Morgunblaðið - 29.09.1979, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 29.09.1979, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 1979 47 r, KKÍ reynir að vera í takt við tímann KKÍ HEFUR á prjónunum að auka menntun innlendra körfu- knattleiksþjálfara. Uppgangur íþróttarinnar hefur verið svo mikill og ör á undanförnum árum, að KKÍ hefur ekki gert betur en að halda naumlega i við þróunina. Körfuboltinn hefur heldur betur komið undir sig fótunum hérlendis, þannig að komið hefur í ljós, að þjálfarar eru mjög af skornum skammti. KKÍ hefur nú samið áætlun sem miðar að því að kippa málum þessum i lag, eða a.m.k. að bæta ástandið. Það er einkum tvennt sem KKÍ ætlar sér. í fyrsta lagi að þjálfa leiðbeinendur í íþróttinni. Til stendur að halda námskeið, svo- kölluð A-D stigs námskeið. A-stigs námskeiðin kenna aðeins grundvallarnámsefni, sem allir íþróttaþjálfarar verða að nema, hver sem íþrótt þeirra kann að vera. B-stigs námskeiðið veitir síðan réttindi til unglingaþjálfunar. C- og D-stig eru einnig áformuð. Þegar C-stigið verður haldið, er áformað að fá bandarískan kunn- áttumann til starfa, en allur verður skóli þessi sniðinn að bandarískri fyrirmynd. D-stigið felst síðan í að starfa við þjálfun og skila síðan verkefni. Allt er þetta að fara af stað, þannig hefst fyrsta A-stigs nám- skeiðið af fjórum, sem eiga að vera í vetur. 6.-7. október og fer fram í Vörðuskóla. Ætlar KKI að reyna að halda tvö slík námskeið í Reykjavík og önnur tvö úti á landi. Fyrsta B-stigs námskeiðið á síðan að reyna að halda næsta haust. Á meðan verður að reyna að hafa ofan af fyrir upprennandi körfuboltamönnum, núverandi leikmönnum hins svokallaða minnibolta. Mikill áhugi er í þeim aldurshópi og þó að góðir og áhugasamir menn sjái þar um þjálfun, kemur ekkert í stað kunn- áttunnar, en fæstir eru minni- boltaþjálfararnir menntaðir körfuþjálfarar. T.d. hafa aðeins tveir hinna mörgu bandarísku leikmanna, sem hingað hafa kom- ið, búið yfir einhverri menntun í íþróttinni, en það eru þeir Andrew Piazza, sem lék um tíma með KR, og Mark Christensen, sem leikur nú með ÍR, en áður með Þór. Þá berst talið að hinum svokall- aða körfuboltaskóla KKÍ, sem unglingalandsliðsþjálfarinn Gunnar Gunnarsson og landsliðs- þjálfarinn Einar Bollason hafa verið að drífa á fætur að undan- förnu. Þeir fengu Mark Christen- sen til liðs við sig og Mark var á fleygiferð í Kársnesskóla í gær. Áður hafði skólinn verið haldinn í Vestmannaeyjum og síðan á Akranesi, á báðum stöðum við góðar undirtektir. Munu þeir fé- lagar ætla sér að halda fleiri slík eins dags námskeið í vetur. Eitthvað hefur heyrst að félögin sjálf ætli sér út í svipaðar aðgerð- ir, þannig hefur heyrst, að KR-ingar ætli sér með kennslu- námskeið í 12 ára bekk Melaskól- ans. Fleiri félög láta hugsanlega til sín taka á þessum vettvangi, þeirra er hagurinn, að undirbúa eigin framtíð sem körfuboltafélag. I sambandi við þessar umræður um körfuboltamenntun tilvonandi þjálfara, má geta þess, að víst hafa áður verið haldin þjálfara- námskeið, en þau hafa verið til- viljunarkennd og ekkert sérstakt námsefni 'verið útbúið. Nú hefur verið samið námsefni fyrir A-stig og næsta skrefið er að semja námsefni fyrir B-stig, og síðan koll af kolli. Þeir Einar og Gunnar sömdu A-stigs námsefnið og verð- ur það fellt inn í námsefni Grunnskóla ÍSÍ. KKI-menn vonast eftir miklum áhuga á námskeiðunum og segjast vita um mörg félög sem bíða þess eins að slík námskeið verði aug- lýst. Hægt verður að fá nánari upplýsingar um námskeiðið á skrifstofu KKÍ. Komst ekki hnífur milli ÍR og Ármanns ÍR OG Ármann skildu jöfn í Reykjavíkurmótinu í handbolta i gærkvöldi, bæði lið skoruðu 15 mörk. ÍR-ingar voru þó duglegri að skora i fyrri hálfleik, sendu þá knöttinn ellefu sinnum í net Ármanns, sem skoraði aðeins sjö sinnum. Það var töluverður kraftur í ÍR-ingum í fyrri hálfleik, a.m.k. meiri kraftur heldur en í mótherj- um þeirra. Handboltinn var þó langt frá því að vera burðugur og sendingar út í bláinn voru ekki síður mættar til leiks, heldur en sendingar til samherja. Segja má, að ÍR-ingar hafi gert heldur færri mistök í fyrri hálfleiknum. í síðari hálfleik snerist dæmið gersamlega við og aðeins fjórum sinnum tókst IR-ingum að skora. Ármenningarnir gengu á lagiö og þurftu ekki að sýna snilldartakta til að vinna upp muninn. Það gerðu þeir heldur ekki, þ.e.a.s. að sýna snilldartakta. En muninn unnu þeir upp og kræktu loks í stig sem þeir fyllilega verðskuld- uðu miðað við hrun ÍR í síðari hálfleik. Guðjón Marteinsson var mark- hæstur ÍR-inga með 6 mörk, en Björn Jóhannesson var markhæst- ur Ármenninga að sinni með 5 mörk. NICKI Lauda, einhver frægasti kappakstursmaður fyrr og siðar, tilkynnti öllum sem heyra vildu í gærkvöldi, að hann hefði ákveðið að leggja kappaksturinn á hill- una. Lauda varð oft heimsmeistari í kappakstri, lengst af á Ferrari- bifreiðum, en síðan hóf hann að aka Brabham, eftir ógnarslys sem hann lenti í. Var hann milli heims og helju um tíma eftir það og það þurfti því sem næst að líma á hann nýtt andlit. Verr gekk að hala inn stigin á Barbham-bifreiðunum og aldrei gekk kappanum verr en í fyrstu keppnunum í haust. Lauda sagði Þá léku einnig í gærkvöldi Fram og KR og lauk leiknum með sigri KR sem skoraði 19 mörk gegn 17, en staðan í hálfleik var 19—9 fyrir Fram. síðan á biaðamannafundi í Vínar- borg í gær, að hann væri búinn að fá nóg af þeirri geðbilun að aka eins og vitleysingur hring eftir hring og storka þannig örlögunum óhóflega mikið. Lauda hættir! Stórleikir í 1. umferð BÍIIÐ er að leggja drög að mótaskrá fyrir úrvalsdeildina í körfuknattleik. Samkvæmt henni, hefst keppnin í úrvalsdeildinni, laugardaginn 13. október með leikjum Njarðvík og ÍR suður frá annars vegar og leik Fram og Vals hins vegar. Á sunnudeginum eigast síðan við KR og IS. Ur því rekur síðan hver leikurinn annan, en þess má geta, að mótabók með svipuðu sniði og • Nicki Lauda hefur fengið sig mótabók KSÍ mun vera í undirbúningi hjá KKÍ. fullsaddan af þessu öllu saman. • Reykjavikurmótið í handbolta heldur áfram um helgina. Valur og Víkingur, sem hér sjást i hörkuviðureign, þykja bæði sigurstrangleg- ust í riðlum sinum. Vikingar mæta KR, en Valsmenn fá Armann til að glíma við. Handbolti um helgina FJÓRIR LEIKIR fara fram í Reykjavikurmótinu í handbolta um helgina, allir á sunnudaginn. Valur og Ármann eigast við klukkan 13.30, Víkingur og KR síðan klukkan 14.45, þá Þróttur og ÍR klukkan 16.00 og loks Fylkir og Fram klukkan 17.15. Körfubolti um helgina SEX LEIKIR verða keyrðir í gegn í Reykjavikurmótinu i körfuknatt- leik um helgina. Fara allir leikirnir fram í Hagaskólanum. Keppni á laugardaginn hefst klukkan 14.00 og leika þá KR og ÍS, þá Valur og Ármann og loks Fram og ÍR. Á sunnudaginn hefst fyrsti leikurinn klukkan 13.30 og er það viðureign Armanns og ÍS. Síðan leika ÍR og Valur og loks Fram og Fjórir íslenskir júdómenn keppa í Svíþjóð FJÓRIR islenzkir júdómenn keppa á Opna skandinavíska meistaramótinu i júdó laugar- daginn 29. september. Mótið er að þessu sinni háð i Lundi i Svíþjóð. og verða þátttakendur frá all- mörgum Evrópulöndum. Mótið er haldið árlega til skiptis á ýmsum Norðurlandanna. Það er venjulega haldið í nóvember og er því óvenjulega snemma í ár. Islenzku keppendurnir eru þess- ir: Bjarni Friðriksson sem keppir í 95 kg flokki, Sigurður Hauksson sem keppir í 86 kg flokki, Halldór Guðbjörnsson í 78 kg flokki og Rúnar Guðjónsson í 60 kg flokki. Þetta er alþjóðlegt meistaramót r s t BADMINT0N Innritun í unglingatíma hefst í dag kl. 1—3. Badmintondeild K.R.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.