Morgunblaðið - 29.09.1979, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 29.09.1979, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 1979 41 + ÞESSI AP-fréttamynd hefur þótt lýsa betur en orð fá lýst þeirri angist og örvilnan sem greip fjóra litla stráka, sem voru að veiða við á eina við bæinn New Bedford í Massaschusettsfylki. Allt í einu urðu þeir þess áskynja, að vinur þeirra var horfinn. — Þeir standa hér við ána. Einn drengjanna bendir á eitthvað, sem hann heldur að sé hinn týndi vinur, en það var níu ára gamall drengur. Hann drukknaði. fclk í fréttum A barnaári + ÍBÚAR Kambódíu er það fólk sem verið hefur einna mest í fréttum heimspress- unnar undanfarna daga. — Fregnir þaðan herma, að þar deyi nú á degi hverjum þús- undir úr hungri og sjúkdóm- um. — I texta með þessari mynd, sem raunar er ekki frá þessu landi hungurdauð- ans, segir að sagan muni dæma leiðtoga landsins hvort heldur þeir eru leppar Víetnama eða stjórn Pol Pots. Leiðtogarnir verði að gera sér grein fyrir því að þeir eiga aðeins um það eitt að velja að þiggja alþjóðlega hjálp eigi þjóðin ekki að farast úr hungri og sjúk- dómum. Þessi mynd er tekin í flóttamannabúðum í Thai- landi. Móðir með barn sitt sjúkt vegna vannæringar bíður eftir því að röðin komi að þeim við læknisskoðun í búðunum. S j álfstæðisflokkurinn efnir til ráðstefnu um sjávarútvegsmál — Verður haldin í Grindavík 12. og 13. okt. Sjálfstæðisflokkurinn áformar að halda ráðstefnu um málefni sjávarútvegsins föstudaginn 12. og laugardaginn 13. október n.k. Ráð- stefnan verður haldin í félags- heimilinu Festi í Grindavík. Á ráðstefnu þessari verður fjallað um stjórnun fiskveiða í ljósi þeirr- ar reynslu, er fengizt hefur af stjórnarleiðum þeim, er þegar hafa verið notaðar, svo sem svæðalokunum, breytingum á möskva, tímabundinni stöðvun þorskveiða og loðnuveiða, breyt- ingu kvóta o.s.frv. Þá verða rædd- ar aðrar leiðir svo sem auðlinda- skattur, almennir aflakvótar og aflajöfnunarsjóðir svo og aldurs- lagatryggingar. Á ráðstefnunni verður ennfremur fjallað um efl- ingu fiskiðnaðar, fjármögnunar- leiðir, möguleika á framleiðni- aukningu og afkastaaukningu með hliðsjón af þeirri aflaaukningu sem vænta má á Islandsmiðum í framtíðinni. Fjallað verður um ástand og horfur á helztu fisk- mörkuðum m.a. með hliðsjón af útfærslu strandríkja í 200 mílur, orkuerfiðleikum, cflingu rann- sóknarstarfsemi, fiskmat, fjármál og sjóði sjávarútvegsins. Á ráð- stefnunni verða flutt framsöguer- indi um framangreind málefni auk þess sem starfshópar munu starfa. Ráðstefnan í Grindavík verður opin öllu sjálfstæðisfólki, en allan undirbúning hennar hef- ur inálanefnd Sjálfstæðisflokksins um sjávarútvegsmál annast. (Fréttatilkynning frá Sjálfstæðisflokknum.) Perusala Lionsklúbbs Hafnarfjarðar NU UM helgina gengst Lionsklúbbur Hafnarfjarðar fyrir árlegri perusölu í Hafnarfirði. Ágóði af sölunni rennur allur til líknarmála. Á undanförnum árum hefur Lionsklúbbur Hafnarfjarðar m.a. haft það verkefni á dagskrá sinni að koma á og aðstoða heimili þroska- heftra í Hafnarfirði, auk styrkja til ýmissa líknarmála. Klúbbfélögum hefur jafnan verið vel tekið af Hafnfirðingum og gera þeir sér vonir um góðar undirtektir nú. Hressingarleikfimi Kennsla hefst mánudaginn 1. okt. 1979. Kennslu- staöur: Leikfimisalur Laugarnesskólans. Byrjenda og framhaldsflokkar kvenna. Nýtt: karlaflokkur — mánudags- og fimmtudags- kvöld kl. 21.45. Fjölbreyttar æfingar allra flokka — músik-slökun. Verið með frá byrjun. Innritun og upplýsingar í síma 33290. Ástbjörg S. Gunnarsdóttir, íþróttakennari. BALLETTSKÓLI EDDU SCHEVING Skúlagötu 34 og félagsheimili Seltjarnarness Síðasti innritunardagur í síma 76350. Afhending skírteina Skúlagötu 34 mánu- daginn 1. október kl. 5—7 eftir hádegi. DANSKENNARASAMBAND ISLANDS Handbók Skáksamhands íslands — Það er ekki nóg aö kunna bara mannganginn — ★ Skáklög og keppnisreglur Fide, ásamt túlkunum * sérreglur um hraöskák ★ Monrad-, svissneska- og norræna kerfið * lög og skáklög S.i. * keppnistöflur * reglugerðir um deildákeppni, firmakeppni, skólaskák, stigareikning o.fl. o.fl. ★ Pöntunarseðill □ óskast send _______ __________ í póstkröfu O Gr. fylgir. Verð kr 6000 Útsölustaöir: Skáksambandiö, Pósthólf 674, Rvík Tímarltlö Skák, Hagamel 67, Skákhúsiö, Laugav. 46.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.