margrét og Sigurður hófu búskap sinn í Vík í Mýrdal, en fluttust svo fljótlega til Vest- mannaeyja, þar sem þau áttu heima æ síðan, lengst af á Boða- slóð 2. Sigurður var harðduglegur, vann aðallega við fiskvinnu og tókst vel að sjá heimili sínu farborða, þótt oft væru erfiðir tímar. Þar naut hann líka Mar- grétar, sem alltaf stóð vel fyrir sínu sem húsmóðir á stóru heimili. Oft bætti hún því á sig að taka börn til lengri eða skemmri dvalar og öllum nágrönnum sínum var hún sérlega hjálpleg, enda oft til hennar leitað, bæði með sauma- skap og annað. Henni var mjög sýnt um alla handavinnu og greip gjarnan í eitthvað slíkt sér til afþreyignar fram á síðustu ár. Annað sem hún hafði sér til gamans voru stofublóm, enda átti hún oftast mörg og falleg og hugsaði frábærlega vel um þau. Fáum hefði virzt svo, að Mar- grét Stefánsdóttir hefði miklum manni að má. Hún var lítil kona og veikbyggð og ekki alltaf heilsu- hraust, en seiglan var ótrúleg og viljinn að láta ekki standa upp á sig.Hún var létt í skapi og ekki þannig, að hún kynni að hlífa sér, allra sízt þegar hennar nánustu áttu í hlut, þá „vóg hún upp björg á sinn veika arm.“ Þannig tók hún dóttur sína til sín, nýorðna ekkju með tvö ung börn, og hafði hana hjá sér og börnin fram að fer- mingaraldri — og var þó ekki húsplássið mikið á Boðaslóðinni. Þau Margrét og Sigurður eign- uðust fimm börn, og eru þau þessi, talin í aldursröð: Margrét sem dó ungbarn, Sigurgeir, símverkstjóri, Magnús, sjómaður, Sigurbjörg, Frænka mín, SIGRÍÐUR ÞÓRÐARDÓTTIR STEFFENSEN, Ijósmyndari, Grattisgötu 55, lézt f Landspítaianum 14. september. Utförin hefur fariö fram í kyrrþey samkvæmt ósk hinnar látnu. Anna St. Siguröardóttir. Dóttir mín og systir okkar INGIBJÖRG ÁSTA GUÐMUNDSDÓTTIR, Lindargötu 6, Reykjavík andaöist 27. september. Geirþóra Astróösdóttir, Gunnhildur Guömundsdóttir, Ingvi Guömundsson, Áslaug Guömundsdóttir. t HARALDUR S. GUÐMUNDSSON, stórkaupmaöur, Spítalastíg 8, Reykjavfk, verður jarösunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík, mánudaginn 1. október kl. 15. Sigurbjörg Bjarnadóttir, Harald G. Haraldsson, Elísabet Gunnarsdóttir, Sólveig Haraldsdóttir Hart, Neil Hart, Sigrföur Haraldsdóttir, Sigurjón Sigurösson, Grfmur Haraldsson, Svava Axelsdóttir, Sigríöur G. Benjamin og barnabörn. t Þökkum innilega auðsýnda samúö og vinarhug viö fráfall og útför KRISTJÁNS BJÖRNSSONAR fré Kirkjulandi Vestmannaeyjum, Petrónella Ársælsdóttir, Léra Guöjónsdóttir, Laufey Kristjánsdóttir, Birgir Hannesson, Birna Kristjénsdóttir, Jón Hannesson, Kristjén Kristjénsson, Sigríður Árnadóttir, Ásta Gunna Kristjénsdóttir, Steinarr Steinarrsson, barnabörn, barnabarnabörn og systkini hins létna. Sigríður Þórðardóttir Steffensen —Minning talsímavörður, og Háarður, yfir- verkstjóri hjá Vestmannaeyjabæ. Barnabörnin og barnabarnabörn- in munu nú orðin um tuttugu. Fyrir nokkrum árum fluttust þau Margrét og Sigurður til Há- varðar sonar síns í nýtt og fallegt hús við Bröttugötu og seldu þá fljótlega hús sitt á Boðaslóðinni. Þetta þýddi þó ekki það, að Margrét væri að setjast í helgan stein, því hún sá um heimilið eftir sem áður fyrir Sigurð og Hávarð son sinn — og gerði það af mestu prýði eins og hennar var von og vísa. Þarna kunnu gömlu hjónin einstaklega vel við sig, en fyrir rúmu ári missti hún Sigurð sinn, og þá varð allt einmannalegra, að minnsta kosti fyrst í stað. Há- varður var mikið úti við vinnu sína og henni fannst fáir koma, miðað við það sem áður var á Boðaslóð. Ég held að hún hafi ekki fyllilega gert sér grein fyrir því, hve jafnöidrunum fækkaði og að gömlu nágrannakonurnar voru nú flestar farnar burt eða horfnar úr þessum heimi. Þótt Margrét væri komin á níræðisaldur, fór því fjarri að hún væri orðin södd lífdaga. Starfsgleði átti hún enn og fann sér alltaf verkefni, eftir því sem kraftarnir leyfðu. Hún var ánægð hjá Hávarði sínum í húsinu við Bröttugötu, þar leið henni vel og hefði viljað lifa sem allra lengst, en þá kom til hennar sá sem ekki spyr um vilja manna. í vor sem leið var hún lögð inn á spítala með alvarlega meinsemd í lunga, og síðan tók við langt og þjáninga- fullt dauðastríð sem hún háði af miklum hetjuskap og æðruleysi, unz yfirlauk 18. þ.m. Þegar ég enda þessar línur sé ég hana fyrir mér, bjarta á svip og hressa í máli, brosið dálítið kankvíslegt. Betri tengdamóður hefði ég varla geta eignast, og veri hún blessuð fyrir það. Geir Kristjánsson Fædd 1. janúar 1894. Dáin 14. sept. 1979. Hún hét fullu nafni Sigríður Guðfinna Kristjana og fæddist á nýársdag árið 1894 að Kjarans- stöðum í Dýrafirði. Foreldrar hennar voru Jónína Þórðardóttir og Þórður Páll Kristjánsson bóndi að Kjarans- stöðum. Þórður var hagleiksmað- ur hinn mesti og smíðaði meðal annars báta sína sjálfur, þá er hann notaði til að afla sér og sínum bjargar í bú. Hann vær ættaður úr Arnarfirði og bar nafn afa síns, Þórðar sonar Guðrúnar, skáldkonu frá Stapadal. Móðir Sigríðar var Jónína Þórðardóttir, hæglát og dagfarsprúð kona. Sinnti hún oft ljósmóðurstörfum, tók á móti fjölda barna og heppn- aðist vel. Sigríður eignaðist einn albróð- ur, en hann dó á fyrsta ári, en hálfsystkini átti hún. Móðir henn- ar er hafði misst mann sinn, áður en hún kom sem ráðskona að Kjaransstöðum, hafði eignast þrjú börn Jakob Margeir, Valgerði Maríu og Kristján, og komu tvö þau fyrst nefndu með henni til Kjaransstaða. Þórður, faðir Sigríðar var búinn að missa eigin- konu sína, Sigríði Árnadóttur, en með henni hafði hann eignast tólf börn, en aðeins eitt þeirra, Frið- finnur síðar bóndi á Kjaransstöð- um komst úr æsku. Það lýsir vel hörmungum þeim sem stundum gengu yfir íslenzka alþýðu á fyrri tíð, að Þórður þurfti á 17 dögum, sjálfur mjög sjúkur, að horfa á bak konu sinni og sex börnum snemma árs 1889. Þrjú uppeldissystkini átti Sigríður, því að foreldrar hennar tóku í fóstur Sigríði og Kristján Nóa börn Kristjáns bróður Þórð- ar. Sigríður dó í æsku en Kristján Nói var kunnur skipasmiður á Akureyri. Þá tóku þau einnig í fóstur Valgerði Maríu dóttur Her- manns bróður Þórðar, sem búsett er í Reykjavík. Sigríður ólst upp á Kjaransstöð- um og kom snemma í ljós að hún var vel gefin og hafði löngun til lærdóms. Hún hlaut menntun í Núpsskóla í Dýrafirði, en fór síðan til Reykjavíkur til að nema ljós- myndasmíði hjá Carii Ólafssyni, er þótti mjög fær í sinni iðn. Með myndasmíðinni lagði hún stund á margslags nám. Þar á meðal útskurð og teikningu, en hún var listhneigð mjög. Útskurð nam hún hjá Stefáni Eiríkssyni, hinum oddhaga. + Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúö og heiöruöu minningu ÖNNU S. ZIMSEN. Sérstakar þakkir færum viö hjúkrunar- og starfsfólki sjúkradeildar Hrafnistu fyrir kærleiksríka umönnun. Guö blessi ykkur öll. Jóhanna Zimsen, Hilmar B. Þórhallsson og börn. t Móöir okkar, tengdamóöir og amma HULDA INGIMARSDÓTTIR, fré Akureyri, Teigaseli 9, veröur jarösungin frá Akureyrarkirkju mánudaginn 1. okt. kl. 1.30 e.h. Daatur, tengdasynir og barnabörn. + Þökkum auösýnda samúö og vinarhua við andlát og jaröarför I JÓNSDOT ÖNNU . )TTUR og EIRÍKS JÓHANNSSONAR Lönguhlíö 12, Bfldudal. Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks á Sjúkrahúsi Patreks- fjaröar og á deild 4C Landspítalanum, fyrir góöa hjúkrun og umhyggju. Aöstandendur. Sigríður sem var glæsileg ung stúlka giftist 24. júlí 1920 norsk- um pípulagningarmanni, Peder Jakob Steffensen. Hugðust þau setjast að í Noregi og fór Peder utan til að undirbúa komu konu sinnar. Á meðan leigði Sigríður í húsi Carls Lárussonar við Spítala- stíg, stóru timburhúsi. 15. febrúar 1921 skeði sá atburð- ur er átti eftir að valda straum- hvörfum í lífi hennar. Á einni morgunstund brann húsið og missti aleigu sína. Sjálf slasaðist hún illa er hún neyddist til að henda sér niður af efstu hæð hins brennandi húss. Hún átti lengi við vanheilsu að stríða vegna slyssins og berklaveiki er fylgdi í kjölfarið. Er óvíst að hún hafi nokkurn tíma til fulls á heilli sér tekið eftir það. Atburður þessi varð til þess að maður hennar kom aftur hingað til lands og hættu þau hjónin við að flytja búferlum til Noregs. Peder gjörðist íslenzkur ríkisborg- ari og settist að í Reykjavík. Þau keyptu lítið timburhús á Grettis- götu 55. Peder vann við pípulagnir en Sigríður við ljósmyndun ásamt heimilisstörfum. Þau hjónin voru barnlaus. Sigríður varð ekkja árið 1952 og eftir það bjó hún ein í íbúð sinni á Grettisgötu 55. Hún var alla tíð mikill dýravin- ur og sýndi það í verki. Síðustu árin voru það fuglar er áttu hug hennar allan. Þær voru fjölmarg- ar dúfurnar sem hún annaðist um. Fólk kom stundum með sjúka fugla eða særða til hennar og reyndi hún að hlúa að þeim og hjúkra eftir bestu getu. Þeir voru ófáir kornsekkirnir sem fóru til fuglanna. Síðustu æviárin átti hún við mikla vanheilsu að stríða, þótt vilji hennar til að standa óstudd á eigin fótum væri í hvívetna óbilað- ur. Svo kom að lokum að Sigríður var tvívegis með skömmu millibili flutt á Landspítalann í Reykjavík og þar andaðist hún 14. september 1979 södd lífdaga. Sjónarsviptir er að þessari harðgeru hæfileikakonu, sem um langan aldur og fram til síðasta dags hafði meiri áhyggjur af sjúkum dýrum en heilsu sinni og örlögum. Friður fylgi frænku minni yfir á ný tilverustig. Anna St. Sigurðard. AIT.LYSINGA- SÍMINN ER:

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.